Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1988, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1988, Blaðsíða 32
44 MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1988. Jarðarfarir Auður Hannesdóttir, Langagerði 66, Reykjavík, andaðist í Landspítalan- um 8. janúar sl. Jarðarforin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Björn Stefánsson frá Akurseli, Öx- arfirði, lést í Sjúkrahúsi Húsavíkur að morgni 14. janúar. Jarðarför hins látna fer fram frá Skinnastað, Öxar- firði, laugardaginn 23. janúar kl. 14. Útför Helga Guðnasonar frá Karls- skála, fyrrverandi póstafgreiðslu- manns á Þórshöfn, fer fram frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Þórhallur Þorsteinsson, Bollagötu 10, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 19. janúar kl. 13.30. Ingimundur Brynjólfsson frá Þing- eyri, sem lést af slysförum 4. janúar, var jarösunginn frá Þingeyrarkirkju sl. laugardag. Tapað - Fundið Lyklakippa tapaðist í miðbænum sl. miðvikudag. Kippan er með amerískum silfurdollar og er mikil persónuleg eign. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 17415. Tilkyrmingar BOKAVARÐAN . 'V -GAM1.AR BÆKC'S OG NYJAK- VATNSSTÍG 4 - REYKJAVlK - SlMI 29720 ISLAND Ný bóksöluskrá frá Bókavörðunni Bókavarðan - gamlar bækur og nýjar hefur sent frá sér 47. bóksöluskrá sína. í þessari skrá eru rúmlega 600 bóka- og timaritatitlar sem skiptast í margvíslega flokka eftir efni og innihaldi: íslensk fræði og norræn, saga lands, heims og menningar, skáldsögur ísl. og erlendra höfunda, hagnýt efni, lögfræði, kvæði, leikrit, handbækur ýmsar o.m.fl. Bók- söluskrá þessi er send ókeypis til allra sem þess óska utan Reykjavíkursvæðis- ins - og áhugamenn geta vitjað hennar í verslunina á Vatnsstíg 4 í Reykjavík. Janúar- heftið komiö út MEÐAL EFNÍS: m handa karlmönnm Karlarí kvennastörfm og margt fleira. r Meiming Valsatöfrar - Peter Guth og Silvana Dussman á Vínartónleikum Svokallaðir Vínartónleikar eru löngu orðnir fastur liður á dag- skránni hjá Sinfóníunni og njóta mikilia vinsælda. Þetta fyrirbæri er líklega vaxið upp úr nýárstón- leikum frá Vín sem Ríkissjónvarp- ið sendir okkur til afréttingar á fyrstu dögum hvers árs og ekki nema gott um það að segja. Þegar maður hugsar til Vínar dettur manni að vísu fyrst í hug Haydn, Mozart, Beethoven og umfram allt Schubert, stundum líka Mahler og Bruckner. En á Vínartónleikum eins og þessum eru það valsarnir sem skipta máli og þá auðvitað fyrst og fremst músík eftir Jóhann Strauss og þá feðga. Og það eru sosum ekki dónalegar traktering- ar. Á laugardaginn var kominn í Háskólabíó mikilll snillingur viö TónJist Leifur Þórarinsson svona músík: Peter Guth, fiðluleik- ari og stjórnandi, beint frá Vín. Og það var næsta ótrúlegt hvernig hann fékk hljómsveitina til að sveiflast með í Dónárbakkapolkum og suðrænum rósavölsum. Og ekki versnaði það þegar til liðs við mannskapinn kom söngkonan Sil- vana Dussmann, útlærð í valsatöfr- unum í Vínarakademíunni og Volksoper. Að vísu var eins og hana vantaöi herslumuninn í létta „elegansinum" (það er smekksat- riði) en það var unun að heyra Peter Guth, stjórnandi og fiðluleik- ari. hana í Csardasnum úr Leðurblök- unni þar sem þarf kraft og skaphita og snerpu á háu stigi. En mest var þó gaman að kammermúsíkinni, örstuttu númeri sem Peter Guth lék með þrem félögum úr strengja- deildinni: Vínargeði op 116 eftir Jóhann Strauss eldri, útsettu fyrir kvartett af Alexander Weinmann. Það var hrífandi músík og fuU af elskulegum fögnuði. Ekki má gleyma Kirkjukór Akraness og Kór Fjölbrautaskólans á sama stað, sem sungu í tveim númerum af mikilli list. Já, í heiid voru þetta eftir- minnilegir tónleikar og til mikillar ánægju. En næst væri samt gaman að heyra Guth fara boganum um strengina í t.d. fiðlukonsert eftir Mozart: hann mun nefnilega gera það flestum betur. LÞ Ferðaáætlun Utivistar 1988 er komin út í henni er getiö samtals 204 styttri og lengri ferða um ísland. Höfuðáhersla er lögð á útiveru og gönguferðir við allra hæfi. Styttri ferðir, þ.e. dags- og kvöld- ferðir, eru 112. Miklar breytingar hafa verið gerðar á þeim og er tekin upp ný- ung sem kallast ferðasyrpur. Viöamesta ferðasyrpan er strandganga í landnámi Ingólfs þar sem gengið verður frá Reykja- vík og strandlengjunni fylgt suður á Reykjanes og síðan austur að Ólfusárrós- um í 22 ferðum. Helgarferðir er 72, bæði um byggðir og óbyggðir, og eru flestar þeirra í Þórsmörk en Útivist á þar tvo gistiskála í Básum. Helgarferðir eru einn- ig yfir vetrarmánuðina og er sú fyrsta þorrablótsferð í Þjórsárdal þann 22.-24. jan. með gistingu í félagsheimilinu Ár- nesi. Sumarleyfisferðirnar eru fleiri en áður eða alls 20, frá fjögurra til níu daga langar. Oft er hægt að tengja saman ferð- ir og lengja þannig sumarleyfið. Margar nýjar sumarleyfisferðir eru á áætlun en tlestar eru á Hornstrandir. Útivistarferð- ir eru öllum opnar en félagsmenn greiða lægra fargjald í helgar- og lengri ferðum. Nánari upplýsingar veitir skrifstofan i Grófmni 1. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laganema, er á fimmtudagskvöld- um kl. 19.30-22 í síma 11012. Námskeið í skyndihjálp Reykjavíkurdeild RKÍ heldur námskeið í skyndihjálp. Það hefst þriðjudaginn 19. janúar að Ármúla 34 (Múlabæ) kl. 20 og stendur yfir 5 kvöld. Skráning í síma 28222. Námskeiðsgjald er kr. 1000. Leið- beinandi verður Guðlaugur Leósson. Öllum heimil þátttaka. Á námskeiðinu verður leitast við að veita sem almenn- asta þekkingu um skyndihjálp. Meðal annars verða kennd viðbrögð við öndun- arstoppi, beinbrotum, bruna og sýnd myndbönd um ýmsa þætti skyndihjálpar. Nú er tækifæri fyrir fólk að læra fyrstu viðbrögð við slysum eða endurbæta fyrri þekkingu. Talið er nauðsynlegt að fólk fari í gegnum allt námskeiðið á 3 ára fresti til að halda þekkingunni við. En fari á 2 kvölda upprifjunamámskeið einu sinni á ári. Boðið verður upp á slík nám- skeið á næstunni ef þátttaka fæst. Námskeiðinu lýkur með verkefni sem hægt er að fá metið í hinum ýmsu skól- um. Spilakvöld Spilakvöld verkakvennafélag- anna Framsóknar og Sóknar eru að hefjast. Fyrst verður spilað mið- vikudaginn 20. janúar kl. 20.30 að Skip- holti 50a. Happdrætti Happdrætti Samtaka gegn astma og ofnæmi Dregið var í 2000 miða happdrætti Sam- taka gegn astma og ofnæmi 24. desember sl. Vinningar komu á eftirtalin númer: 543 Fiat Uno bifreið. 1959 Útsýnarferð. 1330 Ferðaútvarpstæki. Vinninga skal vitjað á skrifstofu Sam- taka gegn astma og ofnæmi, Suðurgötu 10, sími 22153. Gætni verður mörgum að gagni f umferðlnni. yUMFBVMR rað Fréttir Landamerkjadeila í Borgarfirði: Slæm aðför að bónda Brúsholts - segir oddviti Reykholtsdalshrepps Landamerkjadeila sem annars vegar er milli Matthíasar Á. Mathies- en ráðherra, Birgis Þorgilssonar feröamálastjóra og Birgis Jóhannes- sonar tannlæknis, en þeir eiga saman jörð að Skógum í Reykholts- dalshreppi í Borgarfirði, og hins vegar Sigurðar Albertssonar, bónda í Brúsholti, er nú komin til úrskurð- ar sýslumanns. Deilan kom upp í haust þegar ný arðskrá var gerð um Flókadalsá sem rennur gegnum báð- ar jarðimar. Þórir Jónsson, oddviti Reykholts- dalshrepps, sagði í samtali við DV að mörg þung orð hefðu fallið í garö þremenninganna vegna þessara málaferla því að enginn hefði nokk- um tíma efast um að skikinn til- heyrði Brúsholti frá því að elstu menn muna. Þætti mönnum þetta því slæm aðför að bónda Brúsholts sem munaði um tekjumar af ánni en jafn háttlaunaðir menn og þre- menningarnir þyrftu ekki á þeim að halda. Einnig þótti honum einkennilegt að eigendur Skóga gerðu fyrst tilkall til spildunnar 16 árum eftir að þeir eignuðust jörðina. Hann sagði landamerkjabréfin, sem miðað er við, síðan fyrir alda- mót og er í bréfi Skóga einungis miðað við læk sem rennur út í Flóka- dalsá en í bréfi Brúsholts er miö tekið af móa sem stendur við ána. Því gæti verið aö landamerkjabréfin hefðu verið samhljóða þegar þau voru samin en deilan stæði í raun og veru um hvort lækurinn rynni í sama farvegi nú og fyrir hundrað árum. „Sáraeinfalt mál“ „Þetta er sáraeinfalt mál og raunar sambærilegt við það að einstaklingur kaupi sér fjögurra herbergja íbúð í Reykjavík og fái afsal frá fyrri eig- anda fyrir henni. Hann býr þar í ákveðinn tíma en einn góðan veður- dag kemur maðurinn á neðri hæðinni og segist eiga eitt herbergið. Við keyptum jörðina að Skógum fyr- ir 16 árum og fengum afsal frá seljanda með nákvæmum landa- mæralýsingum en þegar ný arðskrá um laxveiði í Flókadalsá var gerð í vor kom í ljós að bóndinn í Brús- holti hafði aðrar hugmyndir um landamerkin milli jarðanna. Greinir okkur á um spildu sem er um 400 metrar að lengd meðfram ánni. Ósk- uðum við þvi eftir að sýslumaöur skæri úr um hvorri jörðinni spildan tilheyrir," sagði Birgir Þorgilsson ferðamálastjóri í samtali við DV. Sigurður Álbertsson, bóndi í Brús- holti, hefur búið þar síðan 1948 og sagði hann engan hafa efast um að skikinn tilheyrði Brúsholti allan þann tíma. Hann sagði laxveiðitekjur sínar af ánni undir hundrað þúsund- um á ári en vildi annars lítið tjá sig um málið. -JBj Reykjavíkurskákmótið: Fjöldi stórmeistara hefur tilkynnt þátttöku sína - þar á meðal Mikhail Gurevich, 11. stigahæsti skákmaður heims Hið árlega Reykjavíkurskákmót hefst 23. febrúar næstkomandi. Það er Skáksamband íslands og Taflfélag Reykjavíkur með stuöningi Flugleiöa hf. sem standa að mótinu sem er opið 11 umferða mót og verður teflt eftir svissneska kerfinu. Allmargir erlendir stórmeistarar hafa tilkynnt þátttöku sína í mótinu en þeirra frægastur og öflugastur er sovéski stórmeistarinn Mikhail Gurevich sem er 11. stigahæsti skák- maður heims um þessar mundir með 2.625 ELO-stig. Hann er 29 ára gam- all. Af öðrum þekktum köppum, sem hafa tilkynnt um þátttöku, eru Sovét- mennirnir Dolmatov og Kuzmin, Robert Byrn og Walter Brown frá Bandaríkjunum og ungverski stór- meistarinn Adorjan. íslensku stórmeistararnir Margeir Pétursson, Helgi Ólafsson, Jón L. Árnason og Guðmundur Siguijóns- son ætla allir að vera með ásamt flestum hinna ungu og efnilegu skák- manna okkar. Þráinn Guðmundsson, formaður Skáksambands íslands, sagði í sam- tali við DV að vel gæti verið að fleiri frægir skákmenn bættust í hópinn. Þráinn fer til Kanada með Jóhanni Hjartarsyni og sagðist hann ætla að reyna að fá einhverja af sterkustu skákmönnum heims til að koma á mótið. Heildarverðlaun á mótinu veröa 25.600 dollarar eða tæp ein milljón króna. Af þessari upphæð fær sigur- vegarinn 9.000 dollara eða um 325 þúsund krónur, önnur verðlaun eru 6.000 dollarar og þriðju verðlaun 4.000 dollarar. Alls verða veitt 10 verðlaun. Ekki er ótrúlegt að þátttak- endur verði á milli 70 og 80. -S.dór A annað hundrað hafa misst prófíð Herferð lögreglunnar í umferðinni hefur borið góðan árangur. Á annað hundrað manns hafa misst ökuskír- teini sín fyrir of hraöan akstur. Að sögn lögreglu gæta menn ekki að sér þrátt fyrir aukið eftirlit. Mikil aukn- ing er á radarmælingum og eru nú fleiri lögreglubílar með mæla en áð- ur. Herferðinni verður haldið áfram. Þá fer þeim fjölgandi sem aka ölv- aðir. Aðfaranótt sunnudagsins voru 9 teknir grunaðir um ölvun við akst- ur og í einu tilfellanna hlaust slys af. Með þessu áframhaldi má búast við að aukning verði á farþegum í strætó. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.