Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1988, Page 11
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1988.
11
Utlönd
Efast um heil-
indi Ortega
Skæruliðar kontrahreyfmgarinn-
ar, sem berst með fulltingi bandarí-
skra stjðrnvalda gegn ríkisstjórn
sandinista í Nicaragua, draga í efa
heildindi Daniels Ortega, forseta
landsins, í aðgerðum þeim sem hann
boðaði um helgina til að greiða fyrir
friðarviðræðum milh átakaaðila.
Á laugardag tilkynnti Ortega að
hann hefði aflétt neyðarástandi því
sem ríkt hefur í Nicaragua í sex ár
og þar með gefið eftir neyðarvöld þau
sem ríkisstjóm og her hafa tekið sér
þar. Aö auki samþykkti Ortega við
sama tækifæri að ganga til beinna
samræðna við uppreisnarmenn úr
kontrahreyfmgunni og að láta lausa
alla pólitíska fanga í landinu. Þá
staðfesti Ortega að gengið yrði til
forsetakosninga í Nicaragua árið
1990.
Ortega skýrði frá þessum tilslök-
unum sínum á fundi forseta fimm
Mið-Ameríkuríkja, sem stóð um
helgina í Alajuela í Costa Rica. For-
setamir vom þar saman kómnir til
þess að leita leiða til að blása nýju
lífi í friðaráætlun þá sem þeir undir-
rituðu síöastliðið haust.
Daniel Ortega, forseti Nicaragua, ræðir við Vinicio Cerezo frá Guatemala
á fundi forsetanna í Costa Rica um heigina. Símamynd Reuter
Páfi gagnrýnir ísrael
Jóhannes Páll páfi II sagði í gær-
kvöld að hann teldi aðgerðir lögreglu
í ísrael, gegn þeim sem voru við
helgihald í mosku í Jerúsalem á
fostudag, óþolandi.
Páfi lýsti þessari afstöðu sinni við
fréttamenn í klúbb erlendra frétta-
manna í Róm í gær, en klúbburinn
átti þá sjötíu og fimm ára afmæli.
Atvikið, sem páfi visaði til, átti sér
stað á fóstudag. ísraelska lögreglan
beitti þá táragasi gegn hópi manna
sem vom að yfirgefa Al-Aqsa mosk-
una í Jerúsalem, eftir að hafa verið
þar við bænir. A1 Aqsa er þriðji í
röðinni á lista yfir helgustu staði
múhameðstrúarmanna.
Páfi sagðist ekki geta þolað að ráð-
ist væri á fólk á bænastundum.
Kvaðst hann gera sér grein fyrir rétt-
indum en hins vegar hefði annað fólk
einnig sín réttindi, þar á meðal Pal-
estínumenn.
Rólegt var á herteknu svæðunum
á Gazasvæðinu og Vesturbakkanum
í gær eftir margra vikna uppþot og
óeirðir sem kostað hafa nær íjörutíu
Palestínumenn lífið.
Lagðist í gær allt á eitt um að halda
aftur af mótmælum, útgöngubann
ísraela, harðar aðgerðir þeirra und-
anfarið og slæmt veður.
ísraelska ríkisstjórnin lýsti í gær
yfir stuðningi sínum við og aðdáun
á því hvemig her landsins hefur
meðhöndlað óróann meðal Palest-
ínumanna á herteknu svæðunum
undanfarið.
Þúsundir stúdenta í Róm gengu í
gær í mótmælagöngu gegn stefnu
ísraelsmanna á herteknu svæðun-
um.. Símamynd Reuter
ísraelska ríkisstjórnin getur hins
vegar ekki enn komið sér saman um
leiðir til þess að leita stjómmálalegr-
ar lausnar á vandamálum herteknu
svæðanna.
Marrack Goulding, sérlegur sendi-
maður Sameinuðu þjóðanna, sem í
gær sneri aftur til New York eftir
vikulanga ferð um herteknu svæðin,
sagði við brottför sína frá Jerúsalem
að ástandið á herteknu svæðunum
væri óþolandi.
Sagði Goulding að tuttugu ára her-
seta ísraela á svæðunum hefði
skapað ástand sem væri óþolandi
fyrir ísraelsmenn jafnt sem Palest-
ínumenn.
Palestínumenn reisa kreppta hnefa í mótmælaaðgerðum gegn Israelsmönn-
um. Þessir mótmæltu í Madrid, höfuðborg Spánar, fyrir framan sendiráð
Ísraelsríkis þar.
Símamynd Reuter
FYRIRTÆKITILSÖLU
• Fiskverkun með útfl. ásamt eign-
um - mikil velta - góð kjör.
• Matvöruverslun í Breiðholti -
mánaðarvelta 6,0 millj. - mögul.
á láni til lengri tíma.
• Veitingastaður i hjarta borgarinn-
ar - mikil velta - fallegar innrétt-
ingar.
• Heildverslun með snyrtivörur -
góð kjör.
• Byggingavöruverslun í
Reykjavik - góð umboð.
• Litil matvöruverslun ásamt sölu-
turni, verð 1,7 millj.
• Lítil heildverslun með vefnaðar-
vörur - góð kjör.
• Tískuvöruverslun með 35 millj. kr.
veltu á ári - góð staðsetning.
Uppl. á skrifst.
• Billjardstofa í Breiðholti í eigin
húsnæði - góð kjör.
• Sólbaðsstofa i Reykjavik - góð
kjör.
• Tískufataverslanir í Breiðholti -
ýmsir greiðslumöguleikar.
• Snyrtivöruverslun í vesturbæ -
miklir mögul.
• Sportvöruverslun i Reykjavik -
góð veita, fallegar innréttingar.
• Tískuvöruverslun við Laugaveg, -
gott húsnæði. - Góð kjör.
• Sælgætisgerð með nýjum áhöld-
um. Miklir möguleikar.
• Unglingaskemmtistaður í Reykja-
vík. Sanngjarnt verð.
• Leikfangaverslun i miðbænum -
eigin innflutn. - góð kjör.
• Matvælaframleiðsla - sósugerð -
arðbært fyrirtæki með mikla
möguleika.
• Söluturn í Reykjavik - við mikla
umferðargötu—mikil velta - góðar
innréttingar.
• Barnafataverslanir i miðbænum -
Góð kjör.
• 15 söluturnar víðs vegar í
Reykjavík, Kóp. og Hafnarfirði,
ýmsir greiðslumöguleikar eru i
boði.
Höfum kaupendur að góðum heild-
verslunum og söluturnum með mikla
veltu. Um er að ræða mjög fjársterka
kaupendur.
Við aðstoðum kaupendur og seljend-
ur fyrirtækja.
Ýmsir fjármögnunarmöguleikar.
VIÐSKIPTAÞJONUSTAN
Skeifunni 17
108 Reykjavik^^ (91)-689299
Viðskiptafræðingur:
Kristinn B. Ragnarsson.
Lögmenn:
Jónatan Sveinsson hrl.
Hróbjartur Jónatansson hdl.
★ Ráögjöf ★ Bókhald * Inn-
heimtur * Skattaaöstoö ★ Kaup
og sala
1
N O T A Ð 1 1 R B 1 / L A R
Kontraskæruhðar sögðu í gær að
þessar tilslakanir Ortega væru ein-
ungis á yfirborðinu. Þeim væri ætlað
að stöðva stuðning bandarískra
stjómvalda við kontrahreyfinguna.
Sögðust þeir hafa heyrt fjölmörg lof-
orð af svipuð tagi undanfarin ár en
efndirnar hefðu yfirleitt verið rýrar.
N N
Volvo 760 GLE, árg. ’83, ekinn 33
þús., hvítur, sjálfsk., vökvast., rauð-
ur, leðurinnrétting, rafmagn í
rúðum, læsingum og speglum, acc
miðstöð, loftkæling og vetrardekk á
felgum. Verð 900.000.
Volvo 740 GLE, ’86, ekinn 6.500,
dökkgrár, metallic, beinsk, 5 gíra,
vökvast., topplúga, rafm., í rúðum
og speglum, loftkæling, rautt plus-
sáklæði. Verð 1.050.000.
Volvo 245 GL, árg. ’86,ekinn 38.000,
blár, metallic, beinskiptur, 5 gira,
vökvastýri. Verð 700.000. Ath.,
skipti á ódýrari.
Volvo 340 GL, 5 dyra, árg. '86, ekinn
38 þús., silfur, metallic, beinsk., 5
gira, bíll í mjög góðu ástandi. Verð
495.000.
Volvo 244 GL árg. '82, ekinn 70
þús., gull, metallic, sjálfsk., vökva-
stýri. Verð 420.00. Góð kjör. Ath.,
skipti á ódýrari.
Volvo 244 DL., árg. ’82, ekinn 91
þús., beige, beinsk., vökvastýri, ný
dekk, púst o.fl.sl. Verð 360.000. Góð
kjör. Ath., skipti á ódýrari.
Volvo 244 DL, árg. '81, ekinn 86
þús., brúnn, sjálfsk., vökvastýri, bill
í góðu standi. Verð 330.000. Góð
kjör.
Mazda 323 árg. '83, ekinn 43. þús.,
Ijósblár, met., sjálfsk. Verð 270.000.
Góð kjör.
MMC Space Wagon, árg., ’84, silfur
metallic, beinsk., 5 gíra, vökvastýri,
7 manna bill. Verð 450.000. Góð
kjör. Ath., skipti á ódýrari.
Ford Escort 1.6 XL, árg. ’84, ekinn
41 þús., beinsk., 5 gíra, fallegur
bill. Verð 340.000. Góð kjör.
Volvo 240 DL, árg., '86, ekinn 23
þús., beige, metallic, sjálfsk., m/od,
vökvast., sumar/vetrardekk. Verð
700.000.
Volvo 245 GL, árg. '82, ekinn 77
þús., Ijósblár, met., sjálfsk., vökva-
stýri, sumar- og vetrardekk. Verð
425.000. Góð kjör.
Lada 1500, árg. '83, ekinn 55 þús., beinsk. Verð 125.000. Góð kjör.
Volvo 244 DL, árg., ’78, ekinn 166 þús., blár met., beinsk. Verð 165.000. Góð kjör.
Volvo 244 DL árg. 78, ekinn 146 þús. gulur, sjálfsk, góð kjör. Verð 180.000.
Volvo244DL, árg. 76, ekinn 150 þús., grænn, beinsk. Verð 110.000. Góð kjör.
Golf C, árg. '84, ekinn 84 þús, rauður, beinsk. Verð 300.000. Góð kjör.
Volvo 202 Lapplander, árg. ’81, ekinn 55 þús., brúnn, hvítur, beinsk., vökva-
stýri, ný dekk og felgur o.fl. Verð 450.000. Góö kjör.
Opel Kadett, árg. '84, ekinn 55 þús., rauður, beinsk. Verð 290.000. Góð kjör.
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 9.00 TIL 18.00
LAUGARDAGA FRÁ KL. 10.00 TIL 16.00
VOLVOSALURINN SKEIFUNNI 15 SIMI 691600-69161
P&Ó/SÍA