Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988. LífsstíU Glöggt má greina litamun á sprotum greina sem kalið hafa. Kalnar greinar eru Ijósari en það sem ettir lifir. Best er að nota litlar klippur við að fjar- lægja kalsprota. Blómasúlur Hentugar til ad skipta herberfjum Vorlaukar og fræ í miklu úrvali Áburður - Mold - Fræ Plasípottar - Leirpottar Sjálfvökvunarker Gróórarstöðin GARÐSHORN 52 við Fossvogskirkjugarð sími 40500 Jóhann Diego Arnórsson skrúögarðyrkjumeistari sýnir hér ársvöxt Alaska-víðis sem er, eins og sjá má, allveruleg- ur. Víðitegundlr vaxa mjög hratt, vaxtarhraði er um 50-150 sentimetrar á ári. í þessu tilfelli voru um 50 cm klipptir af. DV-myndir Brynjar Gauti. Hirðing garða: Nú er tímabært að klippa trén '•%! '-W* ^ Nú er rétti tíminn tO að fram- kvæma vetrarklippingu í garðinum. Einnig er upplagt að huga að umhirðu í garðinum og skipuleggja sumarið hvað varðar staðsetningu plantna, klippingu þeirra og verkfærum semáþarfaðhalda. Heimilissíðan hefur fengið ýms góð ráð sem tengjast um- hirðu garða vegna þess hve hentugt er nú að klippa tré og runna áður en plönturnar fara að laufgast. Hentugur tími í flestum tilfellum er best að klippa tré á meðan þau eru í hvíld. Á veturna eða vorin er greinabygging svo augljós að auðveldlega sést hvaða hluta þeirra þarf að klippa. Einnig er minni hætta á að skadda við- kvæma hluta, s.s. brum og börk, því engin lauf skyggja á klippinguna. Auk þess er fyrir- ferð greinanna í lágmarki. Heimilið Runnagróður Að sögn Jóhanns Diego skrúðgarðyrkjumeistara er nú meiri áhugi fyrir runnagróðri en áður var. „Garöeigendur virðast hafa gert sér grein fyrir því að runnagróður dreifir sér ekki eins og t.d. blómjurtir gera. Víðitegundir eins og Gljávíðir, Brekkuvíðir og Alaskavíðir og eru algengastar í görðum hér á landi ásamt Viðju og Birki. Mjög algengt er í görðum hér- lendis að birki sé haft sem runni eða þá sem stök tré. Birkið er í rauninni ekki vel fallið til þess að mynda runna því stofninn og greinarnar vilja verða svo þykkar. Þetta minnir helst á lurka sem fara ekki vel saman við grannar greinar í runna- gróðri. Að þessu leyti er betra að láta birkið standa sem stök tré því það verður talsvert stórt. Annars fer tegundum runna og trjáa fjölgandi t.d. er ógrynni kvistategunda að koma í um- ferð sem gefur aukna breidd í garðrækt,“sagði Jóhann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.