Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Blaðsíða 34
50
MÁNUDAGUR 21. MARS 1988.
Fréttir
Móðir fýrsta glasabamsins á Islandi:
Ótrúleg upplifun
Nýveriö átti sér stað einstæður at-
burður hér á landi þegar fyrsta
glasabamið fæddist á kvennadeild
Landspítalans þann 17. þ.m. Barnið,
sem er drengur, var tekið með keis-
araskurði og vó 12 merkur. Foreldrar
hans, Halldóra Björnsdóttir og Grím-
_ur Friðgeirsson, fóru utan á síðasta
ári að tilstuðlan Jónasar Bjamason-
ar, sérfræðings í kvensjúkdómum og
fæðingarhjálp.
Jónas Bjamason benti þeim hjón-
um á þennan möguleika og aðstoðaði
þau við að fá inni á Bourn Hail Clinic,
sem er sjúkrahús nærri Cambridge
í Englandi. Þar gekkst Halldóra und-
ir aðgerð þar sem egg vom fjarlægð
úr eggjastokkum hennar og fijóvguð
með sæði Gríms. Skömmu síðar var
eggjunum komið fyrir í leginu. Allt
að fjórum eggjum er komið fyrir í
legi konunnar eftir að fijóvgun hefur
átt sér stað.
Aðgerð sem þessi leysir ekki öU
ófrjósemivandamál en í þeim tilfell-
um þar sem eggjaleiðarar konunnar
nýtast ekki sem skyldi er þetta raun-
hæfur möguleiki. Líkumar em
10-15% í fyrstu tilraun að eitt egg
frjóvgist, en að meðaltali þarf þrjár
tilraunir til að þungun eigi sér stað.
Aðspurð sagði HaUdóra að þetta
hefði verið ótrúleg upplifun, ekki síst
vegna dvaiarinnar á sjúkrahúsinu í
Englandi. Sjúkrahúsið sérhæfir sig í
aðgerðum sem þessum en þar er að-
staða fyrir 40 sjúkUnga. Yfirmaður
Boum HaU sjúkrahússins, Steptoe,
gat sér frægð fyrir tólf árum þegar
hann framkvæmdi fyrstur manna
slíka aðgerð.
HaUdóra sagði að andrúmsloftið
hefði verið mjög persónulegt á
sjúkrahúsinu og sendu margir
myndir af bömum sínum. „Steptoe
læknir á myndir af öUum þeim böm-
um sem hann hefur hjálpað í heim-
Eldur í gufubaði
Töluverðar skemmdir urðu af
reyk í húsi viö Amartanga í Mos-
fellsbæ aðfaranótt sunnudags.
Húsráðendur tilkynntu Slökkvi-
Uðinu i Reykjavík um mikinn
reyk í húsinu klukkan háfQögur
um nóttina. Eldur var þá laus
milU þiija í gufubaðsklefa í kjaU-
ara húsinns.
Rifa varð klefann til að komast
að eldinum og gekk slökkvistarf
greiðlega. Vakt var höfð í húsinu
til morguns. íbúar hússins vora
i svefhi þegar eldurinn kom upp
en engum varð þó meint af reykn-
um. TaUð er að kviknað hafi í út
fiá rafmagni.
-GK
Ökumaður skelli-
nóðru slasaðist
Bifreið og létt bifþjól lentu í
árekstri á raótum Kársnesbraut-
ar og Sæbólsbrautar í gærkvöldi.
Ökumaður bifþjólsins var fluttur
á slysadeúd.
Áreksturinn varð rétt fyrir
klukkan tiu í gærkvöldi í morg-
un var ekki vitað um líðan þess
sem slasaðist.
-sme
Nýjum óskráðum
bíl stolið og
hann eyðilagður
Glænýjum og óskráðum
Maadabú var stoUð um helgina.
Aöfaranótt sunnudags var bfln-
um ekið á flósastaur viö ElUða-
vog.
Bfllinn er ónýtur en ökumaður-
inn og þjófurmn er ófundinn.
-sme
Halldóra Björnsdóttir og Grímur Friögeirsson með nýfæddan soninn, en óskirður Grímsson er fyrsta glasabarnið
á íslandi. DV-mynd GVA
inn á þennan hátt og er einn veggur
í skrifstofu hans þakinn þeim mynd-
um,“ sagði hún. Þeir sem hafa
möguleika á þvi koma með bömin í
heimsókn á sjúkrahúsið og margir
halda sambandi eftir að þeir útskrif-
ast.
Aðgerð sem þessi er kostnaðarsöm
og í fæstum löndum greiðir trygg-
ingakerfið þennan kostnað. Hérlend-
is tekur Tryggingastofnun ríkisins
þátt í kostnaðinum og er það eins-
dæmi á Norðurlöndunum að sögn
þeirra hjóna. Enda vakti það verð-
skuldaða athygli á sjúkrahúsinu.
Nýfæddur sonur HaUdóra og
Gríms er enn sem komið er eina
glasabarnið hérlendis. Hann verður
þó að öUum líkindum ekki lengi einn
því von er á fleiri börnum.
-StB
Nauðlending á Reykjavíkurflugvelli:
Fjórir sluppu ómeiddir
Fjórir menn sluppu ómeiddir þeg-
ar flugél nauðlenti á Reykjavíkur-
flugveUi um kl. 15 í gær. Þegar vélin
kom inn tfl lendingar kom í ljós aö
bilun var í hægra vænghjóUnu. Við-
vörunarljós benti til að hjóUð hefði
ekki læst í réttri stöðu.
Ákveðið var aö nauðlenda á vest-
ur-austurbrautinni. Þá kom í ljós að
þjóUð gaf eftir og féll vélin niður á
brautina. Nauðlendingin tókst vel og
hélst véhn í réttri stöðu þar til hún
hafði nærri stöðvast. Þegar væng-
endinn nam við brautina snerist
véUn og rann út í snjóruðning við
brautina. Skemmdir á véUnni eru
ekki fullkannaðar en hún er þó ekki
taUn mikið skemmd.
SlökkviUðið á ReykjavíkurflugvelU
hafði mikinn viðbúnað þegar vélin
lenti. Mennimir komust af sjálfs-
dáðum út úr vélinni og sakaði engan
þeirra.
-GK
Kölnarférðir BSRB og VR:
Biðraðir um miðja nótt
Miklar biðraðir mynduðust fyrir
framan aösetur BSRB og Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur aðfaranótt
sunnudags en stéttarfélögin standa
nú fyrir sölu á ódýrum flugferðum
til Þýskalands í sumar.
Að sögn Magnúsar L. Sveinssonar,
skrifstofustjóra Verslúnarmannafé-
lags Reykjavíkur, seldust hátt í 400
sæti á sunnudag en VR hefur til
umráða 600 sæti í þessar ódýru ferð-
ir.
„Það byijaði fólk að safnast saman
í bilum fyrir utan VR milU kl. 2 og 3
í nótt,“ sagöi Magnús. „og við opnuð-
um húsið kl. 6.30. Afgreiðsla byijaði
þó ekki fyrr en kl. 9 eins og auglýst
var.“
Að sögn Magnúsar seldi BSRB sinn
kvóta á laugardag og er þegar kom-
inn þó nokkuð íangur biðUsti í þær
ferðir. Magnús sagði einnig að sam-
komulag stéttarfélaganna væri þess
efnis að ef annar aðflinn seldi ekki
allan sinn kvóta yrði það jafnað út.
Það er í athugun að ef allar ferðir
VR seljast ekki muni þeir sem þegar
eru á biðhsta BSRB ganga fyrir í
þær, sagði Magnús.
í ferðum stéttarfélaganna er flogið
til Kölnar og fólkið flutt þaðan til
Lúxemborgar eða í sumarhús sem
félögin hafa á sínum snærum. „Verð-
ið er langt fyrir neðan það sem aðrir
bjóða,“ sagði Magnús, „og nýög mik-
fll áhugi fyrir þessum ferðum.“
-StB
Slegist í Uppanum
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri;
Tfl slagsmála kom í veitingastaðn-
um Uppanum á Akureyri aðfaranótt
sunnudags og gekk mikið á, að sögn
Þráins Lárassonar, veitingamanns
þar.
. r Fólki, sem var á skemmtistaðnum ..
að fylgjast með „maraþonblúsnum“,
var sagt að yfirgefa húsið kl. 3 um
nóttina en leyfi fékkst ekki til að
áhorfendur gætu fylgst með milU kl.
3 og 6 um nóttina.
Fólkið var ipjög óánægt með að
þurfa að yfirgefa húsið. Fyrir utan
safnaðisf saman stór hópur fólks sem
vildi komast inn og tókst það þegar
starfsmaður ætlaði að yfirgefa húsið.
Ruddist fólkið þá inn og upp á loft.
Þráinn sagði að þá hefði komið til
slagsmála og að lokum varð að kalla
á lögreglu til að fjarlægja fólkið úr
húsinu.
Skákmót framhaidsskóia:
Svett MA vann
góðan sigur
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyii
Sveit Menntaskólans á Akur-
eyri bar sigur úr býtum i sveita-
keppni framhaldsskóla í skák
sem fram fór í Reykjavík um
helgina.
Sveitin, sem var skipuð þeim
Arnari Þorsteinssyni, Tómasi
Hermannssyni, Magnúsi P. Öm-
ólfssyni og Boga Pálssyni, hlaut
21 ’/i vinning, sveit Verslunar-
skólans varð næst með 20 vinn-
inga og ÁrmúlaskóU í 3. sæti með
19 'Á vinning.
Norðurlandamót framhalds-
skóla í skák verður haldið á
íslandi í haust og kemur það í
hlut Akureyringa að vera gest-
gjafar mótsins.
Rafmagnslaust
vegna isingar á
Snæfellsnesi
Stefin Þór agurðsson, DV, HeDissandú
Rafmagn fór af HelUssandi, Rifi
og Gufuskálum um kl. 11 föstu-
dagsmorguninn 18. mars og var
lengst af rafmagnslaust til um kl.
17 laugardaginn 19. Ástæða raf-
magnsleysisins var aö þverslár
staura á aðveitulínu í Ennisdal
brotnuðu. Eftir að viðgerð lauk
þurfti að slá ísingu af Unum til
að hindra frekari skemmdir.
Miklar truflanir urðu á síma-
sambandi vegna rafmagnsleysis-
ins og fllt tfl þess að hugsa aö
ekki skuli hafa veriö hægt að
treysta á simann í hátt á annan
sólarhring ef slys hefði borið að
höndum.
Lóranstöðin Sandur. sem er á
Gufuskálum, notar rafmagn frá
Rafmagnsveitum ríkisins. Vegna
aðvörunar starfsmanna raf-
magnsveitnanna í Ólafsvík um
yfirvofandi straumleysi var búið
að gangsetja vararafstöö lór-
anstövarinnar þannig að engin
truflun varð á loran-c sendingum
hennar.
Ekki er enn fullljóst hvort ein-
hver fiskur skemmdist hér í
frystihúsum vegna rafmagns-
leysisins en eitthvað af fiski beiö
vinnslu og kalt var orðið íbúðar-
húsum.
„Maraþonblúsinn":
Mlkill áhugi en
lítið safnaðist
Gyifi Kristjánsson. DV, Akureyri:
„Það hafa sennilega veriö sett
hér tvö heimsmet um helgina,
annarsvegar var hér leikinm blús
í 37 klukkustundir samfleytt en
hins vegar Söfnuöust ekki nema
á bilinu 30 til 40 þúsund krónur
og með það er ég mjög óhress,"
sagði Þráinn Lárusson, veitinga-
maöur á Uppanum á Akureyri, í
samtali við DV í gærkvöidi.
Þráinn sagðist ekki sjá eftir
þeim peningum sem hann hefði
lagt í þetta fyrirtæki en hann
kostaöi ferð 17 tónlistarmanna
norður. Þar voru m.a. tfljórasveit-
irnar Kentár og Sniglabandið,
Þórður Ámason gítarleikari,
Karl Sighvatsson orgelleikari,
Georg Magnússon munnhörpu-
snillingur með meiru og áfram
mætti tefla. Auk þess spiluðu
nokkrir tugir heimamanna en
leikið var stanslaust frá kl. 12 á
hádegi á laugardag til klukkan
eitt í nótt.
Jafnframt blúsnum fór fram
fjársöfhun til styrktar Skáksam-
bandi íslands og voru menn
vongóðir .um að takast myndi að
safna álitlegri upphæð. Svo fór
þó ekki og kemur það engan veg-
iim heim og saman við þá miklu
athygli sem blúsleikurinn vakti
en húsfyllir var á Uppanum nær
allan tímann sem spilað var.