Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 21. MARS 1988.
17
Helgi Gislason og „Rómeó“.
DV mynd GVA
Meiming
Tími hinna stóru heilda
Helgi Gíslason í Gallerí Boig
Myndhöggvarar nútímans hafa aö
mestu leyti snúið baki við módern-
ismanum og þeim kúbísk-ættuðu
formrannsóknum sem eru fylgifisk-
ar hans. Nú leita menn uppi einfóld
en máttug form með innbyggða
margræðni, gjarnan strýtur, strend-
inga eða önnur sköpunarverk með
erkitýpíska skírskotun, sem fylgt
hafa manninum í formi tótemstólpa,
helgra trjástofna eða völsa.
Þessi leit er oft kennd við svokall-
aðan síð-módemisma, sem ekki
verður farið út í að skilgreina hér.
Það eru því ekki innbyrðis átök
forma, heldur áhrifavald hinna
órofa, ósveigjanlegu heilda, sem
skipta listamenn mestu máli.
Þetta á jafnt við um íslenska lista-
menn sem erlenda starfsbræður
þeirra.
Myndhöggvarar eru raunar ekki
einir um hituna, því grafíkerar og
málarar hafa einnig farið inn á þessa
braut, sjá til dæmis nýleg grafíkverk
Sigrid Valtingojer og málverk Ge-
orgs Guöna.
Tilefni þessara aöfaraorða er lítil
sýning á verkum Helga Gíslasonar í
Gallerí Borg, en hann er skýrt dæmi
um listamann sem hverfur frá mód-
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
ernískum vinnubrögðum, formal-
isma og klassískri bronssteypu, og
tekur til við að gera frumstæða
trjáskúlptúra af þeirri gerð sem lýst
er hér að ofan.
Tennt og skörðótt
Helga hefur hins vegar tekist að
brjótast út úr hinni tótemísku form-
gerð, eins og sést á þeim útilistaverk-
um sem hann hefur gert tillögur um
á síðustu misserum.
Þar sækir hann innblástur í forna
byggingarlist, í pýramíða og musteri,
en heldur samt í áreiti minni skúlpt-
úra sinna, því öll eru þessi verk tennt
eða skörðótt í einhveijum mæli.
í Gallerí Borg sýnir Helgi aðeins
tvo skúlptúra og fimmtán teikningar
sem nægja þó til að gefa marktæka
mynd af því sem hann aðhefst þessa
stundina.
Teikningarnar eru þróttmiklar,
engu síður en skúiptúrarnir. Lista-
maðurinn leggur allt kapp á að
byggja upp volduga, hefídstæða
massa með svörtum kolum eða blý-
anti, léttir svo yfirbragð þeirra með
fínlegum blæbrigðum heitra lita.
Sama er í rauninni uppi á teningn-
um í skúlptúrum Helga, hinum
lóðrétta „Rómeó“ og láréttri „Júlíu“.
Ef ég man rétt voru grafsteinar á
Krít til forna annað tveggja lóðréttir
eða láréttir, eftir því hvort hinn látni
var karl eða kona.
Járnbryddingar
Allt um það kappkostar Helgi að
hafa meginformið sterkt og gott,
bryddar það síðan með jámi.
Þannig fær „Rómeó“ kollhúfu úr
jámi, meðan „Júlía" er járnbent fyr-
ir miðju.
Þar að auki lífgar Helgi við yfirborö
skúlptúra sinna með breytilegri
meðhöndlun á trénu og taktfóstu
rissi í bolinn hér og þar.
Allt er þetta af hinu góða, en á hinn
bóginn ætti listamaðurinn ekki að
nostra mikið meir við smáatriði í
skúlptúrum sínum. Slíkt er til þess
eins falhð að drepa á dreif áhrifa-
mætti hinna stóru heilda.
-ai
Námsgeta og athyglisgáfa skerðast
verulega efunglingarfá ékki holla fæðu
reglulega.
Við eðlilegar aðstæðurdregur mjólk úr
tannskemmdum. Hið háa hlutfall kalks,
fosfórs og magnium er verndandi fyrir
tennurnar.
Prótein er nauðsynlegt, m.a. fyrir
vöðvauppbyggingu. Strákarþurfa mikið og
gottprótein á svo öru vaxtarskeiði. Mjólk
inniheldur hágæðaprótein, sem nýtist
sérstaklega vel.
Hvernig
ervörnin?
Það þarf írúlega ekki segja þér að góð
sókn dugar skammt ef vörnin er f molum.
Sama gildir um uppbyggingu líkamans. Það er
ekki nóg að vaxa- það verður að sjá til þess að
líkaminn fái rétt efni til þess að vinna úr.
12 ára strákur sem er að hefja mesta vaxtar-
skeið líkama síns þarf nauðsynlega að fá úr
fæðunni þau efni sem líkami hans þarfnasttil
þess að vaxa og þroskast.
Mjólk er ein fjölhæfasta fæða sem völ er á frá
næringarlegu sjónarmiði. Hún er ekki aðeins
mesti kalkgjafinn í fæðu okkar; í henni erfjöldi
annarra bætiefna, sem eru nauðsynleg fyrir
eðlilegan vöxt og þroska. 3 mjólkurglös á dag
fullnægja dagsþörf unglinga af kalki.