Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Blaðsíða 40
FD cr nr T /\ Ci jlc /T ”T" I -IT Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstförn - Augíýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 TiHögur viðskiptaráöherra: Biðleikur ef .engin sam- staða næst - segir Jón Baldvin „Þessi leið er áframhald á biðleikn- um og getur auðvitað orðið niður- staðan ef menn treysta sér ekki til róttækari aðgerða af pólitískum ástæðum ef ekki tekst samstaða milli stjómarflokkanna um róttækari að- gerðir sem gefa fyrirheit um varan- legri árangur," sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra um hugmyndir Jóns Sigurðssonar við- skiptaráðherra um annan kost við —“hlið niðurfærslunnar. í henni felst frysting launa og verðlags um nokk- urra mánaða skeið og lán til frysting- arinnar úr Verðjöfnunarsjóði og endurgreiðsla á söluskatti til grein- arinnar. „Auðvitað er heimurinn ekki svart-hvítur og auðvitað er allan tím- ann búið að vera að velta fyrir sér millileiðum. Þessi var meðal annars til umræðu á viðræðufundinum í gær. Hún hefur að undanfórnu vak- að í tali manna sera málamyndaleið. ^jíostir hennar eru þeir að framleng- ing verðstöðvunar mun þýða talsvert hraða lækkun verðbólgu. Hún við- heldur þá forsendum fyrir áfram- haldandi lækkun vaxta, þar með tal- inna raunvaxta. Efasemdir manna um hana eru fyrst og fremst um það að hún dugi ekki til að forða stöðvun fiskvinnslunnar nema meö meiri- háttar millifærslu. Ein tillagan er sú að lána frystingunni úr Verðjöfnun- arsjóði. Það bætir ekki stöðu greinar- innar þar sem um lánsfé er að ræða og er mjög umdeilt því frystingin á ekkert inni í sjóðnum. Verði um að ræða millifærslu úr ríkissjóði veikir það þá meginforsendu að tryggja jöfnuð í ríkisfjámálum. Þetta þýðir að í hugum sumra er millileiðin -^rysting launa, verðstöðvun og eitt- 'hvað minni gengisfelling. En það er leið sem gengur illa upp. En allt er þetta til skoðunar og engum leiðum hefur verið hafnað,“ sagði Jón Bald- vin. -gse LOKI Farið hefur fé betra.J Samkvæmt heimildum DV fóru bandalagsins.Samkomulagvarum isstjómlna í fyrri viku hafa al- flokksinsþarsemstaðanhefurver- alþýðubandalagsmennmeðtfibúna aðefmiðstióminfelldiþessatfilögu þýðubandalagsmenn verið ein- ið metin. Nú liggur Ijóst fyrir aö tfilögu á miðstjómarfund Alþýðu- þá gengju alþýðubandalagsmenn angraðir í miðstjóminni. Þeir hafa flokkurinn er tilbúinn tfi þess að sambandsins í morgun þess efnis ogþarmeðþauverkalýðsfélög,sem unnið bæði leynt og Ijóst gegn öllu fórna þeirri samstöðu sem veriö að miðstjómin hafhaði frekari þeir eru fulltrúar fyrir, út úr samráðiviöríkisstjómina.FuIltrú- hefur innan Alþýðusambandsins samráöi við ríkisstjómina. Þessi áframhaldandi samráöi. ar flokksins í miöstjóm Alþýöu- þaö sem af er þessum áratug. tfilaga hefúr verið mótuö í samráði Afit frá því aö miðstjómin sam- sambandsins hafa haldiö fiölda -gse við þingmenn og stjóm Alþýðu- þykktiaögangatUsamráðsviðrík- funda með þingmönnum og stjóm Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, hélt veislu að Bessastöðum til heiðurs Ólafi Noregskon- ungi. Þau sjást hér ásamt Þorsteini Pálssyni forsætisráðherra þiggja drykk með matnum en í aðalrétt var borinn fram lambahryggur með lerkisveppasósu. Áður um daginn hafði konung- ur einnig snætt á Bessastöðum en þá var framreidd rauðspretta með sjávarréttarfyllingu. í dag heldur Ólafur fimmti til Þingvalla og í Reykholt. Á Þingvöllum fær hans hátign að gæða sér á glænýjum þingvaliasilungi með ristuðum möndlum og drottningarsósu. DV-mynd Brynjar Gauti Veðrið á morgun: Hæg norð- austanátt Það veröur hæg norðaustanátt á landinu, lítilsháttar súld á Aust- urlandi en þurrt og bjart veður annars staðar. Hiti verður 6-8 stig á Norður- og Austurlandi en allt upp í 12 stig á Vestur- og Suð- urlandi. Þorsteinn Pálsson: Svolrtið sérstakt „Þetta er svolítið sérstakt því þegar stjómarflokkamir auka fylgi sitt hver fyrir sig þá missir stjómin sjálf stuðning samkvæmt þessari skoð- anakönnun," sagði Þorsteinn Páls- son forsætisráöherra. „En það er kannski eðli þriggja flokka stjómar að koma fram í þessu viðhorfi þegar á reynir.“ -JSS Svavar Gestsson: Sfjómin fer stöðugt hallloka „í niðurstöðum skoðanakönnunar um fylgi stjómmálaflokkanna, sem þið birtuð í gær, kom í ljós að um 44% voru óákveðin hvaö varðaði afstöðu til stjórnmálaflokkanna. Þessi könn- un sýnir aftur á móti að þessi 44%, sem ekki tóku afstöðu í gær, eru stjórnarandstæðingar. Þetta fólk á eftir að gera upp hug sinn um hvaða stjórnmálaflokki það ætlar að fylgja," sagði Svavar Gestsson, Al- þýðubandalagi, um niðurstöður skoðanakönnunar DV. „Úrshtin í þessari könnun sýna að ríkisstjórnin fer stöðugt hallloka þessa dagana. Auövitað ætti hún að draga rétta lærdóma af því hið allra fyrsta.“ -JSS Jón Baldvin Hannibalsson: Hvað annað? „Hvað annað? Það er afar fátt sem kemur mér á óvart þessa dagana, allra síst þetta,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson íjármálaráöherra. „Annars tek ég lítið mark á þessu.“ -JSS Kristín Einarsdóttir: Fastfylgi „Það er greinilegt að ríkisstjómin hefur eitthvert fast fylgi sem breytist ekki. Það væri fróðlegt að vita hvaða fólk þetta er. Ekki er það launafólk, svo mikið er víst,“ sagði Kristín Ein- arsdóttir, Kvennalista. „Annars er greinilegt að þeim fer fjölgandi sem snúast til andstöðu við ríkisstjómina, sem er mjög eðlilegt á þessum viðsjárverðu tímum, þegar hún vegur eingöngu að kjömm launafólks." -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.