Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1987, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987.
17
Lesendur
Bílbelti eða ekki? - B.P. vill að þess sé getið í (réttum af umferðarslysum hvort bílbelti hafi verið notuð.
Notkun bílbeflta:
Alltaf, aldrei, stundum?
B.P. hringdi:
Ég hef mikiö rætt um notkun bíl-
belta enda sjálfur einn þeirra sem ek
bíl og á þess því kost að nota bílbelti
til jafns viö aðra enda skylda að hafa
þau í öllum bílum.
Mig langar að gera að tillögu minni
að birt verði í DV nánari skýring
varðandi hið hörmulega slys þar sem
maður valt í bifreiö sinni nýlega við
Ólafsfjarðarmúla hvort hann hefði
verið í bílbelti eða ekki.
I framtíðinni ætti raunar ávallt að
geta þess þegar um umferðarslys er
að ræða hvort hinn eða þeir slösuðu
hafi verið í bílbelti. - en ekki aðeins
eins og oftast er, „aö sá sem lést hafi
ekki verið í bílbelti!"
Sóluskatturínn:
Á fisk en ekki á afruglara!
Ólafur skrifar:
Það fer nú að vefjast fyrir fólkf
hvað ráðamenn ætlast fyrir þegar
þeir útdeila sköttum og álögum
niður á þjóðina. Enginn mælir gegn
því að innheimta þurfi skatta og
skyldur en það er aðferðin sem er
umdeilanleg og í meira lagi.
Svo ekki sé nú verið að taka dæmi
um ótal vöruflokka, sem telja ætti
undanþegna söluskatti, svo sem
ýmsar matvörur og aðrar nauð-
synjar en undanskilja hann hins
vegar á vörum og tækjum sem hik-
laust má flokka undir ónauösynleg
eða a.m.k. lúxus, ætla ég aðeins að
minnast á tvennt, fisk og afruglara.
Ætli flestir geti ekki verið því
sammála að fiskur ætti að vera
undanþeginn söluskatti svo al-
menn neysluvara sem hann er á
hverju heimili? Á hann verður þó
lagður söluskattur. - Hins vegar-
veröa afruglarar undanþegnir
söluskatti!
Ég sé ekki betur en verið sé bein-
línis og vísvitandi að egna almenn-
ing gegn stjómvöldum og
embættismönnum sem leggja með
þessum hætti mat á innheimtu og
útfærslu reglna um söluskatt.
Ég get ekki að því gert en ég sé
enga heila brú í svona ákvöröun-
um. Það væri fróðlegt að fá ein-
hvem rökstuöning fyrir þessu.
Rás 2:
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Er rás 2 fyrir starfsfólk eöa hlu9t-
endur? Ég spyr að gefnu tilefni. Ég
hringdi í rás 2 aöfaranótt mánu-
dags um kl. 2 aö nóttu. í símann
svarði karlmaöur. Ég sagðist vilja
senda kveðju og þákklæti með
harmóníkulagi til þeirra sem
stjórna þessum þætti fyrir frábæra
þjónustu.
Ég sagði manninum aö Ó.Þ. ætti
aö fá kveðju mína með laginu, en
hún kom aldrei, svo hringdi ég aö
Bréfritari er óónægður með sima-
þjónustu Rásar tvö
. nýju kl. fjögur en þá svaraði eng-
inn.
Þessi maður lék bara þau lög sem
honum þóttu við hæfi en ekkert frá
hlustendum. Sömu sögu er aö segja
um konuna sem var á vakt nóttina
áður. Hún tilkynnti aö hún myndi
loka símanum kl. þijú um nóttina
og tæki ekki á móti fleiri kveðjum.
Svona fólk er ekki fært um aö
taka að sér þjónustustörf. Þeir sem
stjóma og hafa með þennan þátt
að gera ættu að skipta um starfs-
fólk.
Laus staða
Staða háskólamenntaðs fulltrúa í hlutafélagaskrá er
laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, sendist ráðuneytinu fyrir 15. janúar nk.
Viðskiptaráðuneytinu, 11. desember 1987.
7/ílRBO-UffiSfI
m THE ULTIMATE POWER PRESSURE WASHER
ÞVOTTATÆKIÐ
Alhliða þvottatæki tengt beint við garðslönguna.
„SOFT-SUDS“ sápubrúsi fylgir hverju tæki.
„TURBO-WAX“ bóni ersprautað á bílinn með tækinu.
’immmse
Varahlutaverslun
Bildshöfða 18 - Reykjavik - Simi 91-672900
fpCITIZEN
Jólagjöf tölvueigandans!
CITIZEN LSP-10 hefur verið einn
mest seldi prentarinn hérlendis undan
farin ár og ekki. að ástæðulausu.
Nú bætir CITIZEN um betur,
með LSP-100, enn meiri
fjölhæfni og afköst en áður.
Mesti prenthraði er 175 stafir á
sekúndu, 30 stafir á sekúndu í
spariletri (NLQ). Stafastærðir
eru frá 5 stöfum á tommu upp
í 20, hægt er að hafa stafi í
tvöfaldri hæð fyrir fyrirsagnir. CITIZEN LSP-100 er einnig
gerður til að endast, verksmiðjuábyrgð í tvö ár, tvöfalt lengri en
hjá öðrum! CITIZEN LSP-100 hentar öllum tölvum, sérstaklega
PC og AT samhæfðum.
Tölvueigandinn fær hér sérstaklega fjölhæfan prentara sem
hentar einstaklega vel sem einkaprentari á skrifstofuna eða heim.
Átvinnumenn treysta CITIZEN prenturum. Þú getur treyst því
að tölvueigandinn verður hæstánægður með LSP-100.
MICROTOLVAN
Síðumúla 8 - 108 Reykjavík - sími (91)-688944
Hringið í síma
27022
milli kl. 13 og 15,
eða skrifið.
A.S E A Cylinda
þvottavélar ★sænskar og sérstakar
Fá frábæra dóma í neytendaprófunum fyrir
þvott, skolun, vindingu (fjölhraða lotuvind-
ing upp í 1200 snúninga), taumeðferð, sápu-
og orkusparnað. Efnisgæði og öryggi ein-
kenna ASEA. Gerðar til að endast.
f3ár /FOniX
Hátúni 6A SÍMI (91)24420
iFOmx
ábyrgð