Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1987, Page 32
32
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Raquel Welch
leiðist afskaplega allt snobb
í fólki. Joan Collins ætlaði
um daginn að lappa upp á
líkamann og æfa líkamsrækt.
Raquel Welch hefur gefið út '
myndband um líkamsrækt og
Joan hringdi í hana og bað
hana að senda sér eitt slíkt.
Raquel sagði henni að hún
hefði nógar tekjur til þess að
kaupa það í næstu búð. Joan
varð svo reið að hún struns-
aði í næstu sjoppu og keypti
líkamsræktarband... með lík-
amsræktaræfingum Jane
Fonda.
Tískusýning. Ekki er allt sem sýnist. DV-myndir FB, Mývatnssveit Rósa Sigurjónsdóttir, Elín Steingrímsdóttir og Þorbjörg Gísladóttir reyna
að sprengja blöðrur með vindsængapumpum sem þær sitja á og hossa sér.
Skemintun fyrir
sjúkrabifreið
Finnur Baldursson, DV, Mývatnssveit
í seinni hluta nóvember héldu
slysavamadeildin Hringur og björg-
unarsveitin Stefán í Mývatnssveit
skemmtisamkomu í Skjólbrekku og
rann aUur ágóði af henni til fyrir-
hugaðra kaupa á sjúkraflutningabif-
reið fyrir björgunarsveitina.
Þessa bifreið bráövantar því sú
gamla er vart boðleg til sjúkraflutn-
inga lengur. Margir brugðu sér á
þessa samkomu og virtust hafa
ágæta skemmtan af. Ýmsir sýndu á
sér hina hliðina og tóku þátt í fjöl-
breyttum og jafnframt heimatilbún-
um skemmtiatriðum, til dæmis voru
eftirhermur, blöðrusprengingar með
tilþrifum, leynigestur, tískusýning
með ýmsu óvæntu og fleira.
Á eftir lék hljómsveit Illuga Þórar-
inssonar fyrir dansi. Sjón er sögu
ríkari svo hér fylgja nokkrar myndir
með.
Sverrir Karlsson björgunarsveitar-
maöur selur flatbrauð með hangi-
kjöti og reyktum silungi ur
þorramatartrogi, til styrktar kaupum
á sjúkraflutningabifreið.
Robert Redford,
sem fór frá konu sinni eftir
langt hjónaband, er nú farinn
að reyna við nýja sem er 7
árum eldri en hann. Hún hef-
ur verið með mörgum fræg-
um manninum og heitir
Jacqueline Kennedy-Onass-
is. Þau hittust í veislu í New
York fyrir nokkrum vikum og
eru sögð hafa hist ansi oft
síðan. Menn velta því nú
mjög fyrir sér hvort þau séu
bara góðir vinir eða hvort eit-
hvað meira sé á milli þeirra.
Láttu draum-
mn rætast
Viltu kaupa eitt stykki draumaeyju fyrir fáeinar milljónir? Vestur-Þjóðverjinn
Fahrad Vladi er selur slíkar eyjar ef einhver skyldi hafa áhuga.
Símamynd Reufer
Ef einhvem skyldi dreyma um að eignast sína eigin draumaeyju og á nokkr-
ar milljónir aflögu getur hann látið drauminn verða að veruleika.
Þeir sem hafa áhuga þurfa aðeins að koma sér í samband við Vestur-
Þjóðveijann Fahrad Vladi sem býr í Hamborg. Fahrad hefur þann starfa að
selja einkaaðilum eyðieyjar. Hann segir að það séu ekki eingöngu milljónar-
ar sem ráði við verðið heldur geti þeir sem em í þokkalegum efnum keypt
svona eyjar. Verðið er á bilinu 3,5 til 12 milijónir íslenskra króna, þannig
að einhveijir ættu að geta ráðið við það.
Madonna
ætlaði sér, á meðan allt var í
góðu gengi hjá henni og Se-
an Penn, að fá sér þúgarð í
Los Angeles þar sem þau
gætu verið í friði fyrir blaða-
snápum og Ijósmyndurum.
Hún ætlar sér að byggja bú-
garðinn þrátt fyrir að hún sé
búin að sparka Sean. Næsti
búgarður við hennar er í eigu
manns sem er ekki með öllu
óþekktur. Sá frómi maður
heitir Ronald Reagan.
Rokkí
Rússíá
Skyldi þetta vera í Londón, París,
New York, Hamborg? Nei, ekki al-
deilis. Þessi mynd var tekin af
sovéskum pönkurum í neðanjarðar-
lest í Moskvu á leið inn í miðbæinn
til þess að horfa á tónleika með
bresku rokkhljómsveitinni Uriah
Heep.
í Moskvu fara nú fram sjö daga
rokktónleikar og pönkarar og rokk-
arar Sovétríkjanna koma fram í
dagsijósið og streyma á þá. Pönkarar
eru til í Sovétríkjunum, ef einhver
skyldi hafa efast, og þeir em mun
óhræddari við að láta sjá sig nú þeg-
ar þíðu gætir í stjómmálunum þar
austra.