Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Blaðsíða 40
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið i hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað I DV, greiöast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988.
Flugleiðir:
Fljúga út þrátt
- fýrir verkfall?
Forráöamenn Flugleiða velta nú
fyrir sér að láta stöðvarstjóra sinn í
Keflavík afgreiöa millilandavélar
sínar á svipaðan hátt og gert er hjá
Arnarflugi. Ef til þessa kæmi gætu
Flugleiðir flogið óhindrað milli landa
þrátt fyrir verkfall Verslunarmanna-
félags Suðurnesja.
„Við erum að velta þessu fyrir okk-
ur. Við munum gefa út tilkynningu
þar um þegar við höfum komist að
niðurstööu,“ sagði Björn Theódórs-
son, framkvæmdastjóri fjármála-
sviðs Flugleiða. -gse
k Keflavík:
Dínamrtþjóf-
ar handteknir
Tveir unglingspiltar hafa játað að
hafa stolið sex til átta kíjpum af dín-
amíti frá verktökum í Helguvík.
Piltamir segjast hafa hent sprengi-
efninu í hafið. Þeir hafa játað að hafa
sprengt nokkuð af hvellhettum sem
þeir stálu á sama stað. Þeir neita að
hafa sprengt hluta dínamítsins.
í dag verður kafað á þeim stað þar
sem piltarnir segja sprengiefniö
vera. Rannsóknarlögreglan segir
málið að mestu upplýst svo framar-
lega sem sprengiefnið sé á þeim stað
sem þjófarnir hafa bent á. -sme
Akureyri:
Sumarið
er komið
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
^ Það fer ekki á milli mála að sumar-
íð er komið á Akureyri, eftir fremur
slæmt vor veðurfarslega séð.
í gær mældist hiti mestur á Akur-
eyri, yfir 14 stig, og í morgun var
útlit fyrir að dagurinn í dag yrði ekki
síðri. Snjóinn, sem kyngdi niður um
páskana, hefur því tekið ört upp og
er nú svo gott sem snjólaust orðið í
bænum þótt jnikill snjór sé til íjalla,
t.d. í Hlíðarfjalli, þar sem ákveðið
hefur verið að gera tilraun með að
hafa opið fram í næsta mánuð.
Bilstjórarnir
aðstoða
senDiBíLusTöÐin
LOKI
Er ástæða til þess að gefa
sextánda sætið eftir?
Starfsmaður byggingadeildar Reykjavíkur:
Talinn hafa samþykkt falska
reikninga frá eigin fyrirtæki
- meintur fjárdráttur talinn hafa staðið lengi
Starfsmaður byggingadeildar
Reykjavíkurborgar hefur verið
kærður til Rannsóknarlögregju
ríkisins vegna gruns um stórfelld-
an íjárdrátt. Maöurinn, sem
kærður var, rekur iðnfyrirtæki
samhliða vinnu sinni hjá Reykja-
víkurborg; Fyrirtæki mannsins
hefur átt áralöng viöskipti viö
Reykjavikurborg.
Maöurinn hafði meöal annars
þann starfa hjá byggingadeild að
samþykkja verkreikninga. Sam-
kvæmt heimildum DV mun
maðurinn hafa samþykkt mun
fleiri og hærri reikninga frá fyrir-
tæki sínu en nokkur stoð var fyrir.
Sömu heimildir herma aö maður-
inn haö komist upp með þetta
athæfi í mörg ár. Hann hefur nú
verið leystur frá störfum.
Amar Guðmundsson hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins staöfesti í
gær að kæra á hendur manninum
heföi borist RLR. Arnar sagði kær-
una nýkomna og of snemmt væri
að segja til um hversu háar upp-
hæðir væri að ræða. Amar sagöist
heldur ekki geta sagt til um hve
lengi talið er að fjárdrátturinn haíi
staðið, en sagði Ijóst aö þaö heföi
verið í töluverðan tíma. -sme
Það fór sem við var búist um tillögu minnihlutans i borgarstjórn um 42.000
kr. lágmarkslaun borgarstarfsmanna. Ekki var tekin afstaða til málsins á
borgarráðsfundi í gær heldur málinu vísað til starfsmannastjóra borgarinn-
ar. Á starfsmannastjóri að kanna áhrif tillögunnar á launastiga borgarstarfs-
manna. Um leið á að kanna hve margir starfsmenn þiggja laun lægri en
42.000 á mánuði en þeir munu vera nokkuð margir. Ekki er vitað hvenær
könnun starfsmannastjóra lýkur. Myndin var tekin er Magnús L. Sveinsson,
forseti borgarstjórnar og leiðtogi verkfallsmanna í VR, kom til fundarins.
-SMJ/DV-mynd KAE
Óvíst að sáttatillagan komi í dag:
Sáttasemjari stend-
urframmifyríréfæru
„Þaö er stefnt aö því að sáttatillag-
an verði lögö fram í dag en það er
óvíst hvort það tekst. Miðað við stöö-
una í þessari deilu er það eitt' erfið-
asta verkefni sem ég hef fengist viö
að senjja þessa sáttatillögu,“ sagði
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari í samtali við DV í morgun.
Hann og vararíkissáttasemjari hafa
setið við að semja þessa tillögu.
Ástæðan fyrir því að óvíst er hvort
sáttatillagan kemur fram í dag er
einfaldlega sú að þeir hafa ekki lokið
viö að semja hána, enda vandinn
mikill. Ef tillagan sprengir Akur-
eyrarsamningana liggur fyrir að
vinnuveitendur munu fella hana.
Þeir benda á að ef Akureyrarsamn-
ingarnir verða sprengdir verði að
endurskoða launaliði samninga
þeirra verkalýösfélaga sem hann
gerðu.
Ef sáttatillagan veröur innan Ak-
ureyrarsamkomulagsins er verið að
bjóða verslunarmönnum í þriðja
sinn samninga sem þeir hafa fellt
tvisvar.
Svigrúm er ekki mikið til hækkun-
ar til handa verslunarmönnum
innan Akureyrarsamningsins en þó
er það eitthvað. Vitað er að rætt hef-
ur verið um einhvers konar bónus-
greiðslur til handa afgreiöslufólki í
verslunum, sem er á sléttum töxtum,
en samkvæmt Akureyrarsamning-
unum yrðu þeir á bilinu 32 til 42
þúsund krónur á mánuði. Það mun
hins vegar ekki vera auðvelt að koma
bónusgreiðslum við hjá þessu fólki.
Það er því ekki orðum aukið sem
sáttasemjari segir að málið sé erfitt
viðureignar. -S.dór
Verkfalli frestað
Verkfalli ræstingafólks á sjúkra-
húsum og vistheimilum á Suður-
landi, sem hefjast átti á miðnætti
síðastliðnu, hefur verið frestaö til 4.
mai. Verkfallsboðun starfsfólks í eld:
húsi og þvottahúsum sömu stofnana
á fóstudag stendur hins vegar enn.
-S.dór
Norðuriandsvegur lokaður í Langadal
Norðurlandsvegur er lokaður í
Langadal í Húnavatnssýslu. Blanda
ruddi úr sér íshröngli í gær með þeim
afleiðingum að vegurinn lokaðist
vegna skemmda, við bæinn Æsu-
staði.
Vegfarendur komast Svínvetn-
ingabraut en þar er aðeins leyfður 7
tonna öxulþungi.
-sme
Veðbankar:
Sverrir í tí-
unda sæti
Veðbankar í Bretlandi eru nú byrj-
aöir að senda frá sér tölur um veðmál
í Söngvakeppni evrópskra sjón-
„varpsstöðva á írlandi. Ladbroke’s
veðbankinn spáði þeim Sverri og
Stefáni tíunda sæti í gær en Bret-
landi og Sviss tveimur efstu sætun-
um. Spáin á þó líklega eftir að
breytast mikið fram að keppni.
Þýskaland er í þriðja sæti, Júgó-
slavía í fjórða og Frakkland í því
fimmta.
JBj
Veðríð á morgun:
Bjarbríðri
norðan-
lands
Á morgun verður suðaustanátt
ríkjandi. Stinningskaldi og dálítil
rigning verður við suðurströnd-
ina en hægari og úrkomulaust
annars staðar. Norðan- og norð-
vestanlands verður bjartviðri.
Hitastig verður á bihnu 4-6 stig.