Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988.
Sandkom Fréttir
DV
Framganga
stöðuvarða
Fátthefur
vakiömeiiiat-
hygli þeirra
semfaraímið-
bæinneníram-
gangahinnar
harðsnúnu
■ sveitarstööu-
varða. Góð-
kunningiSand-
korns átti um
daginn erindi niður i miðbæ og lagði
bil sinum í þar til geröu stæði nr
borgaði í stöðumæli eins og uðrir lög-
_Jilýðnir borgarar. Þegar hann kom
aftur að bilnum sínum, irman við
fimm mínútur frá því aö tímanum
-4auk, var sektarmiði kominn á bílinn.
Kunninginn, sem er góöur og grand-
var maður, áikvað að hlaupa strax inn
í næstabanka ogfá syndaaflausn og
vera þar með kvitt viö guð og stöðu-
mælasjóð. Ekki átti hann fnnmtiu
króna pening en taldi sér óhætt að
bregða sér frá í 5 mínútur. Það hefði
hann ekki átt að gera, því þegar hann
komútúr bankanum, örstuttu síðar,
var kominn sektarmiði undir rúðu-
þurrkuna og sá nú vinurinn að stööu-
vörður var aö fara aftur íramhj á bíla-
stæðunum. Flýtti hann sér með það
samaíburtu.
Kórinn eiðsvarinn
Einsogal-
þjóðerkunn-
uigt, skipaðifor-
sætisráðherra
sérstaka ráð-
gjafarnefndat-
vinnuveganna
semskilaá
hugmyndum
umþaðhvernig
megi bæta
stöðu útílutnings- og samkeppnis-
greina. í nefndinni sitja ýmsir þeirra
sem taldir hafa verið til „gengisfeli-
ingarkórsins" svoneihda. Nú bregð-
ur svo við að nefndarmenn vdlja ekki
láta fjölmiðla hafa neitt eftír sér um
starf nefndarinnar eða ástand at-
vinnuveganna og segj ast vera eið-
svamir. Þykir mönnum nú sem
Steini hafi leikið snjallan leik með
skipan nefndarinnar og tekið helstu
einsöngvara „gengisfellingarkórs-
ins“ úr sambandi íbili. Á meðan geti
ríkisstjórnin mótaðsinarefnahags-
ráöstafanir án undirsöngs.
Áróóursstríð á
vinsældalistum
Einsogfram
hefurkomiðí
DVhafaGræn-
friðungar
vestragripiðtil
þessráðsíbar-
áttunnigegn
hvalveiðum ís-
lendingaað
gefaútdægur-
iag.Lagiðerí
reggae-stíl og hefur verið dreift á 600
útvarpsstöðvar þar vestra entextinn
er barnalegur áróður gegn hvalveið-
um íslendinga., Nú bíða menn eftir
andsvari íslendinga og eru gárung-
arnir þegar farnir að sjá Halldór As-
grímssonog Kristján Loftsson syngja
saman dúett þar sem lagið héti auð-
vitað: „Sjórinnermorandiíhval".
Takið bara
ykkartíma
Um800ís-
lenskarkonur
strejTndutil
Osló-borgarí
síðustuvikuog
treystusinheit
enskiidukarl-;
peninginnein-
an eftírenda
ekkiþörffyrir
þá þegar ræða á
alvörumál. Einhverjir gárungar, sem
fannst nóg gert með þessa kvenna-
ráðstefnu, tóku upp hjá sér aö senda
íslensku fulltrúunum símskeyti og
skiptist fólk í afstöðunni til skeytis-
ins. Sumum finnst það fyndið en öðr-
umitallærislegt. Skeytíð mun hafa
hljóðað eitthvað á þessa leiö:
Til íslensku kvennanna í Osló.
Erum aö fá farm af tælenskum til
iandsins, takið bara ykkar tíma og
veriðsemlengst.
íslenskirkarlmenn.
Jónaa Fr. Jónsson
Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans:
„Menn reka fyrivtækin
lóðrétt til andskotans' ‘
- Landsbankinn sektaður í Seðlabanka vegna vanskila sjávarútvegsins
„Ef við hættum að lána þeim umfram afurðaián þá stoppar öli línan nærri á auga lifandi bragði," segir Sverrir
Hermannsson Landsbankastjóri. Sverrir segir Landsbankann ekki standa lengur undir þeirri góðgeröarstarfsemi
að halda fiskvinnslu og útgerð gangandi. DV-mynd GVA
„Landsbankinn er með um 70 pró-
sent af allri fiskvinnslu og öllum
sjávarútveg í landinu á sinni könnu.
Þegar þeim atvinnugreinum eru bú-
in þau starfsskilyrði að þær tapa
stórt í hverjum mánuði og Lands-
bankinn þarf að halda þeim gang-
andi. þá er ekki von að vel fari fyrir
lausafjátstöðu Landsbankans. Hún
stendur þannig að við erum sektaðir
mikið fyrir vikið. Þessu hlýtur
Landsbankinn að hætta. Enda er
engu fyrirtæki greiði gerður með því
að halda því gangandi með stórtapi.
Landsbankinn hlýtur að taka fyrir
það að gera út eða vinna fisk með
stórfelldu tapi. Hann hættir að
standa undir því," sagði Sverrir Her-
mannsson, bankastjóri Landsbank-
ans.
Sjávarútvegurinn stoppar á
auga lifandi bragði
Vanskil hafa nú aukist mikið í
Landsbankanum. í upphafi þessa árs
greiddi hann tugi milljóna í hverjum
mánuði í viðurlög vegna lélegrar
lausaflárstöðu til Seðlabanka. Nú
stefnir í að lausafjárstaða hans fari
á ný undir ákvæði Seðlabankans.
„Það er mjög sorfið að okkur. Þá
sjá menn vítahringinn. Við munum
ekki láta læsa okkur í honum. Það
þýðir að viö hættum að reka fyrir-
tæki þessi fyrir okkar fé, Því verða
menn að átta sig á. Það er ekki nokk-
urt vit fyrir efnahagslíf íslensku
þjóðarinnar að langstærsti bankinn
sé rekinn eins og einhver góðgerðar-
stofnun að því leyti. Það er alger
misskilningur,“ sagði Sverrir.
- Forsvarsmenn fyrirtækjanna
hafa kvartaö undan háum' íjár-
magnskostnaöi. Hafa vanskil fyrir-
tækjanna ekki aukið á þann kostnað?
„Jú. Dráttavextir bætast ofan á
þetta allt saman. Allt er þetta óbæri-
legt. Menn halda áfram að reka fyrir-
tækin lóörétt til andskotans.“
- Hvaða áhrif hefði það ef Lands-
bankinn hætti því sem þú kallar
„góðgerðarstarfsemi"?
„Ef við hættum aö lána þeim um-
fram afurðalán þá stoppar öll línan
nærri á auga lifandi bragði,“ sagði
Sverrir.
Fyrirtækin standa ekki
undir vaxtaokrinu
- Meðal þeirra tillagna sem at-
vinnurekendur, og reyndar stjórn-
málamenn einnig, hafa varpaö fram
er sú að setja þak á hámark raun-
vaxta og vaxtamun. Telur þú rétt að
afnema vaxtafrelsið með þeim hætti?
„Undir því vaxtaokri, sem fyrir-
tækin í landinu búa við, fá þau ekki
risið. Það er svo ofur einfalt. En það
eru margir aðrir þættir mikilvægari
en vextirnir. Megingalli á gjöf Njarð-
ar er hin mikla verðbólga. Við meg-
um ekki gleyma þeirri staðreynd.
Það er hins vegar ljóst að fyrirtækin
standa ekki undir þessum vöxtum
eins og ástand þeirra er í dag.“
- En munu bankarnir geta staöið
undir því að tveggja til fjögurra pró-
senta hámark verður sett á raun-
vexti?
„Spurðu heldur hvort sparifjáreig-
endurnir vilja taka því. Ef slíkt þak
verður sett þá geta bankarnir ekki
ávaxtað sparifé landsmanna eins og
frambærilegt má teljast.“
Bankarnir verða að lifa
við minni vaxtamun
- Nægir bönkunum ekki tveggja til
fjögurra prósenta vaxtamunur?
„Nei, nei. Þaö er ekki hægt að ná
því nú. Raunar geta menn reynt að
ráða gátuna á ýmsa vegu. En þeir
mega ekki gleyma því aö út úr þess-
um vanda komast þeir ekki nema
með því að vinna bug á verðbólg-
unni. Allt annað verður meira og
minna unnið fyrir gýg.“
- Þarf þá aö koma til mikil upp-
stokkun í bankakerfmu og samrunni
banka til þess að þessi vaxtamunur
nægi?
Það er enginn vafi á því að það
þarf að endurskipuleggja íslenska
bankakerfið. Við erum meö það í
umræðunni hér í Landsbankanum
að endurskipuleggja okkar starf-
semi. Þaö er enginn vafi á því að það
má spara. Minni vaxtamun en er í
dag veröa bankastofnanir að lifa við.
Það er takmarkið. Er ekki rétt að þú
byrjir að spyrja þá sem eiga að
stjórna landinu? Mér heyrist það nú
ekki nein samhljóma hljóð úr þeirri
átt. Það er a.m.k. ekki einraddað.
Fyrst þurfum við að heyra að það sé
ekki mikið af fölskum tónum í þessu
áöur en við fórum að leggja mat á
það.“
Stór banki þarf ekki
minni vaxtamun
- En nú hefur maður oft furðað sig
á því í þessari umræðu um stækkun
banka og endurskipulagningu
bankakerfisins að Landsbankanum
hefur ekki tekist að lifa af minni
vaxtamun en aðrir bankar þrátt fyrir
stærð sína.
„Ég er ekki viss um að okkar stóri
banki þurfi neitt minna til sín. Ég er
ekki viss um aö hagkvæmni í okkar
rekstri sé með þeim hætti aö þar
geti verið mikill munur á. Ég hef
enga sannfæringu fyrir því. En ég
get ekki mikið um það talað því mér
hafa að sjálfsögðu ekki gefist mikil
tækifæri á að kynnast innviðum
þessarar stofnunar. Ég geri nú ráö
fyrir því aö þótt svo stæði að Lands-
bankinn vegna stærðar sinnar gæti
gefið betri kjör þá býst ég tæplega
við að það yrði talin heilbrigð sam-
keppni á þessu sviði að undirbjóða
aðra eða yfirbjóða eftir því hvort tal-
að er um útlán eða innlán. Ég býst
nú við því að það þætti ekki alveg
nógu góð pólitík ef bankinn beitti
þannig stærðarmun og afli með þeim
hætti. En hitt er annað mál að það
hlýtur að færast út á það svið í sam-
keppninni að menn verða annað
hvort aö duga eða drepast. Ég held
að það veröi að vera nokkuð mikið
samræmi á milli lánastofnana. Varð-
andi innlán sé ég ekki að þar sé hægt
að hafa mikinn mun. Mér sýnist að
þar teygi menn sig eins langt og
hægt er,“ sagði Sverrir Hermanns-
son.
-gse
Stefán Ólafsson í brúarglugganum á Bjarna Gislasyni.
DV-mynd Ragnar Imsland.
Kennari á vel-
uma - skip-
stjóri á sumrin
Júlía Imsland, DV, Höfn:
Kennarar fara sennilega allflest-
ir í önnur störf á sumrin og þar á
meðal er Stefán Ólafsson, íslensku-
kennari við Heppuskóla á Höfn.
Hann stundar humarveiðar á
Bjarna Gíslasyni SF, ýmist sem
skipstjóri eða stýrimaður. Stefán
hefur stundað 'sjóinn á sumrin og
kennslu á veturna síðan hann flutt-
ist til Hafnar fyrir rúmlega 20
árum.
Stefán er ónress með humarver-
tíðina í sumar og segir ofveiði or-
sökina fyrir aflaleysinu. Tæknin
er orðin svo mikil við veiðarnar að
humarinn er hreinlega hreinsaður
upp. í sumar var engin veiði í
Hornafjarðardýpi og hefur veiði-
svæðið verið í Meðallandsbug.