Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1987, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987.
13
á ýmsa vegu
Á dögimum auglýstum viö eftir
hvar fengist kanínukjöt. Það er fýrir-
tækið íslenskt-franskt eldhús sem
dreiflr kcininukjöti í verslanir á höf-
uðborgarsvæðinu. Kanínukjöt fæst í
báðum Hagkaupsbúðunum, bæði í
Kringlunni og Skeifunni, og í Kjötbæ
og Nýjabæ. Kjötið kemur vikulega
og ef alltaf af nýslátruðu.
Þegar við ræddum við dreiflngar-
aðilann var von á séröldum matar-
kanínum sem hann sagði vera
sérlega góðar. Þær eru séraldar
vegna kjötsins. Þær kanínur sem að
jafnaði hafa verið á markaði eru
einnig mjög góðar að sögn, en þær
eru mun minni, enda ræktaðar
vegna angoru-ullarinnar.
Kg af kanínukjöti kostar um 450
kr. út úr búð.
Kanínukjöt er líkt og kjúklinga-
kjöt, ljóst á ht. Það má matreiða líkt
og kjúkhnga, er mikið notað í alls
konar pottrétti. í norskri matreiðslu-
bók rákumst við á uppskrift að
sinnepssteiktri kanínu, sem var eft-
irfarandi:
Kanína, ca 1 kg á þyngd, hlutað í
stykki.
Kryddlögur:
2 marin hvítlauksrif
2 msk. ljóst franskt sinnep
2 msk. rosmarin
1-1 /i tsk. salt
ca 3/4 bohi olía
Blandið öllum efnunum sem í löginn
fara vel saman. Penslið stykkin með
leginum og látið þau bíða í smá-
stund. Raðið þá kjötstykkjunum á
rist yfir ofnskúffu og steikið í ofni í
ca 30 mín. við 250°C hita eða glóðið
í grillofni í 12-15 mín. á hvorri hlið.
Berið kanínustykkin fram sjóðandi
heit með grænu salati og grófu
brauði. í norsku bókinni segir að
langbest sé að borða svona steikt
kanínukjöt með guðsgöfflunum,
þannig að gott er að hafa svohtinn
álpappír um bitana.
Þá er einnig hægt að bera fram soðið
kanínukjöt með laussoðnum hrís-
grjónum og karrísósu eða þá í pott-
rétt með ýmsu góðgæti, lauk og
grænmeti. -A.Bj.
Lampar í brúðulíki eru hættulegir
Rafmagnseftirirt ríkisins
*
Veldur hver
á heldur
Beittur hnífur í hendi barns er
hættulegt leikfang. Þannig sbipta
sumir hlutir um hlutverk eftir því
hver heldur á þeim.
Sama gildir um margt sem fram-
leitt er bömum til augnayndis. Þeir
hlutir skipta oft um eðli þegar óvit-
inn fer um þá höndum.
Rafmagnseftirhtið bendir sérstak-
lega á skrautlýsingar sem eru í
brúðulíki.
Þannig gripur virðist ósköp sak-
leysislegur. Og auðvitað er hann
hættulaus ef óvitar ná ekki til
hans.
Lampi sem líkist brúðu getur
freistað bama til að leika við hann.
Litlar hendur komast inn í brúðuna
og geta flktað við peruna, jafnvel
brotið hana, og þá er stutt í ban-
vænan straum.
Það þarf ekki mikið hugmyndaflug
til að sjá fyrir að hæglega getur
kviknað í út frá svona brúðulampa
ef barn sofnar með hann undir sæng.
Berið ekki slysagildrur inn á heim-
ihn.
Gætið öryggis þegar rafmagn er
annars vegar því öryggi er fyrir öhu.
Mörgum þykir kanínukjöt mjög gott, það er í öilu falli öðruvisi en við erum vön og alltaf gaman að tilbreytingu.
Polaroid - Myndavél og vasadiskó
SAMAN í PAKKA
á aðeins kr. 3.350,-
Myndavélin er með
innbyggt eilífðarflass.
Rafhlaðan er í
filmupakkanum.
Sem sagt, filman í,og
myndavélin er tilbúin
Vasadiskóið
er eitt hið
minnsta
á markaðinum.
CrOj metal.
ER FRÁBÆR GlfiF
Leikfélagi, sem á eftir aö endast lengi. Þýsku dúkkurnar fráZapf eru
vönduö leikföng, sem ekki látaásjávið misjafnameðhöndlun ungra
eigenda. Póstsendum — Góö aökeyrsla, næg bílastæöi.
LauPjMWS,
iðhf
vegi
164
simi
21901