Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987. 7 Skoðanakönnun Hagvangs: Framsókn með fylgi 24% þeirra sem tóku afstöðu - 81,2% þetra sem taka afstöðu styðja hvalveíðar í vísindaskyni Hagvangur birti í gær niöurstöð- ur skoðanakönnunar á fylgi stjóm- málaflokkanna sem fyrirtækið gerði vikuna 16. til 35. október en samkvæmt könnuninni er fylgi Framsóknarflokksins 24% á meðan fylgi Sjálfstæðisflokksins er 28,7% ef aðeins era teknir þeir sem af- stöðu tóku í könnuninni. Fylgi Alþýðubandalagins, ef að- eins eru teknir þeir sem tóku afstöðu, er 8,9%, Alþýðuflokksins 13,2%, Samtaka um kvennalista 14,5%, Flokks mannsins 1,4%, Sér- framboðs Stefáns Valgeirssonar 0,4%, Þjóðarflokksins 1% og Borg- araflokks 7,9%. Úrtakið var 1.000 manns og fengust svör frá 782 ein- staklingum. Könnunin var gerð símleiðis. Spurt var: „Ef efnt yrði til alþingis- kosninga á næstu dögum, hvaða stjómmálaflokki eða samtökum myndir þú greiða atkvæði?" Tæp- lega 34% aðspurðra gáfu ekki upp afstöðu sína, voru óvissir, ætluðu ekki að greiða atkvæði eða ætluðu að skila auðu. í könnuninni kom það fram að fylgni kjósenda við flokka sína var á bilinu 71,2% til 92,4%. Þannig ætluðu 71,2% þeirra sem kusu Al- þýðubandalagið síðast að kjósa það aftur, 76,4% kjósenda Alþýðu- flokksins ætluðu að kjósa þann flokk aftur, 92,4% kjósenda Fram- sóknarflokksins ætluðu að kjósa flokkinn aftur, 90,9% kjósenda Kvennalista ætluðu að endurtaka kosningima, 91% kjósenda Sjálf- stæðisflokksins og 86,5% Kjósenda Borgaraflokksins hugðust greiða flokkunum atkvæði á ný. Þá var spurt að því hvaðan fylgi flokkanna kæmi miðað við það sem kosið var síðast og kom þar fram að 17,1% kjósenda Kvennalistans koma frá Alþýðubandalagi. Þá var spurt um stuðning við rík- isstjórnina og sögðust 46,8% aðspurðra styðja ríkisstjórnina, 31,7% kváöust andvígir, 17,6% sögðust ekki vita og 3,8% neituðu að svara. Ef aöeins eru teknir þeir sem afstööu tóku styðja tæplega 60% ríkisstjómina en hðlega 40% eru andvígir. í könnuninni kom það fram að konur styðja Kvennalistann í rík- ari mæli en karlar. Framsóknar- flokkurinn sækir mest af fylgi sínu út fyrir höfuðborgarsvæðið og kjósendur Sjálfstæöisflokksins eru flestir af höfuðborgarsvæðinu. Fylgi flokkanna með tilliti til ald- urs reyndist nokkuð breytilegt. Fylgi Alþýðuflokksins reyndist minnst á meðal þeirra sem voru á aldrinum 30 til 49 ára en fylgi Al- þýðubandalagsins taldist mest hjá þeim sem elstir vom, hjá fólki yfir 50 ára, og sama mátti segja um kjós- endur Borgaraflokksins. Hins vegar sótti Kvennalistinn minnst af fylgi sínu til elstu kjósendanna. Þá var einnig spurt um afstöðu íslendinga til hvalveiða í vísinda- skyni og sögðust 81,2% þeirra sem afstööu tóku vera þeim fylgjandi en 18,8% sögðust vera andvíg. Af þeim sem spurðir vom höfðu 18,5% ekki skoðun á máhnu. -ój Stjómmál Ólafur Ragnar Grímsson og fréttamennimir Helgi E. Helgason og Atli Runar Halkf- órsson að kanna hvemig Ijósataflan flokkar Karvel. DV-mynd GVA Kaivel flokkaður með sljómariiðum Á Alþingi hafa menn velt því fyrir sér hvort tejja beri Karvel Pálmason, þing- mann Alþýðuflokksins á Vestfjörðum, hl stjómarhða eða sljómarandstæðinga. Ólaftir Ragnar Grímsson, varaþingmað- ur Alþýðubandalags, bar upp þessa spumingu vegna nýrrar tölvuvæddrar jjósatöflu í Alþingishúsinu, sem ekki aðeins segir hl um hve margir þing- menn em staddir í húsinu á hverjum tima heldur einnig hve margir sljómar- hðar og hve margir stjómarandstasðing- ar. í þós kom að Karvel er flokkaöur með stjómarliðinu. Hins vegar er Stefan Valgeirsson flokkaður með sljómarandstæðingum. „Eg gef ósköp htið fyrir tölvumerking- ar. Ég skiph mér út af fyrir sig ekkert af þvi hvemig ég er flokkaður á þessari töflu,“ sagði Karvel er DV spuröi hvort það væri rétt flokkun á fjósatöflunni að telja hann hl stjómarliða. „Ég er að sjálfsögðu í þingflokki Al- þýðuflokksins en tek afstöðu til mála, eins og stjómarskráin og eiðstafur þing- manna gera ráð íyrir, eftir sannfæringu minni," sagði Karvel. Um það hvort hann væri í stjóm eða stjómarandstöðu sagði Karvel: „Það getur verið á báða vegu. Hver og einn þingmaður getur verið bæði stjómarhði og stjómarandstæðingur.“ -KMU A A A i VL m Opið laugardaga E —1 9-16 EUROCARD A i VINNUFATABÚDIN LAUGAVEGI76 — HVERFISGÖTU 26

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.