Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Blaðsíða 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 1988.
Fréttir
i>v
Níunda vélsleðakeppnin í Mývatnssveit:
Ahorfendur yflr sex hundruð
og keppt í nýjum greinum
son á Polaris 600 á 17,36 sek.
Flokkur B. Fyrstur varð Hörður
Sigurbjarnarson á Yamaha Exiter
á 18,17 sek., annar Rúnar Arason á
Air Tiger á 18,47 og þriðji Hinrik
Árni Bóasson á Indy 400 á 18,48.
Flokkur C. Fyrstur varð Tómas
Eyþórsson á Indy Trail á 18,24 sek.,
annar Gunnar Hákonarson á 18,58
sek. og þriðji Sturla Fanndal á Indy
Trail á 18,83 sek.
Eftir hádegi á laugardag fór fram
brautarkeppni nálægt Kröfluvirkj-
un. Brautin var 2,9 km að lengd
með 39 hliðum, stökkþraut,
bremsuþraut og nálarþraut. Úrslit
í flokki A urðu þau að fyrstur varð
Ingvar Grétarsson á Polaris 650 á
7:19,14 mínútum, annar varð Jó-
hannes Reykjalín á 7:21,40 mín. og
þriðji Árni Grant á Polaris 600 á
7:24,23 mín., Flokkur B. Fyrstur
varð Hörður Sigurbjarnarson á
Yamaha Exiter á 7:39,88 mín., ann-
•ar Arnar Valsteinsson á Indy 400 á
7:54,43 mín. og þriðji Ofeigur
Fanndal á Indy 400 á 7:57,70 mín.
Flokkur C. Fyrstur varð Gunnar
Hákonarson á Indy Trail á 7:40,33
mín., annar Þorlákur Jónsson Indy
Trail á 7:42,32 mín. og þriðji Sturla
Fanndal á Indy Trail 7:59,01 mín.
Um kvöldið var svo mikil sam-
koma í Sólbrekku með mat,
skemmtiatriðum og verðlaunaaf-
hendingu. Dans á eftir. Guðmund-
ur Gíslason, forstjóri Bifreiða- og
landbúnaðarvéla, fékk viðurkenn-
ingu frá Björgunarsveitinni Stefáni
í Mývatnssveit fyrir vélsleða sem
hann gaf sveitinni þegar keppnin
fór fram í fyrra. Þá fékk Þröstur
Brynjólfsson, yfirlögregluþjónn á
Húsavík, viðurkenningu frá Mý-
vatni 88 vegna mikillar aðstoðar
við þessa keppni í mörg ár. Keppn-
in í heild þótti takast vel og urðu
engin slys á fólki.
Finnui Baldursson, DV, Mývatnssveit
. Vélsleðakeppnin Mývatn 88 fór
fram dagana 3.-6.mars í ágætis-
veðri. Það eru björgungarsveitin
Stefán og iþróttafélagið Eilífur sem
standa að keppninni. Alla dagana
var boðið upp á skoðunarferðir
með leiösögn. Þetta var níunda vél-
sleðakeppnin sem haldin er í
Mývatnssveit og þyrfti að athuga
fyrir næsta ár að fá leyfi til að kalla
keppnina íslandsmót sem hún hef-
ur raunverulega verið óumdeilan-
lega. Mikill fjöldi fólks og sleða
mætti á staðinn og voru áhorfend-
ur þegar mest var um 600-700 og
hátt á annað hundrað sleðar komu.
Keppendur voru 67.
Á föstudag var keppt í nýrri
keppnisgrein, svonefndu fjallaralli,
en í því kepptu sveitir frá vélsleö-
aumboðunum, skipaöar þremur
mönnum hver. Sveit Polaris bar
sigur úr býtum en í henni voru
Ingvar Grétarsson, Þorlákur Jóns-
son og Jón Ingi Sveinsson. Sveit
Yamaha varð í öðru sæti, skipuð
Arnþóri Hallssyni, Benedikt Val-
týssyni og Sigurjóni Gylfasyni.
Svéit Artic Cat lenti í þriðja sæti
en hana skipuðu Magnús Þorgeirs-
son, Bergsveinn Jónsson og Pálmar
Pálmarsson. Um kvöldið var mót-
setning í Hótel Reynihlíð.
Fyrir hádegi á laugardag fór fram
kvartmíluspyrnukeppni á Vítismó-
um. Úrslit í AA flokki urðu þannig
að fyrstur varð Finnur Aðalbjörns-
son á Wild Cat á 15,68 sekúndum,
í öðru sæti varð Stefán Þengilsson
á Wild Cat á 15,95 sek. og þriðji
varð Tómas Eyþórssón á Polaris
650 á 16,37 sek. Flokkur A. Fyrsta
sæti Vilhjálmur Ingvarsson á Pol-
aris 600 á 16,60 sek., í öðru sæti
Stefán JónssonáFormúla + á 17,00
sek. og þriðji Sigurður Kristjáns-
Keppandi á Indy 650.
DV-mynd Rúnar Þór Björnsson
DV-mynd Rúnar Þór Björnsson Fylgst með keppni.
BÍLA
MARKADUR
...á fullri ferd
Á bflamarkaöi DV á
laugardögum, auglýsa
fjöldi bilasala og
bilaumboóa fjölbreytt
úrval bfla af öllum
geröum og i öllum
veröflokkum.
Aw jl )
L.
AUGLYSENDUR
ATHUGIÐ!
Auglýsingar i bllakálf
þurfa aö berast í slöasta
lagi fyrir kl. 17:00
fimmtudaga.
Smáauglýsingar i helgar-
blað þurfa aó berast fyrir
kl. 17:00 föstudaga.
Slminn er 27022
BLAÐAUKI
ALLA
LAUGARDAGA
Róbert Agnarsson, framkvæmda-
stjóri Kisiliðjunnar.
Kisiliðjan
tölvuvæðist
------------------------v
Firmur Balduisson, DV, Mývatnssveit:
Það er mikið að gerast hjá Kísiliðj-
unni í Mývatnssveit því þar er verið
að taka í notkun tölvu af Wang-gerð,
sem mun breyta miklu í rekstri verk-
smiðjunnar. Hún verður tengd við
bókhald, iaunagreiðslur og lager fyr-
irtækisins og fleira í framtíðinni. Þá
verður tölvan í sámbandi við París
og fleiri staði, einnig umboðsaðila í
Reykjavík svo þeir geti gert leiörétt-
ingar á kerfmu ef með þarf.
Að sögn Róberts B. Ágnarssonar
framkvæmdastjóra, er þetta mikil-
vægur áfangi í uppbyggingu fyrir-
tækisins og mun vonandi skila sér
vel í framtíðinni.