Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1988, Qupperneq 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 1988.
Fréttir
22ja ára maður beið bana í Tröllaskaga:
Ók fram af
klettum og
féll 300 metra
Veiddu um 440 fiska
fyrstu þrjá dagana
Laxá í Leirársveit var ekki beint veiðileg 1. apríl við Laxfossinn en þó var rækjunni rennt en fiskurinn gaf sig ekki.
Það þarf að hlýna í nokkra daga til að hún komi til. DV-mynd G.Bender
Sjóbirtingsveiðin byrjaði víða vel:
Banaslys varð í Tröllaskaga í
Skagafirði um miðjan dag á föstudag-
inn langa er 22ja ára maður ók fram
af klettabelti á vélsleða. Mjög gott
veður var er slysið átti sér stað,
sólskin og logn.
Sex menn úr Skagafirðinum, bræð-
ur og mágar, fóru saman í dagsferð
á vélsleðum og völdu sér stað upp
af Gijótárdal. Allt vanir vélsleða-
menn sem oft hafa áður verið á
þessum slóðum.
Mennimir voru að hringsóla um
svæðið er þeir urðu varir við að einn
þeirra var horfinn. Veit enginn hvaö
gerðist en menn hafa látið sér detta
í hug að hinn látni hafi fengið snjó-
blindu eða móða hafi sest innan á
hjálmgleraugun. Hann ók beint fram
af þverhníptri klettabrúninni en það
er um 300 metra fall.
Sá sem lést hét Ásgeir Bentsson,
hann var búsettur á Sauðárkróki og
lætur eftir sig bamshafandi unn-
ustu. -ELA
„Þetta gekk ágætlega hjá okkur og
við fengum á föstudaginn langa 27
fiska, sá stærsti var 10 pund,“ sagði
Sigurður Ingimundarson, ámefnd-
armaður í Geirlandsá, en hann
renndi með nefndarmönnum fyrstu
tvo dagana sem áin var opin.
„Veður var gott þennan fyrsta
veiðidag og fiskurinn gaf sig, fengum
alla fiskana á spún. A laugardaginn
kólnaði og þá fékkst ekkert, fiskur-
inn hætti að taka. Það var ís á ánni
víða og krap, en þetta gekk vel þenn-
an fyrsta dag,“ sagði Sigurður.
„Við fenguni 43 fiska og þar af feng-
ust 13 á flugu hjá okkur í opnuninni
í Vatnamótunum. Þetta gekk vel,“
sagði Jón H. Jónsson í árnefnd
Vatnamótanna. „Við fengum flesta
fiskana á sama bletti, neðst í Skaft-
ánni. Það var ís yfir öllu þarna.
Stærsti fiskurinn hjá okkur var 9
pund,“ sagði Jón í lokin.
„Þetta gekk ágætlega. Viö fengum
70 fiska og sá stærsti var 10 pund,
spennandi að byija sumarið svona
vel,“ sagði Árni Baldursson sem fór
við fjórða mann í Fossálana og víða
kringum Kirkjubæjarklaustur til
veiða fyrstu tvo daga veiðitímans.
„Þetta byrjaði rólega í Rangánum
fyrsta daginn enda var skítkalt að
standa við veiðarnar. Það fékk einn
urriða, 4 pund,“ sagði veiðimaður
sem renndi fyrsta daginn í ánni.
„Annan daginn gekk þetta miklu
betur og þá fengust 18 fiskar, bleikj-
ur, urriðar og einn niðurgöngulax.
Það var fjóröa svæðið í Ytri-Rangá
sem gaf og þar var töluvert líf,“ sagði
veiöimaður úr Rangánum.
Fyrstu fiskarnir eru komnir á land
úr Tungufljótinu og gátu menn veitt
í ál þar þó ís væri. Þrír fiskar veidd-
ust fyrstu dagana og var sá stærsti 8
pund.
„Mjög góð veiöi hjá okkur og ætli
viö höfum ekki verið með um 100
fiska, þeir stærstu voru 3 pund, ann-
ars var þetta smátt,“ sagði Rósar V.
Eggertsson, en hann var við veiðar
í Varmá (Þorleifslæknum) 2. apríl
með fjórar stangir og Haukur Har-
aldsson var þar með tvær stangir.
„Það var mildð af fiski í læknum og
við veiddum mest með flugu. Lótus-
flugan gaf vel,“ sagði Rósar.
Veiðin hefur farið mjög vel af stað
í Varmánni og reiknast okkur til að
á land þessa fyrstu þrjá daga hafi
komið um 270-280 fiskar, urriðar og
bleikjur.
Laxá í Leirársveit og Leirá voru
ekki beint veiðilegar fyrstu dagana
og erfitt að koma færi niður í þær,
þó reyndu menn í Laxfossinum, en
fiskurinn gaf sig ekki. Ef veður batn-
ar næstu daga gæti ísa leyst og
fiskurinn farið að gefa sig í þessum
veiðiperlum.
Þessi byijun í sjóbirtingnum er
mjög góð og eru líÚega komnir um
440 fiskar þessa þrjá fyrstu daga,
nokkir 10 punda, 9 punda og 8 punda.
G.Bender
Keilir í höfninni í Vestmannaeyjum þar sem hann biður nú viðgerðar.
DV-mynd Ómar
Vestmannaeyjar rafmagnslausar á laugardagskvöld:
Togari sleit rafstreng
Ómar Gaxðarsson, DV, Vestmannaeyjum;
Rafmagn fór af Vestmannaeyja-
kaupstað um klukkan 21 á laugar-
dagskVöld og komst það ekki á aftur
fyrr en um klukkan 23. Ekki varð
strax ljóst hvað olli biluninni en við
athugun kom í ljós að togarinn Keil-
ir, sem varð vélarvana í innsigling-
unni og rak upp í fjöru rétt innan
hafnargarðanna, hafi sennilega lent
á rafstreng og slitið hann.
Viö þetta varð skammhlaup og sló
út uppi á landi, í spennustöð þar.
Sæmundur Vilhjálmsson hjá raf-
veitu Vestmannaeyja sagði að
skemmdirnar væru ekki fullkannað-
ar en tahð væri nánast öruggt að
togarinn hefði verið valdur að
skammhlaupinu.
Greiðlega gekk að losa togarann og
bíður hann nú viðgerðar í Vest-
mannaeyjum. Þessi togari hét áöur
Einar Benediktsson.
í dag mælir Dagfari
Utvegsbanki á grænni grein
Fyrir páska var haldinn blaða-
mannafundur á vegum viðskipta-
ráðherra þar sem kynntar voru
niðurstöður matsnefndar um stöðu
Útvegsbankans. í ljós kemur aö
skuldir bankans umfram eignir
nema einum komma átta milljörð-
um króna en með því aö ríkissjóður
tekur á sig einn milljarð og ætlar
síðan að selja góssið hæstbjóðanda
er niðurstaöan sú að staða Útvegs-
bankans telst mjög góö og ráö-
herrann bindur miklar vonir viö
aö söluverö bankans hækki að
mun. Enda hefur rekstur bankans
gengið vel fyrstu átta mánuði síð-
asta árs og bankinn laus við alla
viðskiptavinina sem eiga ekki fyrir
lánunum og geta ekki borgað
skuldirnar.
Þetta eru mikil og góð tíðindi og
verður ekki ahnað sagt en að það
hafi verið Útvegsbankanum til
mikillar blessunar að Hafskip fór á
hausinn á sínum tíma en það gjald-
þrot varð til þess að bankinn fékk
sína endurhæfingu eins og mönn-
um er eflaust í fersku minni.
Bankinn tapaði heldur ekki nema
þijú hundruð milljónum á Hafskipi
svo allir sjá að það tap er eins og
krækiber í helvíti miðað við alla
hina sem skulduðu í bankanum en
voru ekki gerðir gjaldþrota eins og
Hafskip.
Sömuleiðis var þaö mikil mildi
aö viðskiptaráðherra hætti við að
selja bankann í hendur Samband-
inu eða þijátíu og þrem einkaaðil-
um sem gerðu tilboð í bankann í
fyrrahaust. Það heföi verið gjaf-
verð enda var þaö ekki einleikið
hvað mennirnir sóttust eftir þess-
um banka sem var sagður gjald-
þrota og einskis nýtur. Nú kemur
í ljós að bæði SÍS og einkaframtak-
ið í landinu vita sínu viti og átta
sig vel á því hvenær borgar sig að
kaupa banka og hvenær það borgar
sig ekki að kaupa banka.
En meðan Útvegsbankinn lenti í
þessum hremmingum meö Hafskip
og bankastjórarnir fyrrverandi
fengu reisupassann og pólitíkus-
arnir rifust um það hverjir skyldu
kaupa bankann sem var með allt
niður um sig þá kom í ljós að Út-
vegsbankinn var að lifa sinn besta
tíma. Þetta reyndist hið mesta glóp-
alán því velgengni bankans hefur
verið í öfugu hlutfalli við tapið og
gjaldþrotin og stendur nú með pál-
mann í höndunum. Það er í raun-
inni hið mesta þjóðráð fyrir svona
banka að fara á hausinn og vera
gerður upp því hann veröur aldrei
fyrir skuldunum og ríkissjóði hefði
aldrei dottið í hug að hlaupa undir
bagga. í stað þess var gripiö til þess
ráðs að losa bankann við öll óþæg-
indi af kúnnum sem ekki geta
borgað og nú er Útvegsbankinn
aðeins með viðskipti við aðila sem
eiga fyrir skuldunum en ríkissjóð-
ur sér um hitt. Það er meira að
segja búið að koma því svo fyrir
að ríkissjóður tekur að sér að
greiða íjórtán fyrrverandi banka-
stjórum eftirlaun upp á tvö
hudnruö og tuttugu milljónir enda
hljóta menninir að eiga þau eftirla-
un skilin eftir að hafa komið
bankanum í þá aðstöðu að vera
oröinn besti banki landsins með því
að vera nógu aumur.
Niðurstaðan er sú að kúnnarnir,
sem eru gjaldþrota, eru settir á sér-
stakan viðskiptamannareikning
sem ríkissjóður sér um. Bankinn
græðir á tá og fingri og margfald-
ast í verðmæti. Og ríkiö getur boðið
hlutabréf sín í bankanum út á tvö-
földu nafnverði og haft allt sitt upp
úr krafsinu. Sambandið þarf ekki
lengur að kaupa bankann því nú
er búið að sanna þaö lögfræðilega
að SÍS ber ekki ábyrgð á gjaldþrota
kaupfélögum. Og síðast en ekki síst
þurfa einkaaðilarnir ekki að kaupa
bankann því þeir mega eiga hann
áfram!
Gömlu bankastjórarnir verða
síðan heiðraðir við fyrsta tækifæri
fyrir að reka bankann með þeim
ósköpum að ríkið skuldar þeim tvö
hundruð og tuttugu milljónir! Hver
er svo að kvarta undan bankapól-
itíkinni?
Dagfari
traustari en einmitt þá. Spurning
er hvort aðrir bankar eigi ekki að
fara að dæmi Útvegsbankans og
láta meta sig hjá skiptaráöanda og
efla þannig rekstur sinn og eiginfj-
árstöðu!
ímyndiö ykkur ef Hafskip hefði
ekki farið á hausinn. Þá hefði Út-
vegsbankinn þurft að halda áfram
að lána því fyrirtæki og öllum hin-
um fyrirtækjunum sem áttu ekki