Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988. 9 Utlönd Leiötogi stjórnarandstöðuflokksins Flokks friðar og frelsis, Kim Dae Jung, var sá sem mest vann á í kosningunum í Kóreu í gær. Simamynd Reuter Tapaði þingmeirihluta Lýðræðislegi réttlætísflokkur Roh Tae-Woo, forseta Suður-Kóreu, tap- aði þingmeirihluta' í kosningunum sem fram fóru í landinu í gær. Eftir að úrshtin voru ktínn hvatti Roh stjómarandstöðuna til samstarfs við hann til þess að pólítísk ringulreið kæmist ekki á. í kosningunum var það Kim Dae- Jung, leiðtogi stjómarandstöðunnar, sem mest vann á. Flokkur hans nefn- ist Flokkur friðar og frelsis. Þegar um 90 prósent atkvæða höfðu verið tahn virtist sem stjórnarflokkurinn bæri sigur úr býtum í aðeins 86 af 224 kjördæmum. Samkvæmt ríkissjónvarpinu verð- ur 38 þingsætum úthlutað til stærsta flokksins en það nægir ekki stjómar- flokknum tíl að fá þau 150 sæti sem þarf til að tryggja meirihluta á þing- inu. Samtals eru þingsætin 299. Roh forseti, sem tók við völdum fyrir tveimur mánuðum, viður- kenndi að úrslit kosninganna myndu gera honum erfitt fyrir en lofaði að verða við óskum fólksins. Semja ekki um gíslana Bjami Hinriksson, DV, Boideaux: Ástandið á Nýju Kaledóníu, einni af þeim eyjum í Kyrrahafinu sem th- heyra Frökkum, er áfram mjög slæmt og ekki líklegt að það batni á næstunni. Á mánudaginn lést ung, innfædd stúlka þegar lögreglu og sjálfstæðissinnum lenti saman og sömiheiðis lést ungur kynblendingur á sjúkrahúsi af skotsárum sem hann hlaut í svipuðum átökum. Á eyjunni er tæpur helmingur íbúa innfæddir Kaledóníubúar en Evr- ópumenn, sérstaklega Frakkar, eru fjölmargir auk þess sem talsvert er um Asíubúa annars staðar frá. Meirihlutí innfæddra vhl sjálfstæði og hefur sniðgengið bæði fyrri hluta forsetakosninganna sem og kosning- arnar á síðasta ári þegar íbúar eyjunnar völdu á milli sjálfstæðis og að vera áfram hluti Frakklands.. Morðin á lögreglumönnunum fjór- um í síðustu viku og gíslataka tuttugu og sjö þeirra sýna örvænt- ingu innfæddra og að sjálfstæðis- hreyfing þeirra, sem hingað til hefur sóst eftir að leysa deilumál með við- ræðum, telur sig nú þurfa aö beita öðrum aðferðum. Ellefu gfslanna hefur nú verið sleppt. Bemard Pons, ráðherrann sem sér um yfirráðasvæði Frakka utan Frakklands, kom th eyjunnar í fyrra- dag og hefur lýst því yfir að ekki verði samið við gislatökumennina og að engra breytínga sé að vænta í stefnu stjórnarinnar hvað snertir málefni sjálfstæðissinna. Hann hefur jafnvel ýjað að því að samtök þeirra verði leyst upp. Francois Mitterrand forseti hefur beðið um að kosningarnar um helg- ina verði dæmdar ómerkar á Nýju Kaledóníu sökum óeirðanna sem komu í veg fyrir að alls staðar væri hægt að kjósa. Dómsyfirvöld munu taka afstöðu th beiðni forsetans nú í dag. Andstæðingar forsetans segja hann einungis gera þetta vegna þess aö Chirac forsætisráðherra hafi hlotið meirihluta atkvæða á eyjunni. Hvað sem því líður er ástandið á Nýju Kaledóníu vopn í höndum Mitter- rands í kosningabaráttunni gegn Chirac þótt hann megi passa sig að ganga ekki of langt í gagnrýninni því ástandið núna minnir óþyrmilega á óeirðirnar 1984 á eyjunni en þá voru sósíalistar við stjórn. Eins og er virö- ist endurkosning Mitterrands vera eina vonin th að hægt verði að leysa deilumálin á Nýju Kaledóníu á frið- samlegan hátt. EHur í greipaldinum Ávaxtasali í Róm með greipaldin sem nú er bannað að selja á Ítalíu. Eitur reyndist vera i nokkrum greipaldinum á ávaxtamarkaði i Róm en þau voru könnuð eftir að hryðjuverkasamtök tilkynntu að greipaldin, og sérstaklega þau sem innflutt eru frá ísrael, væru baneitruð. Simamynd Reuter Bjami Hmiiksson, DV, Bordeaux: Ráðherra hehbrigðismála á Ítalíu hefur bannað sölu á greipaldinum í gjörvöllu landinu og varað almenn- ing við að neyta þeirra sökum ótta um að ávextirnir hafi verið eitraðir af hryðjuverkasamtökum. Þessi samtök, sem hingaö til hafa ekki komið við sögu á Ítalíu, virðast fyrst pg fremst berjast gegn gyðingum og ísrael. Yfirvöldum bárust símleiðis þau skilaboð frá hryðjuverkamönnunum að öll greipaldin í landinu, sérstak- lega þau sem flutt eru inn frá ísrael, væru baneitruð og hættuleg neyt- endum. Við könnun reyndust nokkrir ávextir eitraðir. Hryðjuverkamennirnir eiga að hafa komið eitrinu fyrir í ávöxtunum en hingað til hafa ekki borist fréttir af neinum dauðsfóllum sökum þessa. Ávaxtakaupmenn í Róm komu af fjöllum þegar sjónvarpsmenn rann- sökuðu þetta mál. Vildu þeir ekki kannast við að neitt hefði verið bann- að en viöurkenndu hins vegar ögn dræmari sölu á greipaldinum síðustu daga. Vinnudeilur í Nicaragua Stjómarandstaðan í Nicaragua sakaði í gær ríkisstjórn landsins um að hafa ekki staðiö við skuld- bindingar sínar um að binda enda á verkföll í landinu. Segir stjórnar- andstaðan að með því hafi stjórn- völd stöðvað viðræður um úrbætur í stjómmálum landsins. Talsmenn fjórtán stjórnarand- stöðuflokka í Nicaragua sögöu i gær að umræöur um úrbætur hefðu stöðvast vegna þess að ekki hefði verið staðið við loforð sem byggingaverkamönnum og verka- mönnum i bifreiðaiðnaði hefðu veriö gefm. Stjórnvöld saka verkamennina hins vegar um ofstopa í kröfugerð og segja að kröfur þeirra myndu raska éfnahagslegu jafnvægi landsins ef að þeim yrði gengiö. Tuttugu og sex verkfallsmenn hófu í gær hungurverkíah í Managua, höfuðborg landsins, th þess aö ítreka kröfur sínar um launahækkun. Fyrr í gær réöust stjórnvöld í Nicaragua harkalega aö Bandaríkjamönn- um fyrir þá ákvöröun þeirra að framlengja um eitt ár til viðbótar viöskiptabann gegn Nicaragua. Segja Nicaraguamenn ákvörðun þessa sýna aö Bandaríkjamenn vhji koma í veg fyrir árangur af friöarviðræðum inhli stjómvalda og kontraskæruliða. Hárfögur Sovéthetja Sovéskar konur keppa nú af hörku um titilinn fegursta kona Sovétríkjanna og eru um þessar mundir haldnar héraðakeppnir og borgarkeppnir vís vegar um Sovét- ríkin. Stúlkan á meðfylgjandi ljósmynd er ein þeirra sem keppir um titilinn ungfrú Moskva. Myndin var tekin þegar hún var að undirbúa sig und- ir að ganga fram fyrir dómendur í keppnimú. Stúlkan mun vera meö mesta hár ahra keppenda og sjá má að hún ætlar aö láta hárið njóta sín sem best enda til mikils að vinna. Fegurðarsamkeppnir eru fremur nýjar af nálinni í Sovétríkjunum Hún var með mest hár allra kepp-. endahafayfirvöldkommúnistaþar enda. simamynd Reuter ílandi haftáþeimandúðtilþessa. Gátu stödvað árásina Særður israelskur hermaður fluttur á sjúkrahús eftir átök við palest- ínska skæruliða. Simamynd Reuter ísraelskur þingmaður gagnrýndi í morgun harðlega lögreglu landsins sem hann sagði að hefði átt að geta komiö í veg fyrir árás arabískra skæru- liða á langferöabifreið í síðasta mánuði en í árásinni létu þrir ísraelar lífið. Þingmaöurinn sagði að skænhiðarnir hefðu tekiö bifreið af óvopnuðum ísraelskum hermönnum og heföu þeir ekið í gegnum vegatálma lögregl- unnar áður en þeir tóku langferðabifreiðina. Einn lögreglumaður skaut á skæruliöana þegar þeir óku í gegn en hitti ekki. Byssa annars stóð á sér og hinn þriðji reyndi ekki að grípa th vopna. ísraelar ráku í gær úr landi sex palestínska skæruhða sem þeir tóku um borð i flutningaskipi frá Honduras fyrir ftórtán mánuðum. Að sögn útvarps ísraelska hersins höfðu mennirnir afplánað fangelsis- dóma sína. Palestinskir skæruliöar reyndu í gær að ráöast inn í ísrael óg felldu þeir tvo ísraelska hermenn í átökunum sem fylgdu í kjölfarið. Þrír skæru- liðar féhu einnig. Tilboð um samdrátt Sérstök nefnd fulltrúá frá aðíld- arríkjum OPEC, samtaka olfu- framleiösluríkja, kemur saman í dag til að raeða tilboð frá þeim olíu- framleiösluríkjum sem ekki eiga aðild að samtökunum, um að þau dragi saman framleiðslu sína. Th- boð þetta felur í sér fimm prósent samdrátt í olíuframleiðslu þessara ríkja en samdrátturinn er Uður í tilraunum þeirra til að hækka olíu- verð að nýju. Tilboðið var lagt fram í Vfn í gær að loknum fyrsta degi funda þess- ara tveggja ríkiahópa. Embættismenn trá OPEC-rikjum ræða málln á fundi i gær. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.