Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1987, Blaðsíða 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022.
MIÐVIKUDAGUR 16, DESEMBER 1987.
Miðbærinn:
Líkamsárás
og rán í nótt
Maður um fertugt varð fyrir lík-
amsárás og ráni við Reykjavíkurapó-
tek í nótt. Maðurinn var á gangi um
klukkan hálftvö er tveir menn, átján
til tuttugu ára, réðust að honum og
börðu hann nokkrum sinnum í and-
litið.
Mennirnir fóru í vasa hans og tóku
um þrjú þúsund krónur sem hann
hafði á sér. Maðurinn segir að sér
hafi brugöið það mikið við árásina
að hann hafi ekki getað varað sig
fyrr en of seint.
Maðurinn gat gefið lýsingu á
mönnunum. Þeir voru átján til tutt-
ugu ára. Annar var ljóshærður í
dökkum leðurjakka og hinn dökk-
hærður í dökkum leðurjakka og var
hann með mikla keðju um hálsinn.
^ Lögreglan gerði mikla leit að mönn-
unum í miðbænum en án árangurs.
-sme
Vestmannaeyjar:
Stefán Run-
ólfsson hefur
sagtupphjá
Vinnslustöðinni
Stefán Runólfsson, sem um langt
árabil hefur veriö framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar hf. í Vest-
mannaeyjum, sagði upp störfum
sínum þar í fyrradag. Stefán stað-
festi þetta í samtali viö DV en vildi
ekki gefa upp hver ástæðan fyrir
þessari óvæntu uppsögn er.
Samkvæmt öðrum heimildum DV
er þetta afleiðing af mikilli valdabar-
áttu innan fyrirtækisins en hluthafar
þess eru mjög margir.
Fyrir um það bil ári var skýrt frá
þessum átökum í fréttaljósi hér í DV.
Þá var skipt um menn í stjóm fyrir-
tækisins eftir átaka aðalfund og
fylgdu sárindi í kjölfarið. Uppsögn
Stefán nú mun standa í beinu fram-
. w haldi af átökunum sem verið hafa
síðan.
Stefán Runólfsson er einn kunnasti
framkvæmdastjórinn og talsmaður í
sj ávarútvegi í _ Vestmannaeyj um.
Hann sagðist myndi láta af störfum
strax um næstu áramót. -S.dór
LITLA
GLASGOVT
LAUGAVEGI 91
SÍIVII20320.
LEIKFÖNG
City91
■í N
LOKI
Flóðbílarnir gætu
hæglega orðið
dýrasta brotajárnið!
55 milljónir í
Subambilana
„Það aö innflytjandinn í Noregi
og fleiri aðilar hafa gert tilboð í
þessa 235 bíla á eina og hálfa millj-
ón dollara (um 55 milljónir ís-
lenskra króna) sýnir að þeim er
full alvara í því að hindra að þeir
komi á götuna,“ sagði Júlíus Vífill
Ingvarsson hjá Ingvari Helgasyni
en hér á landi er nú staddur maður
frá útfiutningsfyritækinu í Japan
til þess að hindra að Subarubílam-
ir, sem lentu í flóðinu i Noregi, fari
á götuna hér.
„Samkvæmt okkar upplýsingum
þýðir þetta tilboö aö innflytjend-
umir fái tvær milljónir beint í
vasann. Ástæðan fyrir þessu tilboði
er sú að framleiðandinn leggur
áherslu á að bílamir fari hvergi á
skrá í heiminum. Þeir eiga að fara
beint í brotajárn." Júlíus sagði aö
tilboöinu hefði veriö hafnaö og sett
fram gagntilboð sem væri „fárán-
legt.“
En hvað skyldu innflytjendumir
segja um tilboðiö?
„Því verður aldrei tekið, þessar
tölur em ekki til umræðu,“ sagði
Margeir Margeirsson, einn inn-
flytjendanna. Hann sagði að þetta
tilboð stæöi engan veginn undir
þeim kostnaði sem nú væri búið
að leggja í og þeir væru því ákveðn-
ir í aö selja bílana enda fengið íjölda
umsókna.
Híá Guðna Karlssyni í Bifreiða-
eftirlitinu kom fram að engin
afstaða hefði verið tekin ennþá um
hvaða meðferö Subarubfiamir
fengju þegar þeir kæmu en þeir
fara i skip á morgun í Noregi og
em væntanlegir í næstu viku. Bif-
reiöaeftirlitið hefur hins vegar
ákveðið að skrá Mitsubishi-bílana,
sem lentu í vatnsfióði, eins og
hverja aðra bfla.
-SMJ
Þingfundum lauk klukkan 19.30 í gærkvöldi sem er með fyrra fallinu miðað við síðustu daga, en mánudags-
fundurinn stóð til klukkan 3 um nóttina. Vinnuálag þjakar þingheim þessa dagana, nefndarfundir hefjast
snemma á morgnana og þingfundir standa fram á kvöld. í gær náðist hins vegar samkomulag á þinginu um
að „hætta snemrna". Á þessari mynd sjást þingmenn tygja sig til brottfarar, „frelsinu“ fegnir.
DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Austanátt
og
vætusamt
Á morgun verður austanátt ríkj-
andi um allt land, víöa skúrir eða
rigning um sunnanvert landið, en
víða slydda austan- og norðan-
lands. Hiti verður á bilinu 3 til 6
stig suðvestanlands en í kringum
frostmark norðaustanlands.
Ásmundur Stefánsson:
Laun þyrftu
að hækka
um þriðjung
árið 1988
- svo kaupmáttur héldist
„Það er fullkomlega ljóst að for-
sendur fjárlaga um launaþróun
ganga engan veginn upp heldur
hljóta að leiða til stórfelldrar kjara-
skerðingar. Til þess eins að halda
óbreyttum kaupmætti þyrftu laun að
hækka um 8-9% 1. janúar og síðan
um rúmlega 7% á þriggja mánaða
fresti,“ sagði Ásmundur Stefánsson,
forseti Alþýðusambands íslands, í
samtah við DV í morgun.
„Til þess eins að halda kaupmætti
á milh ára verður að hækka laun um
um það bil þriðjung. Þá er miðað við
þá forsendu að ekki komi gengisfeh-
ing nú heldur haldist raungengi
óbreytt," sagði Ásmundur.
í spá Seðlabankans um breytingar
á vísitölum verðlags, launa og gengis
á næsta ári kemur fram að miðað við
að gengi verði haldið stöðugu og laun
á næsta ári þróist almennt á þann
veg sem kjarasamningar við opin-
bera starfsmenn segja til um muni
kaupmáttur kauptaxta rýma um
5,5% á næstu 12 mánuðum, frá des-
ember 1987 til desember 1988. Frá
júní 1987 til desember 1988 muni
kaupmáttur rýrna um 10,5%.
Seðlabankinn spáir því úr frá sömu
forsendum aö veröbólgan, miðað við
framfærsluvísitölu, verði 20% á mihi
áranna 1987 og 1988 en 11% frá upp-
hafi til loka ársins 1988.
-KMU
Eggert Haukdal:
Vill gengis-
tryggja
lántil
langs tíma
Eggert Haukdal, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, lagöi í gær fram á >
Alþingi frumvarp sem gerir ráö fyrir
að verðtrygging lána og annarra fjár-
skuldbindinga verði afnumin. Vih
hann í staðinn taka upp gengistrygg- g
ingu á langtímalán en lágvextir ghdi
um skammtímalán og lán af meðal-
lengd.
Eggert segir í greinargerð að verð- Æ
trygging fáist ekki staðist lengur.
Lánskjaravísitalan hafi sprengt :
gjaldþol þegnanna, ekki aðeins at-
vinnufyrirtækja og heimha, heldur a
einnig opinberra stofnana og ríkis-
sjóðs sjálfs. -KMU'
Dollarinn á
36,34 krónur
Doharinn Var skráður á 36,34 krón-
ur hjá Seðlabankanum í morgun. >
Miðað er við kaupgengi. Hann var
skráöur á 36,20 krónur í gær og er
það lægsta verö í áraraðir. Margir
spáðu því fyrir nokkrum vikum að
doharinn yröi á 37 krónur um ára-
mótin en nú bendir aht til þess að
hann æth að halda sig í kringum 36
krónumar - að öllu ööru óbreyttu.
-JGH ■