Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988. UtLönd Kúrdar mótmæla efnavopnum mótmælum Kúrdanna Moskvu. Simamynd Reuter Um fimmtíu kúrdískir stúdentar efhdu 1 gær til aögeröa skammt frá Rauöa torginu í Moskvu til ))ess aö mótmæla ætlaðri beitingu Iraka á eftiavopnum í styrjöldinni við íran. Þvi hefúr veriö haldið fram að írakar hafi einkum beitt vopnum þessum gegn íbúum bæjarins Halajba, sem eru Kúrdar. Mótmælendurnir i Moskvu báru kröfuspjöld sem á voru letruö slag- orö svo sem; Frið i Kúrdistan, Látíö Kúrda í friði og Daúöann fyrir óvini Kúrda. Hagl af gotfíkúlustærð Fregnir berast öðru hvoru af sér- kennilegum veðrabrigðum, þar á meðal hagléli sem reynist stórvaxið í meira lagi. íbúar bæjarins Mont- gomery í Alabama í Bandaríkjun- um fengu einmitt aö reyna slíkt og þvíumlíkt á mánudagskvöldið var. Þá gekk yfir bæinn þeirra haglél og voru einstök högl á stærö viö golfkúlur. Haglið olli verulegu tjóni þar sem rúöur brotnuöu víöa í bænum, einkum í bifreiðum. Taliö er aö tjóniö nemi mfijónum Banda- ríkjadala. Á meöfylgjandi mynd má sjá hversu stórvaxiö haglið var en á henni heldur starfsmaður bensín- stöðvar á nokkrum höglum sem féllu á stöðina. Æmm í ■'*r I V . * 4,- Bólumeðal hættulegt ?rs szr&tef ?t% ACCUTANE3 40 mil tíjsací isötaSnsia ÍZ& C2?3*$ vSS25:--í & $&&&&■ g v : ?.v -i ** : IIOCHt L^CWS^S ' - k's H&i * Sfe- á7mi i ACCUTANEMO mtr • ‘i. JJJ,, Bólumeðallð hættulega. “ Sim«mynd Reuter Hefibrigöisyfirvöld í Bandaríkjunum hafa nú fyrirskipað rannsókn á eiginleikum bólumeöalsins Accutane sem selt hefur verið sem eitt helsta ráö bandarískra unglinga viö fílapenslum undanfarin ár. Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna telur hugsaniegt aö 1 lyfinu megi finna eitt- hvert efni sem skýrt geti hvers vegna svo margar konur sem notað hafa þaö hafa fætt af sér börn með fæöingargalla. Rannsóknin var fyrirskipuö þar sem margar af þeim konum sem fæddu óheilbrigð böm reyndust eiga þaö sameiginlegt aö hafa notaö Accutane á meðgöngutímanum. Enn QöMamorð í Columbíu Tíu smábændur voru myrtir f þorpi í norðanverðri Columbíu aö- faranótt þriöjudags í þessari viku. Talið er fullvíst aö morðingjamir hafi verið úr rööum vinstri sinn- aðra skæruliða sem sakað höfðu bænduraa um að vera njósnarar á snærum stjórnarhers landsins. Atburður þessi átti sér stað í þorpinu Nueva Colon, í norður- héruöum landsins, skammt frá bænum Valledupár, þar sem fimm mönnum var rænt síðastliöinn sunnudag, þeir síöan myrtir og lík þeirra skfiin eftir á árbakka. Að sögn sjónarvotta í Nueva Colon er líklegt aö árásarmennirnir tfi- heyri skæruliöafylkingu sem fylgir Kúbönum að málum. Árásarmennim- ir leituöu uppi ákveðna einstaklinga í þorpinu og myrtu þá á aðaltorgi þess. Þetta eru í sjöunda sinn sem fjöldamorð eru framin í Columbíu á þessu ári. Alls hafa um hundrað og tuttugu bændur og landbúnaöarverkamenn verið myrtir. Stjómvöld telja aö hópar öfgamanna til hægri í kolumbísk- um sfjómmálum, sem starfa fyrir stóra landeigendur, beri ábyrgð á sumum þessara göldamoröa en vinstri sinnaðir skæruliðar öðrum. Heimaður lóst í sprengingu Breskur hermaður lét lífið og tveir aðrir slösuöust alvarlega f sprengju- tilræöi á Norður-írlandi f gærkvöldi. Hermennimlr voru í eftirlitsferö um þorpið Carickmore þegar sprengja sprakk skammt frá þeim. Enginn hefur lýst sig ábyrgan fýrir sprenging- unnl Fáeinum klukkustundum fyrr var breskur hermaður skotinn til bana í öðm þorpi, skammt frá Carrickraoré. Þar vom hðsmenn írska Iýðveldis- hersins, IRA, aö verid. DV Yfirburðasigur Dukakis George Bush tryggði sér í gær formlega útnefningu Repúblikana- flokksins. Hann vann stórsigur í Pennsylvaníu og hefur nú 1155 full- trúa en 1139 þurfti til að hljóta útnefninguna. . Ólafar Amarson, DV, New York Michael Dukakis vann í gær stór- sigur yfir Jesse Jackson í forkosning- um demókrata í Pennsylvaniuríki. Þegar nær öll atkvæöi höfðu verið talin hafði Dukakis hlotið 66 prósent atkvæða en Jackson 28 prósent. Duk- akis fékk 164 fulltrúa á flokksþing demókrata en Jackson 12 og hefur Dukakis nú 1268 fulltrúa af þeim 2082 sem þarf til að tryggja sér útnefningu flokksins. Jackson hefur 850. Jackson lýsti því yfir í gærkvöldi að hann myndi halda baráttu sinni áfram þrátt fyrir ósigurinn í gær. Jackson mun ætla að verja gífurleg- um fjármunum í auglýsingar fyrir síðustu forkosningarnar sem verða í Kaliforníu þann 7. júní. Stjómmála- skýrendur em þó á einu máli um það að Dukakis sé búinn að tryggja sér útnefningu Demókrataflokksins. Telja margir að Jackson haldi bar- áttu sinni áfram til þess eins að geta haft aukin áhrif á stefnu Dukakis og það hvern hann velur sem varafor- setaefni sitt. Talið er að Jackson lítist illa á Sam Nunn sem helst er nefndur sem varaforsetaefni. Nunn er íhalds- samur. demókratí en Jackson er yst á vinstri vængnum í flokknum. Michael Dukakis á kosningafundi ásamt eiginkonu sinni Kitty, tengdadóttur sinni Lisu og syni sínum John. Simamynd Reuter Veðmangarar í London veðja á að George Bush verði næsti forseti Bandaríkjanna. Veðin hjá þeim standa 4 á móti 9 með Bush. Hjá Dukakis eru þaö 13 á móti 8 og hjá Jackson 33 á móti 1. Koch biðst afsökunar Ólafur Amaison, DV, New York: Ed Koch, borgarstjóri New York- borgar, baðst í gær afsökunar á ummælum sínum í garð Jesse Jack- son i kosningabaráttunni í New York á dögunum. Koch haföi sagt að gyðingar þyrftu að vera brjálaðir til að kjósa Jack- son. Einnig hafði hann kallað Jackson öllum illum nöfnum. Þessi ummæli borgarstjórans fóru mjög fyrir brjóstið á ílestum New York-búum og þótti þeim þau mjög ósæmileg. Er talið að A1 Gore hafi tapað mjög á orðagjálfri Kochs en Koch var helsti stuðningsmaður Gore í New York-ríki. Það lítur einn- ig út fyrir að borgarstjórinn geti sjálfur lent í vandræðum vegna um- mæla sinna því borgarstjórakosning- ar fara fram á næsta ári. Það var hins vegar ekki fyrr en einn helsti stuðningsmaður Kochs, Benjamin Ward, lögreglustjóri borg- arinnar, réðst harkalega á yfirmann sinn að Koch gaf út afsökunarbeiðn- ina. Koch sagðist sjá það nú eftir á að hann hefði átt að haga orðum sín- um á annan veg. Það er mat manna að Koch sé nú farinn að hafa verulegar áhyggjur af því að hann verði felldur í kosning- unum á næsta ári. Hann ætlar að reyna að verða fyrsti borgarstjóri New York-borgar sem situr í fjögur kjörtímabil. Samkvæmt skoðana- könnunum undanfama daga bendir allt tíl þess að það mistakist. Slíta stjórnmála- sambandi við Iran Saudi-Arabía sleit í gær stjórnmála- sambandi sínu við íran og fyrirskip- aði öllum írönskum stjórnarerind- rekum að verða á brott úr Saudi-Arabíu innan viku. Stjómvöld í Riyadh, höfuðborg Saudi-Arabíu, sökuðu í gær írana um að viðhalda styrjaldarástandi milli ríkjanna og sögðu aö hótanir írana um aðgerðir gegn Saudi-Aröbum á Persaflóa hefðu gengið svo langt að slit á stjórnmálasambandi væru eina leiðin sem þeim væri nú fær. Fáir íranskir stjórnarerindrekar eru í Saudi-Arabíu því að fjölskyld- um þeirra meðtöldum er hópurinn aðeins um tuttugu manns. Saudi- Arabar hafa innan við tíu stjómarer- indreka í Teheran, höfuðborg írans. Saudi-Arabar hafa stutt íraka í styrjöld þeirra við íran. Fyrir um tveim árum batnaöi sambúö Saudi- Araba og írana þó verulega vegna samvinnu þeirra innan samtaka ol- íuframleiðsluríkja, OPEC. Sambúðin versnaði hins vegar að nýju eftir að til átaka kom milli íranskra píla- gríma og heimamanna i Mekka í júlímánuði á síðasta ári. Talið er að liðlega fjögur hundruö manns, ílest íranar, hafi látið lífið í átökum þess- um.' Hugsanlegt er talið að Saudi-Arab- ar slíti nú stjórnmálasambandi sínu aö heimila írönum pílagrímsferðir til viö íran til þess aö komast hjá því Mekka í ár. Átökin milli íranskra pilagríma og Saudi-Araba í Mekka i fyrrasumar hafa nú loks leitt til riftunar á stjórnmálasambandi rikjanna tveggja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.