Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988. Spumingin Finnst þér að stjórnvöld ættu að skipta sér af verk- falli verslunarmanna? Bjöm Guðbrandsson: Já, ef verkfall- ið dregst eitthvað á langinn finnst mér að stjómvöld ættu að gripa inn í. Bjarni Jónsson: Að svo komnu máli er ótímabært að blanda stjórnvöld- um í málið. Þorsteinn Axelsson: Ef verkfallið verður lengra en 2-3 vikur þá eiga stjómvöld að grípa inn í. Ror Beck: Já, það finnst mér tví- mælalaust, það er ekki rétta fólkið sem verður fyrir barðinu á verkfall- inu. Hólmfríður Egilsson: Já, ef þau geta gert eitthvað í málinu. Petra Richard: Ef verkfallið dregst lengur en mánuð ættu stjómvöld að blanda sér í málin. Lesendur Framsókn „flippar" á fundinum Eftir fundinn var eins og dytti á dúnalogn í fréttaflutningi hljóð- varps- og sjónvarpsstöðvanna. Engar fréttir aðrar en þær að Framsóknarflokkurinn væri reiðu- búinn að ræða.við hina flokkana um lausn þeirra vandamála, sem við blasa! Eg hélt nú að Framsókn- arflokkurinn væri í ríkisstjóm og þyrfti varla neinar yfirlýsingar um það að hann væri tilbúinn til við- ræðna um vandamálin! í stað frétta af fundi framsóknar- manna á Holiday Inn, greip Stöð 2 til þess snjalla úrræðis að kalla til sín formenn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks og láta þá segja áhorfendum skoðanir sínar á þess- um furðufundi Framsóknarflokks- ins. Stóðu þeir formennirnir sig méð prýði í þeim viðræðum. En hvað var það þá sem ýtti Framsóknarflokki til skyndifundar nú? Skyldi þar mega greina óttann við slæma fjárhagsstöðu Sam- bandsins, sem er nú að sækjast eftir heimild til að taka erlent rekstrarlán upp á hátt á annað hundrað milljónir króna, taprekst- ur kaupfélaganna - og reiði og óánægju með að hafa ekki lengur hönd í bagga með ríkiskassanum sjálfum? - Spyr sá sem ekki veit. En eitt er víst, að fundur Fram- sóknarflokksins varð honum ekki til framdráttar í þetta sinn. Niður- staðan afar frauðkennd. En svo verður framhaldsfundur þessa haldinn í sumar. - Og þá verður nú „tekiö á málunum“! Kristinn Einarsson skrifar: Miðstjómarfundur Framsóknar- flokksins fór fram á Holiday Inn í Reykjavík um sl. helgi. Þessi fund- ur hafði altekiö hug og hjarta allra fjölmiðlanna fyrirfram og áttu þeir vart orð til að lýsa þeim áhrifum sem fundurinn myndi hafa á stjórnarsamstarfið. Raunar á fram- tíð lands og þjóðar. Nú skyldi tekið á málunum. Ekki vantaði yfirlýsingar for- ystumanna Framsóknar. Formað- urinn sagði: „Á þessum fundi munum við taka stjórnarsáttmál- ann til skoðunar og vega og meta, hvað áunnist hefur af því sem þar er sett fram. Einnig munum við ræða um hvernig draga beri úr við- skiptahallanum, lækka vexti, draga úr byggðaröskun og fjalla um stöðuna í efnahagsmálum al- mennt,“ (samkv. viðtalsfrétt, t.d. í Þjóðviljanum, 23. apríl). - Formað- urinn bætti því við, að hann ætti von á góðum og árangursríkum fundi. Þetta fór nú allt á annan veg. Framsókn „flippaði" algjörlega á fundinum, sem var hinn aumleg- asti sem nokkur stjórnmálaflokkur hefur blásið til að undangengum svo stórum yfirlýsingum, sem fjöl- miðlar töldu rétt að meta frétt- næmar. Reyndar hafði formaður- inn rétt fyrir fundinn slegið varnagla og lagt drög að því, að fyrri yfirlýsingar skryppu saman, a.m.k. um helming. Þannig var sagt í Tímanum sama dag og fundurinn byrjaði: „Sam- starfið í ríkisstjóm endurskoðað, án afarkosta". - Jafnframt; að stjórnarslit lægju ekki fyrir þess- um fundi, en aðeins sterkar „ábendingar" um markmið, sem flokkurinn ætti að setja sér í þessu samstarfi! „Þessi fundur Framsóknarmanna átti hugu og hjörtu allra fjölmiðlanna fyrirfram," segir hér. - Þrír ráðherrar Framsóknarflokksins á tali við fjölmiðlamenn að loknum fundi. - „Framhaldsfundur í sumar.“ Forstjóralaun og aflamagn Giesela Davíðsdóttir hringdi: Ég hef veriö aö velta því fýrir mér, hve mikið íslenskir sjómenn þyrftu að aöa af fiski, til þess aö verðmæti hans heíöi nægt til aö geta greitt núverandi forstjóra Sambandsins þau laun sem hann hafði í Bandaríkjadollurum, þaxm tíma sem hann var forstjóri Iceland Seafood í Bandaríkjun- um. Þetta er ekki bara af forvitni einni saman eða illkvitni, heldur miklu fremur til þess að hægt sé að gera sér grein fyrir hve langt má ganga í launagreiðslum til einstaklinga, svo aö það borgi sig, miðað við afköst viökomandi og verðmæti þeirrar framieiðslu eða sölu sem eitt fyrirtæki á allt und- ir. Kannski er einhver reiknistofn- unin, sem getur framkvæmt svona útreikning. Stoð 2: ffA veiðum“ Jón X. Bkrifiar: Ég vil byija á því að þakka Stöð 2 fyrir þættina A veiöum. Ég veit um flölda manns sem hefur áhuga á veiöum, bæði skot- og stangaveiðum. En mér finnst vanta íslenska þætti sem yrðu þá kannski byggð- ir upp eins og þættimir Á veiöum þannig að upptökumenn frá Stöð 2 eða RÚV fylgdust með einum eða fleiri mönnum sem væru á veiöum og þeir miðluðu reynslu sinni gegnum þessa þætti. Dagvistarskylda fremur en þegnskylduvinna? Eygló hringdi: Ég var að lesa dálkinn „Rabb“ í Lesbók Morgunblaðsins eftir Jóninu Michaelsdóttur og var fyrirsögnin „Dagvistarskylda". Spurningin um hve stórt hlutverk ríkisins, foreldr- anna eða bamanna á að vera. Prýðileg hugleiðing um þennan þátt í nútíma þjóðfélagi, þar sem bæði konur og karlar vilja njóta menntun- ar og starfsframa og þar sem dag- heimili eru að vera jafn sjálfsagðar þjónustustofnanir og skólar og sjúkrahús - eins og segir í rabbinu. Rabbþátturinn endar með þessum orðum: „Það skyldi þó aldrei fara svo aö þjóðin sem ekki þekkir herskyldu nema af afspurn, komi á dagvistar- skyldu í landi sínu.“ Eg er nú ein af þeim manneskjum, sem ekki er hlynnt ríkisuppeldi bama, nema í formi hinnar venju- legu skólaskyldu. Hins vegar hef ég spurt margar málsmetandi konur og karla að því hvernig á því standi aö við, ein þjóða getum komist hjá þegn- skyldu í einhveiju formi, líkt og flestar þjóðir hafa herskyldu. Ég er engan veginn að mæla með því að hér verði komið á herskyldu, þótt það myndi á engan hátt særa þjóðarstoltiö að hafa einhvern tilskil- inn hóp manna, sem væri til taks, ef að okkur yrði ráðist, og sem einn- ig gegndi eins konar öryggisþjón- ustú, t.d. ef neyðarástand skapaðist af náttúruhamfömm og í öðmm við- líka tilfellum. En mér finnst löngu tími til kominn aö fólk myndi sér skoðun á því, hvort sé heppilegra að setja á stofn alls- heijar dagvistunarskyldu á ríkis- framfæri fyrir böm eða koma á, þótt ekki væri nema þegnskylduvinnu ungs fólks nokkra mánuði á ævi- skeiðinu, tdl hagsbóta fyrir land og lýð. Hvort ætli gæfi fólki meiri þroska, samkennd og sjálfstraust? Harkaleg umferð á Hverfisgötu Dyravörður hringdi: Ég hef það starf að líta eftir húseign hér við Hverfisgötu og þarf oft að sinna ýmsu utanhúss sem innan á ýmsum tímum sólarhringsins. Ég vil leggja nokkur orð í belg vegna hinn- ar harkalegu umferðar, sem nú er orðin við þessa götu. Það er einkanlega eftir að venjuleg- um vinnutíma lýkur, flest kvöld og um helgar, svona upp úr klukkan 21, að þessi ósköp byrja og þá er eins og gatan lifni við fyrir alvöru meö hörkukeyrslu og framúrakstri og tröllauknum kappakstri. Ég hef bent lögreglunni á þetta ófremdarástand og hefur hún reynd- ar tekið þetta til greina og frekari athugunar, að ég held. Starfsfélagar mínir þama í nágrenninu hafa einn- ig haft samband við mig og sín á Stungið upp á lokun Hverfisgötu að nóttu til. - Frá horni Hverfisgötu og Ingólfsstrætis. mfili út af þessu. Ég sting upp á að Hverfisgötunni verði hreinlega lokað eftir kl. 21 á kvöldin og alveg til kl. 07 á morgn- ana. Eða þá, að Skúlagötunni verði lokað og Hverfisgatan höfð opin. Það ætti að vera nóg að hafa eina götu opna þama í austurátt og síðan er Hringbrautin sunnan megin. Ef aðeins önnur gatan er opin gæti lögreglan hugsanlega verið þar á verði eða með tíðar eftirlitsferðir, þótt hún hafi auðvitað skyldum að gegna vegna umferðar annars staðar líka. - Eitthvað verður bara að gera, eftir þau áfoll sem þarna hafa orðið nýlega. Ég er ekki viss um að þama verði neitt lát á, nema einhveijar ráðstafanir verði gerðar, kannski samkvæmt áðumefndum uppá- stungum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.