Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1988, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1988.
Lflstfll
DV kannar verð á kartöflum:
Verðstríð á kart-
öflumarkaðnum
- hægt að fá kartöflur á öllu verði
Mikill verðmunur er á kartöflum
þessa dagana enda fara að verða síð-
ustu forvöð að að selja uppskeru
fyrra árs. Þetta leiðir til mjög ein-
kennilegra aðstæðna á markaðnum
þvi samkeppnin er blóðug og fer
harðnandi.
Algengt er að sjá þessa samkeppni,
jafnvel innan verslana. Þannig eru
til kartöflur á mismunandi verði í
Kjötmiðstöðinni í Garðabæ. Hægt er
að fá tveggja kílóa poka af kartöflum
úr Eyjafirði á kr. 119,14. Við hliðina
á þessum kartöflum gefur svo að líta
kartöflur frá Hábæ í Þykkvabæ.
Tveggja kílóa poki af þessum kartöfl-
um kostar aðeins kr. 99. Ef aftiu- er
keyptur sekkur með tíu kílóum kost-
ar hann kr. 680. Kílóið af þessum
kartöflum er því dýrara en hinum
kartöflunum en þó langt undir mark-
aðsverði.
Þykkvabæjarkartöflur og
kartöflur frá Ágæti dýrari
Hagkaup selur hefðbundnari teg-
imdir. Kílópoki af Þykkvabæjarkart-
öflum kostar kr. 71, og tveggja kílóa
poki kostar kr. 141. Þó er hægt að fá
ódýrari kartöflur í Hagkaupi. Bökun-
Lægsta verð í hverri verslun
80-i -
■ Verð á kíló 1
Nóatún Hagkaup KjötmiðstöðinMikligarður Hólagarður Kaupstaður Kostakaup^
arkartöflur kosta kr. 63 hvert kíló
og ef maður vih kaupa ódýrar kart-
öflur má fá tíu kílóa sekki á kr. 430.
Kílóið af þessum kartöflum kostar
því kr. 43. Þessar kartöflur eru hins
vegar hvorki verðmerktar inni í
verslun né er þeim hampað neitt
sérstaklega.
Ódýrustu kartöflur í verslunum
fást í Nóatúni. Þar má fá kartöflur í
tíu kilóa sekkjum á aðeins kr. 369.
Kartöflur í tveggja kílóa pokum
kosta kr. 147 í Nóatúni og nýjar kart-
öflur kosta kr. 180 hvert kíló.
Það er því greinilegt að það borgar
sig að bera saman verð á kartöflum,
jafnvel innan verslana. Hægt er að
gera mjög hagstæð innkaup. Spurn-
ingin er bara hve lengi veislan varir.
-PLP
Mikil offramleiðsla er á kartöflum og í fyrra hófst verðstríð strax og fyrsta
uppskera kom á markað.
U pplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruö þér oröinn virkur þátttak-
andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaö-
ar fjölskyldu af sömu stærö og yðar.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks______
Kostnaður í júlí 1988:
Matnr og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Nýjar kartöflur dýrar:
Verðið hefur
margfaldast
Nýjar íslenskar kartöflur eru
komnar á markað. Verðið er hins
vegar ekki mikið gleðiefni fyrir neyt-
endur, þær kosta á bihnu 159-180
krónur kílóiö. Það er til dæmis mun
hærra verð en á nýjum agúrkum,
jafnvel þótt tilkostnaður við ræktun
þeirra sé miklu meiri en á kartöflun-
um. Agúrkurnar eru á lægra verði
en nokkru sinni fyrr um þessar
mundir og kostar kílóið aðeins um
kr. 120.
Þetta er einnig margfalt verö miðað
við uppskeruna frá því í fyrra. Eins
og sjá má hér annars staðar á síð-
unni kosta kartöflur úr uppskeru
fyrra árs á bihnu kr. 36,90 upp í kr. 74.
Þrátt fyrir ofboðslegt verð virðast
kartöflurnar' seljast. Er DV var að
Neytendur
kanna verðiö voru þær uppseldar á
flestum stöðum. Fólk virðist ekki
setja fyrir sig að borga tæpar 200
krónur fyrir eitt kiló af kartöflum.
„Verðið bara rugl“
Kaupmenn eru hins vegar ekki ah-
ir jafnhressir og kúnnamir með
þetta verð. Einn þeirra sagðist ekki
hafa tekiö þessar kartöflur i sölu.
„Þetta verð er bara rugl, þaö hljóta
að vera takmörk fyrir því hvað neyt-
endur láta bjóða sér.“
Flest bendir einnig til þess að verð-
iö komi til með að lækka. Offram-
leiðsla er gífurleg á kartöflum og ljóst
að einhveijir bændur eiga eftir að
reyna aö selja framleiðslu sína fyrir
shkk í ár eins og fyrri ár. Það verðTT
því sennilega ekki langt í það að
komnar verði nýjar kartöflur í gám-
inn við Umferðarmiðstöðina, fyrir
htinn pening.
-PLP
Ljóst er að bændur eiga eftir að lækka verðið til aö selja framleiðslu sína.