Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988.
11
Utlönd
ISELCO SF.
Skeifunni 11d — sími 686466
Almennir borgarar biða í röðum eftir að fá byssuleyfi í Kolumbíu.
Simamynd Reuter
RAFSTÖÐVAR
RAFSTÖÐVAR, 3KW, 4KW 0G 5KW
TIL AFGREIÐSLU FRÁ LAGER
GOTT VERÐ
Suður-Ameríkuríkiö Kolumbía
rambar nú á barmi stjómleysis.
Hömlulaus alda ofbéldis hefur gengið
yfir landið aö undanfórnu. Tiltrú al-
mennings á stjórnvöldum minnkar
ört. Ár eftir ár sekkur þetta þriðja
stærsta land Suður-Ameríku dýpra í
það sem fyrrum utanríkisráðherra
þess, Alfredo Vasquez, hefur nefnt
„fen blóðs og villimennsku".
84. hverja mínútu
Á fyrstu fimm mánuðum yfirstand-
andi árs hefur kirkjan í Kolumbíu
skráð stjórnmálatengd morð og
mannshvörf. Samkvæmt skráningu
hennar á slíkt sér stað 84. hverja
mínútu að meðaltali. Stjórnvöld vilja
gera minna úr en kirkjan en telur
samt að ofbeldisverk af ofangreindu
tagi eigi sér stað meira en tíu sinnum
á viku hverri. Samkvæmt því hafa
ofbeldisverk, sem tengjast stjórn-
málum, þrefaldast frá árinu áður.
Við þetta bætist að meöal karl-
manna á aldrinum 15 til 45 ára er
morð algengasta dánarorsökin.
Hryllingur
í nýlegri skýrslu, sem tíu virtir
sérfræðingar unnu fyrir ríkisstjórn
Kolumbíu, segir að ofbeldi þetta
skapi verulega hættu á stjórnleysi í
stjómmálalífi og félagsmálum lands-
ins.
Tölfræðilegar upplýsingar gefa
hins vegar htla hugmynd um hryll-
ing þann sem býr að baki.
I landbúnaðarhéruðum landsins
hafa tugir smábænda verið brytjaðir
niður með sveðjum á undanfornum
mánuðum.
í átökum milli eiturlyfjahringa
hafa börn verið skotin til bana í aug-
sýn foreldra sinna. Heilarfjölskyldur
hafa verið dregnar út af heimilum
sínum og skotnar. Sjálfskipaöar
„hreinsunarsveitir" fara um götur
borga að nóttu til og myrða vændis-
konur, kynvillinga, betlara og flæk-
inga.
Trúnaðarbrestur
Kolumbíumenn segjast sjálfir búa
við lögmál frumskógarins. Stjórnar-
erindrekar segja aö trúnaðarbrestur
hafi þegar átt sér staö milli stjóm-
valda og almennings vegna þess að
dómskerfi laiidsins ráði ekki við
ástandið sem sífellt fer versnandi og
flestir telji að ríkisstjórnin láti nú
reka á reiðanum.
í samræmi við þessi viðhorf hneig-
ist nú æ fleiri Kolumbíumenn til þess
aö taka málin í sínar eigin hendur.
Þeir telji tilgangslaust að leita til yfir-
valda.
Eitt skýrasta merki trúnaðarbrests
þessa eru biðraðir þær sem myndast
í dögun hvern dag viö skrifstofur þær
sem gefa út og endurnýja byssuleyfi.
Sífellt fleiri almennir borgarar bera
vopn og segja hverjum sem heyra
vill að þeir telji slikt nauðsynlegt
vegna þess að þeir geti ekki treyst
lögreglu, dómstólum og öðrum opin-
berum stofnunum.
Margs konar ofbeldi
Einn af ráðgjöfum forseta Kolumb-
íu, Rafael Pardo, segir að vandi
stjórnvalda stafi meðal annars af því
hversu mörg form ofbeldis sé við að
etja. „Við búum við ofbeldi eitur-
lyfjasala, ofbeldi vinstri sinnaðra
skæruliða, almennt stjórnmálalegt
ofbeldi og ofbeldi almennra glæpa-
manna,“ segir hann.
Sérfræðingahópurinn, sem áður er
minnst á, komst að þeirri niðurstöðu
að deila mætti ofbeldisverkum í
landinu á tíu flokka. Þar eru talin
með morð sem framin eru af eitur-
lyfjasölum, skæruliðum, hægri sinn-
uðum dauðasveitum, atvinnumorð-
ingjum, her landsins og almennum
borgurum sem eru að „gera upp
reikninga sína“.
Engin skýring
Skýrsla sérfræðinganna bauð hins
vegar ekki upp á neina skýringu á
því hvers vegna Kolumbía er í dag
eitt af þeim löndum þar sem ofbeldi
er mest. Ofbeldi er ekki nýtt af nál-
inni í landinu því á árunum frá 1948
og fram á miðjan sjötta áratug aldar-
innar er tahð að meira en tvö hundr-
uð þúsund manns hafi látið líflð í
borgarastyrjöldinni sem stóð þetta
tímabil.
Sérfræðingarnir bentu þó á félags-
legan ójöfnuð sem eina af orsökum
þess hve gjarnir Kolumbíumenn eru
á að leysa deilur sínar meö val<ji.
Þessi tilhneiging nær langt út fyrir
raðir dauðasveita, skæruliða og eit-
urlyfjasala. Starfandi sálfræðingur,
Augusto Perez Gomez, skýrði til
dæmis frá því í nýlegu blaðaviðtah
að skjólstæðingar hans töluðu æ
meira um þann möguleika að leigja
sér atvinnumorðingja til að hefna
misgjörða sem þeir telja sig beitta.
Morð virðist þeim eðhleg leið til að
gjalda fyrir atvinnumissi, jafnvel
einfalt nei í viðskiptum.
uinmnimiiiimnnini
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN HF
Laugavegi 178 - Reykjavik - Simi 685811
Tiiiiiimimmimnmnn
Veikleiki eykur ofbeldi
Margir háttsettir stjórnarerindrek-
ar telja að veikburða athafnir ríkis-
stjórnar landsins verki hvetjandi á
ofbeldi öfgamanna bæði til hægri og
vinstri.
Þegar skæruliðar felldu tuttugu og
sjö stjórnarhermenn í fyrirsát á síð-
asta ári lét forseti landsins sér nægja
að skrifa skæruliðum bréf og fara
fram á skýringar á máhnu.
Linkind stjómvalda gagnvart
vinstri sinnuðum ofbeldismönnum
veldur svo því aö hægri sinnar telja
sér nauösynlegt að grípa til sinna
ráða. Má því að dómi margra rekja
ofbeldisverk dauðasveita hægri
manna undanfariö til' veikburöa
stjórnvalda.
Sumir telja jafnvel að ríkisstjórnin
ráði í raun aðeins um helmingi land-
svæðis þess sem tilheyrir Kolumbíu.
Öðrum hlutum sé stjórnað af sam-
steypu staðbundinna valdamanna,
aht frá landeigendum til eiturlyfja-
konunga. Helstu ráðgjafar ríkis-
stjórnarinnar viðurkenna að sfjórn-
völd ráði htlu um þróun mála í af-
skekktum héruöuip þar sem mest
hefur verið um ofbeldisverk.
Athafnaleysi stjórnarinnar hefur
þó leitt það af sér að ofbeldi er aö
berast inn á þau svæði þar sem hún
hefur mest völd. Meira að segja höf-
uðborg landsins hefur fundið sárlega
til ofbeldisverka undanfarna mánuði
og hafa stjórnvöld ekki ráðið við mál
þar fremur en annars staðar.
Framtíðin mun svo skera úr hvar
þessi þróun tekur enda.
BÍLASALA
ARÐARS
Borgartúni 1
Okkur vantar nýlega bíla á staðinn strax.
Það er hjá Garðari sem bíllinn selst.
BILASALA
ARÐARS
Borgartúni 1
Símar 18085-1961 6
„Fen blóðs og
villimennskuír
SKOBÆR
Laugavegi 69
ÚTSALA
á öllum skóm í versluninni.
Kuldaskór, dömu, herra og barna.
Allt á að seljast
Póstsendum
SKÓBÆR
Laugavegi 69, sími 17955