Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Qupperneq 34
34
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987.
Jarðaifarir
Tage Möller hljómlistarmaöur lést
20. október sl. Hann fæddist á Samsö
við Jótland 15. janúar 1898. Foreldrar
hans voru Anna Katrín og Friörik
Christian Möller. Tage var tvíkvænt-
ur. Hann eignaðist einn son í fyrra
hjónabandi. Seinni kona hans er
Margrét Jónsdóttir og eignuðust þau
tvo syni. Útfór Tage verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Harpa María Björnsdóttir lést 21.
október sl. Hún fæddist á Akureyri
29. nóvember 1922, dóttir Björns
Grímssonar og Vilborgar Soffiu Lilli-
endahl. Eftirlifandi eiginmaður
Hörpu er Ásbjöm Magnússon. Þeim
hjónum varð þriggja dætra auðið.
Útför Hprpu verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag kl. 13.30.
Hulda Tryggvadóttir lést 22. októb-
er. Hún fæddist að Miðengi í Garða-
hverfi 8. febrúar 1924, dóttir
hjónanna Lovísu Guðmundsdóttur
og Tryggva Gunnarssonar. Eftirlif-
andi eiginmaður Huldu er Hörður
Þorleifsson. Þau hjónin eignuðust
þijá syni. Útfór Huldu var gerð frá
Dómkirkjunni í morgun.
LUKKUDAGAR
29. okt.
5591
Hljómplata frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 800,-
Vinningshafar hringi i sima
91-82580
I gærkvöldi
Katrín Agústsdóttir myndlistarkona:
Sækist efUr töluðu máli
Ég hlusta yfirleitt á rás 1 þar sem
ég sækist eftir töluðuð máli og þyk-
ir mér gott að margir þættir eru
tvíteknir þannig að hægt er að
hlusta á mismunandi tímum. Ég
legg áherslu á fréttir en er sama
þó ég missi af þeim í sjónvarpi.
Eins þykir mér hvíld í því að hlusta
á sígúda tónlist þegar dægurlög og
popp dynja á hinum stöðvunum.
Þegar ég kveikti á útvarpinu var
bamaefnið að enda og þótti mér
athyglisvert að börn fara heldur
ekki á mis við tískufréttir. Eftir
tónlistina á síðdegi tilkynnti rás 1
að í dagskrá rásar 2 kæmi Thor
Vilhjálmsson og flytti pistil svo ég
skipti yfir og hafði gaman af.
Næst vom fréttir, tilkynningar
og síðan Glugginn sem að þessu
sinni sagði frá bókamessu í
Múnchen. Mér þykir yfirleitt gott
Katrín Agústsdóttir.
efni á þessum tíma. Ef ég horfi á
sjónvarpsfréttir er þaö frekar hjá
ríkissjónvarpinu þar sem tíminn
hentar mér betur. Það em að sjálf-
sögðu að mestu sömu fréttir og í
útvarpi en myndin gerir fréttina
skýrari fyrir fólk.
Ég má til með að nefna frásögn
Ómars Ragnarssonar af vegagerð
frá Reykjavík upp í Hengilssvæðið
og frábærum landslagsmyndatök-
um. Veðurfréttum sleppi ég sjaldan
sem sannur íslendingur. Þáttur
Hemma Gunn stóð fyrir sínu með
hæfilega alvarlegum umræðum og
léttu ívafi eins og Hemma einum
er lagið.
ítalski sakamálaþátturinn lofar
góðu sem spennuefni. Þar sem ég
sá ekki fyrri hlutann af Óði böðuls-
ins slökkti ég á sjónvarpinu og
kveikti á rás 1 og hlustaði á Sjón-
aukann hjá Bjarna Sigtryggssyni
sem var athyglisverð samantekt.
Þá tók jass hjá Jóni Múla við.
Mér finnst ágætis efni á Stöð 2 í
síðdeginu fyrir yngra fólk. Dag-
skráin stendur allt of lengi hjá Stöð
2 en þá er bara að slökkva.
Áslaug Þ. Símonardóttir frá Sel-
fossi verður jarðsungin frá Selfoss-
kirkju laugardaginn 31. október kl.
13.30.
Sigurður A. Pétursson, Hringbraut
60, Keflavík, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju laugardaginn 31.
október kl. 13.30.
Arngrímur Jónsson, Árgilsstöðum,
Hvolhreppi, verður jarðsunginn frá
Breiðabólsstaðarkirkju í Fljótshlíð
laugardaginn 31. október kl. 14.
Ingveldur Árnadóttir, Efra-Hvoli,
verður jarðsungin frá Lágafells-
kirkju laugardaginn 31. október kl.
10.30.
Kristinn Pálsson, Hryggjarseh 6,
verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni fostudaginn 30. október kl.
13.30.
Magnús Guðlaugsson, Skipasundi
4, verður jarðsunginn frá Askirkju
fostudaginn 30. október kl. 13.30.
Vigfús Magnússon bóndi, Skinna-
stöðum, verður jarðsunginn frá
Þingeyrarkirkju laugardaginn 31.
október kl. 11.
Svava H. Jónsdóttir, Hlévangi,
Keflavík, verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju fóstudaginn 30.
október kl. 14.
Útfor Herdísar Þórðardóttur, Öldu-
slóð 28, Hafnarfirði, fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 30.
október kl. 15.
Fundir
Kvenfélag Laugarnessóknar
heldur fund í safnaðarheimilinu mánu-
daginn 2. nóvember kl. 20.30. Konur úr
Kvenfélagi Bústaðasóknar verða gestir
þetta kvöld.
Helgi Hálfdanarson hjá Grikk-
landsvinum
Grikklandsvinafélagið Hellas efnir til
fyrsta fundar vetrarins fimmtudaginn 29.
október í Risinu, Hverfisgötu 105 (efstu
hæð). Hefst hann á því að Helgi Hálf-
danarson, sem löngu er þjóðkunnur fyrir
þýðingar sínar á leikritum Shakespeares,
kynnir fundarmönnum nýjar þýðingar á
forngrískum harmleikjum. Þá mun Guð-
mundur J. Guðmundsson sagnfræðingur
sýna litskyggnur úr margræddri menn-
ingarferð 50 Grikklandsvina um helstu
söguslóðir Grikklands. Ráðgert er að
áþekk för verði farin á sumri komanda
fyrir milligöngu Samvinnuferða-Land-
sýnar. Af því tilefni heimsækir gríski
ferðamálafrömuðurinn Filippos Kokkalis
félagið og leggur fram tillögur um ferðaá-
ætlun sem skýrð verður og rædd á
fundinum. öllum áhugamönnum um
Grikkland og gríska menningu er vel-
komið að sækja fund Grikklandsvinafé-
lagsins.
Jarðgangafélag íslands
Jarðgangafélag Islands gengst fyrir
kynningarfundi um jarðgöng til sam-
göngubóta á þjóðvegakerfi landsins.
Fundurinn verður fimmtudaginn 29. okt-
óber kl. 16.30 í fundarsal Orkustofnunar,
Grensásvegi 9, 3 hæð. Framsögumenn
verða Helgi Hallgrímsson aðstoðarvega-
málastjóri og Hreinn Haraldsson, yfir-
jarðfræðingur Vegagerðar ríkisins.
Erindi þeirra nefnist Áætlun um veggöng
á Islandi. Kynnt verður álit nefndar sam-
gönguráðherra frá í vor um þessi mál.
Fundurinn er öllum opinn.
Tilkyrmingar
Lögfræðiaðstoð laganema
Orator, félag laganema, verður með
ókeypis lögfræðiaðstoð fyrir almenning á
fimmtudagskvöldum milli kl. 19.30 og 22
i síma 11012.
Hallgrímskirkja - starf aldr-
aðra
Opið hús verður haldið í safnaðarsal
kirkjunnar kl. 14.30 nk. fimmtudag. Sýnd-
ar verða litskyggnur úr Danmerkurför.
Kaffiveitingar. Þeir sem óska eftir bílfari
eru beðnir að hafa samband við safnaðar-
systur sama morgun í síma kirkjunnar,
10745.
Félagsmiðstöð Geðhjálpar
að Veltusundi 3b er opin á fimmtudögum
kl. 20-22.30 og laugardögum og sunnu-
dögum kl. 14-18. Einnig hefur Geðhjálp
opna skrifstofu alla virka daga kl. 10-14
þar sem seld eru minningarkort félagsins
og veittar upplýsingar um starfsemina.
Sími 25990.
Bókaútsala í Þingholtsstræti 3
Árleg bókaútsala Hins íslenska bók-
menntafélags, Þingholtsstræti 3, hefst í
dag og stendur til þriðjudagsins 3. nóv-
ember. Einnig verður opið laugardag og
stmnudag kl. 10-16. Áuk bóka Bók-
menntafélagsins verða bækur frá eftir-
töldum bókaforlögum í Þingholtsstræti:
Menningarsjóði, Isafold, Þjóðsögu, Lög-
bergi og fleiri aðilum.
Safnaðarfélag Ásprestakalls
Kaffisala félagsins verður sunnudaginn
1. nóvember í félagsheimilinu að lokinni
síðdegismessu.
Bóksöluskrá Bókavörðunnar
Bókavarðan - verslun í Reykjavík með
gamlar og nýjar bækur - hefur sent frá
sér 46. bóksöluskrána. Þar er að finna
rúmlega 100 titla bóka frá síðustu 200-300
árum og eru þær af margvíslegu tagi.
Þama eru skáldsögur erlendra og ís-
lenskra höfunda, mikið af Islendingasög-
um í útgáfum helstu íslenskra og erlendra
fræðimanna, héraðasögur í úrvali og
þjóðlegt efni - auk ljóða og leikrita. Bók-
söluskráin er send ókeypis til allra utan
Stór-Reykjavikursvæðisins sem þess óska
en aðrir geta vitjað hennar í búð Bóka-
vörðunnar á Vatnsstig 4.
Flóamarkaður
Flóamarkaður félags ein-
stæðra foreldra
verður haldinn í Skeljahelli, Skeljanesi
6, laugardaginn 31. október og sunnudag-
inn 1. nóvember milli kl. 14 og 17. Mikið
af góðum fatnaði, húsgögn og fleira. Leið
5 að dyrum.
Félagsvist
Húnvetningafélagið
Félagsvist verður spiluð nk. laugardag
kl. 14 í félagsheimilinu, Skeifunni 17.
Veitingar og verðlaun. Allir velkomnir.
Tónleikar
Píanótónieikar
í vikulok heldur Jónas Ingimundarson
tvenna píanótónleika. Fyrri tónleikarnir
verða í Logalandi í Borgarfirði föstudags-
kvöldið 30. október og hefjast þeir kl. 21.
Þeir síðari eru á vegum tónlistarfélags
Akraness í safnaðarheimili kirkjunnar á
Akranesi og verða þeir laugardaginn 21.
október kl. 16. Jónas hefur margoft leikið
á þessum stöðum á undanförnum árum,
ýmist einn eða með öðrum. Jónas frum-
flytur verk eftir Gunnar Reyni Sveinsson
er hann nefnir „Dagur vonar“. Þá flytur
hann tvær sónötur, eftir Mozarts og Beet-
hoven. Tónleikunum lýkur svo með
verkum eftir Chopin.
Breskur drengjakór í Hall-
grímskirkju
Hér á landi er nú staddur breskur
drengjakór, Hamton School Choral Soci-
ety. Hann er hér í boði skólakórs
Garðabæjar. Kórinn hefur sungið í
Garðakirkju og á Akranesi en nk.
fimmtudagskvöld, 29. okt., mun hann
halda tónleika í Hallgrímskirkju í
Reykjavík. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.
Á efnisskránni eru verk eftir D. Buxte-
hude, Anton Bruckner, G. Fauré og
Benjamin Britten. I kórnum eru nokkrir
efnilegir hljóðfæraleikarar sem leika
bæði samleik og einleik á tónleikunum.
Stjórnandi kórsins er Michael Newton
og organisti Christopher Mabley.
Áskriftartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands
Á 3 áskriftartónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands í Háskólabíói, fimmtudag-
inn 29. október, mun Hafliði Hallgríms-
son stjórna Sinfóníuhljómsveitinni í
fyrsta sinn á almennum tónleikum. Meðal
verka á efnisskrá verður frumflutningur
á tveimur verkum eftir Hafliða. Auk þess
verða flutt verk eftir Carl Nielsen og Jean
Sibelius. Enska sópransöngkonan Jane
Manning syngur.
Skák
Skákmótið í Belgrad:
Jóhann og Kortsnoj gáfu
ekki höggstað á sér
- sömdu um jafntefli eftir tuttugu leiki
Stórmeistaramir Jóhann Hjart-
arson og Viktor Kortsnoj sömdu
um jafntefli eftir uppskiptaæði í
drottningarbragði í 9. umferð In-
vest-banka skákmótsins sem tefld
var í gær. Eftir tuttugu leikja tafl-
mennsku voru drottning og tveir
hrókar eftir í hvoru liði og dauð
staða á borðinu. Kortsnoj þáði jafn-
teflisboð Jóhanns án mikillar
umhugsimar. Það var greinilegt að
hvorugur vildi gefa höggstað á sér
fyrir einvígið í heimsmeistara-
keppninni í Saint John í Kanada í
byijun næsta árs.
Er Leifur Jósteinsson, aðstoðar-
maður Jóhanns í Belgrad, var
spurður að því á rás n í gærkvöldi
hvor þeirra hefði teflt til jafnteflis,
svaraði hann því til að líklegast
hefðu það vqrið báðir. Það er skilj-
anlegt að Jóhann haíi vfljað tefla
traust eftir tvær tapskákir í röð og
Skák
Jón L. Arnason
endurheimta skákþrekið. Kortsnoj
er reyndur einvígisrefur og hefur
ekki viljað leggja spilin á borðið
strax. SennUega hefur hugur hans
verið nær Saint John í Kanada
heldur en Belgrad er hann sat við
taflið í gær. Friðsemd hans gefur
til kynna aö hann beri fufla virð-
ingu fyrir Jóhanni.
Timman og Ivanovic gerðu jafn-
tefli í gær og sömuleiðis Popovic
og Nikolic en þijár skákir fóru í
bið og eru allar jafnteflislegar.
Short átti um tíma peð yfir gegn
Ljubojevic og góða stöðu en missti
taflið niður. Þá stóð Beljavsky lengi
höllum fæti gegn Marjanovic og
Salov átti lakara tafl um tíma gegn
GUgoric.
Staðan á mótinu er óljós vegna
biðskákanna sem tefldar verða
áfram á fostudag. Timman er efstur
með 6 v„ Ljubojevic hefur 5'A v.
ogbiðskák, Kortsnoj 5 v. ogbiðskák
og Jóhann, Popovic og Nikolic
koma næstir með 5 v. i dag teflir
Jóhann við Timman og hefur hvítt.
-JLÁ