Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Blaðsíða 35
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988. 35 Afmæli Einar Thoroddsen Einar Thoroddsen læknir, Þing- holtsstræti 17, Reykjavík, er fertug- urídag. Einar fæddist í Stokkhólmi en ólst upp í Reykjavík. Hann lauk stúd- entsprófum frá MR1968 og embætt- isprófi í læknisfræði 1975. Einar hefur starfað á Kleppsspítalanum, J3orgarspítalanum, St. Jósefsspítala, Landspítalanum, Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri bg var héraðs- læknir í {safjarðar- og Bolungarvík- urhéraði, auk þess sem hann starf- aði á háls-, nef-, og eyrnadeild á Sahlgrenska sjukhuset í Gautaborg og á Uddevalla í Svíþjóð. Einar hefur nú starfað á háls-, nef og eyrnadeild Borgarspítalans frá 1983. Hann var kennari í háls-, nef- og eymalækn- ingum við hjúkrunarskólann í Uddevalla 1979 og við Nýja hjúkr- unarskólann 1980. Sambýliskona Einars er Ingrid María Svensson, hjúkranarfræð- ingur við Landakotsspítala, f. í Malmö í Svíþjóð, 6.6.1956, dóttir Karl Vilhelm Solve Svensson, bók- haldara í Malmö, og konu hans, Siw Mand Gudrun, f, Ohlson, sölustjóra hjáPóstiog síma. Systkini Einars eru: Theodóra Thoroddsen, f. 5.3.1950, meinatækn- ir í Reykjavík, en hún áþrjú böm; Guðmundur Thoroddsen, f. 17.9. 1952, myndhstarmaður í París, en kona hans er Elísabet Gunnars- dóttir, arkitekt frá ísafirði, og Jón Thoroddsen, f. 15.2.1957, starfar við ritstörf í Reykjavík, en kona hans er Kristín Jónsdóttir, magister í spænskum bókmenntum og há- skólakennari. Foreldrar Einars voru Skúh Thor- oddsen, læknir í Reykjavík, f. 3.11. 1918, d. 23.8.1973, og kona hans, Drífa Viðar, cand. phil., bamakenn- ari og rithöfundur í Reykjavík, f. 5.3.1920, d. 19.5.1971. Föðurforeldar Einars voru Guð- mundur Thoroddsen prófessor og kona hans, Regina Magdalena Bene- diktsdóttir. Meðal systkina Guð- mundar var Skúh, lögfræðingur og alþingismaður; Kristín Ólína yflr- hjúkrunarkona Landsspítalans; Katrín, yfirlæknir og alþingismað- ur; Jón, lögfræðingur og skáld; Ragnhildur, kona Pálma Hannes- sonar, rektors og alþingismanns; Bohi borgarverkfræðingur og Sig- urður, verkfræðingur og alþingis- maður. Guðmundur var sonur Skúla Thoroddsen, alþingismanns og rit- stjóra, og konu hans, Theodóru Thoroddsen skáldkonu. Bræður Skúla vora: Þórður læknir, faðir Þorvalds, forstjóra í Reykjavík, og Emils tónskálds, Þorvaldur nátt- úrufræðingur og Sigurður verk- fræðingur, faðir Gunnars forsætis- ráðherra. Skúh var sonur Jóns Thoroddsen, sýslumanns og skálds í Haga, Þórð- arsonar og konu hans, Kristínar Ólínu Þorvaldsdóttur, alþingis- manns Sívertsen. Systir Drífu er Jórunn Viðar, tón- skáld og píanóleikari, móðir Katrín- ar Fjeldsted, læknis og borgarfull- trúa. Foreldrar Drífu voru Einar Viðar, bankaritari og söngvari í Reykjavík, ogkona hans, Katrín Jónsdóttir Norðmann, kaupmanns EinarThoroddsen. á Akureyri. Foreldrar Einars voru Indriði Einarsson, rithöfundur og alþingismaður, og kona hans, Martha María Guðjöhnsen. Eggert Benónýsson Eggert Benónýsson útvarpsvirki, Ljósalandi 16, Reykjavík, varð átt- ræðurígær. Eggert fæddist að Háafelh í Skorradal og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Hvítárbakkaskóla 1922-24. Eggert setti upp rafstöð að Háafelh 1928 og smíðaði útvarps- tæki um sama leyti. Hann starfaði sem útvarpsvirki á Viðgerðarstofu Útvarpsins frá 1932-42 og var for- stöðumaöur þar tvö síðustu árin. Eggert stofnaði Viðgerðarstofuna í Reykjavík 1942 og rak hana th 1972. Hann sat í stjóm Bridgefélags Reykjavíkur 1950T58, í stjórn Bridgesambands íslands 1955-63 og var forseti Bridgesambands íslands 1960-62. Kona Eggerts var Magnea Kjart- ansdóttir, f. 17.7.1907, d. 12.5.1979, dóttir Kjartans Vilmundarsonar frá Jaðri í Grýtubakkahreppi og Ingu Guðmundsdóttur frá Syðri-Greni- víkíGrímsey. Eggért og Magnea eignuöust tvær dætur. Þær era: Svala, f. 11.2.1937, bókari hjá Krabbameinsfélaginu, gift Baldri Einarssyni tæknifræð- ingi, og Erla, f. 18.1.1942, lyfjafræð- ingur hjá G. Ólafsson hf„ gift Ing- ólfi Antonssyni tæknifræðingi. Systkini Eggerts eru: Halldóra, f. 19.3.1899, en hún var lengst af bú- stýra á Reykjum í Lundarreykjadal; Helgi, f. 23.4.1900, b. og útgerðar- maður í Vestmannaeyjum, kvæntur Nönnu Magnúsdóttur frá Vestur- húsum í Vestmannaeyjum; Guðrún, f. 3.6.1901, gift Eiríki Þorsteinssyni frá Húsey, en þau bjuggu á Bakka- koti í Skorradal; Halldór, f. 5.4.1903, b. á Krossi í Lundarreykjadal, kvæntur Áslaugu Árnadóttur frá Lundi í Lundarreykjadal; Ólafur, f. 19.6.1907, kvæntur Sigríði Sigurðar- dóttur frá Gegnishólum en þau flutttu til Reykjavíkur um 1940 og stofnaði Ólafur Reykiðjuna sem hann rak til dauðadags. Foreldrar Eggerts voru Benóný Helgason, b. að Háafelh, £-29.2.1876, d. 2.6.1947, og kona hans, Guðný Magnúsdóttir, f. 30.12.1874, d. 18.11. 1963. Guðný var dóttir Magnúsar, b. á Stálpastöðum og Tungufelh, Egg- ertssonar, b. á Eyri í Flókadal, Gíslasonar, prests í Hítamesþing- um, Guðmundssonar. Bróðir Magn- úsar var Guðmundur, afi Guð- mundar Eggertssonar prófessors. Móðir Magnúsar var Guðrún, dóttir Vigfúsar Guðmundssonar, b. á Auðsstöðum í Hálsasveit, og konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur, systur Eggert Benónýsson. Jóns Hjaltahns, landlæknis og for- stöðumanns Læknaskólans, Jóns- sonar Hjaltalín, prests og skálds á Breiðabólstað á Skógarströnd, Oddssonar Hjaltalíns, lögréttu- manns að Reyðará, Jónssonar Hjaltahns sýslumanns. Móðir Jóns landlæknis var Gróa Oddsdóttir, prests á Reynivöhum, Þorvarðsson- ar. Benóný var sonur Helga, b. í Galtavík, Bjömssonar, Helgasonar, b. í Heyhölti á Landi, Erlendssonar. Helgi í Galtavík var bróðir Guð- bjarna, langafa dr. Sigmundar Guð- bjarnasonar rektors. Ásgeir Ragnar Þorsteinsson Ásgeir Ragnar Þorsteinsson sjó- maður, Brekkubraut 21, Akranesi, varð áttræður í gær. Ragnar fæddist í Eyrardal í Álfta- firði við Djúp og ólst upp við Álfta- fjörð, á Langeyri, í Hnífsdal og á Isafirði. Hann naut barna- og ungl- ingafræðslu, lærði síðar tungumál ogtókfiskimannaprófiðhiðmeira - frá Stýrimannaskólanum í Reykja- vík 1930. Eftir það var hann stýri- maður og skipstjóri á ýmsum skip- um og síðast á Venusi frá Hafnar- firði 1943, en þá hætti Ragnar sjó- mennsku og keypti jörðina Höfða- brekku í Mýrdal þar sem hann bjó ítuttuguogsexár. Ragnar sat í yfirskattanefnd í tíu ár, var formaður björgunarsveitar SVFÍ í tuttugu ár, formaður Hvammsdeildar Kaupfélags Skaft- felhnga í fjölda ára og í stjórn fram- sóknarfélags Vestur-Skaftfelhnga í fiölda ára, auk þess sem hann stund- aöi barnakennslu í fimm vetur og síðar einn vetur á Akranesi. Ragnar flutti í Kópavoginn þegar hann brá búi og stundaði þá banka- störf um skeið en flutti á Akranes 1981 og hefur stundað þar trhluút- gerð og húið þar síðan. Hann hefur skrifað tólf bækur, þar af eina ævisögu, skáldsögur, ævi- þætti og unglingabækur, auk um sextíu smásagna og ýmissa greina- skrifa í blöð og tímarit. Ragnar var sæmdur afreksbikar sjómanna- dagsins ásamt sveit sinni fyrir björgun 1962 og hann var sæmdur gihlmerki SVFÍ1983. Ragnar er þríkvæntur. Fyrsta kona hans var Guðrún Lilja Gísla- dóttir húsmóðir, f. 23.7.1909, dóttir Kristjaníu Bjarnadóttur og Gísla Árnasonar umsjónarmanns. Ragn- ar og Guðrún eignuðust sex börn og eru fimm þeirra á lífi. Börn þeirra: Reynir, lögreglumaður, flug- maður og útgerðarmaður í Vík, f. 16.1.1934; Þorsteinn Viðar, verk- stjóri hjá Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga, f. 1.10.1936; VaTdís innanhússarkitekt, f. 26.10.1939; Björk, f. 17.5.1944, d. 1963; Guðrún Salome, forstöðukona ehiheimhis- ins Heiðarbæjar á Kirkjubæjar- klaustri, f. 23.7.1945 og ína Sóley, myndlistarkona og kennari, f. 24.5. 1947. Ragnar og Guðrún skildu 1970. Önnur kona Ragnars var Matthhd- ur Edwald blaðamaður, f. 16.3.1909, d. 22.8.1975, dóttir Jóns Edwald, konsúls á ísafirði, og konu hans, Matthildar Lýðsdóttur. Þriðja kona Ragnars er Anna Soffía Hákonar- dóttir, dóttir Hákonar Halldórsson- ar, skipstjóra á Akranesi. Ragnar er elstur tíu systkina, sjö bræöra og þriggja systra. Tveir bræður Ragnars era látnir. Foreldrar Ragnars voru Þorsteinn 'Mikael Ásgeirsson, hátaformaður við Djúp, f. 6.2.1877, og kona hans, Rebekka, húsmóðir og saumakona, f. 15.11.1884, Bjarnadóttir, að Nesi í Asgeir Ragnar Þorsteinsson. Grunnavík, Jakobssonar, b, á Snæ- fiöllum, Tómassonar, b. á Nesi í Grunnavík og á Snæfiöllum, Ás- grímssonar Björnssonar. Þorsteinn var sonur Ásgeirs Páls- sonar, húsmanns á Tröð og að Eiði, og konu hans, Rannveigar Þórðar- dóttur, h. að Blámýrum, Þorsteins- sonar, aö Bakka í Árnarfirði, Þor- steinssonar. Ivar Björnsson ívar Björnsson vélstjóri, Síðumúla 21, Reykjavík, er sjötugur í dag. ívar fæddist á Hofsósi og ólst þar upp. Á sumrin dvaldi hann með for- eldrum sínum á Siglufirði. Fjórtán ára fór ívar fyrst á sjó með fóöur sínum og alla tíð síðan var sjó- mennska aðalstarf hans. Frá árinu 1939 var ívar vélstjóri og stýrimaður á fiskiskipum og togurum. Hann fór í Stýrimannaskólann og tók stýri- mannapróf hið minna. Árið 1940 kvæntist ívar Aðal- björgu Hjartardóttur frá Hvammi í Þistilfiröi. Hún er látin. Börn ívars og Aðalbjargar urðu átta en fimm eru á lífi. Tvö barn- anna dóu í bernsku en elsti sonur- inn, Ævar Rafn, drukknaði þegar Sigurfari fórst í Hornafiarðarósi þann 17. apríl 1971. Þau fimm, sem eru á lífi, eru: Björn Sigurður, býr á Hofsósi og er ívar Björnsson. borg, býr í Reykjavík og er gift Birni Gústafssyni. ívar átti tvo bræður, Sófanías og Kjartan Már, býr í Vestmannaeyj- um og er kvæntur Sigríði Óskars- dóttur; Indriði, býr í Reykjavík og er kvæntur Kristjönu Steinþórs- dóttur; Jónína, býr í Reykjavík og er gift Herði Jóhannessyni; Her- Hermann enþbir eru báðir látnir. Foreldrar ívars voru Bjöm Jóns- son sjómaöur, fæddur 11. september 1892, lést i apríl 1954, og Jónína Her- mannsdóttir, fædd 16. júlí 1893, lést ínóvemberl984. Litlalandi. Ölfnshrenni 85 ára Jórunn Helgadóttir, Hverfisgötu 35, Reykjavik. Helga Friðbjarnardóttir, Hraungerði 4, Akureyri. Fanney Gunnlaugsdóttir, Hafnargötu 50b, Bolungarvik. Sigurjón Guðjónsson, Einar Þorvarðarson, Reynihvammi 6, KópavogL 50 ára Efra-Holti, Stokkseyri. Lonní Jensíne Egilsson, 80 ára Unufelh 16, Reykjavík. Þórdis Guðrún Ániadóttir, Fjarðarstræti 21, ísafiröi. 40 ára _ Ólafur B. Snorrason, 75 ára Reynivöhum 8, Selfossi. Jóhann Jóhannsson, Kristin Sveinbjörnsdóttir, Þverhamri, Breiðdalshreppi. Hólalandi 20, Stöðvarhreppi. Sigríður Jónsdóttir, Hólavegi 33, Siglufirði. 70 ára Einar Otti Guðmundsson, Urðarvegi 16, ísafiröi. Guðriður Kristjánsdóttir, Fellsmúla 13, Reykjavík. Karl Steingrimsson, Hróaldsstöðum, Vopnafiarðar- hreppi. 60 ára Hverafold 96, Reykjavík. Jóhanna Ragnarsdóttii’, Regina Guðiaugsdóttir, Aðalgötu 24, Siglufirði. Siguröur Ingvarsson, Hjallabraut 43, Hafnarfirði. yíglundur Pálsson, Ólafsvegi 45, Ólafsfiröi. ÆTTFRÆÐINÁMSKEIÐ I þessari og næstu viku fara af stað ættfræðinámskeið í Reykjavík og standa í 7 vikur. Þátttakendur læra að taka saman ættartölu og niðjatal, fræðast um öruggar og fljótlegar leitaraðferðir og njóta fyrsta flokks aðstöðu til rannsókna á eigin ættum og frændgarði. Unnið verður úr fjölda heimilda um ættir þátttakenda, m.a. úr öllum manntölum 1703-1930, kirkjubókum og útgefnum ætt- fræðiverkum. Einnig er boðið upp á 5 vikna framhaldsnámskeið. - Ættfræðiþjónustan tekur að sér að rekja ættir fyrir einstaklinga og fjölskyldur, m.a. 4-6 ættliða ættartré á tilboðsverði. Nánari uppl. í síma 27101 kl. 9-19 daglega. ÆTTFRÆÐIÞJÓNUSTAN - SÍMI 27101.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.