Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1987, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1987, Qupperneq 33
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987. Sviðsljós Selja- kirkja vígð Um síðustu helgi var vígð ný kirkja í Seljahverfi og ber hún heitið Selja- kirkja. Seljakirkja samanstendur af íjór- um húsum sfem standa í hvirfmgu og eru tvö þeirra tilbúin. Þau munu hýsa barna og unglingastarf í fram- tíðinni auk þess sem þau þjóna sem kirkja og er mikill munur fyrir íbúa Seljahverfis að fá þama aðstöðu en áöur hafði kirkjustarfseminni verið sinnt annars staðar. Séra Valgeir Ástráðsson prestur mun þjóna söfn- uöinum en formaður Seljasóknar er Gísli Árnason. Sigurður Guðmunds- son, settur biskup, vígði kirkjuna við hátíðlega athöfn. Fjöldi gesta var viðstaddur vígslu Seljakirkju, þar á meðal forseti Islands, Vigdís Finnbogadottir. Séra Sigurður Guömundsson, settur biskup, vigði kirkjuna. DV-myndir S Fergie horfir stolt á Andrew eiginmann sinn þegar hún fékk viðurkenn- ingu sem fullgildur þyrluflugmaður. Simamynd Reuter Áfanganáð Sarah Ferguson hefur nú loks náð langþráöum áfanga. Hún tók þyrluflugmannspróf fyrir nokkr- um dögum og hefur nú öðlast réttindi sem slíkur. Það var enginn annar en hertoginn af Jórvík og eiginmaður hennar, Andrew prins, sem nældi vængina sem viður- kenningu í barm konu sinnar. Andrew prins er sjálfur þyrluflug- maður í her hennar hátignar. Kennari Söru Ferguson, Kevin Mulhem, segir að hún hafi verið alveg sérstaklega efnilegur nem- andi og hafi ekki átt í neinum vandræðum með prófið, sem þó er tahö erfitt. NILFISK GS 90 /FQniX engin venjuleg ryksuga hatuniöa simk9D2442o NILF1SK DÖNSK GÆÐI Framtíðarryksugan sem þolir allan samanburð. Síung og spræk, löngu eftir að aðrar hafa gefist upp. Góö kjör-Greióslukortaþjónusta GJOFIN SEM KEMUR EIGINMANNINUM ÁÓVART SVÖRTU AUGUN Erik Nerlöe Hin svörtu augu unga sígáun- ans vöktu þrá hennar eftir frelsi — frelsi sem hún hafði lítið kynnst áður. Og ljúfir tónar fiðlu hans ollu því, að hún ákvað að flýja burtu með honum. En vissi hún hvert hún var að flýja? Nei, hún var of ung og reynslulítil til að vita það. Hún skildi ekki að blind ást hennar leiddi hana aðeins út í ófyrirsjáanlegar hættur. TÍNA Eva Steen Hún er ung og fögur og hefur kynnst manni sem hún elskar. Framtíðin blasir við þeim, en örlögin verða til þess að skilja þau. Hún sér sig nauðbeygða til að hverfa úr lífí hans. Með fegurð sinni og miklum hæfileikum sínum á listskautum nær hún langt, en þegar best gengur upp- götvast að hún er- haldin banvænum sjúkdómi. Einmitt þá kemur maðurinn sem hún elskar aftur inn í líf hennar. GÓÐIHIRÐIRINN Else-Marie Nohr Hún hvarf og ekkert fréttist af henni. Loks var hún talin af og álitin dáin. Dag einn birtist hún í sendiráði í Thailandi, aðframkomin og þungt haldin af hitasótt, og mundi ekki hvað hún hét. Með góðri læknishjálp nær hún sér fljótt, og nokkru seinna er hún á leið heim. Hún er full af lífs- þrótti og hlakkar til að sjá aftur manninn, sem hún elskar og hún hafði gifst stuttu áður en hún varð fyrir áfall- inu. En fjögur ár eru langur tími, og maður hennar hafði fyrir löngu talið hana af. SKVGGSJÁ - BÓKABÚÐ OIIVERS STEINS SE '%vtv>A'€Uoxte* /m RARRARA •, -| v^artland Astoghamingja Skuggsii ANGELA Theresa Charles Arigela Smith sækir um læknisstarf í bænum Whey.- stone. Þar ætlar hún einnig að reyna að jafna sig eftir slys, sem hún lenti í, í hreinu sveitalofti og kyrrlátu um- hverfi. Hún fær starfið, en henni er vantreyst sem lækni og litin hornauga sem persóna í fyrstu. En smátt og smátt vinnur hún traust og álit fólks. Angela missti mann sinn og dóttur í bílslysi og líf hennar hefur verið tómlegt síðan slysið varð. En er hún kynnist Mikael Traymond, ró- legum og yfirveguðum lækni, vakna tilfinningar hennar á ný. ÁST OG HAMINGJA Barbara Cartland Aðeins tvær persónur bjargast í land, þegar skipið brotnar í klettunum við strönd Ferrara, ævintýramaðurinn Sir Harvey Drake og hin fagra Paolina Mansfield. Þau voru bæði á leið til Feneyja og faðir Paolinu fórst með skipinu. Sir Harvey Drake stingur upp á því við hana, að hún ferðist með honum sem systir hans áfram til Feneyja. Þar segist hann auðveldlega munu geta fundið ríkan eiginmann handa henni — og um leið ætlar hann að tryggja sína eigin framtíð. Paolina felist á hugmyndina, og framundan er ævintýralegt og viðburða- ríkt ferðalag. PRISMA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.