Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1987, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987. Neytehdur__________ Meðatverð: í verðkönnun Verðlagsstofnunar í október á kaffi munaði mestu á einni algengustu tegundinni, gulum Braga kaffipakka, 250 g, eða 15,8%. Lægsta veröið var 68,30 kr. og það hæsta 79,10 kr. Einnig munaöi talsverðu á Merrild kaffi, mellem ristet í 500 g pakka, eða 13,9%. Lægsta verð var 188,80 kr. en það hæsta 215 kr. Á öðrum kaffitegundum, sem voru teknar í könnuninni, munaði ekki eins miklu eða allt niður í 4,4%. Sjá meðf. töflu. Reynið að leggja meðalverðið á minnið. Þannig gerið þið hagkvæm- ust innkaup fyrir heimihð. -A.Bj. Mcðal- Lægsta Hæsta Mismunur verð verð verð í % Kaffi Braga gulur 1 kg 295.84 288.00 301.00 4,5% Kaffi Braga gulur 250 g 77.03 68.30 79.10 15,8% Kaffi Braga Columbia 250 g 84.60 81.70 88.00 7,7% Kaffi Kaaber Diletto 250 g 84.18 81.60 85.75 5,1% Kaffi Kaaber Ríó 250 g 81.00 78.70 82.20 4,4% Kaffi Gavaiia meðalbrennt 250 g 80.97 78.70 82.20 4,4% Kaffi Merriid mellem ristet 500 g 195.98 188.80 215.00 13,9% Híajw* | *r:q>.ki Meðalverð: Kakó og kakómalt í verðkönnun Verðlagsstofnunar í október var kannað verð á 280 vöru- tegundum í öllum verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Reiknað var út meðalverð á öllum þessum vöru- tegundum. Hér er meðalverð á kakói og kakómalti. Mestu munaði 20,6% á hæsta og lægsta verði á Kakó TV 400 gr. Kakó TV 400 g Lægsta verð var 100,30 kr. og hæsta verð 121 kr. Leggið meðalverðið á minnið og kaupið ekki vöruna ef hún er boðin á mun hærra verði. Sjá meðfylgjandi töflu yfir meðalverð nokkurra teg- unda sem voru 1 könnun Verðlags- stofnunar. -A.Bj. Kakómalt Hershey's 453.6 g 127.18 121.60 132.00 8,6% Kakómalt Nesquik 400 g 98.12 94.80 103.00 8,6% Kakómalt TV 750 g 146.07 139.40 152.00 9,0% Meðal- Lægsta Hæsta Mismunur verð verð verð I % 114.36 100.30 121.00 20,6% í leit að stað- greiðsluafslætti í stóvmörkuðunum þegar greitt er með reiðufé Halidór Halldórsson hringdi: „Við hjónin fórum á milli stór- markaða á laugardaginn í leit aö staðgreiösluafslætti. Við notum nefnilega ekki plastiö heldur greiö- um alltaf með beinhörðum pening- um. Stórmarkaðimir voru að auglýsa fyrir helgina framlengingu á greiöslukortatímabilinu en við héldum að þeir sem greiða með beinhörðum peningum fengju ein- hvem afslátt eins og víða er í sérverslunum. Fyrst lá leiöin í Hagkaup í Kringl- unni. Ekki könnuðust menn við slíkan afslátt þar. Sömu sögu var að segja úr Hagkaupi í Skeifunni. Þar höföu menn ekki nein fyrir- mæli um að gefa staðgreiðsluafslátt ef greitt væri meö peningum. Þá lá leiðin í Miklagarö og þar varð verslunarstjórinn fyrir svör- um og því miður var eldá slikan afslátt að fá. í Fjarðarkaupum var ekki boðið upp á staögreiðsluafslátt en í Garöakaupi og Kaupgaröi er veitt- ur 5% staðgreiðsluafsláttur ef greitt er með reiðufé." BLAÐAMAÐUR - MATREIÐSLA DV auglýsir eftir blaðamannj sem getur annast um- sagnir og frásagnir af matreiðslu, matargerð, matar- innkaupum og hliðstæðu efni á neytendasíðu. Um fullt starf er að ræða. Kjör skv. samkomulagi. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir sendist fyrir áramót, merkt: Ritstjórn DV, umsókn um blaða- mannsstarf. Ritstjórar áftíÍKúíiH Itólsk matargerð á helma- velli Pizza og pasta nefnist matreiðslu- bók sem Setberg gefur út. Ari Garðar Georgsson matreiðslumeistari þýddi bókina og staðfærði. Eins og nafnið bendir til fjadlar bókin um ítalska rétti, pizzur og ýmsa rétti sem búa má til úr pöstu, og raunar einnig hvemig pastan sjálf er búin til. í bókinni er að finna greinargóðar leiðbeiningar, allar myndskreyttar, þannig að auðvelt er að fara eftir þeim. Bókin er í átta köflum sem heita: pasta, uppáhaldsréttir, sósur, súpur, salöt, aðcdréttir, kynning og pizzur. Pizza og pasta kostar 1680 kr. með söluskatti í bókaverslunum. Aðkeypt laufabrauð Á dögunum birtum við góða upp- skrift að laufabrauði. En þeir sem eru kannski orðnir seinir fyrir komast ekki yfir að búa deigið til sjálfir. Þá er hægt að kaupa laufa- brauðið tilbúið, útflatt og tilbúið til þess að skera út og steikja. Við heyiðum af einum aðila, Gunnarsbakaríi á Reyðarfirði, sem farinn er að senda laufabrauð til höfuðstaðarins, en annars er það Ömmubakstur í Kópavoginum sem er einn aðalframleiðandi laufa- brauðsins. Við hringdum í nokkur bakarí til þess að athuga hvort þar væri laufabrauð á boðstólum og hvað það kostaði. Aðeins tvö bak- aríi af þeim sem við hringdum í höfðu þessa þjónustu en það voru Álfheimabakarí og Mosfellsbakari. Verðið á öllu laufabrauöinu var mjög svipað, munað aðeins fáein- um aurum. Þannig kosta 25 stk. af Ömmubaksturs-laufabrauðinu 498 kr. eða 19,92 kr. stk., í Álfheimabak- aríi kostar stykkið 20 kr. og í Mosfellsbakaríi kostuöu 25 stk. 520 kr. eða 20,80 kr. stykkið. Sama verð var á laufabrauðinu frá Reyðarfirði sem fæst m.a. í Fjarðarkaupum. 25 stk. af því kosta 520 kr. eða 20,80 kr. stk. Munið eftir að fara að öllu með gát þegar þið steikið laufabrauðið og þegar þaö er tekiö upp úr pottin- um er gott að setja sléttan pott- hlemm ofan á það til þess að slétta kökuna. -A.Bj. Smekklegar umbúðir um laufabrauð frá Gunnarsbakarii á Reyðarfirði. DV-mynd GVA -A.Bj.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.