Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Síða 42
60
MÁNUDAGUR 21. MARS 1988.
Fólkífréttum
Páll Þorsteinsson
hans, Kristín Pálsdóttir. Fööur-
PáU Þorsteinsson var nýlega
skipaöur útvarpsstjóri Bylgjunnar.
Páll er fæddur 8. febrúar 1955 í
Rvík og lauk tónmenntakennara-
prófi frá Tónlistarskólanum í Rvík
1980. Hann var dagskrárgerðar-
maöur hjá Ríkisútvarpinu
1980-1983 og dagskrárgerðarmaöur
hjá rás tvö 1983-1986. Páll var dag-
skrárstjóri á Bylgjunni 1986-1988
og hefur verið útvarpsstjóri á
Bylgjunni frá 11. mars 1988.
Sambýliskona Páls er Ragna
Pálsdóttir, f. 23. ágúst 1958, tölvurit-
ari. Foreldrar hennar eru Páll
Sigurösson, forstjóri Samábyrgðar
íslands á fiskiskipum, og kona
hans, Júlíana Sigurðardóttir. Dótt-
ir Páls og Rögnu er Unnur Ragna,
f. 7. september 1984. Systkini Páls
eru Kristín Björg, f. 8. mars 1958,
dagskrárgerðarmaður á rás tvö, og
Hannes Kjartan, f. 9. apríl 1961,
kennari í Rvík, kvæntur Elínu Jak-
obínu Oddsdóttur.
Foreldrar Páls eru Þorsteinn
Hannesson óperusöngvari og kona
broðir Pals var Jóhann, skóla-
meistari á Laugarvatni, faðir
Wincie, formanns Hins ísl. kenn-
arafélags. Föðursystír Páls er
Hallfríöur, móðir Páls Árdals, pró-
fessors í heimspeki í Kanada.
Þorsteinn er sonur Hannesar, bók-
sala á Siglufirði, Jónasson, b. á
Ytri-Bakka í Hörgárdal, Jónasson-
ar, b. á Þverbrekku, Jónssonar, b.
á Miðlandi, Sigfússonar. Móðir
Hannesar var María Sigfúsdóttir,
b. á Brimnesi í Eyjafirði, Sölvason-
ar.
Móðir Þorsteins var Kristín, syst-
ir Þórdísar, ömmu Benedikts
Árnasonar leikstjóra. Kristín var
dóttir Þorsteins, b. á Stóru-
Hámundarstöðum á Árskógs-
strönd, bróður Snjólaugar, móður
Jóhanns Sigurjónssonar rithöf-
undar. Þorsteinn var bróðir
Baldvins, afa Jóhanns Þorvalds-
sonar, ritstjóra Regins og fyrrv.
skólastjóra á Siglufirði, foður Frey-
steins, fréttastjóra Morgunblaðs-
ins. Þorsteinn var sonur Þorvaldar,
b. á Sökku í Svarfaðardal, Gunn-
laugssonar. Móðir Þorsteins var
Snjólaug, systir Hólmfríðar,
langömmu Björns Th. Björnssonar
hstfræðings. Snjólaug var dóttir
Baldvins, prests á Upsum í Svarf-
aðardal, Þorsteinssonar, bróður
Hallgríms, föður Jónasar skálds.
Móðir Kristínar var Margrét, systír
Kristins, langafa Þorsteins Sæ-
mundssonar stjamfræðings.
Margrét var einnig systir Filippíu,
langömmu Guðjóns B. Ólafssonar,
forstjóra SÍS, og Halldórs, föður
Atla Rúnars og Jóns Baldvins Hall-
dórssona fréttamanna. Margrét
var dóttir Stefáns, b. á Upsum,
Baldvinssonar, bróður Snjólaugar.
Móðir Kristínar var Þórdís Þórðar-
dóttír, b. á Kjarna, Pálssonar,
ættföður Kjarnaættarinnar, fóöur
Páls, afa Friðriks Friðrikssonar
æskulýösleiðtoga. Þórdís var systir
Kristbjargar, langömmu Ragnars
Halldórssonar, forstjóra ÍSAL.
Móðursystír Páls var Elisabet,
móðir Steindórs Hjörleifssonar
leikara, foður Ragnheiðar leik-
konu. Elísabet var einnig móðir
Þorgeirs, fóður Elísabetar skáld-
konu. Kristín er dóttir Páls,
sjómanns í Hnífsdal, Þórarinsson-
ar, b. á Hrafnabjörgum, Pálssonar.
Móðir Páls var Kristín Sigurðar-
dóttir, b. í Búð í Hnífsdal, Halldórs-
sonar. Móðir Kristínar var Margrét
Kristjánsdóttir, dbrm. og vara-
þingsmanns í Reykjarfirði, Ebenez-
erssonar, b. í Innri-Hjarðardal,
Guðmundssonar, b. í Arnardal,
Bárðarsonar, b. í Arnardal, Illuga-
sonar, ættfoður Arnardalsættar.
Móðir Margrétar var Kristín, systir
Maríu, langömmu Margrétar,
ömmu Jóns L. Árnasonar stór-
meistara. Kristín var dóttir Páls,
b. í Arnardal, Halldórssonar og
konu hans, Margrétar Guðmunds-
dóttur, systur Ebenezar.
Móðir Kristínar Pálsdóttur var
Jensína, systir Ásgerðar, móður
Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra
SÍS. Ásgerður var dóttir Jens, b. í
Páll Þorsteinsson.
Arnardal, bróður Halldórs, langafa
Jóns Sigurðssonar ráðherra. Systir
Jens var Sigríður, amma Jakobs
Björnssonar orkumálastjóra. Jens
var sonur Jóns, b. í Fremri-Arnar-
dal, Halldórssonar, b. í Fremri-
Arnardal, Ásgrímssonar, b. í
Fremri-Arnardal, Bárðarsonar,
bróður Guðmundar í Arnardal.
Afmæli
Ingi S. Bjarnason
Ingi S. Bjarnason múrarameist-
ari, Grýtubakka 26, Reykjavík, er
áttræður í dag. Ingi fæddist í
Reykjavík, í húsi á horni Lindar-
götu og Frakkastígs þar sem nú er
Lindargata 50. Hann stóð því sem
strákur í frægum styrjöldum á
milli vesturbæjar og austurbæjar
en orrusturnar háðu strákarnir
gjarnan á Arnarhólnum. Ingi vann
á unglingsárunum almenna verka-
mannavinnu og þá lengst af hjá
íslandsfélaginu en 1928 hóf hann
múraranám sem hann lauk fjórum
árum síðan. Hann vann síðan við
múrverk alla tíð þar til hann hætti
stöfum á áttræðisaldri.
Ingi hefur alla tíð verið söngelsk-
ur maður en hann var ekki orðinn
tvítugur þegar hann hóf að syngja
með Karlakór Reykjavíkur og söng
hann þar næstu tuttugu árin. Hann
tók sér svo nokkurra ára hvíld frá
söngnum en 1960 hóf hann aftur
að syngja meö Karlakórnum og
söng með honum tíl 1973. Síðan þá
hefur hann sungið með eldri félög-
um kórsins og gerir enn.
Kona hans var Borghildur, f. 12.5.
1921, d. í október 1987, dóttir Vil-
mundar, b. að Löndum í Staðar-
hverfi við Grindavík, Árnasonar
og konu hans, Guðrúnar Jónsdótt-
ur, b. í Hlíð í Grafningi, en Guðrún
og Arinbjörn læknir Kolbeinsson
eru bræðrabörn.
Ingi og Borghildur eignuðust níu
börn sem öll eru á lífi. Þau eru:
Björg, veflistarkona og forstöðu-
maður myndlistarvers í Árhus í
Danmörku, f. 8.12. 1941, en hún á
einn son; Jón Steindór, rafmagns-
verkfræðingur og kennari við
Kungliga Tekniska Högskolan í
Stokkhólmi, f. 28.11.1947, kvæntur
Önnu Eiríksdóttur lækni en þau
eiga tvö börn; Birna Guðrún, hús-
móðir í Reykjavík, f. 18.3.1950, gift
Rúnari Svavarssyni, rafmagns-
verkfræöingi hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, en þau eiga eina dótt-
ur; Ingi Gunnar, bílamálaraméist-
ari sem starfrækir Bílamálun sf. í
Reykjavík, f. 3.4. 1952, kvæntur
Kristjönu Kristjánsdóttur, hús-
móður og starfsmanni hjá Fas-
teignamatí ríkisins, en þau eiga
þrjú börn og einn fósturson; Ragna
Steinunn, listmálari í Noregi, f.
26.4. 1953; Gunnhildur Anna, bók-
haldari í Reykjavík, f. 13.4.1955, en
hún á einn son; Bjarni Vilmundar-
Ingi S. Bjarnason.
son, verkamaöur í Bandaríkjun-
um, f. 6.4. 1956, en hann á eina
dóttur; Jóhanna Sigríður, húsmóð-
ir í Hafnarfirði, f. 30.8. 1957, gift
Karli Auðunssyni, kerfisfræðingi
og forstjóra hjá Fasta hfi, tölvu-
þjónustu, en þau eiga tvær dætur;
Ráðhildur Sigrún, sérfræðingur í
hstlækningum, f. 4.4. 1959, gift
Tuma Magnússyni listmálara, en
þau búa í Reykjavík og eiga einn
son.
Foreldrar Inga voru Bjarni, sjó-
maður í Reykjavík, Jónsson, f. 8.7.
1871, d. 1954, og kona hans Guðrún
Björg, f. 10.12. 1876, d. 1942.
Hannes Sigurðsson
Hannes Sigurðsson rafvirkja-
meistari, Álfheimum 68, Reykjavík,
er sextugur í dag. Hannes fæddist
við Hverfisgötuna í Reykjavík.
Hann lærði rafvirkjun á árunum
1944-48 og starfaði síðan hjá Finni
Kristjánssyni frá 1948-51. Hann var
síðan verkstjóri hjá Metcalf Hamil-
ton á Keflavíkurflugvelli frá
1951^54 og stundaði eftirlitsstörf
hjá íslenskum aðalverktökum frá
1954-58. Þá starfaði hann hjá Rarik,
Austurlandsveitu, frá 1958-62.
Hannes varð svo yfirverkstjóri og
síðan framkvæmdastjóri fyrir
Ljósvirki hf. frá 1962-75 en þá stofn-
aði hann og rak fyrirtækið Töflur
sf. með Halldóri Bachmann frá
1975-87. Hannes starfar nú með
Sigurði Leifssyni.
Hannes hefur verið í stjórn
Landssambands íslenskra rafverk-
taka og í stjórn Félags löggiltra
rafverktaka í Reykjavík.
Kona hans er Sigurást, f. 5.9.1929,
dóttir Sigurjóns, b. á Miðskála und-
ir Eyjafjöllum, Sigurðssonar og
Ragnhildar frá Eyvindarholti und-
ir Eyjafjöllum, Óláfsdóttur.
Börn þeirra Hannesar og Sigur-
ástar eru: Sigurjón, rafvirki hjá
Rafmagnsveitum ríkisins á Egils-
stöðum, f. 27.5. 1955; Grímur,
rafvirki hjá Orkubúi Vestfjarða á
Patreksfirði, f. 3.7. 1957, kvæntur
Ásu Þorkelsdóttur, en þau eiga
fjögur börn, Kristin Jósef, f. 14.3.
1978, Ástu Birnu, f. 20.9. 1985,
Heiðrúnu Ósk, f. 21.10. 1986, og
Hönnu Dóru, f. 24.8.1987; Sigurður,
við nám í rafeindavirkjun, f. 12.12.
1961; og Ragnhildur Dagmar, af-
greiðslustúlka á Akureyri, f. 3.9.
1966, en sambýlismaður hennar er
Þórólfur Jóhannsson verslunar-
maöur.
Systkini Hannesar eru: Ragn-
hildur, húsmóðir í Reykjavík, f.
31.7. 1921; Jónas, kaupmaður í
Reykjavík, f. 21.9.1923; og Þorgerð-
ur, verslunarmaður í Reykjavík, f.
14.8. 1930.
Hannes Sigurðsson.
Foreldrar Hannesar: Sigurður
Ólafsson, sem var gjaldkeri hjá Sjó-
mannafélaginu í Reykjavík í fjölda
ára, og kona hans, Grímheiður
Jónasdóttir húsmóöir. Sigurður
var fæddur að Lækjarbakka í
Mýrdal en Grímheiður var ættuð
úr Skammadal.
Hannes verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Barn situr þægilega
og öruggt í barnabílstól.
Það á það skilið!
yUMFERÐAR '
RÁÐ
Andlát
Unnsteinn Guðmundsson, lést á
heimili sínu þann 17. mars sl.
Til hamingju með daginn!
90 ára_____________________
Ingimundur Einarsson, Þórólfs-
götu 4, Borgarnesi, er níræður í
dag.
80 ára_________________________
Emilia Guðmundsdóttir, Snorra-
braut 73, Reykjavík, er áttræð í dag.
Dagbjört Finnbogadóttir, Selbraut
9, Setjarnarnesi, er áttræð í dag.
Ingibjörg Jónsdóttir, Lambafelli,
Austur-Eyjafjallahreppi, er áttræð
í dag.
70 ára_________________________
Maja Gréta Briem, Snekkjuvogi 7,
Reykjavík, er sjötug í dag.
Árni Ingólfsson, Víðivöllum 4, Ak-
ureyri, er sjötugur í dag.
Ragnar Róbertsson, Holtakoti,
Ljósavatnshreppi, er sjötugur í dag.
Una Huld Guðmundsdóttir,
Snekkjuvogi, Stokkseyri, er sjötug
í dag.
60 ára________________________
Jóhanna G. Kristjónsdóttir,
Hvammsgerði 9, Reykjavík, er sex-
tug í dag.
Vilborg Stefánsdóttir, Njálsgötu 30,
Reykjavík, er sextug í dag.
Davíð Guðbergsson bifvélavirki,
Ljósheimum 3, Reykjavík, er sex-
tugur í dag.
Pólína Þorláksdóttir, Starmóa 4,
Njarðvík, er sextug í dag.
50 ára______________________
Heinz H. Steimann, Blöndubakka
6, Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Andrés Kristinsson, Þórólfsgötu 21,
Borgamesi, er fimmtugur í dag.
Ólafur Þórðarson, Miðtúni 10,
Tálknafirði, er fimmtugur í dag.
40 ára_________________________
Arnfríður Ásdís Guðnadóttir,
Kleppsvegi 76, Reykjavík, er fertug
í dag.
Fríður Eggertsdóttir, Hvassaleiti
153, Reykjavík, er fertug í dag.
Uffe Balslev Eriksen, Frakkastíg
24, Reykjavík, er fertugur í dag.
Rúnar Agnarsson, Sólheimum,
Blönduósi, er fertugur í dag.
Bergljót Kjartansdóttir, Melum,
Fljótsdalshreppi, er fertug í dag.
Hilmar R.B.
Hilmar R.B. Jóhannsson pípu-
lagningameistari, Hátúni 6,
Reykjavík, er sextugur í dag. Hilm-
ar fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp en hann hefur búið í Reykjavík
alla sína tíð. Hilmar er sonur Jó-
hanns Benediktssonar, verkstjóra
hjá Hitaveitu Reykjavíkur, sem er
látinn, og Guðfinnu Árnadóttur aö
Haðarstíg 14 í Reykjavík en hún
verður níræð í maí nk.
Systkini Hilmars eru Hjálmar,
pípulagningameistari í Reykjavík;
Olga, skrifstofumaður í Reykjavík;
Hafsteinn, sölumaður í Reykjavík;
og Emil sjómaður, sem lést ungur.
Hilmar kvæntist ungur Brynju
Ólafsdóttur og eignuðust þau þrjár
dætur en þau Hilmar og Brynja
shtu síðar samvistum. Dæturnar
eru: Edda, Ólöf og Ósk. Hilmar átti
tvö börn fyrir, þau Guörúnu og
Tilmæli til afmælisbama
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra
til að senda því myndir og upplýsingar um frænd-
garð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa
að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
Jóhannsson
Hilmar R.B. Jóhannsson.
Kristin, og son eignaðist hann 1982
er heitir Birgir Már.