Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988.
5
Viðtalið dv
Fréttir
Blaðamennsk-
an þriðji
háskólinn
Nafn: Brynjólfur Helgason
Aldur: 36
Staða: Aðstoðarbankastjóri
„Helsta áhugamál mitt er fram-
kvæmd góðra hugmynda. Bæöi
mínar eigin og annarra - hvort
sem er i vinnunni eða prívat,“
segir Brynjólfur Helgason, ný-
settur aðstoöarbankastjóri
Landsbankans.
Brynjólfur er fæddur í Reykja-
vík í ágúst 1951, sonur Helga
Tómassonar sem var yfirlæknir
á Kleppi og Ragnheiöar Brynj-
ólfsdóttur konu hans. Ragnhildur
Helgadóttir alþingismaður er
hálfsystir Brynjólfs en önnur
systkini hans eru Tómas Helga-
son læknir.og Bjarni Helgason
doktor í jarðeðlisfræði. Eigin-
kona Brynjólfs er Hrönn Krist-
insdóttir.
Framhaldsnám
í Frakklandi
Brynjólfur Helgason útskrifað-
ist sem viðskiptafræðingur frá
Háskóla íslands 1977 og hóf störf
þjá hagdeild Landsbankans að
loknu prófi. Nokkru síðar fór
hann í framhaldsnám til Frakk-
lands þar sem hann tók NB A próf
í rekstrarhagfræði frá Insead-
skólanum í Fountaine bleau,
litlum bæ fyrir utan París. Eim
sem komið er, er hann eini ís-
lendingurinn sem hefur stundað
nám viö þennan skóla. „Þetta var
spennandi og skemmtOegur tími
og hafði skólinn að mínu viti
marga kosti fram yfir sambæri-
le'ga skóla annars staðar. Kennsl-
an fer aö talsveröu leyti fram á
ensku en einnig á frönsku og
þýsku svo þarna er meirihluti
nemenda útlendingar. Utlending-
arnir voru því ekki minnihluta-
hópur eins og oft vill verða. En
félagsskapurinn og smæð bæjar-
ins stuöluðu að góðri samvinnu.“
Þegar Brynjólfur kom heim frá
Frakklandi kom hann aftur til
starfa hjá hagdeild Landsbank-
ans. Þegar Markaössvið bankans
var stofnað í desember 1984 var
hann ráðinn framkvæmdasfjóri
þess og í þessum mánuði var
hann svo settur aðstoðarbanka-
stjóri Landsbankans. Brynjólfur
er einnig í stjórn Lýsingar hf. sem
er fjármögnunarfyrirtæki sem
Landsbankinn er stór hluthafi í.
Ljósmyndari
og blaðamaður
Blaðamennska er Brynjólfi
ekki alveg ókunn því eftir stúd-
entspróf hóf hann störf þjá
Morgunblaðinu, sem Ijósrayndari
og blaðamaður. „Ég vann fullt
starf á sumrin en var í aukavinnu
á veturna. Að sumu leyti finnst
mér að starf mitt á Morgunblaö-
inu hafi veriö þriðji háskólinn
sem ég hafi gengið í. Þessi skóh,
undir stjórn þeirra Matthíasar og
Styrmis, er minn besti skóli og
hetöi ég ekki viljað missa af hon-
um. Auk þess var þetta starf mjög
spennandi en mér fannst dáhtiö
óráölegt að velja það sem ír amtíð-
arstarf þar sem maður vissi
aldrei hvenær maöur kæmi heim
á kvöldin eða hvort maöur ætti
að mæta í stígvélum eöa burstuð-
um spariskóm." -JBj
Spumingakeppni framhaldsskóla:
Menntskælingar sættast
Deila mihi menntskælinga, sem
kviknaði eftir úrslitaleikinn í spurn-
ingakeppni framhaldsskóla í sjón-
varpinu á fóstudag, er nú leyst.
Dehan stóð um hvort lið MR eða
MS hefði unnið keppnina. Ástæða
þess var að þegar MR-ingar ætluðu
að þekkjá 10 andlitsmyndir, þar sem
mátti nefna 12 nöfn, urðu dómara á
þau mistök að hann tók orðið af lið-
inu þegar 11 nöfn höfðu verið nefnd
og reyndust aðeins 9 rétt. Þetta þótti
MS-ingum að vonum hart þar sem
þeir hefðu unnið keppnina ef svar
MR hefði verið ófullnægjandi.
Vernharður Linnet, umsjónarmað-
ur þáttarins, sagði í samtali viö DV
að eftir keppnina hefði verið haldinn
fundur með báðum liðum, liösstjór-
um, framkvæmdastjórum útvarps og
sjónvarps, auk þeirra sem unniö hafa
að þáttunum. Myndband af þættin-
um var skoðað og kom þar berlega
fram að orðið var tekið af liö MR
áður en þaö hafði lokið svarinu. Það
veit því enginn hvort spurningunni
hefði verið rétt svarað ef liðið hefði
fengið að telja upp öh nöfnin. Hins
vegar hafði liö MS aðeins 7 nöfn rétt
í þessari spurningu. „Lið MS hefur
sætt sig viö þessi úrsht en þótti þetta
auðvitaö mjög hart, sérstaklega þeg-
ar tillit er tekið til þess að í fyrra
tapaði liðið fyrir Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti með eins stigs mun
og þar kom upp vafaatriði með eina
spurningu. En þessi spurninga-
keppni er ólík öllum öðrum þar sem
hún er miklu hraðari. Þess vegna
geta alltaf orðið mistök. Að mínu viti
er þessi liður í keppninni meingallað-
ur og býst ég viö að honum verði
breytt fyrir næstu keppni,“ sagði
Vernharður. -JBj
Legg blátt bann
við að vísumar
fari á prent
- segir Flosi Ólafsson
„Ég legg blátt bann við að vísurnar
minar úr þáttunum verði gefnar út
á prenti. Til þess þykir mér allt of
vænt um þær,“ sagði Flosi Ólafsson
hagyröingur í samtali við DV. En
sem kunnugt er var Flosi valinn at-
hyglisverðasti hagyrðingur á íslandi
á sunnudagskvöld í spurningaþætti
Sjónvarpsins, Hvað heldurðu?
Flosi sagði að um þessar mundir
stæðu yfir fundir á heimih hans um
hvort fjölskyldan myndi halda tí-
kinni Erótík sem honum var færö
aö gjöf í þættinum. Bjóst hann við
að það tæki langan tíma að komast
að niðurstöðu. Á meðan dvelur Eró-
tík heima hjá fyrri eiganda.
-JBj
Vegagerð í vanda:
Ólystugt, lltið
eða eitrað gras
em vopn vísindanna gegn ásókn fjárins í vegarkanta
Vegagerð ríkisins mun þurfa að
bíða enn um sinn eftir óæta grasinu
sem þeir vonast eftir frá Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins, að sögn
Áslaugar Helgadóttur sem vinnur að
þessum tilraunum. Eins og greint var
frá í DV í gær bindur Vegagerðin
vonir við að hægt verði að fæla roll-
urnar af vegarköntunum með ólyst-
ugu grasi.
Rannsóknin hefur hingað til mið-
ast að því að kortleggja smekk
rollunar. Komið hefur í ljós aö henni
geðjast misjafnlega að hinum ýmsu
tegundum túnvinguls og þykir ís-
lenska snarrrótin ekkert sælgæti en
samt sem áður étur hún þetta allt.
Þá hafa vísindamennirnir haft eitr-
aðar tegundir eins og lúpínu í sigtinu
en gallinn við hana er sá að rollan
étur hana meðan hún er ung og th-
tölulega lítt eitruð. Það er ástæðan
fyrir þvi að engin lúpína sést utan
girðingar. Þá hafa vísindamenn leitt
hugann að sauðvingli og blávingli en
þessar jurtir hafa þann ko'st að þær
gefa litla uppskeru og yrði því rollan
fljótt frá aö hverfa eftir átiö á vegar-
köntunum.
-gse
Flosi Olafsson og kona hans, Lilja Margeirsdóttir, meó eitt verðlaunahús-
dýrið. Köttinn Gretti fékk Flosi i verðlaun fyrir kveðskap sinn á Húsavik.
DV-mynd KAE
Setfoss:
Mjólk enn óskömmtuð
Regína Thoiarensen, DV, Selfosá:
Verslunin Hornið, Tryggvagötu 40
hér á Selfossi, er einkaverslun þeirra
hjóna Helgu Jónsdóttur og Gunnars
B. Guðmundssonar. í gær fór ég
þangað til að kaupa mjólk og var þar
margt um manninn. Fólk í biðröðum
en ánægt vegna þess að þar fékkst
óskömmtuð mjólk. Ekki er þó hægt
að reikna með að það standi lengi en
hins vegar má geta þess að fólk hér
bjóst alls ekki við verkfalli hjá versl-
unarfólki.
í Horninu er mikið úrval vara þrátt
fyrir lítiö húsnæöi en þar er öllu
haganlega fyrirkomið. Snyrti-
mennska mikil. í gær voru hjónin
við afgreiöslu og heldur þreytt. Þar
eru á launaskrá 15 manns og er þar
opið alla daga vikunnar frá kl. 7.30
til 23.30 svo þar er unnið á vöktum.
Fólk í sumarbústöðum í Grímsnesi
metur þessa þjónustu vel og einnig
heimafólkið. Verslunin var stofnuð
1985.
Fiskvinnslan á Vestfjoröum:
Fellið geng-
HVAÐ ER FRAMUNDAN í EFNAHAGSAÐGERÐUM?
VÆRIEKKI RETT AÐ KAUPA NYJAN BIL A GOÐU VERÐI?
ið strax
Fundur í Félagi fiskvinnslustöðva
á Vestíjörðum í fyrrakvöld sam-
þykkti ályktun þar sem stendur:
„Verðlækkun á erlendum mörkuð-
um samhliða mikhli veröbólgu hefur
kippt stoðunum undan þeirri gengis-
stefnu sem fylgt hefur veriö. Fundur-
inn telur óhjákvæmilegt að
stjórnvöld grípi nú þegar til aðgerða
sem komi í veg fyrir stöövun útflutn-
ingsframleiðslunnar, sem nú blasir
við. Fundurinn telur að rekstrar-
vandi sjávarútvegsins veröi ekki
leystur nema verðmyndun á gjald-
eyri verði gefin frjáls."
Á fundinum komu upp raddir um
að stöðva frystihúsin. Ekki var geng-
ið th atkvæða um þær tillögur.
-gse
Nýir
Mazda 626,2000 árg. 1988
framdrifnir með vökvastýri
og ýmsum öðrum aukahlutum.
Okkar verð
frá kr.
630.700,-
HAG-PORT
Söluaðili: Keflavík
BILASALAN BUK
Skeifunni 8,
simar, 68-64-77 og 68-66-42