Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1988, Qupperneq 48
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notaö í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022
MÁNUDAGUR 21. MARS 1988.
Guðrún Agnarsdóttir:
Enngerastundur
á íslandi
„Þetta eru stórmerkilegar niöur-
" stööur. Sú framsýni, sem íslendingar
sýna meö því að veita konum svo
óskoraö traust í stjórnmálum, hlýtur
að vera einsdæmi. En jafnframt lofs-
vert fordæmi. Þetta er aö vísu
skoðanakönnun en ekki kosningar
en eitt er víst aö þessar niöurstööur
tákna viðhorfsbreytingu í þjóöfélag-
inu. Enn gerast undur á íslandi,“
sagði Guðrún Agnarsdóttir í samtaii
viö DV í morgun um niðurstööur
könnunarinnar.
-JBj
Ámi Gunnarsson:
Líðum fyiir
aðgerðimar
v „Tilhneigingin í þessari könnun
viröist svipuö og í könnunum aö
undanfómu. Við líðum fyrir þær
aögeröir sem viö höfum gert og eig-
um eftir að gera. Þetta virðist vera
mælikvarði á aö fylgið við þá sem
þurfa aö framkvæma aðgerðir, sem
koma við fólkið í landinu, minnkar.
Þeir sem standa utan viö alla ábyrgö
y ná hins vegar til sín fylgi. Ég hef
L^ngar áhyggjur af slæmri útkomu
Alþýðuflokksins. Viö eigum eftir aö
ná aftur fylgi,“ sagði Ámi Gunnars-
son, þingmaður Alþýöuflokksins.
-gse
Gleður mig
að heyra
- segir Stefán Hilmarsson
„Þetta gleður mig að heyra,“
sagöi Stefán Hilmarsson söngvari
í samtali við DV í morgun en
hann syngur lag Sverris Storm-
skers, Þú og þeir, í söngvakeppni
Sjónvarpsins.
„Annars vil ég sem minnst um
þetta taia, úrslitin koma í ljós í
kvöld. En ég er vissulega hress
meö þessa niöurstöðu," sagöi
Stefán. Auk þess að syngja lag
Sverris syngur hann einnig þaö
lag sem næstmestra vinsælda
nýtur í skoðanakönnun DV.
Ékki náðist í Sverri Stormsker
í morgun.
-Oj.
Bílstjórarnir
aðstoða
SZTlDIBiLJISTOÐin
LOKI
Jafnvel Steini er orðinn
minni en stelpurnar!
Verslunarmenn og iðnverkafólk:
Kjarasamningar
tókust í moigun
eftir næturfúnd
- gert ráð fyrir 16,25% hækkun launaliðarins á samningstímabilinu
Samningar tókust í morgun eftir
næturfund milli verslunarmaima
og iðnverkafólks og viðsemjenda
þeirra. Þegar fara átti að skrifa
undir samningana um klukkan 8 í
morgun kom snurða á þráöinn hjá
verslunarmönnum, þannig að und-
irritun frestaöist fram lil klukkan
9.30 í morgun.
í þessum nýja samningi er gert
ráð fyrir að laun hækki um 16,25%
á samningstímabilinu en samning-
urinn gildir frá undirritun til 10.
apríl 1989. í kjarasamningunum,
sem felldir voru á dögunum, var
samið um 13,45% launahækkun.
Við undirskrift samninganna
hækka laun um 2.025 krónur en
gert var ráö fyrir 1.525 krónum í
felldu samningunum. Áfanga-
hækkanir eru þær sömu nú, 3,25%
þann 1. júní, 2,5% þann 1. septemb-
er og 2,0% þann 1. febrúar 1989 en
til viðbótar þessu kemur inn 1,5%
hækkun 1. desember.
Samiö var um að desemberupp-
bót verði sú sama og í felldu
samningunum og eins fellur eftir-
vinna niöur og yflrvinnutaxti
verður einn. Hjá iðnverkafólki
verður komið á verkmenntanám-
skeiðum sem hækka fólk í launum
en námskeiðin verða kostuö af rík-
inu. Þá var samiö um að áunnir
veikindadagar, sem nemur einum
mánuði, flytjist með fólki ef það
skiptir um vinnustaö innan sömu
greinar.
Fyrir utan þessi atriði eru ýmis
önnur sérákvæði í samningunum
sem aðeins snerta hvort félagið um
sig..
„Eg er sæmilega ánægöur með
þennan samning og ég vona að
hann geti orðiö til að liðka fyrir
samningum hjá öðrum verkalýös-
félögum," sagði Guðmundur Þ.
Jónsson, formaður Landssam-
bands iðnverkafólks, í samtali við
DV í morgun.
Fastlega er gert ráð fyrir aö þessi
samningur veröi til þess aö samn-
ingar takist á svipuöum nótum við
þau verkalýðsfélög út um land sem
standa nú í samningaviðræðum við
vinnuveitendur. í dag veröur hald-
inn sáttafundur með vinnuveitend-
um og samrúnganefnd Alþýöusam-
bands Noröurlands.
-S.dór
Eför nokkurt þref í morgunsárið var skrifað undir nýja kjarasamninga milli verslunarmanna
og iðnverkafólks og viðsemjenda þeirra um klukkan 9.30 í morgun. Hér eru þeir að undirrita,
frá vinstri: Björn Þórhallsson, formaður Landssambands verslunarmanna, Páll Bragason frá
Vinnuveitendasambandinu, Hjörtur Eiríksson frá Vinnumálasambandlnu og Þórarinn V. Þórar-
insson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins. DV-mynd Brynjar Gauti
Veðrið á moigun:
Hvasst
sunnan-
lands
Á morgun verður austan- og
suðaustanátt um allt land, sums
staðar allhvass við suðurströnd-
ina en mun hægari annars staðar.
Hiti verður rétt yfir frostmarki
sunnanlands en undir frostmarki
norðanlands.
Steingrímur Hermannsson:
Eg get ekki
verið óánægður
„Það er í sjálfu sér lítið um þetta
að segja. Það er mál til komið í ís-
lenskum stjórnmálum að konurnar
taki á málunum. Ég er tilbúinn að
stuðla að því að það komi í ljós hvers
þær eru megnugar," sagði Stein-
grímur Hermannsson, formaður
Framsóknarflokksins, um niður-
stöður könnunarinnar.
„Við Framsóknarmenn erum á
svipuðu róli, ýmist fyrir ofan eða
neðan okkar úrslit í síðustu kosning-
um. Ég get því ekki verið óánægður.
Þessi niöurstaða sýnir verulegar
áhyggjur almennings yfir þróun
efnahagsmála."
-SMJ
Albert Guðmundsson:
Ekkert liggur
eftir konumar
„Það er ekki hægt annaö en að óska
Kvennalistanum til hamingju með
þennan árangur. Ég á bágt með að
trúa því að þær haldi þessu í næstu
kosningum. Þær hafa ekki verið þátt-
takendur í neinum málum og það
liggur ekkert eftir þær. Kvennalist-
inn hefur aðallega fjallað um sveitar-
stjómarmál," sagði Albert
Guðmundsson, formaöur Borgara-
flokksins, um niðurstöður könnun-
arinnar.
„Stjórnarflokkarnir tapa fylgi og
nánast er hægt aö tala um hrun hjá
Sjálfstæðisflokknum sem var með
yfir 40% fyrir nokkrum árum. Þá
gleðst ég yfir því að við borgara-
flokksmenn skulum vera að sækja á
'aftur en við höfum tvöfaldaö fylgi
okkar frá því í síöustu könnun."
-SMJ
Ólafur G. Einarsson:
Þetta er með
ólíkindum
„Þetta er með ólíkindum," sagði
Ólafur G. Einarsson, formaður þing-
flokks sjálfstæðismanna. „Ég get
ekki annaö sagt en að mér þykir það
með ólíkindum hvað Kvennalistinn
rýkur upp. Ég hef svo sem mínar
skoðanir á ástæðunni fyrir því. Þær
hafá það fram yfir aðra flokka að þær
sýná samstöðu í málum, tjá sig ekki
um efnisatriði í málum í þinginu fyrr
en þær hafa komiö sér saman um
sameiginlega afstöðu og ég efast ekk-
ert um að kjósendur vilja að flokkar
sýni slika samstöðu. Auk þess tala
þær einkum um mjúku málin og slíkt
feliur vel í kjósendur.
Ég er mjög óánægður með útkomu
Sjálfstæöisflokksins, afar ósáttur. En
við eigum eftir að ná fyrra fylgi. Það
getur tekið tíma en ég efast ekki um
að við náum því.“
-gse
Ólafur Ragnar Grimsson:
Útkoma Alþýðu-
bandalags þarf
að vera betri
„Þetta eru merkilegar niöurstööur.
Útkoma Alþýðubandalagsins þarf að
vera betri og viö munum vinna að
því að hún veröi betri. Fylgisaukning
Kvennalistans verður talin miklum
tíðindum sæta og sýnir miklar sveifl-
ur í fylgi,“ sagði Ólafur Ragnar
Grímsson í samtali við DV í morgun
um niðurstöður könnunarinnar.
-JBj