Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Page 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 1988.
Utlönd
SJö fórust í snjóflóði
Sjö manns fórust og um þrjátíu
slösuðust þegar snjóflóð féll á þorp-
ið St Anton í Austurríki síðastlið-
inn sunnudag.
Srþóflóðið olli verulegum
skemmdum á mörgum byggingum
og hréif með sér fjölda bifreiöa og
mikið af lausamunum.
Talin er mesta mildi að ekki varð
meira manntjón í flóöinu.
Hermenn vinna nú að því að
hreinsa vegi eftir snjóflóðið auk
þess sem leit að fólki stendur enn
þótt vonlítið sé talið að finna fleiri
álifi.
Hengja sexmenningana
..
Stjómvöld í Suöur-Afríku hafa ákveðiö að framfylgja dauðadómum yfir
sex blökkumönnum, sem dæmdir vom til hengingar fyrir morð á svörtum
embættismanni, þrátt fyrir alþjóðlegar beiðnir um náðun.
Lögfræðingur sex-menninganna, fimm karla og einnar konu, skýrði frá
því í gær aö þeim hefði verið sagt að þau yrðu tekin af lífi í fangelsi í
Pretoriu á íöstudag'.
Talsmenn stjómvalda hafa ekki viljað staöfesta fregnir þessar en yfir-
leitt tjá stjórnvöld í S-Afríku sig ekki um aftökur fyrr en þær hafa fariö
fram.
Eldflaugar á Teheran
írakar skutu í morgun tveim eld-
flaugum á Teheran, höfuðborg
írans, og er þetta þriðji dagurinn í
röð sem þeir gera árásir á borgina,
eftir að tveggja daga óopinberu
vopnahléi milh ríkjanna tveggja
lauk.
írakar hófu þessar árásir á
sunnudagskvöld, þegar þeir skutu
á Teheran, að eigin sögn í ,viðvör-
unarskyni. Á mánudag skutu þeir
niu eldflaugum á Teheran og íran-
ar sögðust hafa svarað í sömu
mynt, með þvi að skjóta tveim eld-
flaugum á Bagdad, höfuðborg
íraks.
Að sögn stjórnvalda hafa hundr-
uð manna fallið í árásum ríkjanna
á höfuðborgir hvort annars undan-
farið, þar af um þrjú hundruð
almennir borgarar í íran.
Þá halda íranar þvi fram aö þeir hafi fellt eða sært liðlega tvö þúsund
íraska hermenn í bardögum á þrem stöðum á sunnudag og mánudag.
Segjast þeir hafa gert þtjár árásir inn í norö-austanvert og austanvert
írak þessa daga.
Talið er að um sjötíu prósent alls heróíns, sem nú er selt í New York, komi frá Suðaustur-Asíu. í skyndiárás sem
lögreglan í Hong Kong gerði á sunnudagsmorgun fundust tvö hundruð kiló af heróíni. Simamynd Reuter
Heróínkóngur
handtekinn
Meintur leiðtogi heróínhrings í
Suðaustur-Asíu, Kon Yu-Leung, hef
ur verið handtekinn í New York. í
gær var hann ákærður fyrir að hafa
smyglað eiturlyfium til Bandaríkj-
anna að andvirði eins milljarðs
dollara.
Að sögn embættismanna var eitur-
lyfiakóngurinn, sem er flóttamaður
frá Hong Kong, gripinn fyrir utan
Hilton hótel í New York og var hann
þá með falsaðan passa. Náinn banda-
rískur samstarfsmaður hans, sem
var fyrrverandi lögreglumaður í
New York, var einnig handtekinn.
Kon hefur verið leitað víða um
heim frá árinu 1984 þegar hann fyrst
vakti athygli yfirvalda á sér. Hann
reyndi þá að smygla rúmlega hundr-
að kílóum af heróíni til Bandaríkj-
anna. Heróínið fannst um borð í
togurum í höfninni í Hong Kong. Kon
sá sér þann kost vænstan að flýja frá
nýlendunni og starfaði síðan aðal-
lega í Bólivíu og Panama.
Aukin mótmæli í Panama
„Við viljum dollara," hrópar þessi kona i Panama. Hún var ein af þúsund
opinberra starfsmanna sem ekki fengu greidd nein laun í gaer og bankarn-
ir voru enn lokaðir. Yfirvöld í Panama ihuga nú að greiða fólki með
skömmtunarmiðum. Símamynd Reuter
Mótmælaaðgerðir gegn Noriega,
hershöíðingja í Panama, hafa nú
einnig verið teknar upp í hverfum
verkamanna. En þrátt fyrir aukinn
þrýsting vegna efnahagsþvingana
Bandaríkjamanna hyggst Noriega
ekki einu sinni hugleiða yfirlýsingu
spænskra yfirvalda um að ef hann
biðjist þar hælis verði honum veitt
landvistarleyfi.
Noriega segist munu halda áfram
að berjast fyrir yfirráðum yfir Pa-
namaskurði sem hann segir Banda-
ríkjamenn ágirnast. Samkvæmt
samningi milli ríkjanna frá 1977 fell-
ur skurðurinn undir yfirráð Panama
eftir árið 2000.
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkj-
anna tilkynnti í gær að send hefði
verið til Panama fimmtíu og fimm
manna sveit sérstaklega þjálfuð til
að’berjast við hryðjuverkamenn og
einnig sérstök öryggissveit. Nú eru
um tíu þúsund bandarískir hermenn
í Panama.
eru hvattir til að kynna sér
verðkönnun Verðlagsstofnunar
Vandið
vöruvalið.
•
Gerið
verðsamanburð
Opið laugardaga frá 9-12
ivMit
BIFREÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR
Suðurlandsbraut 14, 107 Reykjavík, sími 681200