Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1987, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987.
3
Bók sem
skiptir okkur máli
Mikhaíl Gorbatsjov
IÐUNN
NY HUGSUN, NY VON
Ein athyglisverðasta bók síðari ára á alþjóðlegum
vettvangi. Bók eftir þjóðarleiðtoga Sovétríkjanna,
Mikhaíl Gorbatsjov, þar sem hann fjallar um hinar
nýju stjórnmáiahugmyndir sínar. Á ótrúlega
hreinskilinn hátt gerir hann hér grein fyrir
aðstæðum þjóðar sinnar fram á þennan dag. Með
áherslu á opinskáa umræðu meðal allra þjóða fjallar
hann um afvopnunarmál og heimsfrið.
— Hugmyndir sem geta skipt sköpum.
Pessi bók er uppgjör Höllu Linker við þá
ímynd sem skapaðist af henni í gegnum
fjölmiðla í fjöldamörg ár. Aldrei sást annað
en yfirborðið, frægð og velgengni. En þannig
var líf liennar aldrei í raun og veru.
Nú lítur hún til baka ijfir tuttugu og átta ár
í hjónabandi með manni sem var fimmtán
árum eldri en hún og stjórnaði henni eins og
brúðu og tók allar ákvarðanir fyrir hana.
Pegar hann lést skyndilega kom að því að hún
þurfti að standa ein og óstudd í fyrsta sinn,
bjarga sér, læra að umgangast karlmenn,
kynnast því að verða ástfangin eins og ung
stúlka . . . Sú ganga var ekki þrautalaus, en
að lokum hefur Halla náð því marki að geta
litið björtum augum til framtíðarinnar, virt
fyrir sér fortíðina með augum áhorfandans,
hlegið og grátið — sátt við sjálfa sig.
Saga Höllu er engin harmsaga, heldur
óvenjuleg ævisaga óvenjulegrar konu, sem séð
hefur og reynt fleira en fle„tir Islendingar og
hefur umgengist bœði hausaveiðara og
Hollywoodleikara. Konu, sem var virt og dáð
út á við, en fékk þó ekki einu sinni að ráða
hárgreiðslu sinni sjálf. Frásögnin lætur engan
ósnortinn, en hún vekur líka ótal hlátra, því
að Halla kann flestum betur að draga fram
skoplegu hliðarnar á því sem fyrir hana hefur
borið.
MIKHAIL GORRATSJOV
íferestrojka
NYHUCSUN NYVON
PERESTROTKA
BRÆÐRABORGARSTÍG 16 • SÍMI 28555