Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1988, Blaðsíða 35
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 1988. 35 Afmæli Þorsteinn frá Hamri Þorsteinn frá Hamri, Smáragötu 2, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Þorsteinn fæddist á Hamri í Þver- árhlíð og var í námi í Héraðsskól- anum í Reykholti 1951-1954 og tók gagnfræða- og landspróf þaðan. Hann var í námi í Kennaraskóla íslands 1955-1957 og vann við sveitastörf samhhða námi til 1958. Hann fékkst síðan við bókavörslu og verkamannavinnu í Reykjavík samhhða ritstörfum og hefur ein- göngu fengist við ritstörf frá 1967. Þorsteinn var í stjóm Rithöfunda- félags íslands 1966-1968 og hefur verið í stjórn Rithöfundasambands íslands frá 1985. Hann hlaut menn- ingarverdlaun DV 1981 fyrir Haust í Skírisskógi og bækur hans, Fiður úr sæng Daladrottningar og Spjóta- lög á spegh, voru tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs. Rit Þorsteins eru: í svörtum kufli, ljóð, 1958. Tannfé handa nýjum heimi, ljóð, 1960. Lifandi manna land, ljóð, 1962. Skuldaskil, þættir úr ísl. þjóðlífi, 1963. Lágnætti á Kaldadal, ljóð, 1964. Jórvík, ljóð, 1967. Himinbjargarsaga eða Skóg- ardraumur, skáldsaga, 1969. Veðrahjálmur, ljóð, 1964. Möttull konungur eða Caterpiilar, saga úr sveitinni, 1974. Fiðrið úr sæng Daladrottningar, 1977. Haust í Skír- isskógi, skammdegisprójekt, 1980. Spjótalög á spegil, ljóð, 1982. Ljóða- safn, 1984. Ný ljóð, 1985. Urðagald- ur, ljóð, 1987 og Ættemisstapi og aðrir vermenn, 1987. Sambýliskona Þorsteins var Ásta Jóna Sigurðardóttir, f. 1. apríl 1930, d. 21. desember 1972, rithöfundur. Foreldrar hennar voru Sigurður Benjamín Jónsson, b. á Litla: Hrauni í Kolbeinsstaðahreppi, og kona hans, Þóranna Guðmunds- dóttir. Börn Þorsteins og Ástu eru Dagný, f. 31. október 1958, nemi í Tækniskólanum, Þórir Jökuh, f. 2. nóvember 1959, fréttamaður hjá RÚV í Rvík, kvæntur Matthildi Hermannsdóttur, og Böðvar Bjarki, f. 2. nóvember 1960, farmað- ur, sambýliskona hans er Carolyn Ann MacAIister verkakona, Kol- beinn, f. 24. janúar 1962, farmaður, sambýliskona hans er Sandra Sveinbjörnsdóttir viðskiptafræð- ingur, og Guðný Ása, f. 11. júní 1964, meinatæknir. Þorsteinn kvæntist 2. desember 1967 Guðr- únu Svövu Svavarsdóttur, f. 22. desember 1944, rithöfundi, þau skildu. Foreldrar hennar eru Sva- var Ólafsson, klæðskeri í Rvík, og kona hans Ehsabet Lilja Linnet, deildarstjóri hjá ESSO. Sonur Þor- steins og Guðrúnar Svövu er Egill, f. 7. október 1968, menntaskóla- nemi. Sambýliskona Þorsteins er Laufey Sigurðardóttir, f. 10. maí 1955, fiðluleikari. Foreldrar hennar eru Sigurður Örn Steingrímsson, prófessor í guðfræði, og kona hans, Bríet Héðinsdóttir, leikkona og leikstjóri. Bróðir Þorsteins er Þór- arinn Viðfjörð, f. 30. júní 1942, b. á Hamri í Þverárhhð, kvæntur Kar- en Welding. Foreldrar Þorsteins voru Jón Þorsteinsson, b. á Hamri í Þverár- hlíð, og kona hans, Guðný Þorleifs- dóttir. Jón var sonur Þorsteins b. á Hamri, Sigurðssonar, b. á Hóli í Þverárhlíð Þorsteinssonar, b. á Glitstöðum í Norðurárdal Sigurðs- sonar, b. á Hóli Guðmundssonar, Þorvarðssonar, lögréttumanns í Krossholti Sigurðssonar. Móðir Þorsteins á Glitstöðum var Þórunn Þorsteinsdóttir, systir Þorvaldar, Þorsteinn frá Hamri. langafa Sigríðar, móöur Halldórs Laxness. Móðir Þorsteins á Hamri var Þórdís Þorbjarnardóttir, b. á Helgavatni Sigurðssonar, og konu hans, Margrétar Halldórsdóttur, fróða á Ásbjarnarstöðum, Pálsson- ar, langafa Jóns, afa Garðars Halldórssonar, húsameistara ríkis- ins. Móðir Jóns var Þórunn Eiríks- dóttir, b. í Svignaskarði, Ólafsson- ar, b. á Lundum, Þorbjarnarsonar, föður Ólafs, langafa Bjarna Bene- diktssonar forsætisráðherra. Guðný var dóttir Þorleifs, b. á Hofi í Norðfirði Torfasonar, b. í Skuggahlíð í Norðfirði Jónssonar, b. á Kirkjubóli Vilhjálmssonar, bróður Þóru, langömmu Þóreyjar, ömmu Eyþórs Einarssonar, for- manns Náttúruverndarráðs. Móðir Guðnýjar var Guðfmna Guð- mundsdóttir, b. á Tandrastöðum Magnússonar og konu hans Guðnýjar Ólafsdóttur. Móðir Guðnýjar.var Mekkín Erlendsdótt- ir, b. í Hellisfirði Árnasonar, ættföður Hellisfjarðarættarinnar, fóður Einars, langafa Jakobs, fóður Svövu rithöfundar. Sesselja Hróbjartsdóttir . Sesselja Hróbjartsdóttir húsmóðir, Söndu, Stokkseyrarhreppi, er sjö- tug í dag. Sesselja fæddist í Hafnar- firði. Hún giftist 20.5. 1939 Jóni Jónssyni, forstjóra á Söndu á Stokkseyri, f. á Vestari-Loftsstöð- um í Gaulverjabæjarhreppi 10.8. 1908. Foreldrar Jóns: Jón b. á Vest- ari-Loftsstöðum, Jónsson b. þar Jónssonar, og kona hans, Ragn- hildur Gísladóttir, b. á Rauðabergi í Fljótshveríi, Magnússonar, b. á Orustustöðum, Einarssonar. Sesselja og Jón eiga fjögur börn. Þau eru: Jón Áskell bifvélavirki, f. 20.9. 1939, kvæntur Guðbjörgu Kristínu Kristinsdóttur, en börn þeirra eru Jón Rafn, f. 28.4. 1965, Ómar, f. 1.1.1968, og Jónína, f. 28.6. 1970; Gunnar Valur fangavörður, f. 21.11.1943, en börn hans eru Sess- elja, f. 13.5.1968, og Hróbjartur, 3.7. 1970; Sigríður Kristín húsmóðir, f. 3.3.1948, gift Ólafi Auðunssyni bif- vélavirkja, en börn þeirra eru Sesselja Jóna, f. 20.12. 1968, Auður Hhn; f. 30.9.1976, Ólafur Már, 12.12. 1979, og Auðunn, f. 23.7. 1982; og Ragnhildur húsmóðir, f. 18.10.1953, gift Jóni Hallgrímssyni stýrimanni, en þeirra börn eru Bjarnheiöur' Guðrún, f. 24.2.1970, Svanhvít Ósk, f. 3.7. 1974, Jón Reynir, f. 6.5. 1977, Ingi Þór, f. 18.6. 1981, Sævar, f. 9.7. 1982, og Hallgrímur, f. 9.7. 1982. Systkini Sesselju: Ingunn hús- móðir, f. 15.3.1918; Óskar Hafstein, málarameistari, f. 22.2. 1923, Ásta Laufey húsmóðir, f. 14.7. 1929, og Dagný húsmóðir, f. 6.6. 1934. Foreldrar Sesselju: Hróbjartur Hannesson, b. í Mjósyndi, f. 11.4. 1890, d. 4.9. 1966, og kona hans, Guðfinna Steinsdóttir, f. 13.6.1894, d. 3.11. 1967. Föðurforeldrar Ses- selju voru Hannes, b. á Hlemmi- skeiði, Hannesson, b. á Grafar- bakka, Torfasonar, og kona hans, Sesselja Eyjólfsdóttir, b. í Vælu- gerði, Gestssonar, b. í Götu á Landi, Eyjólfssonar. Móðurforeldrar Ses- selju voru Steinn Jónsson, b. í Miklaholti og Skúfslæk, og kona hans, Ingunn Þorkelsdóttir. For- eldrar Steins voru Jón, b. í Unnar- holti, Oddsson, b. í Austurhlíð í Sesselja Hróbjartsdóttir. Gnúpverjahreppi, Jónssonar, b. á Brúnastöðum, Magnússonar, og kona hans, Margrét Einarsdóttir, b. í Laxárdal, Jónssonar, b. í Mið- koti undir Eyjafjöllum, Eyjólfsson- ar. Foreldrar Ingunnar voru Þorkell Guðmundsson, b. á Orms- stööum og Stóru-Borg í Grímsnesi, og kona hans, Guðrún Sigurðar- dóttir yngri, dóttir Sigurðar Ein- arssonar, b. í Gelti, og seinni konu hans, Ingunnar Bjarnadóttur. Hl hamingju með daginn 85 ára Eiríkur J. Kjerúlf, Suðurgötu 8, Seyðisfirði, er áttatíu og flmm ára í dag. 80 ára Sigurður Jónsson, Hátúni 10B, Reykjavík, er áttræður í dag. 75 ára Helga Jónsdóttir, Suðurgötu 12, Keflavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Anna Guðmundsdóttir, Leiru- bakka 9, Seyðisfirði, er sjötug í dag. 70 ára Sesselja Jónsdóttir, Hamraborg 16, Kópavogi, er sjötug í dag. Ingunn Hróbjartsdóttir, Eyja- hrauni 40, Þorlákshöfn, er sjötug í dag. 60 ára__________________________ Jónina Guðrún Egilsdóttir, Póst- hússtræti 13, Reykjavík, er sextug í dag. Jóhannes Oddsson, Vesturgötu 57A, Reykjavík, er sextugur í dag. Hólmsteinn Jóhannsson, Skipa- sundi 2, Reykjavik, er sextugur í dag. Jón Guðleifur Pálsson, Stóragerði 20, Reykjavík, er sextugur í dag. Guðrún Guðjónsdóttir, Hjallavegi 3, Suðureyri, er sextug í dag. 50 ára__________________________ Sigþór Sigurðsson, Geitlandi 2, Reykjavík, er.fimmtugur í dag. Nína Victorsdóttir, Bólstaðarhlíð 66, Reykjavík, er fimmtug í dag. Dagný Þorgilsdóttir, Smára- hvammi 9, Hafnarfirði, er fimmtug í dag. Halla Guðmundsdóttir, Hjallabraut 96, Hafnarfirði, er fimmtug í dag. Sturlaugur Jóhannesson, Smyrla- hrauni 6, Hafnarfirði, er fimmtug- ur í dag. Una Guðmundsdóttir, Stekkjar- holti 10, Akranesi, er fimmtug í dag. Ágúst Sigurðsson, Mælifelli, Lýt- ingsstaðahreppi, er fimmtugur í dag. 40 ára_________________________ Friðjón Eðvarðsson, Vorsabæ 8, Reykjavík, er fertugur í dag. Geir Guðmundsson, Seiðakvísl 20, Reykjavík, er fertugur í dag. Sólrún Einarsdóttir, Ásbúð 25, Garðabæ, er fertug í dag. Gylfi Guðmundsson, Urðarvegi 8, ísafiröi, er fertugur í dag. Markús Hávarðarson, Tungusíðu 22, Akureyri, er fertugur í dag. Elísabet Karlsdóttir, Gauksmýri 1, Neskaupstað, er fertug í dag. ----------------------------------------------|-----------------—-------------------------------|-------------------|-------------------------------I--------------------------------------H — Jón G. Pálsson Jón Guðleifur Pálsson vélvirki, Stóragerði 20, Reykjavík, er sextug- ur í dag. Hann fæddist í Reykjavík en ólst upp á Krossum í Staðar- sveit á Snæfellsnesi. Eftir nám í Reykholti tók hann mótoristapróf í Stykkishólmi árið 1945 og stund- aði síðan sjómennsku jafnframt bústörfum en flutti til Reykjavíkur 1953. Þá hóf hann störf hjá Lands- smiðjunni og lauk námi í vélvirkj- un. Jón starfaði hjá Landssmiðj- unni í tuttugu og sjö ár. Jón réð sig th ístaks hf. árið 1980 og vann þá um tíma í Narssarssuaq á Græn- landi. Síðan 1985 hefur hann unnið að eftirhti og viðgerðum á loftverk- færum hjá Landvélum hf. í Kópavogi. Jón kvæntist 1951 Maríu, dóttur Bjarna Finnbogasonar kaup- manns, Lárussonar á Búðum, og konu hans, Sigríðar Karlsdóttur, Lárussonar kaupmanns, Lúðvíks- sonar, í Reykjavík. Börn Jóns og Maríu eru: Sigríður Hrefna, kennari, gift Magnúsi Frið- bergssyni kjötiðnaðarmanni; Ásmundur Jón, bifvélavirki í Grindavík, kvæntur Kolbrúnu Guðmundsdóttur; Bjarndís, gift Halldóri Hildari Ingvarssyni kaup- manni; Páll, verslunarmaður, kvæntur Jódísi Runólfsdóttur; Stefanía Helga, gift Guðna Haralds- syni lögfræðingi; Bjarni Jón, framkvæmdastjóri, kvæntur Ágústu Óladóttur; og María, sem stundar nám viö Fjölbrautaskól- ann í Breiðholti. Áður hafði Jón eignast son með Steinunni Benón- ýsdóttur, Kristbjörn Jóhann Heiðar snyrti, sem kvæntur er Bjarkeyju Magnúsdóttur. Systkini Jóns: Helga, sem lést 1978, húsfreyja á Patreksfirði, hún var gift Hjalta Gíslasyni útgerðar- manni; Ragnheiður er dó í bernsku; Ragnheiður Kristín, gjaldkeri hjá Landmæhngum íslands, og Krist- ín, gift Vilhelm Heiðari Lúðvíks- syni, lyfsala- í Laugarnesapóteki. Hálfsystir Jóns er Friörika Páls- dóttir, gift Þórhalli Barðasyni. Fósturbróðir Jóns er Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson, skólastjóri að Þingborg í Flóa. Foreldrar Jóns voru Páll Jóns- son, heildsali í Reykjavík, og kona hans, Stefanía Ásmundsdóttir frá Krossum. Páll var sonur Jóns ísleifssonar, vegaverkstjóra á Eski- firði, og Ragnheiðar Pálsdóttur, prests og málleysingjakennara, Pálssonar í Þingmúla. Stefanía var dóttir Ásmundar, b. á Krossum, Jónssonar, b. í Lýsudal, Magnús- sonar. Móðir Ásmundar var Krist- ín Stefánsdóttir, b. á Saurum, Jónssonar. Móðir Stefaníu var Helga Jónsdóttir er lengi bjó ekkja á Krossum. Jóhann Gíslason Jóhann Gíslason, lögfræðingur Útvegsbanka íslands, Kvistalandi 16, Reykjavík, er sextugur í dag. Hann fæddist í Reykjavík, lauk stúdentsprófi frá MR 1948 og emb- ættisprófi í lögfræði frá HÍ 1954. Jíóhann var ráðinn lögfræðingur Útvegsbankans 1955 og hefur starf- að þar síðan. Fyrri kona hans var Guðrún Alda Kristjánsdóttfr hjúkrunarfræðing- ur, f. 18.5.1932, en hún er látin. Hún var dóttir Kristjáns sjómanns Jónssonar og konu hans, Þuríðar Sigurðardóttur. Börn Jóhanns og Guðrúnar eru Kristján endurskoðandi, f. 20.2. 1954, Jóhann Hannó sölumaður, f. 28.7. 1961, Sigríður skrifstof- ustúlka, f. 6.10. 1963 og Þuríður nemi, f. 6.6. 1968. Kona Jóhanns er Áslaug Bry- njólfsdóttir, fræðslustjóri í Reykja- vík, f. í Steinholti á Akureyri 13.11. 1948, dóttir Brynjólfs kennara Sig- tryggssonar og konu hans, Guð- rúnar Rósinkarsdóttur. ' Systkini Jóhanns eru Guðmund- ur forstjóri, f. 1.1. 1920, Gunnar vélstjóri, f. 14.7.1922, Gyða Keyser húsmóðir, f. 2.4.1924, og Geir skipa- smiður, f. 26.10. 1926. Foreldrar Jóhanns: Gisíi Guð- mundsson, skipstjóri og síðar hafnsögumaður í Reykjavík, f. í Haukadal í Dýrafirði 5.1. 1888, og kona hans, Sigríður Jóhannsdóttir, f. í Reykjavík 30.10.1891. Föðurfor- eldrar Jóhanns voru Guðmundur Gíslason, b. og sjómaður, og kona hans, Guðmunda Guðmundsdóttir. Móðurforeldrar Jóhanns voru Jó- hann Níelsson, sjómaður í Reykja- vík, og kona hans, Þóra Gamalíels- dóttir. Guttormur Einarsson Guttormur Pétur Einarsson for- stjóri, Kleifarási 13, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Giittormur fædd- ist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófum frá MÁ 1960 og útskrifaðist úr kerfis- fræði frá IBM-skólanum í Lundún- um 1967. Guttormur var deildar- stjóri skýrsluvéladeildar Búnaðarbanka íslands frá 1967 en frá 1978 hefur hann rekið eigið fyr- irtæki, Hafplast sf. Guttormur var um tveggja ára skeið formaður hverfafélags Sjálfstæðisflokksins í Árbæjar- og Seláshverfi. Hann hef- ur setið í stjórn fulltrúaráös Sjálf- stæðisflokksins, í stjórn lands- málafélagsins Varðar og í stjórn Heimdallar. Þá er hann varaþing- maður Borgaraflokksins frá 1987, einn af stofnendum Félags ís- lenskra hugvitsmanna og formað- ur þess frá 1986 og virkur félagi í Oddfellow-reglunni. Kona Guttorms er Helga, f. 8.8. 1942, verslunarstjóri í Reykjavík, dóttir Sigurðar, forstjóra í Reykja- vík, Egilssonar og konu hans, Kristínar Henriksdóttur. Börn Guttorms og Helgu eru: Einar viðskiptafræðinemi, f. 15.9. 1964; og Sigurður Egill Verslunar- skólanemi, f. 27.6.1969. Systkini Guttorms eru: Páll Jó- hann, fv. flugstjóri, f. 22.1. 1937; Pétur, leikari og leikstjóri á Akur- eyri, f. 31.10. 1940; Fríða ljósmóðir, f. 21.8. 1945, gift Viðari Hjálmars- syni, flugstjóra hjá Arnarflugi; Sigfús útgerðarrekstartæknifræð- ingur og starfsmaður hjá Hafrann- sóknastofnun íslands, f. 11.8.1951. Foreldrar Guttorms: Einar Gutt- ormsson, læknir í Vestmannaeyj- um, f. 15.12. 1901, og kona hans, Margrét Pétursdóttir, f. 29.12.1914. Faðir Einars var Guttormur, b. í Geitagerði í Fljótsdal, Einarssonar, b. í Fjallseli, Guttormssonar, stúd- ents á Arnheiðarstööum, Vigfús- sonar, prests á Valþjófsstað, Ormssonar, fóöur Margrétar, langömmu Guttorms, fóður Hjör- leifs alþingismanns. Móðir Einars í Fjallseli var Halldóra Jónsdóttir, vefara á Kórreksstöðum Þorsteins- sonar, ættföður vefaraættar, föður Péturs, langafa Ragnars Halldórs- sonar, forstjóra ÍSALs. Móðir Einars læknis var Oddbjörg Sigfús- dóttir, b. á Fljótsbakka Oddssonar. Móðir Sigfúsar var Þuríður Halls- dóttir, b. á Sleðbrjóti Sigurðssonar, bróður Björns, langafa Ónnu, móð- ur Bjorns Tryggvasonar, aðstoðar- bankastjóra Seðlabankans. Margrét var dóttir Péturs, sjó- manns á Akureyri Jónatanssonar, b. á Þúfum í Skagafirði, Magnús- sonar. Móðir Margrétar var Jóhanna spákona Benediktsdóttir, b. í Höfðahverfi, Ólafssonar og konu hans, Jóhönnu Rakelar Jóns- dóttur. Guttormur tekur á móti gestum á heimili sínu, Kleifarási 13, Reykjavík, laugardaginn 19. mars kl. 4.30 til 7 e.h.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.