Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987. Menrting__________ Hvað er lan McEwan. Steinsteypugarðurinn (The Cement Garden á frummálinu). Einar Már Guðmundsson þýddi. Almenna bókafélagið 1987. Heimilisfaðir nokkur vill steypa yfir garð sem hann hefur lagt mikla vinnu í að skipuleggja og rækta en getur ekki lengur sinnt vegna hjartabilunar. Hann kaupir ókjör af sementi en ofreynir sig við vinn- una og deyr frá konu og fjórum börnum. Skömmu eftir andlát föð- urins veikist móðirin og deyr. Systkinin vilja ekki tilkynna and- látið af ótta við að heimilið verði leyst upp og koma líkinu undan með þvi að nota afganginn af sem- enti fóðurins til að steypa líkið inni í kjallara hússins. En þetta leysir ekki vandann. Líkið rotnar og steypan springur svo að lyktin smýgur um allt hús. Systkinin geta ekki látið eins og vandamáhð í kjallaranum sé ekki til á efri hæð- unum. Togstreitan, sem þarna skapast, myndar spennu semleggst á persónur sögunnar jafnt sem les- andann. Sögumaður er næstelstur þeirra systkina, bólugrafmn og sveittur unglingur sem þvær sér aldrei og lyktar í samræmi við það, fróar sér einu sinni til tvisvar á dag og hrekkir leikfélaga Utla bróður síns með því að ljúga að honum að mamma hans sé dáin. í frásögn sögumanns er þetta lífsmynstur nokkuð eðlilegt og það er aðeins af viðbjóði annarra persóna sem viö erum minnt á að þetta sé fyrir neðan allar hellur. Fólk missir matarlyst ef hann kemur nálægt matnum og yngri systirin lýsir honum í dagbók sinni sem ofstopa- manni sem systkinum hans stafar sífelld ógn af. Hrjúft yfirborð Sjónarhornið takmarkast af því að sögumaður er sjálfur þátttak- andi í atburðarásinni og of ungur til þess að hafa yfirsýn og fullan skilning á þeim atburðum sem hann er að lýsa. Hann segir einung- is frá þvi sem hann sér og heyrir. Hann veit ekki hvað er á seyði, hvað systur hans eru að hugsa og tala saman. Frásögnin verður jafnvel köld og tilfinningalaus á yfirborðinu þó að undir niðri brjótist miklar tilfmn- ingar. Þannig endurspeglar mál- notkunin þann vanda sem ghmt er við í bókinni: þó að yfirborðið sé hrjúft eins og steypan þarf það ekki að lýsa því sem undir býr. Þaö er engin leið að fela tilfinningar sínar eða raunveruleikann með því að steypa yfir hann. Slíkur feluleikur hlýtur að mistakast og fyrr eða síð- ar springur það út sem þannig er lokað inni. Við getum ekki hólfaö tilveruna niður og geymt öh vanda- máhn í sérherbergi eða kjahara og gleymt þeim um leið og við lokum á eftir okkur. í bókinni dettur körlunum þó í hug að þetta sé hægt. Faðirinn fær þá spjöhu hugmynd að steypa yfir garðinn eftir að hafa árum saman haldið tilfmningalífi flölskyldunn- ar í greip sinni og stýrt því eftir ákveðnum snyrtilegum brautum ________________DV í kjallaranum? hkt og hann skipulagði garðinn. Móðirin stendur aftur fyrir hin mjúku gildi en fær ekki að gert og tærist upp og deyr. Mannlíf í stórum blokkum Það er síðan eldri sonurinn, sögu- maður okkar, sem stingur upp á að steypa yfir lík móðurinnar til Bókmenntir Gísli Sigurðsson að forðast afleiðingar dauða henn- ar. En þessi viðleitni er til einskis nema á yfirborðinu eins og sést líka á því þegar htli bróðirinn, Tom, gefst upp fyrir harðneskjulegri strákaveröldinni í skólanum og óskar sér þess að hann væri stelpa - af því að stelpur eru ekki lamdar! Systur hans taka þessu fagnandi og klæða hann í kjól og láta eins og þar með sé máhð leyst. Þetta er jafn vond lausn og að steypa yfir garðinn th að hafa röð og reglu á hlutunum. Tom heldur áfram að vera strákur og ef breytinga er að vænta verða þær að verða á honum sjáifum. Karlmaöurinn verður að breyta sjálfum sér en ekki breyta sér í konu. Hús fjölskyldunnar stendur við götu þar sem áöur var blómleg byggð. Önnur hús við götuna hafa verið eyðhögð og þeir einstaklingar sem þar bjuggu horfið. En mannlíf- ið heldur áfram í stórum blokkum þar sem fólkinu er lýst sem hóp án einstakhngseinkenna. Samskiptin einkennast af tortryggni og ofbeldi eins og þegar sögumaður okkar hittir konu sem hann hélt fyrst að væri móðir sín eða systir og hún heldur strax að hann ætli að ræna sig. Þrátt fyrir nábýlið nær fólk ekki saman. Hver og einn er lokað- ur inni í sinni skel og hræddur við aðra. „Grænar blúndur“ Steinsteypugarðurinn er blátt áfram saga, ákaflega knöpp, stutt og ofurvandlega unnin. Ian McEw- an er meðal allra bestu höfunda á Bretlandi og því telst það th tiðinda að Einar Már Guðmundsson hafi snarað þessari fyrstu skáldsögu hans frá 1978 yfir á íslensku. En hvað gerist? Bókin kemur út hjá lokuðum bókaklúbbi Almenna bókafélagsins og er ófáanleg í bóka- búðum. Eina leiðin til að nálgast hana er að finna út hvaða frændi, frænka eða vinur er í klúbbnum og nota síðan nafn hans eða hennar th að ná bókinni út úr forlaginu. Þetta eru furðulega fomeskjulegir viðskiptahættir og minna helst á læsta dagskrá Stöðvar tvö. Þýðing Einars Más er hpur og nær vel þeim heildarblæ sem er á stílnum - sem hlýtur ahtaf að vera mesti vandinn. En svo má ahtaf lan McEwan. deha um einstök orð eins og hvort er betra að segja: „Það var ekki ég sem drap pabba“ (bls. 7) eða: „Ég drap ekki fóður minn“ th að ná merkingu enskunnar: „I did not kih my father“. Eins má fmna að þvi að enska lagið um „Greensleev es“ er hlþekkjanlegt undir heitinu „Grænar blúndur" og göngulag sögmnanns þegar hann gengur á „ökklunum" (bls. 81) htur undar- lega út þangað th maður flettir upp í ensku útgáfunni þar sem hann gengur á „the sides of my bare fe- et“. Hér hlýtur að vera átt við það svæði fótarins sem kallað er jarki. -GS Faðirinn Sigurður Karlsson í hlutverki sinu sem höfuðsmaður og faðir. Faðirinn eftir August Strindberg hefur veriö sýndur undanfarið í Iðnó í nýrri þýðingu. Faðirinn hefur löngum verið umdeht leikrit. Sumir hafa tahð það lýsa mikilh kvenfyrirhtningu og hatri og hefur öðrum verkum Strindbergs verið haldið mun meira á lofti hin seinni ár. Margt er óvenjulegt við upp- færslu Leikfélagsins á verkinu og vert að taka leikstjóra sýningar- innar, Svein Einarsson, tah. Hann var því gómaður í hádeginu dag einn og rætt viö hann um feöur, mæður og böm: „Það æxlaðist þannig að þegar ég fór í nám þá fór ég til Svíþjóðar. Hver þjóð leggur náttúrlega rækt við sína stærstu höfunda og berast því böndin fljótlega að Strindberg í leikhúsfræði og bókmenntanámi. Ég hef því séö mikið af Strindberg sýningum en þrátt fyrir þetta hefur það hist þannig á að ég hef aldrei séð Föðurinn á sviði áður sem er mjög einkennileg thvhjun. Þetta hefur veitt mér að sumu leyti dáld- ið skemmtilegt frelsi þegar við vorum að vinna að sýningunni í leikhúsinu. Alltaf þegar maður tekur fyrir síght verk eða verk sem er orðið svona svohtið virðulegt meö aldr- inum, þá kemur alltaf upp spurn- ingin um hvaða erindi á það við nútímann, við erum ekki að leika fyrir fólk fyrir hundrað árum, við erum að leika fyrir okkar áhorf- endur og vhjum snerta þá. Barátta kynja í hjónabandi sem getur verið fuhkomin samræming og friðsamleg undir öðrum kring- umstæðum getur breyst í and- stæðu sína þegar skerst í odda og dæmi um slikt er skilnaður. Skilnaðir eru mun algengari nú á tímum heldur en á dögum Strind- bergs en þá er hann að fjalla um hvemig bam verður bitbein og hvernig foreldrarnir vhja bæði hvort um sig láta rætast í baminu það sem þeim finnst ekki hafa ræst í þeim sjálfum. Þetta snertir óheyrhega marga í dag og eins og hann veltir upp þess- um spumingum þá hafa aðrir ekkert gert það betur þó þeir hafi komið seinna th sögunnar til þess að skrifa um þetta. Eitt af hvörfunum er svo ofbeldi á heimilum þegar höfuðsmaðurinn kastar logandi olíulampa í konu sína. Þama hefur innihald verksins aukið gildi því það kemur inn í umræðu dagsins í dag. Þetta vhd- um við undirstrika. Menn hafa hneigst til að halda að boðskapur skáldsins sé einhvers konar kvenhatur og þess vegna verði konan að vera flagð. Þetta finnst okkur vera ákaflega gamal- dags teatralskt sjónarmið. Auðvit- að er Strindberg það mikiö skáld að hann gefur öllum sínum persón- um skiljanlegar forsendur og við Sveinn Einarsson leikstjórí. undirstrikum það. í sýningunni eru þau tiltölulega ung og ýtir það undir örvæntingu þeirra yfir að sitja föst, það er ekki komin nein uppgjöf í þau gagnvart líflnu, þeim fmnst eins og mögu- leikamir séu að renna þeim úr greipum. Við hugsum okkur að hún sé ekki nema 16-17 ára þegar hún er gefin úr fóðurhúsum. Hún hefur enga menntun og býr í sam- félagi sem ekki býður henni upp á neina kosti ef hún skhur viö mann sinn og gengur út. Hún er gjörsam- lega réttlaus þannig að hún hefur, ekki síður en hann, forsendur sem skýra hvers vegna henni er svo mikið í mun að fá sitt fram. Eins og við hugsum okkur verða þau bæði persónur með ljósi og skuggum og hafa því meiri skír- skotun th nútímans heldur en ef við hefðum gert úr henni einhvem kvendjöful. Fyrir mér var leikritiö Vér morð- ingjar eftir Kamban svolítih útgangspunktur en það er líka byggt upp sem hjónabandsdrama og uppgjör. Einhvern tímann þegar það var leikið man ég að gagnrýn- endur skiptust í tvo hópa, tóku afstöðu annaðhvort með konunni eða karhnum. Gkkur hefur þótt gaman að því aö sami hluturinn virðist hafa gerst í sambandi við okkar uppsetningu, þannig aö fyrir bragðið verður hin dramatíska spenna ekki jafn einslit. Eins og nokkrir gagnrýnendur hafa bent á þá byggðum við verkið ekki upp á ytra borði tilfinninga- lega heldur létum tilíinningarnar spretta út af innri gerandinni. Þau em bæði mjög vel gefln, þannig að við getum náð upp þeirri spennu vegna þess að hún snertir meir umræðu dagsins í dag.“ - Nú var áberandi ákveðin tilhneig- ing th ofsóknarbrjálæðis hjá höfuðsmanni sem fór stigvaxandi og endaði e.t.v. í geðveiki? „Ein fyrsta spurningjn sem við spyrjum okkur er hvort höfuðs- maðurinn sé geðveikur eða ekki, hver getur ákvarðað um þaö? Síðan er spurningin sem snýr að henni hvort hún ímyndi sér að hún geti gert hann geðveikan, eða upplifir hún hann stundum sem geðveikan? Hann heldur skýrri hugsun allan tímann. Það er hins vegar veila í persónugerð hans, ákveðin þrá- hyggja sem veldur ofsóknarkennd. Og þá vaknar spurningin um það hvort þessi veha í skapgerð hans er ekki búin aö fara þannig í hana að hún trúi því að höfuðsmaðurinn sé geðveikur. Bæði hafa þau þannig ástæðu, það er þessi blanda af þeim sem getur ekki gengið og fæðir af sér harmleikinn en ekki það aö einn sitji úti í homi og spinni bara vond- an vef og spúi galli, heldur verða samskipti þeirra tragísk vegna þess að þau em bæði heiðarleg. Það eru fleiri spumingar í verk- inu eins og: Elskar hann hana? Við svöruðum þessu játandi. Elskar hún hann? Við svöruðum okkur því að hún væri hætt að elska hann, hún getur ekkert ráðið við það. Hún reynir að láta sér þykja vænt um hann og gerir heiðarlega th- raun en mistekst. " Hann er vísindamaður og dreym- ir því um einhvers konar andleg verk sem lifi áfram. Hann er einnig hermaður og því fuhtrúi karlaveld- isins. Hann hræðist eðlisávísun kvenna því hún þarf ekki alltaf að vera rökbundin. Hún er aftur fuh- trúi þeirra kvenna sem krefjast réttar síns. Það er bersýnilegt aö hann hefur ekki haft erindi sem erfiði þarna í hemum. Honum hefur ekki tekist að fullnægja metnaði sínum og raunar ekki hennar heldur. Þess vegna byijar hann á þessari vís- indastarfsemi sem hún álítur að sé flótti í stað þess að sinna því sem hann hefur valið sér. Þess vegna stendur hann ekki undir hennar metnaöi. Hún tekur þetta vísinda- starf því aldrei alvarlega því hún telur það lífsflótta. Maður veit aldr- ei hversu alvarlegt það er en það sýnir þó að hann er talsvert kloflnn í sínum hugöarefnum. Það er eitthvað hvikult í skapgerð hans og hann víkur en hún aldrei. Hún er því með yfirhöndina allan tímann. Þau vilja bæði barninu vel, þau em bæði eigingjörn gagnvart því, vilja bæði láta rætast í því það sem þeim finnst ekki hafa ræst hjá þeim og niðurstaðan verður sú að barnið verður fórnarlamb. Leikurinn end- ar á að hann er að deyja og barnið kemur inn. Móðirin breiðir út faðminn og ætlar að taka barnið en það snýr undan og krýpur hjá pabba. Hún segir: „Bamið mitt!“ Sem þýðir, „tapaði ég eftir aht sam- an?“ Á þessu stigi vopnaviöskipta getur enginn sigrað.“ -PLP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.