Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1987, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1987, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987. 3 Bók sem skiptir okkur máli Mikhaíl Gorbatsjov IÐUNN NY HUGSUN, NY VON Ein athyglisverðasta bók síðari ára á alþjóðlegum vettvangi. Bók eftir þjóðarleiðtoga Sovétríkjanna, Mikhaíl Gorbatsjov, þar sem hann fjallar um hinar nýju stjórnmáiahugmyndir sínar. Á ótrúlega hreinskilinn hátt gerir hann hér grein fyrir aðstæðum þjóðar sinnar fram á þennan dag. Með áherslu á opinskáa umræðu meðal allra þjóða fjallar hann um afvopnunarmál og heimsfrið. — Hugmyndir sem geta skipt sköpum. Pessi bók er uppgjör Höllu Linker við þá ímynd sem skapaðist af henni í gegnum fjölmiðla í fjöldamörg ár. Aldrei sást annað en yfirborðið, frægð og velgengni. En þannig var líf liennar aldrei í raun og veru. Nú lítur hún til baka ijfir tuttugu og átta ár í hjónabandi með manni sem var fimmtán árum eldri en hún og stjórnaði henni eins og brúðu og tók allar ákvarðanir fyrir hana. Pegar hann lést skyndilega kom að því að hún þurfti að standa ein og óstudd í fyrsta sinn, bjarga sér, læra að umgangast karlmenn, kynnast því að verða ástfangin eins og ung stúlka . . . Sú ganga var ekki þrautalaus, en að lokum hefur Halla náð því marki að geta litið björtum augum til framtíðarinnar, virt fyrir sér fortíðina með augum áhorfandans, hlegið og grátið — sátt við sjálfa sig. Saga Höllu er engin harmsaga, heldur óvenjuleg ævisaga óvenjulegrar konu, sem séð hefur og reynt fleira en fle„tir Islendingar og hefur umgengist bœði hausaveiðara og Hollywoodleikara. Konu, sem var virt og dáð út á við, en fékk þó ekki einu sinni að ráða hárgreiðslu sinni sjálf. Frásögnin lætur engan ósnortinn, en hún vekur líka ótal hlátra, því að Halla kann flestum betur að draga fram skoplegu hliðarnar á því sem fyrir hana hefur borið. MIKHAIL GORRATSJOV íferestrojka NYHUCSUN NYVON PERESTROTKA BRÆÐRABORGARSTÍG 16 • SÍMI 28555

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.