Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1988, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1988, Page 14
14 MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1988. Spumingin Á Tryggingastofnun ríkis- ins aö fá óhindraðan aðgang að sjúkraskrám lækna? Jón Þór Hallsson: Þetta er auðvitað viðkvæmt en ef grunur leikur á mis- ferli er það sjálfsagt mál. Þorvaldur Benediktsson: Einungis þegar þess gerist þörf, svo sem við- gengist hefur. Nikulás Magnússon: Já, það tel ég alveg tvímælalaust. Ásmundur Guðbjörnsson: Já. Hér er um fjármuni að ræða sem almenn- ingur leggur fram. Líney Skúladóttir: Mér finnst eðlilegt að þama sé höíð aögæsla þannig að læknar hafi þetta ekki algjörlega í sínum höndum. Lesendur Verkaskipting ríkis og sveitaifélaga: Þeir greiði sem nota Breyting á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga hið mesta réttlætismál, segir i bréfinu. - Atkvæðagreiðsla á Alþingi, en ekki um verkaskipting- una. K.B.K. skrifar: Breytingar þær sem ríkisstjórnin vill gera á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga mæta nú talsverðri andstöðu á Alþingi. Er það að von- um því á Alþingi sitja einhveijir mestu „kerfiskallar" og ríkisaðdá- endur sem uppi em meðal þjóðar- innar. Þegar ég tala um ríkisaðdáendur á ég auðvitað við þá aðila sem viija koma sem flestum verkefnum yfir á hið opinbera og það greiði sem mest af þeirri þjónustu sem lands- lýður á kost á. Síðan sé almenning- ur einfaldlega rukkaður um greiðslur og það ótæpilega eins og dæmin sanna. Staðgreiösla skatta mun styðja dyggilega að þeirri inn- heimtu og hún mun verða meiri og þyngri en nokkum órar fyrir (sbr. 12 mánaða skattatímabil í stað 10 áður). En um hvaö snúast breytingar þær sem ríkisstjómin vfil koma á? Þær em aðallega fólgnar í því losa ríkið, hinn sameiginlega sjóð landsmanna, undan því greiðslu- oki sem nú er viö lýði, án tfilits til þess hvort allir landsmenn njóta viökomandi þjónustu; að kostnað- ur við marga rekstrarþætti úti á landi færist til þeirra sem eiga aö njóta þjónustunnar, af ríkissjóði til sveitaiíélaganna. Þannig á viðkomandi sveitarfélag að greiða sjálft kostnað við dagvist- arheimili sín, tónlistarskóla, byggðasöfn, vatnsveitur og hafnir, svo dæmi sé tekið. Og hvað er það annað en eðlfiegt? Auövitað þýðir þetta meiri útgjöld fyrir sveitarfé- lögin en ríkið tekur annaö að sér á móti. Og hvað er rangt við að þeir greiði sem nota. ' Nú vilja alþingismenn margir - og þá ekki eingöngu stjórnarand- stöðumenn því stuðningsmenn ríkisforsjár fmnast í öilum flokk- um - að fyrst verði „tryggö fjár- hagsleg staða sveitarfélaganna gagnvart ríkinu" áður en ráðist verði í verkefnatilfærslu sem gagn- ist ríkinu lítið fjárhagslega, eins og þeir segja. Þessi afstaða þeirra er alröng og stórkostlega viðsjárverð. Flest sveitarfélögin vfija stefna að auknu sjálfstæði með framkvæmdir hjá sér og endurspeglast því þær breyt- ingar, sem hafa verið kynntar af ríkisstjóminni, vfija flestra sveit- arstjóma og þar með íbúanna. í sannleika sagt er þetta frum- varp stjórnarinnar eitthvert það mikilvægasta sem lagt hefur .verið fram og réttlætismál fyrir skatt- greiðendur. Hvers vegna eigum við hér í Reykjavík t.d. að bera kostnað af dagheimilum úti á landi, tón- menntakennslu í hinum ýmnsu byggðarlögum og lögn vatnsveitu? Greiða sveitarfélögin úti á lands- byggðinni kostnað við Hitaveitu Reykjavikur? Eða félagsheimilin, sem standa ónotuð að mestu um alla landsbyggöina, eiga þau að vera ríkisrekin? Það má með ólíkindum teljast ef stjórnarandstööuþingmönnum og áhangendum þeirra í stjórnar- flokkunum tekst að eyðileggja eitt mesta réttlætismál sem borið hefur verið upp á Alþingi íslendinga um langt skeið. Það er engin þörf að kvarta Gunnar Sverrisson skrifar: Sem stendur er máttur skammdeg- isins yflrgnæfandi. Samt hefur það sinn þokka svo sem hagstæða verð- urmynd og gefur fyrirheit um að dag taki að lengja að nokkrum vikum liðnum. í dag, 2. janúar, skín sól í heiði með fjögurra stiga frosti. Dálítið er liðið frá sólstöðum og daginn lengir um „eitt hænufet á dag.“- Baömurinn við veginn stendur stoltur og tíguleg- ur í laufleysi sínu og minnir að nokkru á dróma náttúrunnar að vetrinum. En „Það er engin þörf aö kvarta, þegar blessuð sóhn skín,“ sagði skáldið forðum í einu af ljóöum sín- um og ef vel er að gáð er þessi dagur sem aðrir fullur af fjöri og athafna- semi. Þegnarnir vinna fyrir sínu daglega brauði við mismunandi störf og er eins og dálítið krydd og mótvægi við lauflausan baðminn viö veginn og gróðurleysi sem bíður vors að sunn- an. Þangað til hefur ótal margt átt sér stað frá hafi til heiða. Menn eru ef tfi vill mishæflr til aö taka á móti lífsljósinu með hækkandi sól en fognuðurinn i sálinni mun vakna um það leyti er baðmurinn við veginn tekur að laufgast, gróðurheild vaknar af dvala og vorsvölur kvaka. En það er vetur um þessar mundir, mfidur og gætinn í veruleika sínum. Það gerir tfiveruna auðveldari en ella fyrir marga því drottning dags- ins, blessuð sólin, minnir þá á að þeir hafa sannarlega eitthvað að lifa fyrir, er höfðingi skammdegisins vík- ur að lokum fyrir vorþey og birtu. „ ... er gróðurheild vaknar af dvala og vorsvölur kvaka“, segir Gunnar af skáldlegri innlifun. - Gróðursetn- ing að vori. Bréfritari óttast að borgarstjóri færist of mikið í fang með þvi að halda byggingu ráðhússins til streitu. Ráðhúsbygging borgarstjóra: Skaðar hún fylgi Sjálf- stæðisflokksins? Sjálfstæðismaður skrifar: Þvi miður veigra ég mér við að skrifa þetta bréf undir nafni þar sem ég hef um árabfi unnið fyrir Reykja- víkurborg og er háður því aö fá þar verkefni, hér eftir sem hingað til. Ég hef alla tíð verið sjálfstæðismað- ur og stutt flokkinn með góðri samvisku, ekki síst fyrir borgar- stjómarkosningar, enda er ég ekki búinn að gleyma því, frekar en aðrir, hvemig vinstri sundrungaröflin fóru að ráði sínu þau fjögur ár sem þau filu heilli áttu að heita við stjóm hér. En nú er ég farinn að kvíða næstu borgarstjórnarkosningum. Það er vegna ráðhússins sem mér skilst aö borgarstjórinn sé ákveöinn í að byggja, hvað sem hver segir. Borgar- stjórinn er röggsamur og duglegur en ég óttast að í þessu máli ætli hann að færast of mikið í fang. Þótt varlegt sé að taka mark á skoö- anakönnunum skil ég ekki hvernig unnt er að líta fram hjá því að í tveimur slíkum sl. haust urðu niöur- stöður á þann veg að 61% þeirra sem tóku afstöðu vom á móti þessum byggingaráformum og 39% vom hlynntir þeim. - Niðurstöðumar vom þær sömu, hvort sem fólk átti heima í Reykjavík eða utanbæjar. Hvemig er nú hægt að ganga fram- hjá svona ákveðnum vísbendingum? Maður, sem hefur unnið með mér í mörg ár, spurði um daginn hvort ég héldi að Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði sér yfirleitt að bjóða fram til borgarstjómar eftir tvö ár! - Ég skfidi ekki alveg hvað hann var að fara en hann taldi þá að andstaða við ráð- húsbyggingu væri svo útbreidd að þaö þýddi.ekki fyrir borgarstjórann að reikna með miklu fylgi ef hann ætlaði að ganga í berhögg við vilja þorra manna í þessu efni og byggja sitt ráðhús, hvað sem hver segir. Borgarstjórinn má ekki gleyma því að hann er ekki einn í Reykjavík. Þaö er um eitt hundrað þúsund manns sem á hér heima - auk hans! Er góðærið farið? Stjórna en ekki stjómast Páll H. Jóhannsson skrifar: Ég get ekki oröa bundist yfir öllu „góðærinu", sem svo hefur veriö kallað. Rikissjóður er rekinn með 5-6 miHjarða halla á síðasta ári en þó hefur aldrei fengist meira fyrir sjávarafurðimar - eða svo er sagt og skrifaö. Við síðustu kjarasamninga var svo b’-ú um hnúta aö kauphækk- uni.. ætti ekki ?.ú valda verðbólgu og gerði ekki að raínu áliti og fleiri. Samt er verðbólgan komin á skrið aftur og vextir þaö háir að fyrir- tæki og flölskyldur ráða ekki við lánin. Væri ekki nær að hafa stjóm á peningamálunum heldur en aö láta vaða á súðum? Ein stétt manna finnst mér blómstra og það er verslunarstéttin (kaupmenn). Það er kannski frjáls- hyggjunni fyrir að þakka. Eða var það ekki hún (fijálshyggjan), sem átti að gera þaö að verkum, að vömverð hækkaöi ekki svo mikið sem raun ber nú vitni? Ætli versl- unarhallirnar sýni það ekki best og kannski er ennþá veriö að byggja fyrir „tapiö“ eins og það er kallað! Mér finnst vera kominn tími til að stjóramálamennirnir fari nú að stjóraa en ekki að láta stjóraa sér. Þeirvirðasthafa alla sína vitneskju frá sérfræðingum. Ég held að nær væri að stjóma af sannfæringu og aðstæðum hveiju sinni en ekki aö láta aðra segja sér fyrir verkum. Hringið í síma 27022 milli kl. 13 og 15, eða skrifið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.