Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Qupperneq 9
MIÐVIKUDÁGUR 10. ÁGÚST 1988.
9
Utlönd
Eftirlitsmenn komu
til Teheran í morgun
Fyrstu eftirlitsmenn Sameinuöu
þjóðanna, sem sendir verða til land-
anna fyrir botni Persaflóa, komu til
Teheran í morgun samkvæmt frétt-
um írönsku fréttastofunnar Irna.
Öryggisiáð S.Þ. samþykkti án mótat-
kvæða að senda eftirlitsmennina á
vettvang í gær.
Eftirlitsmennirnir eru aö undirbúa
komu friðargæslusveita sem hafa
munu það hlutverk með höndum að
fylgjast með framgangi vopnahlés
þess sem báðir aðilar hafa fallist á
og gengur í gildi þann 20. ágúst nk.
Samkvæmt ráðamönnum hjá S.Þ.
eru eftirlitsmenn nú á leið til Bagdad,
höfuðborgar íraks.
Um 25 þjóðir munu taka þátt í frið-
argæslu í Persaflóa. Ekki er enn vit-
að hvaða þjóðir það eru. Þó er ljóst
aö þau fimm ríki, sem sæti eiga í
Öryggisráðinu, Bandaríkin, Kína,
Sovétríkin, Bretland og Frakkland,
munu taka þátt í friðargæslu.
Yfirmaður íranska hersins, Rafs-
anjani, hvatti hermenn sína til að
slíðra sverðin í bili en sagði jafnframt
að hermenn ættu að vera á varðbergi
gagnvart árásum íraka. Afstaða
Rafsanjanis þykir sýna þá varúð sem
íranskir ráðamenn hafa sýnt hvað
varðar vilja íraka til friðarviðræðna
eftir átta ára styijöld sem kostað
hefur um eina milljón manna lífið.
Bandaríkjastjórn hefur skuld-
bundið sig til að taka þátt í kostnað-
inum við starf eftirlitsmanna og frið-
argæslusveita í báðum löndum en
gert er ráð fyrir að alls muni kostn-
aðurinn nema um 74 milljónum doll-
ara. Frank Carlucci, bandaríski
varnarmálaráðherrann, sagði þó að
bandarísk herskip yrðu ekki kölluð
heim fyrr en ljóst væri að friður
kæmist á. Áður en bandarísk herskip
hófu að fylgja hlutlausum skipum
um Persaílóa í fyrra voru að jafnáði
um fimm herskip á flóanum. Carlu'c-
ci sagði að það myndi ekki breytast
í bráð. Alls er nú 41 skip banda-
manna Bandaríkjanna á flóanujn á
hveijum tíma.
Forseti íraks, Saddam Hussein, ekur um meðal landa sinna i gærkvöldi
þegar mikil fagnaðarlæti riktu á götum höfuöborgarinnar, Bagdad, i kjölfar
vopnahléssamþykktarinnar. Símamynd Reuter
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti i gær að senda eftirlitsmenn til landanna við botn Persaflóa
Simamynd Reuter
Vestrænir stjórnarerindrekar telja
að friður sé ekki kominn í höfn þrátt
fyrir vilja beggja deiluaðila til við-
ræðna. Miklir erfiðleikar eru fram-
undan. íran hefur krafist þess að við-
urkennt verði að írakar hafi hafið
stríðið og að íran eigi rétt á stríðssk-
aöabótum. Einnig er talið að erfitt
muni reynast að fá báða aðila til að
samþykkja landamæri ríkjanna.
Talið var að friðarhorfur í Persa-
flóa myndu verða til þess að olíuverö
hækkaði á heimsmarkaði og myndi
auðvelda OPEC, samtökum olfuút-
flutningsríkja, að ná samstöðu. Bæði
löndin hafa þó gefið í skyn að þau
muni hefja stórtæka olíuframleiðslu
til að kosta það uppbyggingarstarf
sem þarf til að koma efnahag beggja
ríkja í viðunandi horf. Sérfræðingar
telja þó aö það muni ekki reynast
auðvelt í framkvæmd þar sem olíu-
framleiðslustöðvar beggja hafa orðið
illa úti í styrjöldinni. Það mun taka
a.m.k. ár fyrir írak að setja á laggirn-
ar olíuútflutningsaðstöðu og olíu-
stöðvar írana hafa skemmst mikið í
árásum íraka.
Lögregla t Burma vaktar nú götur borga og bæja til að koma i veg fyrir
að frekari róstur brjótist út. Simamynd Reuter
Ekkert lát á
óeirðum í Burma
Óeirðir í Burma héldu áfram í
morgun og viröist ekkert lát þar á.
Tugir manna hafa fallið í mótmæla-
öldu sem gengið liefur yfir landiö
síðan Ne Win lét af embætti for-
manns Sósíalistaflokksins og Sein
Lwin tók við fyrir hálfum mánuði.
Talið er að 36 manns hafi látið lífið
í þessum óeirðum og hátt í eitt
hundrað slasast. í morgun vaktaði
óeirðalögregla götur höfuðborgar-
innar, Rangoon, og var rólegt þar í
borg eftir aö tugir þúsunda höfðu
safnast þar saman.
Útgöngubann ríkir nú í borginni
og er fólki bannað að safnast saman.
Róstur brutust út í 26 öðrum borgum
fýrir utan Rangoon samkvæmt frétt-
um stjórnvalda og notaði óeirðalög-
regla haglabyssur til að dreifa mann-
íjöldanum.
Að sögn vestrænna stjórnarerind-’
reka-í Burma er talið að fieiri hafi
látiö lífið en tölur segja til úm. Vinna
hefur legið niðri í höfuðborginni síð-
an á mánudag en mótmælendur
hvöttu til allsherjarverkfalls.
Mannfjöldinn safnaðist saman til
að kreíjast þess að frelsi yrði aukið
og einræði Sósíalistaflokksins yrði
afnumið. Efnahagur Burma hefur
farið hríðversnandi á síðustu hián-
uöum og hefur verð á hrísgrjónum
hækkað ’um fjögur hundruö prósent
frá því í janúar.
Landamæri Burma eru að mestu
lokuð umheiminum og eru viðskipti
landsins við nágrannáríkin í lág-
marki.
Sein Lwin, fyrrum liðsforingi og
núverandi einræöisherra Burma, er
óvinsæll í Burma sökum aðildar
hans að blóðugum aðgerðum stjórn-
valda gegn mótmæelendum en talið
er að 200 manns hafi láti'ö lífiö í róst-
um stjórnvalda og lögreglu í mars
og júní á þessu ári. Sein Lwin hefur
lofað umbótum í efnahagslífinu en
orð hans virðast ekki hafa fallið í
góðan jarðveg.
Rósturnar síðustu daga eru þær
mestu í marga mánuði. Lengi vél bar
lítið á uppreisn íbúanna gegn stjórn-
völdum en nú hefur soöið upp úr.
Forvextir hækka í
Bandaríkjunum
Seðlabanki Bandarikjanna
hækkaði í gær vexti um hálft pró-
sent, úr 6 prósentum í 6,5 pró-
sent. Forvextir í Bandaríkjunum
hafa ekki hækkað síðan 4. sept-
ember í fyrra.
í kjölfar hækkunarinnar hækk-
aöi dollarinn gegn japönsku yeni
ogvestur-þýskumarki. Hlutabréf
á alheimsmarkaði lækkuðu afur
á móti snarlega en viðskiptajöfr-
ar höfðu ekki búist við hækkun
vaxta í BandaríKjunum fyrr en
aö loknum forsetakosningum þar
í landi í nóvember.
Að sögn bandarískra embættis-
manna voru vextir hækkaðir til
að sporna við verðbólgu í kjölfar
mikillar spennu í efnahagslífinu
að undanförnu. Vextir á lánum
banka í milli í Bandaríkjunum
hækkuðu einnig í kjölfar for-
vaxtahækkunarinanr.
Þegar verðbréfamarkaðurinn
opnaði i Japan í morgim hrundi
verö á hlutabréfum en markað-
urinn jafnaði sig þegar líöa tók á
morguninn.
Hagfræðingar bjuggust við að
hækkunin myndi leiða til hækk-
unar annarra vaxta sem myndi
hefta verðbólgu.
Reuter
Flugslys
á Englandi
Óttast er að fjórir hafi látið lifið
þegar tvær Tornado flugvélar,
eins og þær á myndinni, skullu
saman á flugí i gær.
Simamynd Reuter
Óttast er að Qórir hafi látið lífið
þegar tvær Tornado flugvélar
breska hersins skullu saman á
meðan á æfingaflugi stóð á Eng-
landi i gær.
Að sögn talsmanns flughersins
voru vélamar á flugi yfir bænum
Appleby á norðvestanverðu Eng-
landi þegar'þær skullu saman.
Önnur vélin hrapaði strax til
jarðar. Björgunarmenn fundu
vélarbrak en ekki var Jjóst hvort
þar var um að ræða aðra eða
báðar vélarnar.
Tveir flugmenn létu lífið í maí
sL þegar hvirfilvindur varð þess
valdandi að vél þeirra hrapaði í
V-Þýskalandi.
Reutcr
Enn reynt
við vélar
Chállenger
Starfsmenn geimferðarstofn-
unar Bandaríkjanna, NASA,
munu í dag reyna enn aö gaiig-
setja vélar geimskutlunnar Dis-
covery eftir aö eldsneytisloki í
hægri hreyfli hennar bilaði í síð-
ustu viku þegar ræsa átti vélarn-
ar í tilraunaskyni.
Miklar varúöarráðstafanir
ríkja nú vegna ræsingar vélar-
innar en ætlunin vai- að Dis-
covery færi í loftið í september.
Vegna öröugleikanna er nú talið
að skutlan taki flugiö í fyrsta lagi
í október.
Bilun í vélum Challenger er enn
eitt áfalliö fyrir NASA en stofn-
unin varð fyrir miklum álits-
hnekki í janúar 1986 þegar geim-
skutlan Challenger sprakk
nokkrum sekúndum eftir flugtak.
Áætlað er að vélarnar veröi
ræstar seinni part dagsins og
haldið gangandi í um 20 sekúnd-
ur. Geröar hafa verið fimm til-
raunir til að ræsa vélar skutlunn-
ar.