Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988.
3
Ríkissjóður íslands hefur
treyst Fjárfestingarfélaginu
fyrir sðlu spariskírteina sinna
í 12 ár
Treystir þú okkur
ekki líka?
Elsla og reyndasta verðbréfafyrir-
tæki landsins
Fjárfestingarfélag íslands hf var stofnað árið 1971. Félagið
er því elsta hlutafélag sinnar tegundar hérlendis. Hluthafar
Fjárfestingarfélagsins eru rúmlega 400 talsins. Auk fjöl-
margra einstaklinga og samtaka eru Lífeyrissjóður verslun-
armanna, stærsti lífeyrissjóður fólksins í landinu, Eimskipa-
félag íslands hf, Tryggingamiðstöðin hf og Verzlunarbanki
íslands hf, hluthafar í Fjárfestingarfélaginu. Það dettur fáum
í hug að slík fyrirtæki og samtök standi að rekstri verðbréfa-
fyrirtælds sem ekki sé hægt að treysta.
Ábyrg verðbréfaviðskipti
Fjárfestingarfélagið er einn af stofnendum Verðbréfaþings
íslands, ásamt Seðlabankanum og fleiri aðilum m.a. ríkis-
banka. Verðbréfasjóðirnir sem eru í umsjá Fjárfestingarfé-
lagsins eru allir sjálfstæð hlutafélög, sem hvert um sig hefur
sýnt umtalsverðan árangur.
Fjárhagur sjóðanna er því ekki hluti af fjárhag Fjárfestingar-
félagsins. Þannig hefiir afkoma eða starfsemi félagsins engin
áhrif á ávöxtun sjóðanna. Á hinn bóginn er það vissulega
styrkur fyrir sjóðina að hafa trausta bakhjarla.
Strangar starfsreglur
Fjárfestingarfélagið er stofnaðili að Samstarfsnefhd
íslenskræ verðbréfasjóða. Samstarfsnefndin, eins og Verð-
bréfaþingið, gerir strangari kröfur til aðildarfyrirtækja sinna
en almennt er gert í lögum um verðbréfamiðlum, auk þess
sem gerðar eru miklar kröfur til sjóða samtakanna um fjár-
festingar, upplýsingamiðlun og eftirlit.
Dreifing óhættu og gagnkvæmt traust
Fjárfestingarfélagið hefur umsjón með sparifé rúmlega 15
þúsund einstaklinga. Milli ráðgjafa félagsins og eigenda
Kjarabréfa, Markbréfa og Tekjubréfa, ríkir gagnkvæmt
traust, enda hafa verðbréf félagsins skilað eigendum sínum
umtalsverðri ávöxtun.
Verðbréfasjóðirnir ávaxta fjármuni sparifjáreigenda með
fjárfestingu í fjölmörgum og ólíkum verðbréfum. Til þess
að tryggja ávöxtun og dreifa áhættunni sem mest er ákveð-
ið hámark sett varðandi kaup á skuldabréfum á einstaka
aðila og einungis keyptar skuldaviðurkenningar með
traustum tryggingum. Þess vegna er áhættudreifing í kaup-
um sjóða í umsjá félagsins að jafnaði þeim mun meiri eftir
því sem sjóðurinn stækkar. í dag er Verðbréfasjóðurinn hf,
útgefandi Kjarabréfanna, stærsti verðbréfasjóður landsins
að verðmæti 2,7 miljarðar króna.
Sérþekking starfsfólks Fjórfestingarfélagsins á fjárméla
markaðinum kemur því þúsundum landsmanna til géða!
FJÁRFESÍINGARFÉIAGIÐ
Hafnarstræti - Kringlunni - Akureyri
Aðili að Verðbréfaþingi íslands
Hlulhafar: Verzlunarbankinn, Eimskip, Tryggingamiðstöðin,
Lífeyrissjóður Verslunarmanna auk rúmlega 400 fyrirtækja og einstaklinga.
fjarmal þin - sergrein okkar
VISPRSQ