Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987. 13 Létt og gott Á Egilsstöðum er starfræktur mat- reiðsluklúbbur sem ber nafnið Létt og gott. Markmið hans er að kynna klúbbmeðlimum matreiðslu og þá matreiðslu sem er hitaeiningasnauð- ari en'gengur og gerist. Einn af forsvarsmönnum klúbbs- ins er Svanfríður Hagvaag. Hún ætti að vera lesendum DV að góðu kunn en hún sér um þætti um hollustu- fæði hér á Neytendasíðu á mánudög- um. Létt og gott hefur nú sent frá sér uppskriftamöppu og er hægt að ger- ast áskrifandi að uppskriftum í möppuna en sendar eru um 30-35 uppskriftir mánaðarlega. Áskriftar- gjcdd er kr. 295 fyrir hvern mánuð. Möppunni fylgja nokkrar upp- skriftir og er ekki annað að sjá en þar séu hinir gómsætustu réttir á ferðinni. Einn sá frumlegasti er kannski uppskrift að sítrónukrydd- legnum kjúkhngabringum en hún hljóðar svo: Sítrónukryddlegnar kjúklinga- bringur Rifið hýði af einni sítrónu Safi úr einni síti ónu 'A bolli sykurskertur aprikósugraut- ur 1 msk. sterkt sinnep 1 stór hvítlauksbátur, fínsaxaður 14 tsk. salt 'A tsk. pipar 4 litlar kjúklingabringur með beini % bolh vatn Blandið saman sítrónuberki, sítr- ónusafa, apríkósugraut, sinnepi, hvítlauk, salti og pipar í lítinn pott. Látið suðuna koma upp og látið malla án loks í u.þ.b. þrjár mínútur. Kælið sósuna. Fjarlægiö skinnið af kjúklinga- bringunum. Leggið þær í ofnfast mót. Penslið vel með sósunni. Leggið yfir plastfilmu og kælið í ísskáp í átta klukkutíma, eða helst yfir nótt. Hitið þykkbotna pönnu og bræðið ögn af feiti. Smyrjið kjúklingabring- urnar aftur með sósunni og geymið afganginn. Leggið stykkin með kjöt- hliðina niður í pönnuna. Steikið við meðalhita í tvær til þijár mínútur, eða þar til bringurnar eru brúnaðar. Snúið þeim þá við og skafið upp af botninum í pönnunni. Hellið á pönn- una 'A bolla af vatni. Setjið þétt lok á pönnuna og minnkið hitann. Látið malla í 15-20 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er gegnsoðinn. Færið hann yfir á heitt fat og haldið honum heitum. Hrærið afganginn af sósunni út í soðið á pönnunni og látið suðuna koma upp. Sjóðið í 1-2 mínútur og hrærið á meðan. Hellið sósunni yfir kjúkhnginn og berið strax fram. Rétturinn dugar fyrir fjóra og eru u.þ.b. 195 hitaeiningar í skammti. -PLP Fyrsta síðan i möppunni. Hreinsið stálvaskinn Þvottaefni fyrir uppþvottavélar er hið besta hreinsiefni fyrir stál- vaska. Að sögn kunnugra er nóg að setja örlítið af efninu í vaskinn og skrúbba vel. Þá á vaskurinn að skína sem aldrei fyrr. Gerið gömlu skóna sem nýja Vélarhreinsiefni, sem leysir upp feiti, olíu og skít af bifvélum, er unnt að nota th að hreinsa gamla skó sem eru orðnir ónýtir vegna bletta, of mikils magns af silíkoni og skóáburði í röngum lit. Þynnið efnið og skrúbbið skóna með klút vættum í því. Að lokum skuluð þið bera hnakkafeiti á skóna og þá ættu þeir að vera orðnir sem nýir. Röriðaf teppinu Tepparúllum er oft pakkað í plaströr. Hægt er að nota þessi plaströr sem rennur á gróðurhúsið eða garðskálann með því að skera þau eftir endilöngu. Hlutarnir eru síðan bræddir saman með logsuðu- tæki. Neytendur Við rákumst á þessar dósir í einni versluninni. Það er hins vegar algengt að verð sé mismunandi á sömu vörutegund í hverri verslun. DV-mynd BG Mismunandi verð á sömu vörutegundum Er við vorum að vinna við verð- Þar var á ferðinni verð úr mismun- ið er að versla. Það er aldrei að vita könnunina, sem birtist annars staðar andi vörusendingum og jafnvel úr nema eitthvað finnist á „gamla verð- á síðunni, veittum við því athygli að fleiri en einni sendingu. inu“. oft var fleira en eitt verð á sömu Það er því full ástæöa th þess að vörutegundinni. athuga gaumgæfilega verð þegar far- -PLP Káifakjöt er bæði meyrara, magrara og ódýrara en annað kjöt. DV-mynd BG. Er við vorum að vinna við verð- könnun rákumst við á kálfakjöt í einni versluninni. Af einhveijum ástæðum er kjöt þetta meö því ódýrasta sem fæst, en það er einnig með því besta sem th er. Kjötið er af ungkálfum og sést ekki á því fita. Það er einnig mjög meyrt og vel þess virði að gefa því gaum. Eins og sést á meðfylgjandi mynd er verðið hlæghegt. Þannig kostaði lærið kr. 285 hvert khó, kótelettur kr. 264,'leggir kr. 220 og lærissneið- ar kr. 383. Th samanburðar má geta þess að tómatar kosta í kring- um kr. 250 hvert khó. Kjötið fékkst í versluninni Garða- kaupi í Garðabæ og kemur sjálfsagt í fleiri verslanir innan tíðar. -PLP AUGLÝSING Tryggingastofnun ríkisins Styrkir til bifreiðakaupa til hreyfihamlaðra. Umsóknarfrestur er framlengdur til 15. nóvember. Umsóknareyðublöð liggja frammi í Tryggingastofnun ríkisins og hjá umboðsmönnum hennar um allt land. AFGREIÐSLUNEFND

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.