Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988. Spumingin Hefurðu komið til Viðeyj- ar? Sigurbjörg Ámundadóttir: Já, ég hef komið þangað nokkrum sinnum. Bríet Birgisdóttir: Já, fyrir tveimur árum og mér líkaði bara vel. Ketill Leósson: Nei, ég hef aldrei komiö þangað. Inga María Árnadóttir: Nei, en ég hef áhuga á því. Edda Dröfn Danielsdóttir: Já, ég fór þegar ég vann ferð fyrir að selja merki Slysavarnafélagsins. Laufey Arna Johansen: Já, það eru svona tvö ár síðan. Það var mjög gaman aö skoða húsin. Lesendur____________________pv Stormsveit stöðuvarða Stöðuvörður skrifar: í DV þann 27 júlí skrifar „ein svekkt" í lesendadálk blaðsins um . stöðumælaverði (stöðuvörður er reyndar rétti titillinn). „Ein svekkt“ segir að stöðuverðir „gætu eins vel verið úr járni og að það mætti eins vel tala við mælana sjálfa og verð- ina." Auk þess hafa þeir veriö upp- nefndir nöfnum svo sem „SS“ og „sveitir Davíðs" svo eitthvað sé nefnt. Þar sem ég er meðlimur. í þess- ari svonefndu „SS-sveit", þá er mér ýmislegt mjög ofarlega í huga. Veit þetta fólk hvað oröið umferðarlög þýðir? Ef svo er ekki, hvað er þá þetta blessaða fólk að gera með öku- skírteini upp á vasann? Og hvers vegna er þetta fólk æðandi um götur borgarinnar eins og brjálæöingar svo að við liggur að um hreina og klára nauðgun á gatnakerfmu sé að ræða? Það eru ótrúlega margir ökumenn sem þekkja hreinlega ekki einföld- ustu umferðarmerkin, t.d. kross- merki, hringlaga merki, rauð um- gjörð, blár hringur innan í með rauð- um krossi yfir bláa miðjuna. Það merki þýðir að hvorki má stöðva né leggja ökutæki, og gildir frá gatna- mótum til næstu gatnamóta. Þeir eru til sem hreinlega trúa því að einmitt þetta merki þýði að þar eigi þeir að leggja eða stöðva bifreið sína. Ég er með tillögu til þessa fáfróða fólks. Leggið ökuskírteini ykkar inn til geymslu hjá lögreglunni, fáið ykk- ur eintak af bók sem á stendur: Umferðarlög. Lesið og lærið það sem í þrssari mikilvægu bók stendur og „Við stöðuverðir erum ekkert annað en ósköp venjulegt fólk og reynum segir bréfritari. takið síðan ökuprófið aftur, í alvöru í þetta sinn, því mannslífin eru óbæt- anleg. Úmferðarmenning er orð og/eða athöfn sem við íslendingar höfum því miður ekki áttað okkur á ennþá, þó að ekki vanti bílafjöldann í landinu. Tillitsemi kostar heldur ekki krónu, þótt ótrúlegt sé. Það yrði ólíkt skemmtilegra fyrir borgarbúa ef fólk byrjaði nú að haga sér eins og siðmenntuðu fólki sæmir, í staðinn fyrir að nota eingöngu frumskógarlögmálið, að maður tali nú ekki um hve miklu álagi yrði létt af okkur stöðuvörðunum. í Dagfara 28. júlí segir orðrétt: „Þetta fólk hefur auga á hverjum fingri og lætur engan komast upp með moðreyk." Við að stunda okkar atvinnu af alúð .. stöðuverðir erum ekkert annað en ósköp venjulegt fólk og réynum að sturida okkar atvinnu af alúð, til þess að stuðla að öryggi borgarbúa. Því miður erum við Ula liðin af mörgum. Samt eru margir sem vita hvað við erum að reyna að gera, og eiga þeir allt mitt þakklæti skilið. Gunnar telur litla arðsemi í byggingu brúar á Hafnarfjarðarveginum við Arnarnes, en gatnamótin sjást á mlðri myndinni. Arðsemi á Arnarnesi Gunnar hringdi: Menn sjá alltaf ofsjónum yfir framkvæmdum úti á landi, og litla arðsemi í þeim framkvæmdum, þar sem allur okkar auður er skapað- ur. Hver er arðsemin í því að byggja brú fyrir þá sem „sofa" á Arnar- nesinu, en í bígérð er að reisa brú og grafa Hafnarfjarðarveg niður við Arnarnes, og setia brú yfir hann. Eflaust er þetta fín og flott fram- kvæmd, en væri t.d. ekki hægt að banna að aka þvert á hæðina eins og nú er gert í veg fyrir umferð sem kemur sunnan að, og oft orðið af stórtjón. Með því aö færa umferð- ina yfir hæöina, og láta hana taka nánast U-beygju handan hæðar- innar, sést umferðin beint á móti, áður en beygt er í gagnstæöa átt. Slíkur máti tíðkast víða erlendis. Ekki er nú fyrir atvinnutækifær- unum að fara á Arnarnesinu, svo arðsemin hlýtur að vera lítil reikn- uð út frá þvi. Því er, með þessura fyrirhuguðu íramkvæmdum, varla um annað aö ræða en þegjandi samkomulag pólitíkusa um austur fiár í ótímabæra og óarðbæra vega- framkvæmd. Betri tímar framundan? Þorsteinn hringdi: Þó menn óskapist mikiö yfir áhuga- mönnum um knattspyrnu, þá aftrar þaö mér ekkert frá því aö fylgjast með henni sem mest ég má. Ég er unnandu góðrar kanttspyrnu fyrst og fremst, og því hefur það verið mér til mikilla leiöinda aö íslenska lands- hðið hefur leikið hreint út sagt alveg þrautleiðinlega knattspymu undan- farin ár.' Að leika vamarknattspyrnu á eigin heimavelli, jafnvel á móti meðal- sterkum liöum er alveg út í hött. Þetta hefur orðið til þess að ég knatt- spyrnufríkið hef hætt að sækja leiki landsliösins íslenska í kanttspyrnu, en læt mér nægja þaö besta úr sjón- varpinu. En ég flæktist inn á leik okkar manna við Búlgari um síðustu helgi, og var undrandi að sjá breyt- ingu á íslenska liðinu. Mér var alveg sama um tapið, en íslenska liðið lék stórskemmtilega knattspymu, og það var mér nóg. Ég vona aö fram- undan séu bjartari tímar, meö blóm í haga í þessum efnum, og við fórum að leika líflega sóknarknattspyrnu á ný. Knattspyrnuáhugamaður var ánægður með þá breytingu er hann þóttist sjá á leik íslenska landsliðsins í knattspyrnu gegn Búlgörum. - Sævar Jóns- son í baráttu við einn Búlgarann. Brynjar spyr hvort gert hafi verið ráð fyrir aðstöðu fyrir farþega í Leifsstöð- inni til þess að fylgjast með flugumferð. Vantar útsýnisturn Brynjar hringdi: Mikið hefur verið rætt og ritað um flugstöðina, og fleira neikvætt heldur en hitt. Ég er aö hugsa um að bætast í þann hóp, þó persónulega hafi ég veriö hlynntur gerð flugstöðvarinn- ar. Hún er að mörgu leyti glæsileg, en eitt virðist hafa gleymst við bygg- ingu hennar. Á öllum flugstööum, sem ég hef komið á á ferðum mínum erlendis, hefur verið útsýnisturn eða aðstaða til þess að fylgjast með komu og brottíör flugvéla. Hvar er þessi að- staða í Leifsstöðinni? Gleymdist að gera ráð fyrir henni, eða á eftir að setja hana upp? Ég vildi gjarnan fá svar við þessari spumingu minni. Ég veit að ég er ekki einn um það að sakna þessarar aðstöðu, sem á að vera sjálfsögð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.