Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 16
16
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987.
Spumingin
Ert þú farin(n) að kaupa
jólagjafir?
Jóna Einarsdóttir: Nei, ekki svona
snemma. Lágmark aö kominn sé des-
ember.
yfirleitt fáar jólagjafir, og helst bæk-
ur, ef eitthvað.
Jón Ari Gíslason: Ég er nú ekki byrj-
aður á því ennþá. Hugsanlega fer
maður til Glasgow fyrir jól. Maður
sér til.
.. ........
Elínborg Þorgeirsdóttir: Nei, það geri
ég bara á síðustu stundu.
Kristín G. Sigurðardóttir: Nei. Ég
kaupi þær aldrei svona snemma.
Hörður Sigurðsson: Nei. Konan sér
líka alveg um þann helgidóm.
Lesendur
Frá gamla vesturbænum í Reykjavik.
Gömlu húsin og eldra fólkið
Björn skrifar:
Húsnæðisláníikerflð hefur nú verið
til umræðu síðustu daga og sýnist
þar sitt hverjum eins og gengur. Ég
var að lesa sunnudagsleiðara helg-
ar-Tímans nú um síðustu helgi, þar
sem einmitt þessi mál eru rædd, og
gaf leiðarinn mér tilefni til að hripa
niöur nokkra punkta um málið.
Það er hægt að taka undir sumt af
því sem þar stendur, eins og það, aö
vissulega hafi íbúðaverð rokið upp
úr öllu valdi, frá því núverandi lög
gengu í gildi. Síðan er sagt að íbúða-
seljendur og kaupendur viti vart sitt
rjúkandi ráð og spyrji sig hvort eigi
að selja eða kaupa í dag eða á morg-
un. Hvað það muni græða mikið eða
tapa miklu með því að bíða eða bíða
ekki.
Allt er þetta rétt og satt. En síðan
spyr leiðarahöfundur helgarTímans
hvort ekki sé tekinn skakkur póll í
hæðina og hvernig væri að taka á
málunum í víðara samhengi og fer
að ræða eldri hverfi borgarinnar, svo
sem gamla vesturbæinn, þar sem búi
eldra fólk, jafnvel orðið eitt í tvö til
þrjú hundruð fermetrum, sem geri
lítð annað en baga það.
Og síðan er spurt: „Hvers vegna
ekki nýta auðu svæðin í þessum
grónu hverfum og byggja þar íbúöa-
kjama, sem hentar þessu fólki?“
Þá er bent á að yngra fólk, fullt af
starfsorku, gæti keypt þessi gömlu
hús og skólarnir, sem standa hálf-
auðir í þessum hverfum, myndu
fyllast af börnum og líf færast í göt-
umar.
Allt er þetta gott og blessað og fullr-
ar umræðu þörf. Hitt er á að líta að
flest þetta gamla fólk er búið að búa
þarna allan sinn búskap og vill bara
ekkert fara úr húsum sínum, jafnvel
þótt nýr íbúðakjarni væri til staðar.
En ekki bara það. Heldur líka hitt
að þetta fólk fær ekki þá peninga
fyrir eignir sínar sem sannvirði get-
ur talist. Og það er ekki ginnkeypt
fyrir því að aíhenda hinu opinbera
(eða í þessu tilfelli borginni) andvirði
sölu íbúðar sinnar eða húss til að fá
einhverja 2ja eða 3ja herbergja íbúð
fyrir næstum sama verð og það seldi
sína eign.
Málið er nefnilega það að þessar
nýju íbúðir, sem verið er að bjóða
öldmðu fólki til kaups eru á óheyri-
lega háu verðlagi og engan veginn í
takt við hugsun þessa eldra fólks.
Yngra fólk, jafnvel fullt af starfs-
orku, er engir borgunarmenn fyrir
húseignum á borð við þær sem
finnast í gömlu og grónu hverfi sem
vesturbærinn er.
Þetta mun því eiga eftir að hafa
sinn gang enn um sinn, að gamla
fólkið í eldri hverfunum sitji bara í
sínum íbúöum og hverfi þaðan til
feðra sinna eða, eins og í flestum til-
fellum, að afkomendur taki við
eignunum að þeim eldri gengnum.
Margt eldra fólk, sem finnst það
geta minnkað við sig, reynir að leigja
út frá sér og það kemur mjög vel út
fyrir báða aðila. - Að öðru leyti mun
fátt breytast í þeim efnum, og kanske
mætti bæta við: sem betur fer.
Hringiö í síma 27022
milli kl. 13 og 15,
eða skrifiö.
Vantartóbaksbúð
í Kringluna
Sigurður Jónasson skrifar:
Eg hef haft fyrir sið að fara í Kringl-
una svona einu sinni í viku eftir að
hún var opnuð, oftast á laugardög-
um. Það er hin besta afþreying og
finnst mér sem ég sé kominn hálfa
leið til útlanda. En eins og allir vita
er það ein eftirsóttasta „salíbuna“
okkar íslendinga að komast sem oft-
ast burt af landinu.
Eins og áður sagði hef ég miklar
mætur á Kringlunni, þessum nýja
verslunarstað. Þar vantar aðeins
eina tegund verslunar, góða tóbaks-
búð.
Ég tel það ekki tóbaksbúð, homið
þar sem hægt er að fá takmarkað
úrval tóbaksvara, í innganginum að
matvöruverslun Hagkaups.
Það er helv... hart að geta ekki
keypt þarna almennilega vindla eða
píputóbak. í dag er aðeins hægt aö
kaupa fáar tegundir vindlinga, svo
og „barnavindla“, þ.e. litla dömu-
vindla og meðalstóra vindla fyrir
„byrjendur".
Ég get ekki hugsað mér að gera
þarna jólaverslun án þess að eiga
kost á því að geta keypt allt á staön-
um, þ.m.t. góða vindla í kössum
(helst danska) og í lausu. í slíkri
verslun þarf líka að fást annað það
sem tóbaksmenn nota daglega,
kveikjarar, pípur, vindlaveski, o.s.
frv.
Vona að þessu verði kippt í lag fyr-
ir jólin.
Hvernig verður farið með greiðslu bifreiðastyrks til ríkisstarfsmanna? spyr
Einar.
BHreiðastyrkur hins opinbera:
Verður hann
skattlagður?
Einar hringdi:
Vegna breytts fyrirkomulags um
skattgreiðslur og staðgreiðslukerfi
væri ekki úr vegi að hið opinbera
sendi frá sér upplýsingar um hvernig
það muni haga greiöslum á bifreiða-
styrk til starfsmanna sinna.
Ef menn vilja losna við að greiöa
skatt af þessum styrk þurfa menn
þá ekki að segja upp samningi við
ríkið fyrir 1. desember nk.? Þannig
hef ég skilið að framkvæmdin muni
vera.
En þetta er sem sé spuming hvem-
ig með skuli fara. Þess vegna finnst
mér ekki seinna vænna að opna
málið til umræðu og upplýsinga fyrir
viðkomandi aðila.
Orðsending til ráðamanna í borginni:
Byggjum yfir endumar
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Ég kem stundum niður að Tjöm
og nýlega gaf ég blessuðum öndunum
smábita. Eg er viss um að þær eru
bæði svangar og kaldar.
Mér finnst ófært annað en borgar-
yfirvöld ráði einhvem til að hugsa
betur um þær daglega. Ég vildi láta
byggja yfir þær smáhús sem þær
gætu haft afdrep í þegar verst er veð-
rið, t.d.í hörkufrostum og kuldum.
Væri það ekki skynsamlegra en ráð-
hús?
Mér finnst að borgin ætti að gefa
blessuðum öndunum þetta í jólagjöf.
Guð launar þeim sem láta gott af sér
leiða. Ég vona að þetta verði nú fram-
kvæmt sem fyrst. Þetta gætu t.d.
verið nokkur smáhús sem væm á
Tjöminni sjálfri. - En hvar er nú
Dýravemdunarfélagið?
Endurnar og Tjörnin, órjúfanleg heild.
Skortur á
leigubílum á
stæði
Kona hringdi:
Ég sakna þess að geta ekki náð
í leigubíl viö bílastæði Hreyfils
við Arnarhól vestanverðan þar
sem sú stöð hefur bílastæði.
Ég vinn þarna í nágrenninu og
þarf oft að ná í leigubíl að kvöld-
lagi og eins um helgar. Oftar en
ekki grípur maður í tómt þegar
komið er að bílastæði Hreyfils
þarna og getur þá biðin reynst
lengri en góðu hófi gegnir.
Ég mælist til þess að bílstjórar
Hreyfils reyni aö koma til móts
við óskir þeirra er hafa haft hag-
ræði af því að geta náð þarna í
bíl frá stöðinni.