Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Blaðsíða 40
FD cr nr T /\ Ci jlc /T ”T" I -IT
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstförn - Augíýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
TiHögur viðskiptaráöherra:
Biðleikur ef
.engin sam-
staða næst
- segir Jón Baldvin
„Þessi leið er áframhald á biðleikn-
um og getur auðvitað orðið niður-
staðan ef menn treysta sér ekki til
róttækari aðgerða af pólitískum
ástæðum ef ekki tekst samstaða milli
stjómarflokkanna um róttækari að-
gerðir sem gefa fyrirheit um varan-
legri árangur," sagði Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráðherra um
hugmyndir Jóns Sigurðssonar við-
skiptaráðherra um annan kost við
—“hlið niðurfærslunnar. í henni felst
frysting launa og verðlags um nokk-
urra mánaða skeið og lán til frysting-
arinnar úr Verðjöfnunarsjóði og
endurgreiðsla á söluskatti til grein-
arinnar.
„Auðvitað er heimurinn ekki
svart-hvítur og auðvitað er allan tím-
ann búið að vera að velta fyrir sér
millileiðum. Þessi var meðal annars
til umræðu á viðræðufundinum í
gær. Hún hefur að undanfórnu vak-
að í tali manna sera málamyndaleið.
^jíostir hennar eru þeir að framleng-
ing verðstöðvunar mun þýða talsvert
hraða lækkun verðbólgu. Hún við-
heldur þá forsendum fyrir áfram-
haldandi lækkun vaxta, þar með tal-
inna raunvaxta. Efasemdir manna
um hana eru fyrst og fremst um það
að hún dugi ekki til að forða stöðvun
fiskvinnslunnar nema meö meiri-
háttar millifærslu. Ein tillagan er sú
að lána frystingunni úr Verðjöfnun-
arsjóði. Það bætir ekki stöðu greinar-
innar þar sem um lánsfé er að ræða
og er mjög umdeilt því frystingin á
ekkert inni í sjóðnum. Verði um að
ræða millifærslu úr ríkissjóði veikir
það þá meginforsendu að tryggja
jöfnuð í ríkisfjámálum. Þetta þýðir
að í hugum sumra er millileiðin
-^rysting launa, verðstöðvun og eitt-
'hvað minni gengisfelling. En það er
leið sem gengur illa upp. En allt er
þetta til skoðunar og engum leiðum
hefur verið hafnað,“ sagði Jón Bald-
vin.
-gse
LOKI
Farið hefur
fé betra.J
Samkvæmt heimildum DV fóru bandalagsins.Samkomulagvarum isstjómlna í fyrri viku hafa al- flokksinsþarsemstaðanhefurver-
alþýðubandalagsmennmeðtfibúna aðefmiðstióminfelldiþessatfilögu þýðubandalagsmenn verið ein- ið metin. Nú liggur Ijóst fyrir aö
tfilögu á miðstjómarfund Alþýðu- þá gengju alþýðubandalagsmenn angraðir í miðstjóminni. Þeir hafa flokkurinn er tilbúinn tfi þess að
sambandsins í morgun þess efnis ogþarmeðþauverkalýðsfélög,sem unnið bæði leynt og Ijóst gegn öllu fórna þeirri samstöðu sem veriö
að miðstjómin hafhaði frekari þeir eru fulltrúar fyrir, út úr samráðiviöríkisstjómina.FuIltrú- hefur innan Alþýðusambandsins
samráöi við ríkisstjómina. Þessi áframhaldandi samráöi. ar flokksins í miöstjóm Alþýöu- þaö sem af er þessum áratug.
tfilaga hefúr verið mótuö í samráði Afit frá því aö miðstjómin sam- sambandsins hafa haldiö fiölda -gse
við þingmenn og stjóm Alþýðu- þykktiaögangatUsamráðsviðrík- funda með þingmönnum og stjóm
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, hélt veislu að Bessastöðum til heiðurs Ólafi Noregskon-
ungi. Þau sjást hér ásamt Þorsteini Pálssyni forsætisráðherra þiggja drykk með matnum en
í aðalrétt var borinn fram lambahryggur með lerkisveppasósu. Áður um daginn hafði konung-
ur einnig snætt á Bessastöðum en þá var framreidd rauðspretta með sjávarréttarfyllingu. í
dag heldur Ólafur fimmti til Þingvalla og í Reykholt. Á Þingvöllum fær hans hátign að gæða sér
á glænýjum þingvaliasilungi með ristuðum möndlum og drottningarsósu.
DV-mynd Brynjar Gauti
Veðrið á morgun:
Hæg norð-
austanátt
Það veröur hæg norðaustanátt
á landinu, lítilsháttar súld á Aust-
urlandi en þurrt og bjart veður
annars staðar. Hiti verður 6-8
stig á Norður- og Austurlandi en
allt upp í 12 stig á Vestur- og Suð-
urlandi.
Þorsteinn Pálsson:
Svolrtið
sérstakt
„Þetta er svolítið sérstakt því þegar
stjómarflokkamir auka fylgi sitt
hver fyrir sig þá missir stjómin sjálf
stuðning samkvæmt þessari skoð-
anakönnun," sagði Þorsteinn Páls-
son forsætisráöherra.
„En það er kannski eðli þriggja
flokka stjómar að koma fram í þessu
viðhorfi þegar á reynir.“ -JSS
Svavar Gestsson:
Sfjómin fer
stöðugt hallloka
„í niðurstöðum skoðanakönnunar
um fylgi stjómmálaflokkanna, sem
þið birtuð í gær, kom í ljós að um 44%
voru óákveðin hvaö varðaði afstöðu
til stjórnmálaflokkanna. Þessi könn-
un sýnir aftur á móti að þessi 44%,
sem ekki tóku afstöðu í gær, eru
stjórnarandstæðingar. Þetta fólk á
eftir að gera upp hug sinn um hvaða
stjórnmálaflokki það ætlar að
fylgja," sagði Svavar Gestsson, Al-
þýðubandalagi, um niðurstöður
skoðanakönnunar DV.
„Úrshtin í þessari könnun sýna að
ríkisstjórnin fer stöðugt hallloka
þessa dagana. Auövitað ætti hún að
draga rétta lærdóma af því hið allra
fyrsta.“ -JSS
Jón Baldvin Hannibalsson:
Hvað annað?
„Hvað annað? Það er afar fátt sem
kemur mér á óvart þessa dagana,
allra síst þetta,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson íjármálaráöherra.
„Annars tek ég lítið mark á þessu.“
-JSS
Kristín Einarsdóttir:
Fastfylgi
„Það er greinilegt að ríkisstjómin
hefur eitthvert fast fylgi sem breytist
ekki. Það væri fróðlegt að vita hvaða
fólk þetta er. Ekki er það launafólk,
svo mikið er víst,“ sagði Kristín Ein-
arsdóttir, Kvennalista.
„Annars er greinilegt að þeim fer
fjölgandi sem snúast til andstöðu við
ríkisstjómina, sem er mjög eðlilegt á
þessum viðsjárverðu tímum, þegar
hún vegur eingöngu að kjömm
launafólks." -JSS