Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987.
3
Fréttir
VerkamannasambandsþSng hófst í morgun:
Búistvið hvössum umræðum
dv Viðtalið
Sólveig Pétursdóttir lögfræðingur
situr nú á Alþingi í fyrsta skipti.
DV-mynd GVA
Þing Verkamannasambandsins
hófst á Akureyri í morgun. Eflir
þær væringar sem verið hafa innan
sambandsins í haust er búist við
hvössum umræðum á þinginu og
ekki síöur bíða menn eftir að sjá
hvaða skipulagsbreytingar verða
gerðar á sambandinu. Flestir sem
DV hefur rætt við eru sammála um
nauðsyn þess að skipta samband-
inu I deildir og er almennt búist
viö að þaö verði samþykkt á þing-
inu.
_ Hrafnkell A. Jónsson, formaöur
Árvakurs á Eskifirði, einn af þeim
sem gekk út af formannafundi sam-
bandsins f haust, sagöi í samtali við
DV aö ef ætti aö einangra þann hóp
sem gekk út af fundinura í haust
mætti búast við átakaþingi. Hann
sagöist telja að ná mætti samband-
inu saman aftur ef menn vildu, en
efdr væri að sjá hvað menn vildu
leggja á sig til þess að það tækist.
Bjöm Grétar, formaöur Jökuls á
Höfn í Homafiröi, sem einnig var
í hópi útgöngumanna, sagðist eiga
von á því aö umræöur yrðu rniklar
og hvassar á þinginu eftir allt sem
á undan er gengið. Hann taldi aö
skipulagsmálin yröu aöalmál
þingsins ásamt kjaramálaályktun.
Karl Steinar Guðnason aiþingis-
maöur hefur lýst því yfir aö hann
gefi ekki kost á sér áfram semvara-
formaður Verkamannasambands-
ins. Nú er hart lagt að Karli að
endurskoöa þessa afstöðu sína. Ef
Karl lætur ekki tilleiðast að vera
áfram er talað um að Karvel
Pálmason, alþingismaður og form-
aður verkalýðsfélagsins í Bolung-
arvík, taki viö varaformannsstarf-
inu. -S.dór
Sólveig Petursdóttir:
Ferða-
lög um há-
lendið
- efst á listanum
„Mér líst ágætlega á Alþingi sem
vinnustað og vel á ríkisstjómina þó
mér finnist hlutur Sjálfstæðisflokks-
ins hefði mátt vera meiri. Þingmenn
verða að gæta þess að starfa vel og
heiðarlega og vera þess trausts verð-
ir sem kjósendur hafa sýnt þeim,“
sagði Sólveig Pétursdóttir lögfræð-
ingur en hún tók sæti á þingi á
mánudaginn í fyrsta skipti. Hún er
varamaöur Guðmundar H. Garðars-
sonar og kemur til með að sitja á
þingi í minnst tvær vikur að þessu
sinni.
„Ég vonast til að fá fleiri tækifæri
til að sitja á þingi þar sem ég er fyrsti
varamaður sjálfstæðismanna í
Reykjavík," sagði Sólveig sem var í
sjöunda sæti á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík fyrir
síðustu kosningar.
Hún sagði jafnframt að fátt hefði
komið sér á óvart þessa fáu daga sem
hún hefur setið á þingi, starfshætt-
irnir væru svipaðir því sem hún bjóst
við.
- Ertu tilbúin með einhver mál sem
þú hyggst flytja á þingi?
„Ég er að vinna að máli sem ég
ætla að reyna að koma að á þessu
þingi. Það er þó ekki víst að það tak-
ist að þessu sinni því að tvær vikur
eru stuttur tími.“
Sólveig er lögfræðimenntuð og hef-
ur starfað sem slík bæði hjá hinu
opinbera og einnig sem fulltrúi á lög-
mannsstofu. Þá hefur hún kennt við
Verslunarskóla íslands.
- Hefurðu lengi haft áhuga á stjóm-
málum?
„Áhuginn er eiginlega búinn að
vera fyrir hendi svo lengi sem ég
man eftir mér. Hins vegar hef ég
ekki haft mörg tækifæri til að skipta
mér af stjórnmálum fyrr en nú síö-
ustu árin. Ég á þrjú böm og hef
þarafleiöandi þurft að sinna fjöl-
skyldunni og því ekki haft mikinn
tími aflögu fyrir stjórnmálavafstur."
Sólveig sagöist vonast til að geta
lagt stjórnmál og þingmennsku fyrir
sig enda stæði hún ekki í þessu að
öðmm kosti.
„Annars em stjórnmál ekki bara
eitthvert hobbí heldur starf sem
menn verða að taka alvarlega og
leggja sig fram við að inna vel af
hendi og gæta þannig hagsmuna
kjósenda."
Sólveig varð stúdent frá MR árið
1972 og útskrifaðist úr lagadeild Há-
skóla Islands árið 1977. Hún er 35 ára
gömul, gift Kristni Bjömssyni og eiga
þau þijú böm, tólf og átta ára gamla
drengi og sex ára stúlku.
„í frístundum reyni ég að lesa eins
mikiö og ég get og á sumrin reynum
við að ferðast sem allra mest og er
þá hálendi íslands efst á óskalistan-
um. Viö ferðumst minna til útlanda
í fríum enda er ísland í miklu uppá-
haldi hjá okkur,“ sagði Sólveig
Pétursdóttir.
ÞAÐ TÓKST!
13.900
KRÓNUR.
Okkur tókst það ótrúlega, að útvega
lOOSamsung örbylgjuofna ó þessu
fróbœra verði.
Matreiðslunómskeið fylgir að sjólfsögðu
með í kaupunum.
Spariðtíma og peninga-VeljiðSamsung.
JAPISS
BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN • SlMI 27133 1
-ATA