Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Blaðsíða 18
]
18
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Mickey
Rourke
er orðinn með hæstlaunuðu
leikurum í Hollywood, en þó
koma þeir peningar sem ham\
vinnur sér inn ekki aðallega úr
kvikmyndum. í landi íjármagns-
ins, Japan, er kappinn gífurlega
vinsæll og auglýsendur þar fengu
Rourke til þess að „leika“ í whi-
sky-auglýsingu. Það eina sem
Rourke gerir í auglýsingunni er
að koma inn á bar, setjast niður
við borð og fá sér sopa af whisky.
Launin fyrir það eru 60 milljónir
króna.
Marlon
Brando
hefur nú í nokkur ár átt við
offltuvandamál að stríða. Hann
hefur haft uppi ráðagerðir um að
snúa sér á ný að kvikmyndaleik,
en til þess þarf hann að grennast
um helming að minnsta kosti.
Brando brá á þaö ráð að fara á
sérstaka megrunarstöð í Ástralíu
og gengur allt samkvæmt áætlun.
Að lokinni megrun ætlar Marlon
aö leika í myndinni „Dry White
Season" sem taka á upp í Suður-
Afríku.
Jane
Fonda
sem áöur var þekkt fyrir vinstri
sinnaðar skoðanir sínar er lík-
lega aö fá mjög spennandi verk-
efni í hendumar. Svetlana Stalín,
dóttir Jósefs Stalín, hefur skrifað
endurminningar sínar og nú á að
kvikmynda verkið. Heyrst hefur
aö Svetlana hafl falast eftir Jane
Fonda í hlutverkið og er talið lík-
legt að hún taki það aö sér.
Félagsheimilið Arsel bauö krökkum upp á ýmiss konár ieiki á sumardaginn fyrsta og það kunnu krakkarnir vel að meta og fjölmenntu á svæðið.
Veðrið lék
við landann
Islendingar hafa lengi haft þann sið aö halda
sérstaklega upp á þann dag sem þeir kalla
sumardaginn fyrsta. Það er samkvæmt fastri
reglu flmmtudagurinn í vikunni 19.-25. apríl.
Sumardagurinn fyrsti hefur lengi verið mikil-
vægur dagur í hugum íslendinga, enda er
sumarkoman fáum þjóöum eins mikilvæg og
í þessu harðbýla landi. Lengi vel var þessi
dagur talinn ganga næst jólum og ármótum
að umfangi.
Á öldum áður var margt gert til hátíða-
brigða á sumardaginn fyrsta, matarveislur
" haldnar og ýmiss konar uppákomur í hrepp-
um og sveitum. Hjátrú hefur oft fylgt þessum
degi og til dæmis er alþekkt sú trú að ef fryst-
ir aðfaranótt sumardagsins fyrsta,
verði sumarið gott. Svo vel vildi til á
þessu ári, að það varö einmitt raun-
in, og svo er bara að vona hið besta.
Veðrið lék við íslendinga víðast
hvar á landinu á sumardaginn fyrsta
í síðustu viku og fólk gerði sér daga-
í Þórscafé var Framsóknarflokkurinn með fjölskylduskemmtun og þar var kraftajötunninn Jón Páll Sigmarsson mun, enda almennur frídagur.
og bauð hann meðal annars nokkrum krökkum I sjómann. Jón Páll lýtur hér í lægra haldi fyrir einum ungum og Ljósmyndari DV var á ferð þennan
efnilegum. DV-myndir BG dag og tók nokkrar myndir.
Lifandi listaverk
í Jóhannesarborg í Suður-Afríku
fór fram allsérstæð sýning fyrir
skömmu. Rúmlega 60 manns komu
fram sem lifandi málverk eða Usta-
verk og voru ekki íklædd neinu nema
•málningu listamanna. Hugvit og
hæfni listamannanna þótti oft með
ólíkindum og er ekki ólíklegt að vin-
sældir þess konar sýninga eigi eftir
að aukast. Listaverkin verða þó að
sýna ótrúlega þolinmæði við gerð
verksins.
Suður-afrfskl listamaðurinn Grant
Walker leggur síðustu hönd á lista-
verk sitt fyrir sýningu sem haldin var
I Jóhannesarborg fyrir skömmu.
Simamynd Reuter
Jóhann Ingibergsson átti I harðri keppni við sigurvegara siðasta árs, Má
Hermannsson, en tókst að komast frpm úr á síöustu metrunum.
DV-mynd BG
Víðavangshlaup ÍR
Á sumardaginn fyrsta fór fram Ingibergsson úr FH, og er þetta í
árlegt víðavangshlaup ÍR, og hefur fyrsta sinn sem hann sigrar í þessu
ávallt mikill fjöldi hlaupara af báöum hlaupi. Fyrsti kvenmaöurinn í mark
kynjum tekið þátt í því. Að þessu var hin kunna hlaupakona Marta
sinni voru keppendur 88 talsins, þar Emstdóttir úr ÍR, en hún varð núm-
af tuttugu konur. Keppendur voru er 16 í heildina. Veður var eins og
af öllum aldri, sá yngsti var 7 ára, best verður á kosið fyrir hlauparana
sá elsti 61 árs. á sumardaginn fyrsta, sól skein í
Sigurvegari hlaupsins var Jóhann heiði, en þó ekki of heitt í veðri.
Dýrsundbolur
Það eru sjálfsagt fáir sem hafa efni
á því að kaupa sundbolinn sem
stúlkan á myndinni er iklædd. Hann
er úr leðri og settur demöntum og
er án efa dýrasti sundbolur sem um
getur. Hann er metinn á jafnviröi 550
milljóna króna og mætti kaupa sér
nokkur hús fyrir upphæðina. Hann
var sýndur á sundfatasýningu í
Aarau i Sviss fyrir skömmu, en ekki
fer neinum sögum um það hvort
einhver hafi fest kaup á honum.