Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 1988.
Nauðungaruppboð
til slita á sameign
á fasteigninni Skálaheiði 5, 3. hæð, þingl. eigandi Lára Ólafsdóttir,
fer fram í skrifstofu embaettisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, fimmtu-
daginn 17. mars 1988 kl. 10.00.
Uppboðsbeiðandi er Svala Thorlacius hrl.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
- SJÚKRALIÐAR
Hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða vantar til
sumarafleysinga.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 97-71403
Fjórðungssjúkrahúsið Neskaupstað.
Frá grunnskólum
Reykjavíkur
Innritun sex ára barna (þ.e. barna sem fædd eru á
árinu 1982) fer fram í skólum bo.rgarinnar miðviku-
daginn 16. og fimmtudaginn 17. mars nk. kl. 15-17
báða dagana.
Það er mjög áríðandi að foreldrar láti innrita börnin
á þessum tilgreinda tíma eigi þau að stunda forskóla-
nám næsta vetur.
Frá Skólaskrifstofu
Reykjavíkur
Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem þurfa
að flytjast milli skóla fyrir næsta vetur fer fram í Skóla-
skrifstofu Reykjavíkur, Tjarnargötu 12, sími 28544,
miðvikudaginn 16. og fimmtudaginn 17. mars nk.
kl. 10-15 báða dagana.
Þetta gildir um þá nemendur sem flytjast til Reykja-
víkur eða úr borginni, koma úr einkaskólum eða
þurfa að skipta um skóla vegna breytinga á búsetu
innan borgarinnar.
Það er mjög áríðandi vegna nauðsynlegrar skipu-
lagningar og undirbúningsvinnu að öll börn og
unglingar sem svo er ástatt um verði skráð á ofan-
greindum tíma.
Þá nemendahópa, sem flytjast í heild milli skóla,
þarf ekki að innrita.
Nú er hægt að hringja inn
smáauglýsingar og greiða
með korti.
'CUPOCABD
Þú gefur okkur upp:
Nafn þitt og heimilisfang,
slma, nafnnúmer og
gildistíma og númer
greiðslukorts.
Hámark kortaúttektar
I slma kr. 4.000.-
V?SA
EUBOCAOO
SMÁAUGLÝSINGADE
ÞVERHOLTI 11
SÍMI 27022
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Rjúpufell 35,4. hæð t.v., þingl. eigandi
Halldór V. Karlsson, fer íram á eign-
inni sjálfri fimmtud. 17. mars 1988 kl.
16.30. Uppboðsbeiðendur eru Hákon
Ámason brl. og Ólafur Gústafsson hrl.
Völvufell 26, þingl. eigandi Kristín
Högnadóttir, fer fram á eigninni sjálfri
fimmtud. 17. mars 1988 kl. 16.00. Upp-
boðsbeiðandi er Stefán Páfsson hrl.
BORGARFÓGETAEMBÆTnÐ í REYKJAVÍK
Utlönd
Gorbatsjov í
Júgóslavíu
Mikhail Gorbatsjov, Sovétleiðtogi,
kom í gær í opinbera heimsókn tii
Júgóslavíu og er það í fyrsta sinn í
tólf ár sem Sovétleiðtogi sækir Júgó-
slavíu heim. Var Gorbatsjov ákaft
fagnaö við komuna.
Gorbatsjov mun eiga viðræður við
forseta Júgóslvaíu, Lazar Mojsov, og
kvaðst hann hlakka til að skiptast á
skoðunum viö forsetann um þjóðar-
brotin sem lifað hafa í báðum
löndunum í aldaraðir. Gorbatsjov
var spurður hvað hefði eiginlega
gerst í Armeníu og Azerbajdzhan og
kvað hann þar hafa komið upp
„vandamál sem væru menningarlegs
og framkvæmdalegs eðlis sem yfir-
völdum hefðu yfirsést.“ Gorbatsjov
sló á létta strengi við fréttamenn og
sagði að ef þeir gætu bent honum á
land þar sem ekki væru slík vanda-
mál fyrir hendi myndi hann fara
þangað strax.
Gorbatsjov og leiðtogar Júgóslavíu
munu meðan á heimsókninni stend-
ur undirrita yfirlýsingu þar sem
kveðið er á um fullt jafnræði ríkj-
anna og sjálfstæði. Yfirlýsing þessi
er mikilvæg fyrir Júgóslava sem árið
Forseti Júgóslaviu, Lazar Mojsov, tók í gær á móti Gorbatsjov Sovétleiðtoga 1948 voru reknir úr alþjóðasambandi
i Belgrad. Símamynd Reuter kommúnista.
Olafur helgi fór
á þijár milljónir
Páll Vflhjálmsson, DV, Osló:
Mynt, sem inniheldur tvö grömm
silfurs, var seld á uppboði 1 Osló
um helgina fyrir þrjár milljónir ís-
lenskra króna og er það hæsta verð
sem greitt hefur verið fyrir mynt á
Norðurlöndum.
Verömæti myntarinnar felst i því
að hún er frá því snemma á elleftu
öld og með áþrykktri andlitsmynd
af Ólafi helga Noregskonungi. Að-
eins þrettán sambærilegir skilding-
ar eru til í heiminum í dag.
Myntin fannst í Póllandi snemma
á síðasta áratug og á uppboðinu um
helgina komst hún í hendur norsks.
myntsafnara.
Útgöngubann á
Gazasvæðinu
Yfirvöld í ísrael hafa nú fyrirskipað
útgöngubann á Gazasvæðinu aö næt-
urlagi. íbúar Gazasvæðisins höfðu
boðaö til nýrra aðgerða til þess að
mótmæla yfirráðum ísraela.
ísraelskar útvarpsstöðvar greindu
frá því í gær að útgöngubannið hefði
verið sett á til þess að Palestínumenn
gætu ekki dreift flugritum þar sem
hvatt er til aðgeröa gegn ísraels-
mönnum. Útvarpsstöðvarnar sögðu
einnig að herinn vonaðist til að menn
væru nú ekki jafnhræddir við glæpa-
öldu vegna fjöldauppsagna palestín-
skra lögreglumanna.
Israelskir hermenn handtaka Palestinumann eftir mótmælagöngu á Vestur-
bakkanum. Simamynd Reuter
Að minnsta kosti helmingur þeirra
þúsund Palestínumanna sem starfað
hafa fyrir ísrael á Vesturbakkanum
og Gazasvæðinu hafa sagt upp störf-
um sínum. Eru þeir sagðir hafa óttast
um líf sitt eftir hótanir í flugritum.
Mótmælendur hafa þegar tekið af lífi
arabískan lögreglumann og upp-
ljóstrara.
Boðað hefur verið til allsherjar-
verkfalls í dag og á morgun á her-
teknu svæðunum þar sem að
minnsta kosti 91 Palestínumaður
hefur fallið frá því að óeirðimar hó-
fust fyrir þremur mánuðum.