Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Síða 19
MÁNUDAGUR 21. MARS 1988.
19
Fréttir
Nánast óframkvæmanlegt
að bjarga Kolbeinsey
- verður horfin um miðja næstu öld
Ljóst er aö nánast óframkvæman-
legt er aö bjarga Kolbeinsey en út frá
þeim mælingum, sem gerðar hafa
verið, er taliö líklegt aö eyjan verði
aö mestu horfin um miöja næstu öld.
Þaö hefur verið talið skipta nokkru
fyrir okkur íslendinga að varðveita
eyjuna því hún er mikilvægur land-
grunnspunktur og réttindi okkar til
stórra hafsvæða talin velta á varð-
veislu hennar.
Umræður um Kolbeinsey bárust
inn í sali Alþingis fyrir helgina, í
kjölfar fyrirspurnar Stefáns Guð-
mundssonar til samgönguráðherra.
í svari ráðherra kemur fram að í ljósi
nýjustu rannsókna verður mjög dýrt,
ef ekki óframkvæmanlegt, að stöðva
niöurbrot eyjunnar. Líklegt er talið
að lárétt skil séu á eyjunni á fárra
metra dýpi og að þessi skil séu sá
veikleiki sem veldur þvi að smám
saman grefst undan henni. Ef þessi
tilgáta er rétt þá er ekki nægjanlegt,
til að hefta niðurbrot eyjunnar, að
styrkja yfirborð hennar með stein-
steypu, enda hefði það oröið mjög
dýrt.
Kostnaöur við þær rannsóknir,
sem þegar hafa farið fram, hefur ver-
ið greiddur af Vitastofnun íslands.
Áætlað hefur verið aö það þurfi 3
milljónir kr. til að koma upp sjó-
merki, ljúka dýptarmælingu og
borun. -SMJ
MINNISBLAÐ
Muna eftir
að fá már
eintak af
Unaðslegur
KOSS
SPECTRUM HF
SÍMI29166
Rj Electrolux
Ryksugu-
úrvalið
;
Ekkert út
Engir vextir
Eftirstöðvar á 4 mán.
með Euro og Visa.
n
Vorumarkaðurinn ht.
Ktinglunni, aímt 685440.