Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Page 33
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 1988.
33
LífsstíU
Úrslit í Hængsmótinu
í Hængsmótinu var að þessu sinni keppt í
boccia, borðtennis og lyftingum en keppni í
bogfimi féll niður vegna ónógrar þátttöku,
Elvar Thorarensen, ÍFA, fékk Hængsbikarinn
að þessu sinni en hann er veittur þeim kepp-
anda sem nær bestum árangri í mótinu
samanlagt.
Önnur úrslit urðu þessi:
Lyftingar
(bekkpressa) stig
1. Reynir Kristófersson, ÍFR, 68,8
2. Arnar Klemenss., Viljanum, 57,0
3. Reynir Sveinsson, ÍFR, 56,5
Borðtennis
Úrslitaleik Elvars Thorarensen og
Stefáns Thorarensen, sem báðir eru
úr ÍFA, var frestað en í 3. sæti varð
Sigurrós Karlsdóttir, ÍA.
Boccia
(hreyfihamlaðir)
1. Elvar Thorarensen, ÍFA
2. Helga Bergmann, ÍFR
3. Stefán Thorarensen, ÍFA
Kátur hópur keppenda úr félaginu Snerpu frá Siglufiröi.
íþróttafélagiö Eik á Akureyri var að sjálfsögðu með fjölmennan hóp vaskra
keppenda á mótinu. DV-myndir gk/Akureyri
Ég ætla að verja titilinn
- sagði Ólafur Þormar Gunnarsson úr Gáska
Boccia
(þroskaheftir)
1. Pétur Pétursson, Eik
2. Matthías Ingimarsson, Eik
3. Jón Líndal, Gný
í sveitakeppni hreyfihamlaðra
sigraði A-sveit ÍFR, A-sveit ÍFA varð
önnur og B-sveit ÍFA varð þriðja.
í sveitakeppni þroskaheftra sigraði
A-sveit Eikar, A-sveit Snerpu varð
önnur og Gáski varð í 3. sæti.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ólafur Þormar Gunnarsson heitir
íþróttamaður sem keppir með Uði frá
íþróttafélaginu Gáska sem er frá
Skálatúni í Mosfellsbæ. Gáski tók nú
þátt í Hængsmótinu í fyrsta skipti
og sendi þrjá keppendur.
„Ég æfi boccia, sund og frjálsar
íþróttir og er búinn að gera það í 6
ár, eða frá því íþróttafélagið okkar
var stofnað," sagði Ólafur. „Það er
mjög gaman að keppa í íþróttum og
gaman að koma til Akureyrar,“ bætti
hann við..
Ólafur er íslandsmeistari þroska-
heftra í boccia, vann þann titil í
Keflavík á síðasta ári. „Ég er alveg
ákveðinn í vinna aftur á næsta ís-
landsmóti,“ sagði Ólafur er við
kvöddum hann.
Olafur Þormar Gunnarsson frá Gáska í Mosfellsbæ.