Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1988, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988. Iþróttir • PSV sem komið er í úrslit Evrópukeppni meistaraliða tapaði fyrir FC Groningen 2-0 í hollensku deildarkeppninni um síðustu helgi. PSV hefur þegar tryggt sér sigur í deildinni, tefldi frara varaliöi í leiknum, enda ekki áhætta tekin fyrir úrshtaleikinn gegn Benfica sem verður í Stuttgart 25. maí. Ajax sem er í öðru sæti vann Feyeno- ord 1-3 á utivelli. PSV er einnig komíð í úrslit hollensku bikar- keppninnar svo árangur liðsins á keppnistímabilinu er sannar- lega glæsilegur. • Opna Madrid-mótið i golfi lauk um síðustu helgi með sigri Derrick Cooper frá Bandaríkj- unum sem lék' á alls 275 höggum. Manuel Pinero frá Spáni varð annar á 276 höggum og í þriðja sæti varð enginn annar en Severiano Ballesteros á 278 höggum. Á sama tíma fór einnig fram golfmót í Ne.w Orleans í Banda- ríkjunum og þar varð sigurveg- ari Chip Beck á 262 höggum, Lanny Wadkins varö annar á 269 högpm og Dan Forsman varð þriöji á 271 höggi. Larry Mize varö í fimmta sæti á 273 höggum. • Benfica tapaði nokkuð óvænt 1-0 fyrir Farense í l. deild þortúgölsku knattspym- unnar um síðustu helgi. Var að sjá á leik hðsins að þreyta væri í leikmönnum eftir Evrópuleík- inn gegn Steaua Búkarest en Benfica er komið í úrsht en 20 ár eru síðan að liöið var í úrsht- um í Evrópukeppni meistara- hða. Porto sem vermir efsta sætið í deildinni vann hins veg- ar Chaves 0-1 á útivelh og hefur átta stiga forystu í deildinni. • Velez hefur forystu í deild- arkeppninni í Júgóslavíu með 34 stig að loknum 26 umferðum. Red Star hefur 32 stig. Um síð- ustu helgi gerði Velez jafntefli gegn Celik Zenica 1-1 og Red Star gerði sömuleiðis jafntefli 2-2 gegn Buducnost Titograd. • John Aldridge og Niall Qu- inn geta hvorugur leikið með írum í vináttulandsleik gegn Júgóslövum í Dublin á morgun vegna meiðsla. Tahö er líklegt að þeirra sæti taM Tony Casc- arino fiá Milwall en hann lék síöast með írum 1986 og á þrjá landsleiki aö baki fyrir íra. • Greg Norman er efstur sem fyrr á heimslistanum í golfi. Norman hefur hlotið 1438 stig, Sandy Lyle er annar með 1262 stig og Severiano Balleste- ros er þriðrji í röðinni með 1072 stig. Dave Beasant markvörður Wimbledon sagði í blaðaviðtah nýlega að draumur sinn væri aö verða fyrsti markvörðurinn til að taka við enska bikamum í knattspymu en Beasant gegn- ir jafnfiramt fyrirhðastöðu hjá Wimbledon en hðið leikur gegn Liverpool til úrshta í enska bik- amum á Wembley 14. maí næstkomandi. • Skoski landsliðsmaðurinn Mo Johnston sem leikur með franska hðinu Nantes hefhr verið skoska landshðseinvald- inum Andy Roxburgh innan handar viö aö afla upplýslnga um leikmenn franska landshðs- ins en Skotar mætá Frökkum f fyr8ta leiknum í riðlakeppni heimsmeistarakeppninnar i knattspymu í hausi Johnston hefur sent Roxburgh vídeóspól- ur reglulega af lykiheikmönn- um franska liösins. Ólympíuleikur íslands og Hollands: Fátt á pöllunum - reiknað með þúsund manns á leikinn Víðir Sigurðsson, DV, Hollandi: Ólympíuleikur íslands og Hollands verður fyrsti -landsleikurinn sem háður er á Stadion De Vijverberg, heimavelli 2. deildar félagsins De Graafschap. Hann er í Doetinchem, 40 þúsund manna bæ skammt frá landamærum Hollands og Vestur- Þýskalands. Þá er reyndar undan- skihnn landsleikur herliða Hollands og Lúxemborgar sem þar fór fram fyrir fjórum vikum. Stadion De Vijverberg er ðltölulega lítill og vinalegur leikvangur sem rúmar 15 þúsund áhorfendur troð- fullur. en opinbera talan, sem gefin Ólympíuleikur íslands og Hollands: Vaxandi stjarna mun stjórna leik Hollands - Kruzen hefur gert samning við PSV Víðir Sigurðsson, DV, Hollandi: Tveir'hættulegustu sóknarmenn Hohendinga annað kvöld eru fram- herjinn Piet Keur frá Twente og miðvallarsþilarinn Hendrie Kruzen frá Den Bosch. Keur er í hópi markahæstu manna í hohensku 1. deildinni um þessar mundir, hefur skorað 13 mörk fyrir Twente. Kruzen hefur hins vegar gert 12 fyrir Den Bosch og átti góðan leik fyrir lið sitt um helgina er það sigraði .Utrecht, 1-0, í 1. deildínni. Meðal áhorfenda á þeim leik var enginn annar en Jupp Heynckes, þjálfari vestur-þýska stórhðsins Bay- ern Munchen, en hann mætti gagngert til að fylgjast með KruzeiT. Það var einmitt Kruzen sem skor- aði eina mark leiksins, eftir mistök hjá markverði Utrecht, Jan-Wihem Van Ede, sem einmitt er annar tveggja markvarða ólympíuliðsins sem mætir íslandi. En þessar njósnir Heynckes komu fyrir lítið því Kruzen skrifaði undir fjögurra ára samning við PSV Eind- hoven, hollensku meistarana, á mánudag. Liðið leikur til úrslita við Benfica um Evrópumeistaratitihnn í næsta mánuði. er upp, er 12 þúsund. Islenska liðið æfði þar strax á sunnudagskvöldið og aftur í gærkvöldi en í gærmorgun var æft á æfingasvæði við hliðina. Liðið hefur aðsetur á htlu hóteh í smábænum Zeddam sem er nokkra kílómetra sunnan við Doetinchem. Vaharstjórinn á Stadion De Vij- verberg sagði í spjalli við DV í gær að hann reiknaði með því að áhorf- endur á leiknum annað kvöld yrðu um eitt þúsund. Sú ályktun er dregin af því að engir leikmenn frá stórhð- unum PSV og Ajax eru í liði Hol- lands. Heimahðið, De Graafschap, á heldur engan fuhtrúa og Hohand á enga sigurmöguleika í riðlinum. Birkir loksins undir slánni Víðir Sigurðsson, DV, HoDandi: Birkir Kristinsson, Eyjamaðurinn úr Fram, leikur í kvöld sinn fyrsta landsleik fyrir íslands hönd. „Það er gaman að fá loksins að spreyta sig og ég vona bara að ég standi mig,“ sagói Birkir í samtali við DV í gær. „Ég býst við að þetta veröi erfiður leikur, Hohendingar eru án efa með mjög sterkt lið. Ég kvíði samt ekki að leika fyrir aftan íslensku vörnina, ég hef spilað lengi með og á móti þessum strákum og þekki þá mjög vel,“ sagði Birkir. Birkir Kristinsson leikur sinn fyrsta landsleik i kvöld. Knattspymudveigurinn - mætir hollenska landsliðinu Víðir Sigurðsson, DV, Holiandi: „Munurinn á liðunum tveimur er sláandi. Knattspyrnudvergur- inn frá íslandi mætir á Vijverberg- leikvanginn í Doetinchem með aðeins einn atvinnumann á meðan hollenska liðið er skipað eintómum atvinnumönnum úr 1. deildinni," segir í inngangi héraðsdagblaðsins Graafschapbode í gær. Síðan segir að samt sem áður sé ísland búið að vinna einn leik af íjórum í keppninni á meðan Holland hafi enn ekki hrósað sigri i sjö viður- eignum. Rætt er við Sigfried Held lands- liðsþjálfara sem segir m.a. að á íslandi sé nægur efniviður en stutt keppnistímabil standi í vegi fyrir framförum. Hann bendir síðan á árangur íslands í síðustu Evrópu- keppni og segir það ekki hafa veriö svo slæmt að standa þar uppi með sex stig, jafnmörg og sjálíir Evr- ópumeistarar Frakka. NORÐURLANDAMEISTARA, Fjólu Ólafsdóttur, fimleikakonu úr Ármanni, var innili Noröurlandagull íslendinga í iþróttinni. Hún varð hlutskörpust í æfingum á tvíslá, Ólympíulandsleikurinn í kv Leikum alltaf ti - segir Guðmundur Steinsson sem mætir W Víðir Sigurðsson, DV, Hollandi: Það er í kvöld kl. 19.30 að staðartíma sem flautað verður til fyrsta landsleiks íslands á árinu 1988 - á Stadíon De Vij- verberg leikvanginum í bænum Doetinc- hem. Þetta er fyrsti leikurinn'af íjórum sem ísland á eftir í B-riðli ólympíu- keppninnar á þessu vori og þótt það sé ærið langsóttur möguleiki er enn ekki hægt aö útiloka að við getum hafnað í efsta sæti riðilsins og orðið einn af fimm fuhtrúum Evrópu í Seoul í haust. En það er of fjarlæg hugmynd til þess að raunhæft sé að hugsa mikið um hana á þessari stundu. Guðmundur Steinsson, fyrirliði íslenska hðsins, sagöi í spjalli við DV í gær að auðvitað væri gaman að láta sig dreyma um shka hluti. „En það sem við stefnum að fyrir þennan leik er aáverða fyrir ofan Holland í riðl- inum, það er okkar metnaðarmál núna. Með jafntefli ætti okkur að takast það og þau úrslit yrðu mjög góð fyrir okkur en auðvitað leikum við alitaf til sigurs,“ sagði Guðmundur. Hann sagðist ennfremur eiga von á að um mikinn baráttuleik yrði að ræða. „Hohenska hðið er mikið breytt frá því í fyrra en eftir sem áður eru þetta allt atvinnumenn úr 1. deild. Leikurinn leggst vel í mig. Þetta hefur allt verið að koma á æfingunum hjá okkur hérna í Doetinchem. Þaðer gaman að geta loks- ins æft á grasi og ég held að við séum nokkum veginn búnir að aðlaga okkur þeirri breytingu,“ sagði Guðmundur. Áður en þessi ólympíukeppni hófst voru þeir fáir sem sáu fram á að ísland ætti mikla möguleika á að vinna sér stig, hvað þá meira. Enda er raunhæft aö ætla aö A-hö frá smáþjóð eins og íslandi geti staðið þokkalega uppi í hárinu á þeim stærri ef rétt er á málum haldið - það var hins vegar varla við því að bú- ast að við réðum yfir þeirri breidd að geta stillt upp hálfgeröu B-hði sem veitti sambærilegum mótherjum.frá stórþjóð- um á knattspyrnusviðinu, eins og Hohandi, Ítalíu, Portúgal og Austur- Þýskalandi, einhverja keppni. Sú hefur hins vegar orðið raunin. Eftir heiðarlegt tap á Ítalíu, 2-0, í fyrsta leik kom 2-2 jafntefhð við Hohendinga í Laugardalnum í fyrravor. Þar sýndi ólympíuliðið á tíðum frábæra knatt- spyrnu, ekki aðeins í vörn heldur einnig í sókn, og fylgdi því eftir um haustiö

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.