Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1988, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1988, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988. Spumingin Finnst þér hvalkjöt gott? Selma Böðvarsdóttir: Já, það er bara ágætt, þó allt eftir því hvemig það er matreitt. Guðgeir Ásgeirsson: Ekkert sérstakt, hef þó stundum borðað það. Guðmundur Bergmann: Já, þar er bara prýðilegt, t.d. steikt, en það verður að fara rétt með það. Atli Gunnar Jónsson: Mér finnst það ágætt. Hjalti Þorkelsson: Já, mér finnst það alveg prýlegur matur. Helga Thomsen: Mér finnst það gott, hef eldað það nokkuð oft. Lesendur Sama gamla tóbakið? Mikill munur á tóbaki sem keypt er í Frihöfninni eða annars staðar hér á landi? Guðmundur S. Guðmundsson hringdi: Nokkrir mánuöir era nú hðnir síðan ég fór að taka eftir því að tóbak það sem hér fæst, einkum sígarettur og vindlar, er mun verra en það sem maður fær t.d. í Frí- höfninni á Keflavíkurflugvelli eða hvar annars staðar sem maður hefur tækifæri til aö kaupa það. Þetta lýsir sér í því að tóbakið er mjög þurrt og er orðið laust í sér þannig að það hrynur úr pakkan- um um leið og hann er opnaður. Einnig er eins og loft hafi komist í suma pakkana og þeir era lausir viðkomu. Þetta leiðir til þess að tóbakið er mun ódrýgra en ella og nánast brennur upp á skömmum tíma. Ég hef einnig heyrt vindlamann segja sömu sögu af þeim tegundum sem hann notar af vindlum. Einstaka tegimdir eru verri hvað þetta snert- ir en aðrar. Ég ætla ekki að taka til neina sérstaka tegund enda væri slíkt víst ekki talið sæma - yrði sennilega kallað atvinnurógur eða eitthvað enn verra. Það mætti hins vegar gera ein- hveija úttekt á því hvaða tegundir það era af tóbaki sem svona er ástatt um því mig grunar að hér sé ekki allt eins og það á að vera, hvort sem um er að ræða að verið sé að flytja inn gamlar birgðir eða þá að geymslu á tóbaki er hér ábótavant. Mér stendur ekki á sama í hvem- ig ástandi þessi vörategund er frekar en aðrar sem maður hefur aðgang að hér á markaðnum og því vænti ég þess að tóbaksinnflytjend- ur gangi fram fyrir skjöldu og ráði bót hér á, en flokki ekki þessa umkvörtun undir einbert nöldur eða bara „sama gamla tóbakið". Söluskattsævintýrið: Almennmgur er plataður Fiskimaður skrifar: Ekki efa ég að söluskattsævintýri fiármálaráðherra hefur verið þraut- hugsað, eða hefur mér skjátlast? Trúlega hef ég ekki reiknað dæmið rétt, söluskattsævintýrið hefur ekki verið hugsað til enda - og nú dansa gróðapúkamir. Mér varð það á að hafa vel opin augu í fiskbúð nú á dögunum og sá þá hversu fáránlegt þetta er. Fisk- kaupmaðurinn fór suður á nes fyrr u,n daginn og keypti fisk beint úr báti. Fiskurinn var fluttur í eigin pallbíl til Reykjavíkur. Ég vil svo ekki ergja lesendur með því að minnast á það okurverð sem fiskur- inn var seldur á hér í Reykjavík, þaö þekkja allir. En menn vita yfirleitt ekki að álagningin er nokkur hundr- uð prósent! Nú innheimti fisksalinn söluskatt af hverjum viðskiptavini. Ekki var nú verið að hafa fyrir því að stimpla þessa aura inn á kassa. Ónei, kassinn stóð opinn og var því óþarfi að stimpla inn þessa smáaura. - Hvar var svo eftirlitið með því hvernig söluskatturinn skilar sér? Hvemig heldur ráðherra að söluskatturinn skih sér? Ég veit það og einnig alhr sem nenna að kynna sér þessi mál. Þetta er bara smádæmi um hvemig út- þvælt kerfi og höfundar þess og gæslumenn láta plata sig. Það sem verra er þó, við erum öh plötuð. Ófullnægjandi póstþjónusta: Hugmynd til úrbóta Guðmundur Bj. skrifar: Nú eftir áramótin hefur boriö á því að póstþjónustan hefur versnað svo um munar. Þar sem ég bý og í því hverfi yfirleitt, t.d. við Ásvahagötu og Sólvallagötu, er þetta orðið mjög áberandi og fólk er farið að ræða þetta er það hittist á götunum. Ég og kona mín áttum t.d. von á áríðandi bréfi sem viö vissum að hafði verið póstlagt á miðvikudegi (24. jan. sl.). Við fengum það hins vegar ekki fyrr en þriðjudaginn í vik- unni á eftir. Hefðum við ekki vitað að bréfið hafði verið póstlagt hefðum við misst af atburði sem við vhdum ógjaman að færi fram hjá okkur og var okkur mikilvægur og kær. Sá aðih sem kom svo með póstinn þriðjudaginn 2. þ,m. sagði aö vand- ræðiri væru mikil hjá Póstinum og einkum vegna manneklu. Það fengj- ust einfaldlega ekki menn til þessara starfa og stæðu auk þess stutt við í j Bréfritari leggur til að bllar verði notaðir til dreifingar á pósti i hverfunum. - Póstur flokkaður. starfi. Nú vh ég ekki fara að gera neina úttekt á þessu vandamáh Pósts og síma en mér finnst þetta vera mál sem hægt væri að leysa án þess að reiða sig um of á ótryggan mannafla við núverandi skipulag. Vh ég þá skjóta inn þeirri uppástungu hvort ekki sé hreinlega hepphegra að nota meira bifreið með traustum manni sem tekur að sér stærra svæði til útburðar á pósti en nú er raunin. Ég hef rekist á þetta, t.d. í Banda- ríkjunum, að pósti er dreift í hús á bh sem merktur er póstþjónustunni og aðeins einn maður er við verkið. Ég held að kannski megi rekja skort á fólki th dreifingar á pósti hér aðal- lega th þess að verkið þyki leiðinlegt, þreytandi og vegna mikilla göngferða í misjöfnum veðrum. Ég er ekki frá því að þetta sé athug- andi fyrir Póst og síma því einhver lausn veður að finnast á slælegri dreifingu pósts í sum hverfi í borg- inni. Einn maður á bh kemst yfir mun stærra svæði á skemmri tíma en kannski fimm eða sex einstakhng- ar. Ekki þyrfti að stöðva bílinn við hvert hús, heldur staðsetja hann með vissu milhbih og dreifa síöan í húsin eftir eigin hentugleikum. - Hugmynd th athugunar. Húseigandi hringdi: Þetta er varðandi bflana sem lögreglan er að khppa númerin af viðs vegar um borgina. Það er i engin vanþörf á að framfylgja þeim lögum því margur er bhlinn sem er ahsendis óökufær af ýms- um ástæðum. í nágrenni við heimili mitt var khppt númer af tveimur bifreið- um um daginn og voru þær siðan fjarlægðar af viðkomandi eigend- um. En nokkrum dögum seinna var svo khppt af þremur bhum th viöbótar en þá hefur enginn fjarlægt enn sem komið er. Og svo er það „vondi kallinn" : sem hringir og krefst þess að bíl- ar, sem númerin hafa verið tekin af, séu fjarlægðir. En hvaö á aö gera? Ekki er hægt að hða að bíl- ar, sem eru óökufærir og illa útiítandi, standi endalaust fyrir framan húsin og taki upp bfla- stæði sem aldrei er nóg af. Ég legg tfl að lögreglan fjarlægi aha þá bíla sem hun ætlar að taka úr umferð og khppi númerin af á sfnu yfirráðasvæði eða annars staðar þar sem þessi bflhræ eru best niður komin. Það er mikiö um þessi bflhræ víös vegar um borgina og þau eiga ekki heima j utan við húsin eftir að númerin hafa veriö tekin af.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.