Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988. Sandkom Jón L. Ámasoner ^raqbítur SkáksveitDV eturnúkappií skákkeppni stofhana.Einn liösmanna sveitarinnar lýstiþvíyfir eftirágæta frammistööu sveitarinnarí einni umferö- mniaðJónL. Arnason, stór- meistari, skákskríbent D V með meiru, væri ekki dragbítur á sveitina. Þess skal getið að sá sem lét þessa yfirlýsingu frá sér fara hefur ekki þótt merkilegt peð í sögu skáklistariimar til þessa. Jón L. teflir áfyrstaboröi DV-sveitar- innar og eins og sönnum stórmeist- ara sæmir hofur hann unnið allar sinar skákir og fengið helming allra vinninga s veitarinnar til þessa. Umsjón Sigurjón M. Egilsson Áhugasamur fréttamaður Efeinhverekki veitþástarfará íréttatofuSjón- varpsins maðuraðnafhi Ómai' Þoríinn- urRagnarsson. Ómar Þorfinn- urþykirmeð áhugasömusth fréttamönnum. ífyrrinóttvoru þrireidsvoðarí Reykjavik. Óm- ar Þorfmnur var að sjálfsögðu með fyrstu mönnum á vettvang. Viöstadd- ir veittu Ómari Þorfmni athygli fyrir það að hann kvikmyndaði elds voð- ann af miklum ákafa. Það eitt er kaimski ekki mjög athyglisvert, nema fyrir þær sakir að hann stóð fast við hliö kvikmyndatökumanns Sjónvarpsins, Friðþjófs Kelgasonar. Aðspurður sagöist umræddur frétta- maður ekki vantreysta kvikmynda- tökumanninum heldur hitt að hann vildi eiga mynd af brunanum. Fölsk tík Ekkieralltsém sýnist. Iitla sætaerótíkin, semFlosayfir- hagyrðingivar afhentíþættin- um Hvað heldurðu?, var allsekkitíkin semhonumvar gefm.Bóndinn gjafinildiátti ekkilitlusætu tíkinaheldur fékk hana lánaða í Stykkishólmi. Hið rétta er að tíkin, sem Flosi fær ef hann vill, er enn íEyjafirði. Það var því ekki sannleikanum samkvæmt þegar bóndinn og hagyrðingurinn eyfirski sagði aö tíkin hefði orðið flugveik. Það er svo vonandi Flosa vegna ef hann þiggur tikina að hún verði ekki mikiö fy rir að gelta og hlaupa á eftir fuglum. Fuglamir, sem búa í túnfæti Flosa, hafa fengið og eiga væntanlega eftir að fá mikla röskun vegna byggingar á nýrri skrifstofu borgarstjórans í Reykja- vík. En eins og kunnugt er verður hún einmitt byggö í túnfætinum hjá Flosa. Hefði kýr borið? Bóndinngjaf- mildisagöist hafaeignast tíkinadaginn semFlosifórá kostum þegar Reykvíkingar ogÞingeyingar kepptuáHúsa- vík.Þegarhann varðvitniað glæstri frammistöðu Flosaákvað hann að gefa honmn tíkina. Hvemig hefði farið ef bóndiim hefði ekki feng- ið tíkina cn þess í stað hefði kýr borið kálfi þennan dag. Hefði bóndinn þá komið meö kálfmn í bandi og afhent Flosa? Fréttir íþróttahöll fyrir HSÍ: „Engin ofrausn“ - segir menntamálaráðherra „Við hjá ÍBR fögnum auðvitað slíkri yfirlýsingu frá ríkisvaldinu. Ef slík Höll verður byggð er rétt að hún verði byggð í Reykjavík,“ sagði Júlíus Hafstein, formaður íþrótta- bandalags Reykjavíkur, aðspurður um fyrirhugaða íþróttahöll í Laug- ardalnum. Júlíus sagði að þó að borgin kæmi að einhveiju leyti inn í fjármögnun vegna byggingar íþróttahallarinnar mundi það ekki koma niður á fjár- veitingum til íþróttafélaga vegna framkvæmda þeirra. Júlíus sagðist fagna þessum breytta hugsunarhætti hjá ríkisvaldinu en ríkisstjórnin sem nú sæti hefði líklega staðið sig slakar en nokkur önnur við byggingu íþróttamannvirkja. Að sögn Júlíusar er alls ekki ljóst hve stórt húsið yrði - hvort það yrði fyrir 6000 eða 10.000 áhorfendur. Það væri ljóst að húsið yrði að þjóna mjög víðtæku sviði, s.s. við sýningar og ráðstefnur, og eftir væri að ræða við þá aðila sem þar eigi hlut að máli um hönnun og þátttöku við kostnað. „í raun er þetta enn eins óljóst og það getur veriö,“ sagði Júl- íus. -SMJ Á ríkisstjórnarfundi í síðustu viku var samþykkt aö reisa hér stóra íþróttahöll, sem tæki 8000 manns í sæti, ef HSÍ verður falið aö halda heimsmeistarakeppnina í hand- knattleik 1993 eða 1994. Umsókn um það hefur verið lögð fram og verður ákvörðun tekin um staðsetningu mótsins á fundi alþjóða handknatt- leikssambandsins í september. Að sögn Birgis ísleifs Gunnarsson- ar menntamálaráðherra þá hefur komið í ijós að það sárvantar hús af þessari stærð til að gera ísland að heppilegu ráðstefnulandi. Það hefði komið í ljós í sambandi við alþjóðlegu sjávarútvegssýninguna sem yrði varla haldin hér aftur nema nýtt húsnæði kæmi til. „Þetta er engin ofrausn ef við ætl- um ekki að lenda aftur úr öðrum þjóðum á þessu sviði. Þá er margt sem bendir til að gjaldeyristekjur af mótinu verði um 300 milljónir," sagði ráðherra. Hann sagði að semja þyrfti við Reykjavíkurborg um staðsetn- ingu hússins og kostnaðarhlutdeild borgarinnar. Venjan er að sveitarfé- lög greiði um 60% af kostnaði en það mun ekki vera ætlunin að þessu sinni. Líklegasta staðsetningin húss- ins er talin vera austan við Laugar- dalshöllina sem tekur um 2500 manns í sæti. -SMJ «issi • l Hér mun hin nýja íþróttahöll væntanlega rísa, rétt austan við Laugardals- höllina. Júlíus Hafstein, formaður ÍBR: Breytt stefna hjá ríkisvaldinu Sighvatur Björgvinsson: Sé ekki hvaðan peningar í þetta ættu að koma Síghvatur Björgvinsson, formað- ur fjárveitinganefndar Alþingis, sagði um fyrirhugaða íþróttahús- byggingu í Laugardalnum að hún hefði ekki komið inn á borð í]ár- veitinganefndar. Á fundi rikis- stjómarinnar var samþykkt að byggja 300 milljóna kr. íþróttahus í Laugardalnum. „Þegar við vomm að afgreiöa fjárlög frá Alþingi sá ég nú ekki þá peninga sem i þetta eiga að fara. Þessi upphæð er væntanlega hug- suð sem viðbót viö fjárveitingar til íþróttamannvirkja enda mundi hún hækka þær upphæðir vem- lega. Nú, það er ekkert nema gott um það að segja að veija meira fé til íþróttamála ef þeir penningar era tU,“ sagði Sighvatur. . -SMJ Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ: Getum fyllt húsið einstaka sinnum „Þessi yfirlýsing ríkisstjórnarinn- ar er afgerandi og tryggir aö við getum haldið áfram með okkar um- sókn,“ sagði Jón Hjaltalín Magnús- son, formaður HSÍ, um yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að byggja íþróttahöll í Laugardalnum. Jón sagði að ríkisstjórnin heföi sagt í maí í fyrra að hún ætlaði að styðja um- sókn HSÍ um að fá að halda heims- meistarakeppnina í handknattleik 1993 eða 1994, en enn hefur ekki ver- ið ákveðið hvort árið keppnin fer fram. Þá sagði Jón að í janúar hefði kom- ið fram krafa frá Alþjóða handknatt- leikssambandinu um að aðstaða fyrir 7000 áhorfendur yrði þar sem úrslita- leikurínn fer fram. Væri krafan að undirróti Svia sem sækja um keppn- ina á móti íslendingum. Ákvörðun um hvar keppnin fer fram verður tekin í Seoul í september. Jón sagði að miðað væri við að höllin væri byggð í samstaríi viö Reykjavíkurborg og aðra sem áhuga hafa á húsi sem þessu. En er húsið ekki of stórt? „Ég er sannfærður um að við get- um fyllt þetta hús einstaka sinnum og þá mætti nýta það til tónleika- halds auk ráðstefnuhalds og vöru- sýninga." Jón sagði að yfirleitt væri miðað við að staðsetja húsið austan við Laugardalshöllina því þannig mætti nota bílastæði sem fyrir væru. -SMJ Bleikjueldið: - þar er einnig góður markaður fýrír bleikju úr íslenskum vötnum Eins og skýrt var frá í DV eru taldir vera miklir möguleikar hér á landi í eldi á sjóbleikju, vegna þess hve það er auðvelt og ódýrt og markaðir góðir í Bandaríkjun- um. En það er líka góður markaður fyrir bleikju í Evrópu og þá ekki síst það sem menn kalla villtan fisk, beint úr íslenskum vötnum. Sigmar B. Hauksson hefur kann- aö þetta mál og skrifað um þaö skýrslu fyrir Byggðastofnun. Sig- mar sagði í samtali við DV aö hann teldi að góður markaður væri fyrir villta bleikju í Evrópu. Hann sagði að ár og vötn væru orðin svo meng- uð um alla Evrópu og bleikja úr ómenguðu vatni væri oröin eftir- sótt og menn litu á hana eins og villibráð, sem alltaf er eftirsótt. Hann sagðist sannfærður um að ef þeir sem eiga lönd að góðum sil- ungavötnum færu að stunda veiðar með bestu veiðarfærum, væri þar komin arðvænleg atvinnugrein. Sigmar segir í skýrslu sinni að nauðsyn beri til að fiskurinn sé af réttri stærð og hann verði að vera ferskur. Hann bendir þar einnig á að markaður sé góður fyrir eldis- bleikju og regnbogasilung og því sé hér um mjög athyglisvert mál að ræða. Þetta kemur alveg heim og saman við það sem dr. Össur Skarphéðins- son fiskeldisfræðingur sagöi um bleikjueldið í samtali við DV á mánudaginn. -S.dór „Friðarömmur“ vilja viðskiptabann á S-Afríku Samtök sem kalla sig Islenskar friðarömmur hafa sent áskorun til utanríkisráðherra um að beita sér fyrir því að sett verði viðskiptabann á Suður-Afríku af íslands hálfu. Segir í tilkynningu frá samtökun- um að í S-Afríku sæti börn og unghngar fangelsunum og pynting- um. Með því að setja viðskiptabann á S-Afríku getum við íslendingar með friðsamlegum hætti mótmælt svo forkastanlegum og ómannúðleg- um gjörðum. Segjast friðarömmurn- ar ekki geta beðið til haustsins eftir að slikar ráðstafannir verði gerðar og vilja þær því að mál þetta eigi að leggja fyrir þingiö nú þegar og af- greiðast strax. íslenskar friðarömmur eru samtök sem hófu göngu sína í janúar síðast- liðnum. Eins og nafnið gefur til kynna eru samtökin byggð upp af ömmum. Þær segjast ekki ætla að horfa aðgerðalausar á það ofbeldi sem dynur yfir jarðarbúa og þá sér- staklega æskuna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.