Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Page 6
6
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987.
ViðskiptL
Kaffihehmirinn bíður í ofvæni
Kaffiheimurinn bíður nú í ofvæni
eftir því á hvaða verði Brasilíumenn
ætla að opna þegar þeir fara að selja
aftur á kaffimarkaðnum. Þegar sam-
komulag þjóðanna sem rækta kaffi
og þeirra sem kaupa var gert fyrir
rúmum þremur vikum voru Brasil-
íiunenn búnir að selja það mikið af
kaffi að þeir lokuðu fyrir söluna hjá
sér.
Búist er við að þeir gefi um það
yfirlýsingu um eða eftir helgi hvort
og á hvaða verði þeir ætli að selja.
Samkomulag kaffiræktenda og kaffi-
kaupenda gengur út á að halda
verðinu á miUi 120 og 140 centa fyrir
pundið af kaffibaunum. Verðið er nú
í kringum 120 cent. Því er spáð að
það fari hækkandi þar sem tilgátur
eru um að Brasilíumenn ætli að opna
söluna hjá sér á háu verði.
Hátt kaffiverð Brasilíumanna
bendir til að þeir trúi því aö frekar
lítið framboð sé af kaffibaunum á
markaðnum og að kafiikaupendur
geti ekki snúið sér í jafnríkum mæli
til annarra þjóða með kaffikaup.
Brasilíiunenn eru með um 33 prósent
af markaðnum og því mjög leiðandi
hvað verð snertir.
Verð á áh hefur síðustu vikuna
haldið áfram að lækka á markaðnum
í London. Verðið var í fyrradag kom-
ið niður í 1125 sterlingspund en var
viku áður um 1150 sterlingspund.
Verðið var á toppnum fyrir hálfum
mánuði eða um 1250 sterlingspund
fyrir tonnið.
ÁI er dollaravara, það er að gengi
dollarans ræður verðinu mjög.
Lækkandi gengi dollars að undan-
fömu er talið vera aðalorsökin fyrir
lækkandi álverði í London.
Verð á fínni ull mjakast enn upp á
við í Sydney í Ástralíu. Verðið er um
8,90 dollarar fyrir kílóið af mjög fínni
uU. Verðið á grófari uU, sem til dæm-
is Álafoss kaupir, rauk upp í um 5,30
dollara fyrir rúmum mánuði. Það
hefur sigið örlítið upp á síðkastið, er
nú um 5,20 dollarar. Áður en verðiö
hækkaði var það í kringum 4,90 doll-
ara.
Verðiö á bensíni og olíu í Rotter-
dam hefur verið tiltölulega stöðugt
síðustu vikuna og er enn á sömu
nótunum og fyrir viku. En við sýnum
hér að lokum töflu yfir verð á venju-
legu bensíni og gasolíu síðustu þrjá
mánuðina.
Bensínið hefur ætíð tilhneigingu til
að vera hátt yfír sumarið, þegar
mesti ferðamannatíminn er, og það
lækkar svo á haustin. Gasolían hefur
hækkað síðustu þrjá mánuði.
-JGH
Verð á eriendum
mörkuðum
Bensín og olía
Verð í Rotterdam, fob. 27. okt.
Bensín, venjul..165,00$ tonnið
eða um......4,77 ísl. kr. lítrinn
Bensín, súper...186,75$ tonnið
eða um......5,36 ísl. kr. lítrinn
Gasolía.........167,50$ tonnið
eða um......5,41 ísl. kr. tonnið
Hráolía
Verð í Rotterdam, fob., 27. okt.
Um..........19 dollarar tunnan
eða um......722 ísl. kr. tunnan
Gull
Peningamarkaður
Inn'án með sérkjörum
Alþyoubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir
15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæður
þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra
16 ára. 65-69 ára geta losað innstæður sínar
með 9 mánaða fyrirvara, 70-74 ára með 6 mán-
aða fyrirvara og 75 ára og eldri með 3ja mánaða
fyrirvara. Reikningarnir eru verðtryggðir og með
8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9%
nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris-
sjóðum eða almannatryggingum. Innstæðureru
óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 18%
og ársávöxtun 18%.
Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 15% en
2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttekt-
ar upp í 21%. Hvert innlegg er meðhöndlað
sérstaklega. Áunnið vaxtastig helst óbreytt óháð
úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán-
uói ef innleggið er snert. Á þriggja mánaða
fresti er gerður samanburður við ávöxtun þriggja
mánaða verðtryggðra reikninga, nú með 2%
vöxtum eftir þrjá mánuði og 4% eftir sex mán-
uði, og sú tala sem hærri reynist færð á
höfuðstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö
vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir.
Búnaðarbankinn: Gullbók er óbundin með
24% nafnvöxtum og 25,4% ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu eöa ávöxtun verðtryggðs
reiknings með 3,5% vöxtum reynist hún betri.
Af hverri úttekt dragast 0,8% í svonefnda vaxta-
leiðréttingu. Vextir færast misserislega.
Metbók er meö hvert innlegg bundið í 18
mánuði á 27% nafnvöxtum og 28,8% ársávöxt-
un, eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með
3,5% vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg
er laust að 18 mánuðum liðnum. Vextir eru
færðir misserislega.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningur er óverð-
tryggður reikningur með 20% nafnvöxtum og
23,4% ársávöxtun. Verðtryggð bónuskjör eru
3%. Á sex mánaða fresti eru borin saman verö-
tryggð og óverótryggó kjör og gilda þau sem
hærri eru. Heimilt er aö taka út tvisvar á hverju
sex mánaða tímabili. Hreyfðar innstæður innan
mánaðarins bera sérstaka vexti, nú 0,75% á
mánuði, og verðbætur reiknast síðasta dag
sama mánaðar af lægstu innstæðu. Vextir fær-
ast misserislega á höfuðstól.
18 mánaða bundinn reikningur er með 27%
nafnvöxtum og 28,8% ársávöxtun.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 24%
nafnvöxtum og 25,4% ársávöxtun. Af óhreyfð-
um hluta innstæóu frá síðustu áramótum eða
stofndegi reiknings síðar greiðast 25,4% nafn-
vextir (ársávöxtun 27%) eftir 16 mánuöi og 26%
eftir 24 mánuði (ársávöxtun 27,7%). Á þriggja
mánaða fresti er gerður samanburður á ávöxtun
6 mánaöa verðtryggðra reikninga og gildir hærri
ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast 0,8% í svo-
nefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir færast misseris-
lega á höfuðstól. Vextina má taka út án
vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxtatímabil
á eftir.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur
stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3
mánuðina 15%, eftir 3 mánuöi 19%, eftir 6
mánuði 25%, eftir 24 mánuði 27% eða ársávöxt-
un 28,8%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaða verð-
tryggðum reikningum gildir hún um hávaxta-
reikninginn. Vextir færast á höfuðstól 30.6. og
31.12.
Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 26%
nafnvexti og 27,7% ársávöxtun á óhreyfðri inn-
stæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs
reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast
misserislega. Af útttekinni upphæð reiknast
0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt-
um síðustu 12 mánaða.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu
ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum,
nú 24,88% (ársávöxtun 25,80%), eða ávöxtun
3ja mánaða verðtryggðs reiknings, sem reiknuð
er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman-
burður er gerður mánaðarlega en vextir færðir
í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda al-
mennir sparisjóðsvextir, 15%, þann mánuð.
Heimilt er að taka út vexti og vaxtaábót næsta
árs á undan án þess að ábót úttektarmánaðar
glatist. Ef ekki er tekið út af reikningnum í 18-36
mánuði tekur hann á sig kjör sérstaks lotusparn-
aðar með hærri ábót. Óverðtryggð ársávöxtun
kemst þá í 26,73-29,55%, samkvæmt gildandi
vöxtum.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Meg-
inreglan er að innistæða, sem er óhreyfð í heilan
ársfjórðung, nýtur kjara 6 mánaða bundins
óverðtryggs reiknings, nú með 21,0% ársávöxt-
un, eða 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú
með 2% vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxt-
un fyrir þann ársfjórðung.
Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok
hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið þess-
ara „kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör,
þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem
færðar hafa verið á undangengnu og yfirstand-
andi ári. Úttektir umfram það breyta kjörunum
sem hér segir: N
Við eina úttekt í fjóröungi reiknast almennir
sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskó-
kjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir fær öll
innistæða reikningsins sparisjóðsbókarvexti.
Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virk-
an dag ársfjórðungs, fær innistæðan hlutfalls-
legar veröbætur m.v. dagafjölda í innleggsmán-
uði, en ber síðan kaskókjör út fjórðunginn.
Reikningur, sem stofnaður er síðar fær til bráða-
birgða almenna sparisjóðsbókavexti en getur
áunnið sér kaskókjör frá stofndegi að uppfyllt-
um skilyrðum.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verðtryggö-
ur og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með
3,5% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja
mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með
svokölluðum trompvöxtum, 22,5% með 24,12%
ársávöxtun. Miðað er við lægstu innstæðu í
hverjum ársfjórðungi. Reynist trompvextir gefa
betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning-
inn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera
trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða,
annars almenna sparisjóðsvexti, 15%. Vextir
færast misserislega.
12 mánaöa reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra
er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverð-
tryggða en á 26,5% nafnvöxtum. Misserislega
er ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú
með 3,5% vöxtum, borin saman við óverð-
tryggða ávöxtun, og ræður sú sem meira gefur.
Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs.
Topp-bók nokkurra sparisjóða er með inn-
stæðu bundna í 18 mánuði óverðtryggða á
25,5% nafnvöxtum og 27,6% ársávöxtun eöa á
kjörum 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú
með 3,5% vöxtum. Vextir færast á höfuðstól
misserislega og eru lausir til útborgunar á næsta
vaxtatímabili á eftir. Sparisjóöirnir í Keflavík,
Hafnarfirði, Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði,
Ólafsfirði, Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd, Nes-
kaupstað, Patreksfirði og Sparisjóður Reykjavík-
ur og nágrennis bjóða þessa reikninga.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verö-
bréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veöi
undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf-
in eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggð og
með mismunandi nafnvöxtum. Algengustu
vextir á óverðtryggðum skuldabréfum vegna
fasteignaviðskipta eru 20% eða meðalvextir
bankaskuldabréfa. Þau eru seld með afföllum
og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verð-
tryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkisins
getur numið 2.688.000 krónum á 3. ársfjórð-
ungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á
síðustu þrem árum, annars 1.882.000 krónum.
Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.882.000
krónum, hafi viökomandi ekki átt íbúð á sl. þrem
árum, annars 1.317.000 krónum.
Undantekningar frá þriggja ára reglurini eru
hugsanlegar vegna sérstakra aðstæöna.
Lánin eru til allt að 40 ára og verðtryggð.
Vextir eru 3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins
verðbætur og vextir, síðan hefjast afborganir
af lánunum jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári.
Útlán lífeyrissjóðá
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður
ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæðir,
vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er
30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn láns-
rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru
mjög mishá eftir sjóðum, starfstíma og stigum.
Lánin eru verðtryggð og meö 5-9% vöxtum,
algengastir eru meðalvextir, nú 8,1%. Lánstími
er 15-42 ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt
er að færa lánsrétt við flutning milli sjóöa eða
safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaðir í
einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og
lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxta-
vextir og ársávöxtunin verður þá hærri en
nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10%
nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímabilsins
1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé
innstæðan óverðtryggð í veröbólgu dregur úr
raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn-
vel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6
mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og
ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6
mánuðina. Á endanum verður innstæðan því
1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,5% á mánuði eða 42% á
ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í september 1987 er 1778
stig en var 1743 stig í ágúst. Miðaðervið grunn-
inn 100 I júní 1979.
Byggingarvisitala fyrir september 1987 er
324 stig á grunninum 100 frá 1983, en 101,3
á grunni 100 frá júll 1987.
Húsalelguvísitala hækkaði um 9% 1. júlí.
Þessi vlsitala mælir aðeins hækkun húsaleigu
þar sem við hana er miðað sérstaklega I samn-
ingum leigusala og leigjenda. Hækkun vlsi-
tölunnar miðast við meðaltalshækkun launa
næstu þrjá mánuði á undan.
INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst
Sparisjóðsbækur ób. Sparireikningar 14-17 Lb.Úb Úb
3ja mán. uppsögn 15-19
6mán. uppsögn 16-20 Úb.Vb
12 mán. uppsögn 17-26,5 Sp.vél.
18 mán. uppsögn 25,5-27 Bb.lb
Tékkareikningar 6-8 Allir nema Vb
Sér-tékkareikningar Innlán verðtryggð 6-17 Ib
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn Innlán meðsérkjörum Innlán gengistryggð 3-4 14-24,32 Ab.Úb Úb
Bandaríkjadalir 5,5-6,5 Ab.Vb
Sterlingspund 8,25-9 Ab.Úb. Vb
Vestur-þýskmörk 2,5-3,5 Ab.Vb
Danskarkrónur 9-10,5 Ib
ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst
Almennir víxlar(forv.) 28-29,5 Bb,Lb
Viðskiptavíxlar(forv.) (1) 30,5-31 eöa kge
Almennskuldabréf 29,5-31 Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) Útlán verðtryggð 30 Allir
. Skuldabréf Útlán til framleiðslu 8-9 Lb
Isl. krónur 28-29 Vb
SDR 8-8,25 Bb.Lb, Úb.Vb
Bandaríkjadalir 8,5-8,75 Bb.Úb, Vb
Sterlingspund 11,25- 11,75 Sp
Vestur-þýsk mörk 5,5-5,75 Bb.Sp, Úb.Vb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 42
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. sept. 87 29,9
Verðtr. sept. 87 VÍSITÖLUR 8,4%
Lánskjaravísitala sept. 1778stig
Byggingavísitala 1 sept. 324 stig
Byggingavísitala 2 sept. 101,3 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaöi 9% 1. júlí
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða (uppl. frá Fjárfestingarfélaginu):
Ávöxtunarbréf 1,2777
Einingabréf 1 2,301
Einingabréf 2 1,356
Einingabréf 3 1,422
Fjölþjóðabréf 1,060
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,369
Lífeyrisbréf 1,157
Markbréf 1,207
Sjóösbréf 1 1,156
Sjóósbréf 2 1,118
Tekjubréf HLUTABRÉF 1,250
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 114 kr.
Eimskip 278 kr.
Flugleiðir 196 kr.
Hampiðjan 118 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 119 kr.
Iðnaðarbankinn 143 kr.
Skagstrendingurhf. 182 kr.
Verslunarbankinn 126 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 160 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast í DV á fimmtudögum.
Verð í London 28. okt.
Um...........476 dollarar únsan
eða um.......18.088 ísl. kr. únsan
AI
Verð á áli í London 26. okt.
Um....1125 sterlingspund tonnið
eða um.....72.900 ísl. kr. tonnið
;;t v ' •
Ull
Verð í Sydney, Ástralíu
Um 890 cent kílóið
eða um 338 ísl. kr. kílóið
Bómull
Verð á bómull í New York
Um 70 cent pundið
eða um 58 ísl. kr. kílóiö
Hrásykur
Verð í London
Um .150 dollarar tonnið
eða um 5.700 ísl. kr. tonnið
Sojamjöl
Verð í Chicago
Um 177 dollarar tonnið
eða um 6.726 ísl. kr. tonnið
: 1» mm
Kaffibaunir
Um..........120 cent pundið
eða um......2,64 dollarar kílóið
eða um......100,32 ísl. kr. kílóið
Á
í myrkri gildir
að sjást.
Notaðu endurskinsmerki!
mÉUMFERÐAR FamheÉt
Uráð