Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Síða 9
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987.
9
Utlönd
'ágiufri
Indverskir hermenn á Sri Lanka virða fyrir sér hlébarðaskinn sem sagt er
hafa tilheyrt leiðtoga tamíltígra. Sfmamynd Reuter
Mngað
umfviðar-
horfur
Forseti Sri Lanka, Junius Jayew-
ardene, og utanríkisráðherra Ind-
lands, Natwar Singh, héldu í morgun
fund um friðarhorfur á Sri Lanka.
Umsátur indversku friðargæslu-
sveitanna um borgina Jaffna hefur
nú varað í tuttugu daga og að sögn
talsmanns hers Sri Lanka hefur skip-
uninni um að skjóta á staðnum verið
aflétt í fjórar klukkustundir í dag og
er það í fyrsta skipti í tvær vikur.
Að minnsta kosti tíu skæruliðar
tamíla eru sagðir hafa fallið og þrír
indverskir hermenn særst í fjögurra
klukkustunda löngum bardaga aust-
an við Jaffna í gær. Þá særðust einnig
fimm indverskir hermenn af völdum
jarðsprengju.
Samtímis sem þingað er um friðar-
horfur standa yfir réttarhöld yfir
sjóliða þeim er veitti Rajiv Gandhi,
forsætisráðherra Indlands, högg með
rifíli sínum í júlílok. Sjóliðinn er
ákærður fyrir morðtilraun og getur
hann vænst tuttugu ára fangelsis-
dóms. Sjóliðinn var í hði heiðurs-
varða sem Gandhi kannaði daginn
eftir að undirritað var samkomulag
sem stuðla átti að endalokum sjálf-
stæðisbaráttu tamíla.
Smokkar í staðinn
fyrir kúlupenna
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmaiuiahö&u
Palle Jensen frá auglýsingastof-
unni GBC í Óðinsvéum reynir
þessa dagana að selja þijú hundruö
fyrirtækjum hugmynd sína um
smokka með áletrunum á pökkun-
um, í stað kúlupenna og eldspýtna-
stokka sem gefa á viðskiptavinum
fyrirækjanna.
Reyndar hefur Jensen athugað
möguleikana á að prenta „Danish
Dynamite", eða „danskt dynamít"
á sjálft gúmmíið, en það reyndist
of dýrt.
Viðbrögð fyrirtækjanna, sem eru
allt frá krám til tölvufyrirtækja,
eru misjöfn. Þykir hugmyndin
óvitlaus en fáar pantanir hafa bo-
rist. Félag hótela- og veitingahúsa-
eigenda hefur mælt með
hugmyndinni og á einu veitinga-
húsi leggur maöur smokkapakka í
hnetuskálina, eða við reikninginn.
Þó fyrst eftir að viðskiptavinurinn
hefur verið mældur út og fá korn-
ungar skólastúlkur enga smokka.
Þeir viðskiptavinir sem fengið
hafa smokka hafa sýnt ánægju sína
með framtakið. Hefur eitt veitinga-
hús á Fjóni deilt sex þúsund
smokkum meöal gesta sinna og er
fólk afar hrifið. Annars staðar, svo
sem hjá ferðaskrifstounni Spies og
SAS, eru menn ekki hrifnir af hug-
myndinni þar sem óvissa ríkir um
viðbrögð fólks.
Hvað varðar sölu á smokkum í
Danmörku þá seldust 13,8 milljónir
smokka árið 1986 og 12,6 milljónir
áriö áður. Eru einfaldir smokkar
með sæðisdrepandi kremi einna
vinsælastir.
Morðalda á
Filippseyjum
Fimm manns voru skotnir til bana í
Manila á Filippseyjum í morgun og
er talið að morðsveitir skæruliða
kommúnista hafi verið að verki.
Síðustu tvo daga hafa fjórtán
manns fallið fyrir hendi byssumanna
í og umhverfis Manila, þar af þrír
Bandaríkjamenn.
Byssumennirnir skutu í morgun
tvo hermenn og tvo óbreytta borgara
á markaði þar sem verslað er með
matvæli. Litlu síðar var lögreglu-
maður á ferð í jeppa skotinn.
Árásirnar í morgun fylgja í kjölfar
árása á bandaríska hermenn fyrir
utan flugstöð Bandaríkjamanna fyrir
norðan Manilla í gær. Þá létu þrír
Bandarikjamenn líflð og einn
óbreyttur filippseyskur borgari sem
reyndi að koma einu fórnarlamb-
anna til hjálpar.
Hafa byssumenn gert þrettán árás-
ir á hemaðarleg mannvirki síðustu
tvo sólarhringana og hefur spennan
Michael Armacost, aðstoðarutanrik-
isráðherra Bandarikjanna, tilkynnti
i morgun að morðin á bandarísku
hermönnunum á Fílippseyjum
myndu ekkl hafa áhrif á samskipti
Bandaríkjanna við Filippseyjar.
Simamynd Reuter
umhverfls höfuðborgina aukist
mjög. Hafa skæruliðar kommúnista
margsinnis varað við því að þeir
myndu bæta Bandaríkjamönnum við
á morðlista þann sem filippseyskir
hermenn og lögreglumenn eru á.
Morðin á Bandaríkjamönnunum
áttu sér staö aöeins fáeinum klukku-
stundum eftir að bandarískur
hermálafulltrúi hafði verið kallaður
heim en hann hafði verið sakaður
um afskipti af valdaránstilrauninni
þann 28. ágúst síðastliöinn.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Michael Armacost,
sem verið hefur í heimsókn á Filipps-
eyjum undanfarna daga, sagði aö
bandarísk yfirvöld hefðu áhyggjur
af morðunum en að þau myndu samt
ekki hafa áhrif á samskipti Banda-
ríkjamanna við Filippseyjar. Hann
tilkynnti í morgun um óskipta aðstoð
aö upphæð 75 miUjónum Bandaríkja-
dollara til Filippseyja.
Danir hafa minnkað reykingar
sinar nokkuð og er það í fyrsta siim
sem slfkt gerist frá árinu 1979 en
þá voru settar háar álögur á tóbak.
Hafa sígarettureykingar minnkað
um fimm prósent og vindla-
reykingar um 10,3 prósent.
Upplýsingar j>essar koma úr árs-
reikningum Skandinavisk Tobaks-
kompagni fyrir árin 1986 og 1987
en fyrirtækiö ræður yfir 98,4 pró-
sentum tóbaksmarkaðar í Dan-
mörku.
Þrátt fyrir minnkandi reykingar Dana jafnar hrifning Þjóðveija á
dönsku tóbaM upp á bókhald fyrirtækisins. Jókst útflutningur þess um
þrettán prósent og varö átta hundruð þrjátíu og þrjár miUjónir danskra
króna.
Skandinavisk Tobakskompagni er eitt arðbærasta fýrirtæki Danme'-kur
og var ágóði síðasta reikningsárs fiögur hundruö áttatíu og átta miHjónir
danskra króna. Tæpur helmingur rennur í ríkiskassann, meðan hinn
helmingurinn rennur til móðurfyrirtækisins, Skandinavisk Holding, en
þar er ágóðinn notaður til kaupa á fyrirtækjum.
í barátbi gegn hústökum
HaukurL. Hauksaoar, DV, Kaupmanmhofh:
Erik Ninn Hansen, dómsmála-
ráöherra, og Poul Eflsen, lögreglu-
sfjóri í Kaupmannahöfn, hafa náð
samkomulagi um hvernig lögregl-
an á að bera sig að viö ruöning
húsa þar sem hústökufólk hefur
hreiðrað um sig. Á lögreglan nú að
geta tekið hús hústakanna á sama
hátt og hústakarnir. Undirbýr
dómsmálaráðherra lög sem heim-
ila lögreglu að koma sér fyrir eða
byrgja tómar húseignir til að
hindra hústaka í að flytja inn aft-
ur. Lögreglan má aðeins ryöja hús
í dag en ekki vera í þeim áfram.
Getur lagafrumvarp þetta kostað
pólitískt stríð en ráðherrann segist
aðallega bera öryggi hins almenna
borgara fyrir brjóstL
Samkomulag dómsmálaráðherrans og lögreglustjórans kveður auk
þessa á um harðari stefnu lögreglunnar gegn bústökum og meiri lögreglu-
vemd við Kristjaníu og bæjarhluta þar sem ungmennaklíkur eiga yfir-
ráðasvæði sitt.
Loks á aö þrýsta á yfirvöld f Kaupmannahöfn aö flýta málsmeöferð í
bygginga- og skipulagsmálum svo tóm hús freisti ekki hústakanna.
Kvartað yfir innflyQendum
Játar tilræði við Schluter
Þijátfu og sjö ára gamall maöur
hefur viöurkennt að hafa kveikt eld
í stigagangi danska forsætisráðu-
neytisins í Kristjánsborgarhöll í
síðustu viku. Munaði þá minnstu
að mólotovkokteill spryngi en Poul
Schlúter var á fundi á hæöinni fyr-
ir neðan. Var maöurmn settiu i
tuttugu og sjö daga gæsluvaröhald.
Sagðist maöurinn hata Schlúter
og drottninguna en móögaðist þeg-
ar dómarinn mælti með vist á
geödeild 1 stað fangelsis.
Hjá bæjarfélaginu í Ishöj viö
Kaupmannahöfn hefm* komið út
skýrsla sem sýnir aö hver innflytj-
andi, sem kom til Danmerkur áriö
1970, eigi nú fiölskyldu sem er aö
meðaltali sextán manns. Hefur
bæjarfélagiö athugað fiölskyldu-
þróunina hjá tuttugu og þremur
innflytjendum sem komu einir til
Danmerkur 1970. í dag eru þessir
tuttugu og þrir imiflytjendur orðn-
ir þijú hundruð sjötíu og elnn. Þar
meö relknast bæði fæðingar í Dan
mörku og flutningur erlendis frá.
Bæjarstjórinn í Ishöj, sem kvartaði yfir hlutfallslega ofmörgum innflytj
endum og flóttafólki í bæjarfélaginu fýrir skömmu, er ekki hissa á
niðurstöðum athugunarinnar. Hann segir marga innflytjendur i bæjarfé-
laginu ekki samlagast Dönum að neinu leyti. Finni sérstaklega Tyrkir
eiginkonur sínar helraa i Tyrklandi. Þar gifti þeir sig og þegar bæöi korai
aftur til Danmerkur sé maðurinn úti með vinum sinura meðan konan
stendur í eldhúsinu. Enginn þeirra saralagist Dönum.
Vandamállö er meira í Ishöj en annars staðar i Danmörku en tólf pró-
sent ibúa bæjarins eru innflytiendur og flóttafólk.
„Meðan þingið getur ekki séð hinum nýju ibúum fyrir húsnæöi, vinnu
eöa menntun, erura við í slærari klfpu,“ segir bæjarstjórinn i Ishöj. Erik
Ninn Hansen dórasraálaráðherra hefur fengið áöumefnda skýrslu í hend
ur og íhugar um þessar mundir, í tengslum viö endurskoðun á útlendinga-
löggjöfmni, hvort heröa eigi reglur um samruna Qölskyldna. i dag geta
raakar innflytjenda, yngri böm og foreldrar eldri en sextfu ára, fengið
skilyröislaust dvalarleyfi í Danmörku.