Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Side 36
52 MÁNUDAGUR 21. MARS 1988. Lífsstm Jakkar og buxur ná vinsældum á ný I vetur. Gianni Versace sýndi þrðngar buxur með hnéháum stfg- vélum á sýningu sinni fyrlr haust og vetur. Japanski hönnuðurinn Junko Kos- híno sýndi þessa jakka á sýningu slnni, en jakkar af öllum stærðum og gerðum voru áberandi á sýn- ingum tískuhönnuða fyrir haust- og vetur. Jakkar með pilsum veröa mjög vinsælir næsta vetur ef marka má \ þessar fyrstu sýningar tískuhönn- uða. Þessa dragt sýndi Lolita Lempick. Þrátt fyrir spár tiskuhönnuða þess efnis að pilsfaldurinn síkki mátti sjá stutt pils á sýningum flestra hönnuða fyrir haust- og vetrartisk- una. Þessi skrautlega dragt er hönnuð af Christian Lacroix Kvöldkjólar verða iburðarmiklir svipaður og þessi sem Mila Schon sýnsi i Milanó á dögunum Svarti IRurinn nær fótfestu á nýjan leik í vetur. Þessi kjóll er úr svörtu satíni með rauðu fóðri að innan Hérlendis er ennþá vetur og virðist sumum langt vera í vorið. En það er ekki seinna vænna að huga að tísku næsta veturs, sumarið er stutt á íslandi. -StB Veturinn er vart liðinn hér á okk- ar kalda landi þegar tískufrömuðir erlendis sýna nýju haust- og vetr- arlínuna fyrir 1988-1989. Tísku- hönnuðir hanna fatnað næstum ár ffam í tímann. Til dæmis voru fyrstu sýningar fyrir vor og sumar í október síðastliðnum og fyrstu sýningar fyrir vetrartískuna voru um miðjan mars. Buxur í tísku á ný Buxum er spáð vaxandi vinsæld- um þegar líða tekur á haustið. Hinn kunni ítalski hönnuður, Gianni Versace, kynnti buxnadragtir, næstum undantekningarlaust svartar, á sýningu sinni fyrir vet- urinn. Með þrengri buxum eru höfð hnéhá stígvél en slíkum skó- fatnaði er spáð miklum vinsældum í vetur. Síðir kjóiar þegar kvöldar Á kvöldin nær rómantíkin yfir- höndinnL Siðir kjólar, svartir eða í dempuðum litum, verða vinsælir. Þessir kjólar, sem margir hverjir voru opnir annað hvort að framan eða að aftan, voru sýndir með chif- fonbuxum. Þessar nýju buxna- dragtir eru oft í svörtu eða dekkri litum. Japanskir hönnuðir hvað varðar hugmyndaflug. Rei Kawakubo sem hannar fyrir de Garcons sýndl þennan skemmtilega klæðnað Haustlitimir eru ýmsir tónar af gráu og brúnu og sterkari litir sum- arsins víkja fýrir mildum haustlit- um. Bleikt í ýmsum tónum heldur þó að öllum líkindum velli sem áherslulitur. Pilsfaldurinn sikkar á nýjan leik í vor og sumar verða stuttu pilsin og beru axlimar ríkjandi en tónn- inn fyrir haustið er dempaðri. Pilsfaldurinn sikkar á ný en þó sáust styttri pilsin, rétt um hnén, á flestum sýningum hönnuöanna. Pilsin verða einnig þrengri en áður ogjakkar verða mikið notaðir með þessum pilsum. Hið frjáisa og unglega viðmót vor- og sumartiskunnar hverfur á braut þegar hausta tekur og fatnað- urinn fær á sig visst heims- mennskuyfirbragð. Jakkar með pilsum eða buxum vora áberandi hjá mörgum hönnuðum og leður í flestan fatnað verður vinsælt á nýjan leik. Dökku litirnir koma aftur í vortískunni er mikið um litrík- an og sumarlegan fatnað. Eins og gefur að skilja verður stór breyting þar á í haust og vetur. Iitir verða dekkri, alla vega í dagklæðnaði, og svarti liturinn, sem var ríkjandi hérlendis í allan fyrravetur, nær sér á strik aftur. Haust- og vetrartískan 1988-1989: Pilsin síkka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.